Fréttablaðið - 26.10.2008, Síða 16

Fréttablaðið - 26.10.2008, Síða 16
Bráð í búrið Vilhjálmur Arndal Axelsson er nýtekinnn til starfa á Perlunni en síðustu þrjú ár hefur hann starfað sem kokkur í Lúxemborg. Hreindýrsrétturinn sem Vilhjálmur framreiddi fyrir okkur varð til í hita augnabliksins, eins og hann orðar það. „Ég hef eldað hreindýr þó nokkrum sinn- um áður. Gæta þarf þess að ofelda ekki hreindýrið og gott er að láta kjötið jafna sig þegar það kemur úr ofninum.“ Vilhjálmur hefur eldað hreindýr frá Skandinavíu og Íslandi og þrátt fyrir að margir segi að íslenska hreindýrið sé bragðmeira og bragðbetra þá er Vilhjálmur ekki alls kostar sam- mála því. „Ég finn ekki mikinn mun þó að aðrir telji svo vera. En hreindýrskjötið er bragðmikið og gott. Því meira krydd því meiri sprenging,“ segir hann kankvís Æskilegt er að hengja kjötið upp til meyrnunar í viku til tíu daga áður en það er eldað eða fryst. Auk þess að nýta gómsætt kjötið er vaninn að nýta hjarta, lifur og tungu en hreindýrapaté er afar gómsætt, svo dæmi sé tekið. - hs Hreindýr 1.200 g hreindýrafill- et (hryggvöðvi) Hreinsið og snyrtið vöðvann vel og takið allar sinar og fitu burt. Ef valdir eru litlir vöðvar er óþarfi að setja kjötið í ofn, bara brúna það vel á öllum hliðum og taka svo pönnuna til hliðar og láta kjötið jafna sig í 10 til 15 mínútur á heitri pönnunni. Kryddið með nýmöluðum pipar og salti. Gott er að setja ferskar jurtir með á pönnuna, til dæmis garðablóðberg, rósmarín eða salvíu. Gott er að nota einiber en gæta skal þess að nota ekki of mikið. Ef stærri stykki eru elduð, jafnvel með beini, er sama aðferð notuð nema kjötið er þá sett inn í ofn eftir að búið er að brúna það á 160 °C þar til kjarnhiti verður 55 °C medium. SELLERÍRÓTARMAUK 1/2 kg sellerírót 125 ml mjólk 100 g smjör Salt og pipar Setjið sellerísoðið og mjólk í blandara og þeytið saman. Setjið smjör út í í bitum og þeytið þar til maukið þykknar. GLJÁÐAR KARTÖFL- UR OG RÓTAR- GRÆNMETI Skerið kartöflur og rótargrænmeti í kassa, steikið upp úr smjöri og setjið í lítil form með smá kjúklingasoði. Hitið í um 20 mínútur við 180 til 200 °C. SELJURÓTARSÓSA 2 stk. skalottlaukur 25 g timían Hvítur pipar 1 stk. lárviðarlauf 15 g rúsínur 5 msk. balsamedik 2 msk. tómatpúrra 1/2 flaska Madeira 800 ml nautasoð 300 g sellerírótar- mauk Svitið grænmeti og krydd í potti og sjóðið balsamedik niður í síróp. Hellið tómat- púrru og Madeira yfir og sjóðið niður um helming. Bætið nautasoði við og sjóðið niður um helming þar til hæfilegri þykkt er náð. Sigtið og sjóðið niður og smakkið til. Bætið sellerírótarmauki út í og hrærið smjör- klípu saman við á síðustu mínútunum. HREINDÝRAVÖÐVI með seljurótarsósu, gljáðu rótargrænmeti og brúarkartöflu Fyrir 6 Vilhjálmur er nýtekinn til starfa sem kokkur á Perlunni en síðastliðin þrjú ár hefur hann búið og starfað í Lúxemborg. Þessa dagana standa yfir villibráðakvöld í Perlunni.FR ÉT TA BL A Ð IÐ /V A LL I Kartöfluteningana er einfalt að útbúa en þeir líta skemmtilega út. Rótar grænmeti, ber og villijurtir tóna vel við hreindýrið. í hátíðarbúningi Það er ávallt stemning að gæða sér á villibráð og þá gildir að vanda sig við elda- mennskuna og val á meðlæti. Hreindýr gefur ákveðið en hátíðlegt bragð. A

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.