Fréttablaðið - 26.10.2008, Blaðsíða 12
12 26. október 2008 SUNNUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Dagurinn í dag verður tileinkaður
röddinni með dagskrá í Menningar-
miðstöðinni Gerðubergi frá klukk-
an 13.50 til 17.30. Dagurinn markar
ákveðin tímamót í sögu Gerðubergs
sem undanfarin tíu ár hefur tekið eitt
hljóðfæri fyrir á ári og kynnt.
„Þetta þótti komið hringinn og
okkur fannst liggja í augum uppi að
enda þessa dagskrá með röddinni,
því hún er kannski aðalhljóðfærið,“
segir Hólmfríður Ólafsdóttir, verk-
efnastjóri hjá listadeild Menningar-
miðstöðvarinnar Gerðubergs. Und-
anfarin ár hefur félag íslenskra tón-
listarmanna unnið að dagskránni í
samvinnu við Gerðuberg sem hefur
svo fengið faghljómlistarmenn til að
koma fram. Hólmfríður segir yfir-
leitt reynt að hafa dagskrána sem
skemmtilegasta og að hún höfði til
sem flestra. Dagurinn í dag verður
engin undantekning.
„Núna verða teknar fyrir þess-
ar allra frægustu aríur úr óperum
og jafnvel gert eitthvert grín á milli.
Þetta á ekki að vera háfleygt, heldur
skemmtun og þessir dagar hafa ekki
verið á faglegum nótum í sjálfu sér.
Þarna er verið að kynna fyrir fólki
hvað hefur til dæmis verið skrifað
fyrir fiðlu, sem var hljóðfæri dagsins
í fyrra, allt frá barnalögum og upp í
flóknustu verk sem til eru. Skemmti-
tónlist, klassík eða nútímatónlist.
Núna á að sýna hvað röddin getur og
verður farið niður í dýpstu bassatóna
og upp í hæstu sóprantóna.“
Meðal atriða í dag verður radd-
gjörningur Sverris Guðjónssonar en
einnig koma fram Bergþór Pálsson,
Elín Ósk Óskarsdóttir, Sigrún Hjálm-
týsdóttir og Jóhanna Halldórsdóttir
svo einhverjir séu nefndir. Frægustu
aríurnar úr La Traviata, Rakaranum
frá Sevilla, Toscu og Töfra flautunni
verða fluttar og lofar Hólmfríður
magnaðri upplifun.
„Í hléum verður síðan léttur söng-
ur og jafnvel farið út í þjóðlega tón-
list. Eftir hlé verður farið út í söng-
leiki, djass, barokk og svo verður flutt
tón dæmi úr samtímaverki. Í lokin mun
svo Jónas Ingimundarson fá til sín
góða söngvara sem munu veita innsýn
inn í heim íslenska sönglagsins sem
Gerðuberg var með til fjölda ára.“
Hólmfríður segir síður en svo verk-
efnaskort fram undan þó að þess-
um tíu ára dagskrárlið sé lokið í sögu
Gerðubergs, ný verkefni taki við.
„Við snúum okkur að öðru. Við ætlum
til dæmis að hýsa hluta af Jazzhátíð
Reykjavíkur á næsta ári, meðal ann-
ars unga djassista sem eru að stíga sín
fyrstu spor. Okkur langar að styrkja
grasrótina og ungt fólk sem er að
koma sér á framfæri og opna húsið
fyrir þá hópa.“ heida@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Hallgrímskirkja var vígð þenn-
an dag árið 1986. Hún er
kennd við Hallgrím Péturs-
son, prest og sálmaskáld,
en hann orti meðal annars
Passíusálmana. Kirkjan hafði
verið í smíðum í 41 ár þegar
hún var vígð. Húsameist-
ari ríkisins, Guðjón Samúels-
son, gerði teikningar að kirkj-
unni árið 1937 þar sem hann
reyndi að sameina íslenska
náttúru og byggingarlist í
hönnun kirkjunnar. Áhrifa ís-
lenska stuðlabergsins má sjá
gæta í hliðarvængjum kirkj-
unnar.
Að fjármögnun byggingarinnar kom söfnuð-
urinn sem kostaði um 60 prósent en restin kom
frá einstaklingum, fyrirtækj-
um og ríkisstofnunum. Kap-
ellan undir kirkjunni var vígð
árið 1948. Turninn, sem er 73
metra hár, og kirkjuvængirn-
ir með nýrri kapellu voru til-
búnir árið 1974.
Nýtt pípuorgel var vígt í
kirkjunni árið 1992 en það
var smíðað í Þýskalandi og
er stærsta pípuorgel á land-
inu. Fyrirtæki og einstakling-
ar fjármögnuðu orgelsmíð-
ina með því að kaupa pípur
í orgelið sem eru sérmerktar
kaupandanum. Pípurnar eru
5.275 talsins. Hallgrímskirkja
er mest áberandi mannvirki Reykjavíkurborgar
og sést um víðan völl frá turninum.
ÞETTA GERÐIST: 26. OKTÓBER ÁRIÐ 1986
Hallgrímskirkja er vígðFRANCOIS MITTERAND FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1916.
„Maður missir samband-
ið við raunveruleikann ef
maður er ekki umkringdur
bókunum sínum.“
Mitterand gegndi forseta emb-
ætti Frakklands á árunum 1981
til 1995 og hefur setið lengst
Frakklandsforseta í embætti.
Hann lést 8. janúar 1996 og
hefði orðið 92 ára í dag.
MERKISATBURÐIR
1492 Blýantur er notaður í
fyrsta skipti.
1927 Gagnfræðaskólinn á Akur-
eyri fær heimild til að út-
skrifa stúdenta og verður
Menntaskólinn á Akureyri.
1936 Útvarpsþátturinn Um
daginn og veginn hefur
göngu sína.
1949 Harry S. Truman Banda-
ríkjaforseti hækkar lág-
markslaun úr 40 sentum
upp í 75 sent.
1957 Útvarp Vatíkansins hefur
útsendingar.
1961 Eldgos hefst í Öskju í
Dyngjufjöllum.
1965 Reykjanesbraut milli
Hafnarfjarðar og Keflavík-
ur er formlega opnuð fyrir
umferð.
1972 Ferðir með leiðsögn hefj-
ast um Alcatraz-fangelsið.
DAGUR RADDARINNAR: LOKADAGUR TÍU ÁRA DAGSKRÁR Í GERÐUBERGI
Röddin er aðalhljóðfærið
GÓÐ SKEMMTUN Sýnt verður hvað röddin getur í sérstakri dagskrá tileinkaðri röddinni í Gerðubergi. FRÉTTABLAÐIÐVALLI
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og systir,
Vilborg Katrín
Þórðardóttir Petit
Brekkustíg 29a, Reykjanesbæ,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mánudaginn 20.
október. Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju
miðvikudaginn 29. október kl. 13.00.
Leethor Cray
Björg Hauks Cray
Reynir Hauksson Monica Hauksson
barnabörn, barnabarnabörn og systkin.
Ástkær systir okkar, mágkona, föður-,
móðursystir og frænka,
Brynja Ragnarsdóttir
sjúkraliði, Vesturvallagötu 1, Reykjavík,
lést á líknardeildinni í Kópavogi miðvikudaginn
22. október. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 31. október kl. 15.00.
Gunnlaug Hanna Ragnarsdóttir Gísli Guðjónsson
Ragna Kristín Ragnarsdóttir Jan S. Christiansen
Auður Halldórsdóttir Birna Bergsdóttir
Kristín Jóhanna Mikaelsdóttir Birgir Mikaelsson
Kristín Emilsdóttir Sólveig Berg Emilsdóttir
Ragnar Þór Emilsson Bergur Már Emilsson
Eva María Emilsdóttir Guðjón Emil Gíslason
Ragnar Mikael Gíslason Bjarki Þór Qvarfot
Bryndís Emilía Qvarfot
og fjölskyldur.
Kópavogsbúum gefst nú kostur að
leita sér hughreystingar í gegnum
síma.
„Það felst í að boðið er upp á grænt
númer fyrir Kópavogsbúa, 800 5500,
sem er símanúmer ráðgjafavers til að
veita íbúum, sem glíma við vanlíðan
og erfiðleika vegna þess ástands sem
skapast hefur í þjóðfélaginu, stuðning
og leiðsögn,“ segir um verkefnið Hönd
í hönd sem kynnt var á fundi félags-
málaráðs á þriðjudag.
Verkefnið er unnið í samstarfi Kópa-
vogsbæjar, presta í Kópavogi, Mennta-
skólans í Kópavogi, heilsugæslunnar
og Kópavogsdeildar Rauða krossins.
Fá stuðning í gegnum síma
Kópavogsbær er í samstarfsverkefni til að styðja þá sem glíma við vanlíðan. Hér sjást oddvitar í
bæjarstjórn. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Ástkær eiginmaður minn, faðir, afi
og vinur,
Alfreds Rogulis
Sólvallagötu 31,
lést þann 20. október.
Never forgotten, always close to our hearts.
Andzela Zumente
Elizabet Maria
Deivid Roland
Dzonotan Mikelis