Fréttablaðið - 26.10.2008, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 26.10.2008, Blaðsíða 33
SUNNUDAGUR 26. október 2008 Sólveig Eggertz sýnir akrýlmyndir í menningarsal Hrafnistu við Laugarás. Sýningin er opin alla daga og stendur til 10. nóv. ➜ Tónlist Söngbók Engel Lund Dagskrá til heið urs Engel Lund (Göggu) í Íslensku Óper unni. 18.00 Uppákoma í anddyri Óperunn- ar þar sem vinir og velunnarar minnast hennar í nokkrum orðum. Sýnt verður úr heimildarmynd um Göggu auk persónulegra muna. 20.00 Tónleikar til minningar Engel Lund. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is Svo virðist sem skilnaður Madonnu og Guys Ritchie verði á borðstólum breskra slúðurblaða langt fram eftir vetri. Og skilnaðurinn virðist taka á sig æ ljótari mynd með degi hverjum. Breska götublaðið The Sun hefur farið fremst í fréttaflutningi af fyrrum hjónakornunum. Blaðið hélt því fram á vefsíðu sinni að Madonna þyrfti á einhvers konar meðferð að halda til að hemja reiði sína. Hefur The Sun eftir heimild- armönnum sínum að hún ætli að fljúga til New York eftir tónleika sína í Montreal til að njóta leið- sagnar hjá andlegum leiðtoga sínum í Kabbalah-söfnuðinum. Og fá um leið leiðbeiningar hvernig hún geti haft stjórn á þeirri bræði sem virðist hafa blossað upp innra með henni eftir skilnaðinn. The Sun segir að Madonnu sárni mest þær fjárhagslegu kröfur sem Guy hafi sett fram og ekki síst þau trúnaðarskjöl sem lekið hafi til fjölmiðla um samband þeirra. En þar hefur meðal annars komið fram að þau hafi ekki stundað samfarir í átján mánuði. Madonna á að hafa sagt við nána samstarfsmenn sína að Guy hafi fjarlægst sig tilfinn- ingalega eftir að hún féll af hest- baki og slasaðist nokkuð alvarlega árið 2005. Mun sú langa vegalengd í tilfinningalífinu hafa orðið til þess að Madonna sendi fyrrum eigin- manni sínum tóninn á tónleikum nýverið og sagði hann vera nánast tilfinningalega þroskaheftan. Ekki er víst að Guy muni njóta mikilla vinsælda í Bandaríkjunum vegna skilnaðarins en hann virðist eiga traust bakland í Bretlandi. Þannig hefur Guy lagt mikið upp úr því að sýnast glaður og ham- ingjusamur. Hann mætti bæði ham- ingjusamur og brosmildur í stórt og mikið partí sem haldið var á vegum Sam Taylor-Wood-sýningar- salsins. Þar voru hvorki meira né minna en Daniel Craig og Robert Downey Jr. Það verður að teljast heldur gott að njóta verndar James Bond og Ironman frá sjálfri Madonnu. Skilnaður að hætti McCartneys MISMUNANDI VIÐBRÖÐG Guy hefur lagt mikið upp úr því að vera brosmildur og ánægður að undanförnu. Madonna heldur sig hins vegar á námskeiðum hjá Kabb- alah-trúarsöfnuðinum um hvernig megi hafa hemil á reiðinni. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Sunnudagur 26. október ➜ Tónleikar 15.00 Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari verður með tónleika í Tón- listarhúsinu Laugarborg í Eyjafjarðar- sveit. ➜ Sýningar Suðuramerísk menningarhátíð í Kópa - vogi 15.00 Ekvador að fornu og nýju. Leið- sögn verður um sýninguna í Gerðar- safni, Hamraborg 4. ➜ Síðustu Forvöð Myrkurlampi Sýning Haraldar Jónssonar í Listasafni ASÍ lýkur í dag. Af því tilefni munu Kristín Ómarsdóttir, Hjálmar Sveins son og Sjón lesa upp úr verkum sínum kl. 16.00. Listasafn ASÍ, Freyju götu 41, opið 13.00-17.00. Hvaðan koma þær – hvert fara þær? Guðmunda Kristinsdóttir sýnir verk í Reykjavík Art Gallerý, Skúlagötu 30. Opið 14.00-17.00. Sýningin stendur til 26. okt. ➜ Bækur 16.00 Erpur Eyvind arson fjallar um Atóm stöðina, bók Halldórs Laxness, í Gljúfrasteini - húsi skáldsins. Að gangur ókeypis og allir velkomnir. ➜ Uppákomur Dagur raddarinnar verður haldinn í Gerðu bergi í samstarfi við Félag ís - lenskra tónlistamanna og félag ís lenskra söngkennara, kl. 13.50-17.30. Menningarmiðstöðin Gerðuberg, Gerðu bergi 3-5. ➜ Myndlist 14.00 Sigurður Örlygsson leiðir gesti um sýninguna „Ást við fyrstu sýn: Ný að föng úr Würth safninu“ í Listasafni Íslands, Laufásvegi 12. Opið 11.00 – 17.00. 15.00 Listamaðurinn Bragi Ásgeirs- son og Sigurlaug Ragnarsdóttir verða með leiðsögn um sýninguna Augnasinfónía á Kjarvalsstöðum v/ Flóka götu. Opið 10.00-17.00. my best friend’s girl danecook katehudson jasonbiggs and alecbaldwin Vi nn in ga r v er ða a fh en di r h já B T Sm ár al in d. K óp av og i. M eð þ ví a ð ta ka þ át t e rt u ko m in n í S M S kl úb b. 1 49 k r/ sk ey tið . A STEVEN SPIELBERG FILM OKT ÓBE R23. HVERVINNUR! 9. Dreyfingaraðili

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.