Fréttablaðið - 26.10.2008, Page 4
4 26. október 2008 SUNNUDAGUR
©
In
te
r I
KE
A
Sy
ste
m
s B
.V
. 2
00
8
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Basel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
13°
13°
11°
11°
13°
16°
17°
16°
19°
15°
21°
23°
18°
15°
23°
16°
26°
22°Á MORGUN
Stíf norðvestlæg átt allra
austast, annars hægari.
Hægast austan til.
ÞRIÐJUDAGUR
Hæg vestlæg átt,
hlýnandi veður.
-2
-1
-2
2
1
2
0
0
0
0
-5
7
12
12
15
18
20
15
7
8
12
10
-3 -3
-2
-1-1 -12
2 -2
-2
LÉTTIR TIL OG
LÆGIR Í VIKUNNI
Á morgun verður
víða bjart og
hægur vindur á
landinu sunnan-
og vestanverðu.
Það mun taka að
hlýna V-til með
þriðjudeginum og
á fi mmtudaginn
verður víða þokka-
lega milt og stillt.
Elísabet
Margeirsdóttir
Veður-
fréttamaður
SKOÐANAKÖNNUN „Fyrst og fremst
þykir mér vænt um stuðninginn
við stefnu og viðhorf Samfylking-
arinnar, ekki
síst í ljósi þeirra
erfiðu aðstæðna
sem við erum í,“
segir Ingibjörg
Sólrún Gísla-
dóttir, formaður
Samfylkingar-
innar.
Hún tekur
fram að hún
taki skoðana-
könnunum alltaf með fyrirvara,
hvort sem þær eru Samfylking-
unni hagstæðar eða óhagstæðar.
„Hvað ríkisstjórnina varðar
þarf ekki endilega að koma á óvart
þó að aðeins gefi á bátinn hjá
henni. Hún er að fást við mjög
erfið mál núna.“ - hhs
Þykir vænt um
stuðninginn
INGIBJÖRG SÓL-
RÚN GÍSLADÓTTIR
SKOÐANAKÖNNUN „Það hefði komið
mér á óvart ef fylgið hefði aukist
við þessar aðstæður,“ segir
Þorgerður Katrín Gunnardóttir,
varaformaður
Sjálfstæðis-
flokksins.
Hún leggur
áherslu á að
ákvarðanir megi
ekki litast af
skoðanakönnun-
um. „Þetta hefur
aldrei verið mik-
ilvægara en nú.
Við verðum að
þora að hugsa
langt fram tímann með hagsmuni
þjóðarinnar í huga. Langtíma-
ákvarðanir eru oft sársaukameiri
og líklegri til að flokkar falli í
skoðanakönnunum. Það er einmitt
á svona tímum sem ekki má
hlaupast undan ábyrgðinni.“ - hhs
Hlaupast ekki
undan ábyrgð
ÞORGERÐUR
KATRÍN
GUNNARSDÓTTIR
SKOÐANAKÖNNUN Fylgi Sjálfstæðis-
flokksins hefur ekki verið minna
síðan í maí 2004, þegar fylgið mæld-
ist 25,0 prósent, samkvæmt nýrri
skoðanakönnun Fréttablaðsins.
29,2 prósent segjast nú styðja flokk-
inn. Væru þetta niðurstöður kosn-
inga fengi flokkurinn 20 þingmenn,
í stað 25 nú.
Sjálfstæðisflokkurinn tapar
mestu fylgi meðal kvenna og á
höfuð borgarsvæðinu, rúmlega sex
prósentustigum.
Fylgi Samfylkingar hefur á hinn
bóginn ekki verið meira frá því í
júní 2004, þegar 37,0 prósent sögð-
ust myndu kjósa flokkinn. Nú er
fylgið 36,0 prósent
Stuðningurinn eykst mest frá
síðustu könnun meðal íbúa höfuð-
borgarsvæðisins, um rúm tíu pró-
sentustig.
Miðað við fylgi Samfylkingarinn-
ar í dag fengi flokkurinn 24 þing-
menn kjörna, en hafa 18 nú.
Samanlagt fylgi stjórnarflokk-
anna er 65,2 prósent, en einungis
41,3 prósent styðja ríkisstjórnina.
Meirihlutinn, eða 58,8 prósent
styðja hana ekki. Ef litið er á stuðn-
ing við ríkisstjórnir eftir stuðningi
við stjórnmálaflokka, segjast 94,4
prósent sjálfstæðisfólks styðja rík-
isstjórnina nú, sem er svipað og í
síðustu könnun en einungis 51,7
prósent samfylkingarfólks. Í síð-
ustu könnun sögðust 87,1 prósent
þeirra styðja ríkisstjórnina. Þá
hafa þeir sem ekki gefa upp stuðn-
ing við stjórnmálaflokk dregið til
baka stuðning við stjórnina. Í júní
sögðust 63,5 prósent þeirra styðja
hana, en 30,6 prósent styðja stjórn-
ina nú.
Fylgi Vinstri grænna er nú svip-
að og í mars 2007, þegar 23,3 pró-
sent studdu flokkinn. Nú er fylgið
23,0 prósent og Vinstri græn fengju
því 15 þingmenn kjörna í stað níu
nú. Mesta aukningin er meðal karla,
um 8,7 prósentustig.
Fylgi hinna stjórnarandstöðu-
flokkanna tveggja dalar. Segjast
6,6 prósent nú myndu kjósa Fram-
sóknarflokkinn, í stað 8,9 prósenta í
júní. Samkvæmt því fengi flokkur-
inn fjóra þingmenn kjörna.
Fylgi Frjálslynda flokksins fell-
ur úr 8,0 prósentum í júní niður í
4,1 prósent nú. Þar sem fylgið nær
ekki fimm prósenta viðmiði upp-
bótarþingmanna er ekki reiknaður
þingmaður á flokkinn, en hann
hefur fjóra þingmenn nú.
Hringt var í 800 manns laugar-
daginn 25. október og skiptust svar-
endur jafnt eftir kyni og hlutfalls-
lega eftir búsetu. Spurt var: Hvaða
lista myndir þú kjósa ef gengið yrði
til kosninga nú? og tóku 54,9 pró-
sent afstöðu. Sögðust 12,3 prósent
ekki myndu kjósa eða skila auðu og
30,5 prósent sögðust vera óákveð-
in.
Þá var spurt: Styður þú ríkis-
stjórnina? og tók 90,0 prósent
afstöðu.
svanborg@frettabladid.is
Minnihluti styður
nú ríkisstjórnina
Stuðningur við ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar fer úr 51,5 pró-
sentum í júní í 41,3 prósent nú. 58,8 prósent styðja ekki stjórnina. 95 prósent
sjálfstæðisfólks er meðal stuðningsmanna, en 52 prósent samfylkingarfólks.
SKOÐANAKÖNNUN „Þetta er ekki
marktæk skoðanakönnun en í
henni liggja þó mikil tíðindi,“
segir Guðni Ágústsson, formaður
Framsóknar-
flokksins. „Það
sést best á því
að aðeins annar
hver maður
svarar. Það er
mikið upphlaup
í stjórnmálalífi
og einnig í
stjórnmála-
skoðunum eins
og þessi könnun endurspeglar.
Fyrir ári síðan studdu um 70
prósent ríkisstjórnarflokkana,
það er í rauninni sá hópur sem
ekki velur ríkisstjórnarflokkana
við þær aðstæður sem nú eru
uppi. Þannig að þessi niðurstaða
gefur mér nýja von um að fólkið
vilji önnur gildi og þá rís
Framsókn.“ - jse
Fólk snýr baki
við stjórninni
GUÐNI ÁGÚSTSSON
SKOÐANAKÖNNUN „Það eru orðnir
þrír stórir flokkar í landinu og
mjög langt bil í hina,“ segir
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur Vinstri
grænna.
„Það er
ánægjulegt að
sjá að við
njótum góðs af
ábyrgum og
uppbyggilegum
málflutningi við
þessar erfiðu
aðstæður. Miðað
við mína
tilfinningu setur fólk í vaxandi
mæli traust sitt á okkur.“
Hann spáir því að fylgi Samfylk-
ingarinnar muni aftur minnka. „Sú
taktík Samfylkingarinnar að vera
bæði í ríkisstjórn og í stjórnarand-
stöðu skilar þeim tímabundnum
vinsældum á kostnað Sjálfstæðis-
flokksins. Ég spái því að það muni
ekki endast lengi.“ - hhs
Nú eru turnar
þrír, ekki tveir
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
VIÐSKIPTI Yfirtaka ríkisins á Glitni
er, að sögn Björgólfs Guðmunds-
sonar, ein og sér „sú hættulegasta
og skaðlegasta sem framin hefur
verið gagnvart íslensku þjóðfé-
lagi.“ Þetta segir hann í viðtali í
Morgunblaðinu í dag.
„Við vorum langt komnir með að
semja við Bretana og hefðum ekki
þurft nema svona viku í viðbót,
þegar aðgerðir gegn íslenskum
bönkum hófust,“ segir hann um
samninga við Fjármálaeftirlit Bret-
lands um stofnun dótturfélags.
Björgólfur segir aldrei hafa stað-
ið til að skuldsetja íslensku þjóðina
með því að láta hana taka ábyrgð á
innistæðum á Icesave-reikningun-
um í Bretlandi. „Má ég benda á, að
ríkið tók yfir allar eignir Lands-
bankans með lagasetningunni þann
6. október. Ég er þess fullviss að ef
rétt verður farið með þær eignir,
þá duga þær fyrir Icesave-reikn-
ingunum og gott betur.“
Hann segist sjálfur vera með
mikið af lánum hér, bæði í Lands-
bankanum og víðar, en einnig
erlendis. „Ég skrifa sjálfur upp á
mínar lántökur, þannig að það eru
ekki bara hlutirnir sem ég á í ólík-
um félögum sem eru að veði, held-
ur ég sjálfur. Í dag veit ég ekki
hvernig ég stend, ekki frekar en
svo margur annar.“ Hann segist
hreinskilnislega ekki vita hvernig
hann kemur út úr slíku uppgjöri.
„Ég á ekkert von á því að það fari
vel og get sagt það fullum fetum að
það er allt undir hjá mér.“ - hhs
Björgólfur Guðmundsson segist ekki frekar en margur vita hvar hann stendur:
Segir eignir duga fyrir Icesave
BJÖRGÓLFUR GUÐMUNDSSON Segir
yfirtökuna á Glitni einhverja skaðlegustu
aðgerð sem framin hefur verið.
SKOÐANAKÖNNUN „Það er verið að
spyrja á miklum óvissutímum
svo það er ekkert skrýtið að
stuðningur við
ríkisstjórnina
minnki,“ segir
Guðjón A.
Kristjánsson,
formaður
Frjálslynda
flokksins.
„Hvað Frjáls-
lynda flokkinn
varðar þá tel ég
að við eigum
meira inni. Það er hugsanlegt að
innbyrðis deilur hafi haft nokkur
áhrif á þessar niðurstöður. En nú
eru þær að baki.“ - jse
Deilur höfðu
líklega áhrif
GUÐJÓN A.
KRISTJÁNSSON
36,6%
Kosningar
12.05 ´07
15.05 ´07
29. 09 ´07
30. 01 ´08
23. 02 ´08
19. 04 ´08
21. 06 ´08
25. 10 ´08
40
30
20
10
0
26,8%
14,3%
11,7%
7,3%
39,1%
23,2%
15,1%
13,2%
7,3%
40,2%
29,8%
16,5%
8,8%
4,4%
36,7%
34,8%
15,4%
8,9%
3,6%
40,1%
35,2%
14,2%
5,9%
3,8%
38,6%
26,8%
20,9%
7,0%
5,5%
32,8%
32,0%
17,1%
8,9%
8,0%
36,0%
29,2%
23,0%
6,6%
4,1%
FYLGI STJÓRNMÁLAFLOKKANNA
Samkvæmt könnun Fréttablaðsins
GENGIÐ 24.10.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
205,6808
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
120,66 121,24
187,53 188,45
151,58 152,42
20,31 20,428
17,137 17,237
15,128 15,216
1,3041 1,3117
179,27 180,33
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR