Fréttablaðið - 26.10.2008, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 26.10.2008, Blaðsíða 2
2 26. október 2008 SUNNUDAGUR Sýningin er opin alla daga frá 10–17 Aðalstræti 16 101 Reykjavík www.reykjavik871.is Lífið á landnámsöld SAMFÉLAGSMÁL „Á snöggu auga- bragði hrundi svo margt sem keik- ast stóð í hinni hraustu, nýju veröld hnattvæðingarinnar,“ sagði Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, í ræðu sinni við setningu kirkjuþings í Grensáskirkju í gær. Hann sagði jafnframt að nú væri tækifæri til endurmats og endur- skipulagningar sem síðan leiddi til frekari trúrækni. „Nú fá ríki heims og fjármálastofnanir og einstak- lingar tækifæri til að endurmeta og endurskipuleggja með visku, hag- sýni, hófsemi og umhyggju að leið- arljósi,“ sagði hann. „Hvar er þeim gildum helst miðlað? Við teljum okkur vita það. Í iðkun og uppeldi trúar, vonar og kærleika.“ Hann sagði enn fremur að erfið- leikar íslensku þjóðarinnar um þessar mundir væru umfram allt auðsældarkreppa en ekki ör birgðar og mikilvægt fyrir Íslendinga að gleyma ekki þeim sem búa við örbirgð í heiminum. „Sannarlega erum við vellauðug í samanburði við þau sem vart hafa til hnífs og skeiðar, og sem er hlutskipti milljóna barna víða um heim. Okkar er að gleyma þeim aldrei og rétta fram hjálparhönd líka og ekki síður þegar við finnum að okkur þrengt í lífskjörum.“ - jse Biskup Íslands ræddi um efnahagsástandið við setningu kirkjuþings í gær: Tækifæri til að endurmats KARL SIGURBJÖRNSSON Þó að Íslendingar eigi í erfiðleikum nú mega þeir ekki gleyma þeim sem búa við örbirgð í heiminum, segir biskup Íslands. LONDON, AP Viðskiptaráðherra Bretlands, Peter Mandelson, þvertekur fyrir að hafa gengið erinda rúss- neska auð- mannsins Olegs Deripaska þegar hann var að semja um tolla fyrir hönd Evrópusam- bandsins. Mand- elson gegndi áður starfi framkvæmdastjóra viðskipta- mála. Mandelson hefur meðal annars verið gagnrýndur fyrir að hafa átt fundi með Deripaska á lúxus- snekkju hans á sama tíma og að hann var að vinna að stefnumótun fyrir sambandið. - hhs Viðskiptaráðherra Bretlands: Neitar áhrifum frá auðmanni HEILBRIGÐISMÁL Landlæknisemb- ættið og fræðimenn hjá Háskóla Íslands ætla að rannsaka áhrif efnahagslægðarinnar á heilsufar Íslendinga að sögn Matthías- ar Halldórsson- ar aðstoðar- landlæknis. „Það verður meðal annars fylgst með breytingum á lyfjanotkun. Það er þekkt að þrengingar geta valdið miklu andlegu álagi og svefnleysi. Langvarandi atvinnu- leysi hefur til dæmis yfirleitt mjög slæm áhrif á heilsufar,“ segir Matthías sem kveður ekki hafa orðið vart við aukna notkun geðlyfja eða aukna aðsókn að geðdeildum. „En við höfum séð aukningu hjá hjartadeildum sem bendir til þess að það sé eitthvert stress í gangi.“ - gar Háskólinn og landlæknir: Rannsaka áhrif kreppu á fólk MATTHÍAS HALLDÓRSSON DÝRAHALD Fimm hross verða boðin upp á nauðungaruppboði hjá sýslumanninum á Akureyri bráðlega. Þetta er nokkuð óvenjulegt, ekki síst fyrir þær sakir að í hópnum er sextán vetra stóðhestur. „Það hefur komið fyrir að gert hefur verið fjárnám í hrossum,“ segir Björn Jósef Arnviðarson sýslumaður. „Í þessu tilviki er það trúlega þannig að einhver hefur bent á þessa hesta til tryggingar tiltekinni kröfu. Þetta er ekki vegna veðsetningar eða slíks heldur fjárnám í lausafé. Eins og sumir benda á jeppann sinn, þá benda aðrir á hestinn sinn.“ - jss Óvenjulegt uppboð: Stóðhestur í nauðungarsölu LÖGREGLUMÁL „Það versta við þetta allt saman er að þeir tóku tölvuna mína. Allt mitt líf er í þessari tölvu,“ segir Elísabet Ásberg listakona. Brotist var inn í gallerí Elísabet- ar á Hverfisgötu 52 fyrir helgi. Þjófarnir eyðilögðu lítið sem ekk- ert, heldur fóru vel og vandlega í gegnum alla munina og völdu úr gripi. Meðal þess sem þeir tóku með sér voru skartgripir, listaverk, verkfæri og vinnuvélar. Ljóst er að tjón Elísabetar er mikið. Það persónulega þykir henni sýnu verra, enda ómögulegt að bæta það. Meðal annars tóku þjófarnir forláta stokkabelti sem var í eigu ömmu Elísabetar. Í tölvunni var svo meðal annars öll hennar hönnun frá upphafi og myndir af börnunum hennar frá fæðingu. Hún á ekki afrit af þeim gögnum. Elísabet kom ekki á svæðið fyrr en um hálfellefu á fimmtudags- morgun. Stóð þá hurðin galopin, gluggi var brotinn og glerbrot á víð og dreif. Enginn hafði hins vegar haft samband við hana. Galleríið stendur á horni Vatnsstígs og Hverfisgötu. „Mér finnst ótrúlegt að enginn hafi tekið eftir þessu, enda nokkuð fjölfarinn staður. En ég vil ekki trúa því að fólk láti sig engu varða þegar það gengur fram á svona lagað.“ - hhs Þjófar létu greipar sópa í galleríi listakonunnar Elísabetar Ásberg: Óbætanlegt persónulegt tjón ELÍSABET ÁSBERG LISTAKONA Varð fyrir óbætanlegu tjóni þegar þjófar brutust inn í gallerí hennar. FRÉTTABLAÐIÐ / ARNÞÓR VEÐUR Norðlendingar máttu þola flóð bæði úr fjalli og fjöru um helgina. Um klukkan hálffjögur keyrðu tveir bílar með stuttu milli- bili í snjóflóð sem fallið hafði á veginn við Sauðanes milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar. Blindbylur var svo mikill að ökumenn sáu ekki flóðið. Bíl- arnir voru svo kirfilega fastir að björgunar- sveitarbíll dugði ekki til að losa þá svo þeir urðu ekki lausir fyrr en snjóblásari hafi farið í gegnum flóðið. Ekki urðu slys á fólki. Í fyrrinótt var sjávarstaða svo há að sjór flæddi yfir bryggjur í miklu rokviðri á Siglufirði og Húsavík. Að sögn Þóris Kristins Þórissonar, bæjarstjóra Fjalla- byggðar, flæddi að minnsta kosti inn í eitt íbúðarhús á Siglufirði en þar sem og á Húsavík flæddi inn í atvinnuhúsnæði við höfnina. Sjálf- ur komst bæjarstjórinn í hann krappan um klukkan hálfátta í fyrrakvöld. „Ég var niðri á höfn að athuga með skemmdir á hafnar- voginni og lagði bílnum rétt hjá meðan ég skaust út þeirra erinda,“ segir hann. „Augnabliki síðar sé ég að sjórinn nær upp að hurðum bílsins. Mér leist náttúrlega ekk- ert á blikuna því konan og hundur- inn voru inni í bílnum. Þetta er Land Cruiser-jeppi svo það þarf dánokkurn sjó svo hann fari upp að hurðum.“ Hann segir að enn eigi eftir að kanna frekar skemmdir við hafn- arsvæðið en segir ljóst að þær séu þó nokkrar. Bátaeigendur höfðu í nógu að snúast til að varna því að bátar þeirra flytu upp á bryggju. Eftir að snjóflóðin féllu við Sauðanes var veginum milli Ólafs- fjarðar og Dalvíkur lokað vegna hættu á fleiri flóðum. Lögreglan á Ólafsfirði lýsti yfir nokkrum áhyggjum af þeim sökum en fjöl- mennur mannfagnaður fór fram í gærkvöldi og vakthafandi læknir var á Dalvík. „Við frestum aldrei fjöri hér á Ólafsfirði,“ segir Eggert Friðriks- son, forstöðumaður samkomu- hússins Tjarnarborgar, en útlit var fyrir það um tíma að fresta yrði vetrarfögnuðnum. „Við þurft- um reyndar að redda nýjum veislustjóra og einum söngvara í viðbót í bandið en þá var það líka bara gert.“ jse@frettabladid.is Flóð úr fjalli og fjöru á Norðurlandi Sjór flæddi yfir bryggjur á Siglufirði og Húsavík í fyrrinótt og tveir bílar keyrðu inn í snjóflóð á veginum milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar í gærdag. Bæjarstjóri Fjallabyggðar og kona hans voru hætt komin við höfnina. FLÓÐ Á SIGLUFIRÐI Sjór flæddi yfir göturnar við höfnina á Siglufirði í fyrrakvöld. MYND/GUNNLAUGUR GUÐLEIFSSON ÞÓRIR KRISTINN ÞÓRISSON VIÐSKIPTI Kristín Pétursdóttir, forstjóri Auðar Capital, hafnaði boði um að verða bankastjóri Nýja Kaupþings. Þetta sagði hún í Markaðnum á Stöð 2 í gær. Sagðist Kristín vera ánægð í starfi sínu hjá Auði Capital, því hefði hún ekki þegið boðið. Hefði Kristín þegið starfið myndu konur nú stjórna öllum viðskiptabönkunum þremur, Kaupþingi, Glitni og Landsbankanum. Upphaflega stóð til að laun bankastjóra Nýja Kaupþings væru 1.950 þúsund krónur á mánuði, en verða 1.750 þúsund, eftir lækkun til samræmis við bankastjóra Glitnis. Lækkunin er að ósk Finns Sveinbjörnssonar bankastjóra. - hhs Var boðinn bankastjórastóll: Sagði nei takk KRISTÍN PÉTURSDÓTTIR PETER MANDELSON Ólafur, er þetta þorskhausa- stríð? Brown, þorskhaus … þú segir nokk- uð. En við skulum ekki gleyma því að við elskum Breta. Ólafur Elíasson er einn af þeim sem standa að vefsíðunni indefence.is en þar er verið að kynna málstað Íslendinga í deilunni við Breta. Ólafur sagði í Frétta- blaðinu í gær að við Íslendingar myndum vinna það stríð. SNJÓFLÓÐ VIÐ SAUÐANES Snjóflóð eru tíð við Sauðanes, þessi mynd er tekin síðastliðinn vetur. ÞÝSKALAND, AP Þýsk stjórnvöld ætla ekki að taka í notkun nýja líkamsleitartækni á flugvöllum, þrátt fyrir að Evrópusambandið hafi heimilað notkun hennar. Röntgentækni er notuð til að lýsa í gegnum föt farþega, þannig að á skjá birtist mynd af nöktum líkama þeirra. Tilraunir hafa verið gerðar með þetta á flugvöll- um í Bretlandi og Hollandi. Gabriela Hermani segir að þýsk stjórnvöld vilji „ekki taka þátt í þessum ófögnuði“. Almenn andstaða er við þessa tækni í Þýskalandi, þar sem hún þykir brjóta gróflega gegn persónu- verndarlögum. - gb Nektarskannar á flugvöllum: Þjóðverjar taka slíkt ekki í mál SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.