Fréttablaðið - 26.10.2008, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
SUNNUDAGUR
26. október 2008 — 293. tölublað — 8. árgangur
ÞAÐ ÞARF AÐ HUGSA ALLA HLUTI UPP Á NÝTT
Emilíana Torrini biðlar
til Gordons Brown
Metnaðarfull og hipp og kúl
VICKY HEIMSFRÆG
FYRIR NÆSTU HELGI
Opið 13–18
SKOÐANAKÖNNUN „Miðað við það
sem hefur gengið á eru furðulitlar
breytingar,“ segir Ólafur Þ. Harðar-
son, prófessor í stjórnmálafræði,
um niðurstöður nýrrar skoðana-
könnunar Fréttablaðsins. „Það er
sérstaklega athyglisvert að tveir
stjórnarandstöðuflokkanna fara
niður.“ Ólafur bendir á að staða
flokkanna gæti breyst, verið gæti
að fólk sé ekki búið að átta sig á
stöðunni og breytingarnar gætu
því orðið meiri þegar fram í sækir.
Samkvæmt könnuninni dalar
fylgi Framsóknarflokksins, Frjáls-
lynda flokksins og Sjálfstæðis-
flokksins. Fylgi Samfylkingar og
Vinstri grænna eykst. Segjast 6,6
prósent nú myndu kjósa Framsókn-
arflokkinn og fengi flokkurinn því
fjóra þingmenn kjörna, í stað þeirra
sjö sem hann hafa nú. Styðja 29,2
prósent Sjálfstæðisflokkinn sem
fengi 20 þingmenn kjörna, en hafa
nú 25. Frjálslyndi flokkurinn
mælist nú með 4,1 prósents fylgi,
en þar sem hann nær ekki fimm
prósenta markinu reiknast engir
þingmenn á hann, en fjórir eru nú í
þingflokknum. Segjast 36,0 prósent
myndu kjósa Samfylkinguna, sem
fengi 24 þingmenn, í stað 18 nú. Þá
styðja 23,0 prósent Vinstri græn og
yrðu þingmenn flokksins því
fimmtán í stað níu nú.
Ef litið er til allra 800 sem hringt
var í segjast nú 30,5 prósent óákveð-
in, en það hlutfall hefur aukist frá
því í janúar þegar 20,5 prósent var
óákveðin. Þá hefur hlutfall þeirra
sem segjast myndu skila auðu eða
kjósa ekki aukist úr 6,5 prósent í
janúar í 12,3 prósent nú.
Stuðningur við ríkisstjórnina
hafði farið niður í 51,5 prósent í
könnun blaðsins í júní úr 71,9 pró-
sentum í febrúar. Nú segist hins
vegar rúmlega 41 prósent styðja
ríkisstjórnina, en tæp 59 prósent
gera það ekki.
Ríkisstjórnin er því að fá veru-
lega minni stuðning en ríkisstjórn-
arflokkarnir, en samanlagt fylgi
þeirra er 65,2 prósent. „Spurningin
um ríkisstjórnina er næmari. Þessi
áföll hafa leitt til þess að stuðning-
urinn við stjórnina er minni, en
óánægjan er ekki það mikil að fólk
yfirgefi sinn flokk,“ segir Ólafur.
- ss / sjá síðu 4
Samfylking og VG styrkjast
36 prósent segjast styðja Samfylkingu og 29 prósent styðja Sjálfstæðisflokk í nýrri könnun Fréttablaðsins.
Vinstri græn bæta mestu við sig frá síðustu könnun og hafa nú 23 prósenta fylgi. Tæp sjö prósent styðja nú
Framsóknarflokk og rúm fjögur prósent myndu kjósa Frjálslynda flokkinn, væri gengið til kosninga nú.
VEÐRIÐ Í DAG
22
HVASSAST EYSTRA Í dag verða
norðvestan 15-20 m/s NA- og A-til,
annars víða 8-13 m/s. Úrkoma
NA-til fram eftir degi. Skýjað með
köflum V-til og úrkomulítið. Hiti um
og undir frostmarki.
VEÐUR 4
-2
-2
1
0
0
16
matur[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MAT ]október 2008 Villibráð að hætti Hótels FlúðaHeiðagæs á bláberjarauðkáliHollustukökur Magneu Davíðsdóttur Hveitikímkökur sem gott er að frystaKristín Einarsdóttir eldar fi skbollur Góðar í kreppunni
Vetr f ð
B
6,6%
7
4K
os
n.
D
29,2%
25
20Ko
sn
in
ga
r
S
36,0%
18
24
Ko
sn
in
ga
r
V
23,0%
9
15
Ko
sn
in
ga
r
FYLGI STJÓRNMÁLAFLOKKA
Hvaða lista myndir þú kjósa ef geng-
ið yrði til kosninga nú?
Skoðanakönnun Fréttablaðsins 25. októb-
er 2008 - fjöldi þingmanna og fylgi (%)
F
4,1%
4
Ko
sn
.
0
FYLGIR Í DAG
KLÁRAR Í SLAGINN
Kvennalandslið
Íslands mætir Írlandi
í mikilvægum leik í
dag.
ÍÞRÓTTIR 19
Allt sem þú þarft... ...alla daga
Fréttablaðið er með 116%
meiri lestur en Morgunblaðið.
33,47%
72,34%
Fr
ét
ta
bl
að
ið
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgarsvæðið
18–49 ára. Könnun Capacent í maí–júlí 2008.
SAMFÉLAGSMÁL „Mér finnst eins og
það vanti sjálfstraust í okkur
Íslendinga,“ sagði Björk Guð-
mundsdóttir tónlistarmaður í
umræðum sem Fréttablaðið stóð
fyrir um ástand mála í þjóðfélag-
inu.
Sagði hún tíma til kominn að við
hættum að reiða okkur á aðra og
færum að treysta meira á okkur
sjálf, ekki ólíkt því sem hún gerði.
„Ég sé til dæmis ekkert eftir því að
hafa stofnað þessar hljómsveitir
sem enginn skildi nokkuð í þegar
ég var 16 ára frekar en að vera í
einhverju U2-coverbandi eins og
þá tíðkaðist og bíða eftir því að
frægðin bankaði upp á.“ Ari Trausti
Guðmundsson, jarðfræðingur og
rithöfundur, var
sama sinnis.
Hún sagði enn
fremur að reglu-
verkið hér á
landi væri afar
þungt í vöfum
og gerði sprota-
fyrirtækjum
erfitt fyrir, því
þyrfti að breyta
svo landið missi
slík fyrirtæki ekki úr landi.
Hilmar Veigar Pétursson, fram-
kvæmdastjóri CCP, var ómyrkur í
máli þegar talið barst að stjórn-
völdum en sá tækifæri í stöðunni
sem upp er kominn. „Nú eru bank-
arnir farnir svo þá er loks hægt að
fara að gera eitthvað,“ sagði hann.
Hann sagði eins og Jónas Haralz,
fyrrum bankastjóri og efnahags-
ráðgjafi, að eina leiðin væri að
ganga í ESB.
María Huld Markan Sigfúsdóttir
tónlistarmaður sagðist frekar von-
ast eftir hugarfarsbreytingu hjá
þjóðinni „heldur en einhverjum
nýjum prins á hvítum hesti sem
kæmi til að leysa bankana af“. Hún
sagði unga fólkið vel í stakk búið til
að takast á við breytta tíma en
kannski ætti fólk frekar að hafa
áhyggjur af ráðamönnum sem
ættu aðeins orðin „fiskur“ og „ál“ í
orðaforða sínum þegar kæmi að
því að ræða um lausnir.
- jse / sjá síðu 10
Popparar, fræði- og athafnafólk deildu framtíðarsýn sinni með Fréttablaðinu:
Þjóðin þarf hugarfarsbreytingu
BJÖRK
GUÐMUNDSDÓTTIR
SLYS Karlmaður sem var á ferð
ásamt barnabarni sínu slapp
ótrúlega vel þegar bíll þeirra
skall harkalega á fellihýsi á
Kjalarnesi síðdegis í gær.
Fellihýsið splundraðist við
áreksturinn sem varð skammt
frá bænum Esjubergi.
Tildrög slyssins eru þau að
fellihýsi sem jeppi dró í norður-
átt fauk í veg fyrir tvo fólksbíla
sem kom aðvífandi úr gagn-
stæðri átt. Ökumanni hins
bílsins tókst með naumindum að
sveigja hjá og slapp hann
ómeiddur. Brak úr hjólhýsinu
dreifðist á víð og dreif um
svæðið en mjög hvasst var þegar
slysið varð.
Litli drengurinn slapp ómeidd-
ur en afinn hlaut mar og sár
eftir glerbrot. Báðir voru
útskrifaðir í gærkvöld. - hhs
Afadrengur slapp ómeiddur:
Fellihýsi fauk í
veg fyrir bíla á
Kjalarnesi
HEITT Í HAMSI Fjöldi fólks safnaðist saman á Austurvelli í gær undir yfirskriftinni „rjúfum þögn ráðamanna og göngum til lýð-
ræðis“. Var síðan gengið á mótmælafund við Ráðherrabústaðinn en þar báru menn eld að fána merktum Landsbankanum
meðan fólkið hrópaði „brennum bankana“. Fleiri en fundarmenn urðu vitni að því; bandaríska fréttastofan CNN sýndi frá þessu á
vef sínum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM