Fréttablaðið - 20.10.2008, Blaðsíða 33
MÁNUDAGUR 20. október 2008 21
Paris Hilton er sögð hafa skemmt
sér konunglega síðastliðið
miðvikudagskvöld þar sem hún
sletti úr klaufunum með söngkon-
unni Christinu Aguileru og
bresku prinsunum William og
Harry.
Hópurinn eyddi bróðurparti
kvöldsins á skemmtistaðnum
Whiskey Mist í London, þar sem
Paris er sögð hafa reynt að fanga
athygli Harry með djörfum dansi.
Hann virtist hins vegar hafa
meiri áhuga á kærustu sinni
Chelsey Davy og Paris var ekki
skemmt, endaði á því að taka í
höndina á henni, standa upp og
yfirgefa staðinn.
Djammaði
með prinsum
David Beckham hefur hafið
framleiðslu á matvælum í
samstarfi við matvælafyrirtækið
Findus til að hvetja börn til að
borða hollari mat. Sjálfur segist
hann hafa mjög gaman af
eldamennsku og hann og konan
hans Victoria eldi reglulega.
Fótboltakappinn, sem er 33 ára,
hefur áður verið gagnrýndur
fyrir að auglýsa óhollan mat á
borð við Pepsi og Walker‘s-
kartöfluflögur, en nýju matvör-
urnar sem heita GO3 eiga að
innihalda Omega 3-olíur, heil-
hveiti og grænmeti. Þar á meðal
eru fiskifingur, eggjakökur og
núðlur sem munu vera til sölu í
kringum Wembley Stadium á
meðan íþróttaleikir standa yfir.
Beckham sel-
ur matvörur
FINNST GAMAN AÐ ELDA David Beck-
ham finnst gaman að elda og hvetur nú
börn til að borða hollari mat.
Tvær nýjar heimildarmyndir um
Sigur Rós verða sýndar í kvik-
myndahúsinu Odeon í Covent
Garden í London 10. nóvember.
Sama dag kemur út í Bretlandi
nýtt smáskífulag, Við spilum
endalaust. Í fyrri heimildarmynd-
inni er hljómsveitinni fylgt eftir á
ferðalagi um Ísland, London,
Bandaríkin og Mexíkó. Í hinni
síðari er fjallað um upptökur á
laginu Árabátur sem var tekið
upp í Abbey Road-hljóðverinu
með aðstoð sextíu manna
strengjasveitar og tuttugu manna
kórs. Viðhafnarútgafa af plötu
Sigur Rósar með myndunum
tveimur og ljósmyndabók kemur
svo út 17. nóvember. Fyrst heldur
sveitin í tónleikaferð um Bretland
sem hefst 4. nóvember. - fb
Sýna tvær
nýjar myndir
SIGUR RÓS Tvær nýjar heimildarmyndir
um Sigur Rós verða sýndar í London 10.
nóvember. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Það er ekki annað hægt að segja en
að maður hafi hlakkað til að sjá
stórleikarana Al Pacino og Robert
De Niro leiða hesta sína saman á ný
í Righteous Kill. Áður léku þeir
saman í Heat og þar áður í The God-
father Part II, án þess að eiga eina
einustu senu saman. Báðar fyrr-
nefndar myndir eru meðal bestu
kvikmynda sem gerðar hafa verið.
Síðastliðin ár hefur hallað undan
fæti hjá þeim félögum en þrátt
fyrir það hefur maður haldið í von-
ina um að þeir sýni á ný gamla
takta. Hvað þá að þeir sameini
krafta sína.
Í Righteous Kill fara félagarnir
með hlutverk reynslubolta í lög-
reglunni í New York og eru þeir á
slóð fjöldamorðingja sem tekur
lögin í sínar eigin hendur, nema að í
upphafi myndarinnar viðurkennir
karakter De Niros að hann sé
fjöldamorðinginn – eða hvað?
Jon Avnet leikstýrir hér handriti
Russell Gewirtz, sem skrifaði hina
frábæru Inside Man. Ólíkt fyrr-
nefndri mynd er Righteous Kill
fljótfærnislega gerð og flétta
myndarinnar er hrikalega fyrirsjá-
anleg og hallærisleg. Það fer meiri
tími í að sýna kynlífsþorsta karakt-
ers De Niros en sjálf morðin í
myndinni.
Bæði Pacino og De Niro fara með
ágætum með hlutverk sín þótt þeir
séu þreyttir og ræfilslegir í þess-
um stöðluðu lögregluhlutverkum
sem þeir hafa oftar en tvisvar sinn-
um farið með áður. Vel heppnaðir
frasar eru látnir fljúga og eru þeir
hörðustu mennirnir á götunum.
Þetta tækifæri, að gera vandaða
og góða mynd með Pacino og De
Niro, hefur runnið úr greipum
Avnets og Gewirtz. Þetta gæti hafa
orðið fínasti spennutryllir þar sem
hugmyndin í sjálfu sér er ekkert
galin, en framkvæmdin er það svo
sannarlega.
Vignir Jón Vignisson - Topp5.is
Gamlir og þreyttir
KVIKMYNDIR
Righteous Kill
Leikstjóri: Jon Avnet. Aðalhlut-
verk: Al Pacino, Robert De Niro.
★★
Pacino og De Niro eru ágætir en
myndin er slöpp.
„Mér datt þessi nöfn allt í einu í
hug og nefndi folöldin bara í
hvelli,“ segir Sveinbjörn Bene-
diktsson, fyrrverandi hrossabóndi,
sem selur folöldin Kreppu, Krappa,
Djörfung og Dáð á 60 þúsund krón-
ur hvert.
„Eitt árið nefndi ég öll folöldin
með nöfnum sem byrja á D og ein-
hvern tíma nefndi ég eftir heims-
þekktum tónlistarmönnum. Ég hef
frekar frjótt ímyndunarafl og útbý
stundum svona skemmtilegar aug-
lýsingar að fólki finnst. Mestu við-
brögðin fékk ég þegar ég auglýsti
101 hross til sölu, því fólk skildi
ekkert í þessu eina hrossi. Ég var
stórhrossabóndi í eina tíð en vinn
nú hjá byggingafyrirtæki í bænum.
Ég á ekki nema sex merar eftir og
þetta eru fallegustu folöldin,“
útskýrir Sveinbjörn sem kveðst þó
aldrei hafa fengið eins lítil við-
brögð við auglýsingum sínum og
nú.
„Það er allt gjörsamlega dautt.
Það er samdráttur í öllu og ég hef
aldrei fengið eins lítil viðbrögð. Ég
er 64 ára gamall og hef aldrei horft
upp á svona slæma þróun í pen-
ingamálum, sem snertir öll heimili
í landinu. Það bjargar mér bara að
ég er frekar bjartsýnn og brosmild-
ur, annars væri ég sjálfsagt löngu
dauður,“ segir Sveinbjörn að lokum
og hlær. - ag
Selur kreppufolöld
MEÐ FRJÓTT ÍMYNDUNARAFL Sveinbjörn selur nú fjögur folöld sem hann nefndi
Kreppu, Krappa, Djörfung og Dáð. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON