Fréttablaðið - 26.10.2008, Qupperneq 21
SUNNUDAGUR 26. október 2008 5
Tilkynningar
ÚTBOÐ
Lagna-, loftræsi- og rafkerfi
Eignarhaldsfélagið Fasteign hf.
óskar hér með eftir tilboðum í verkið:
Grunnskólinn á Egilsstöðum
Viðbygging og breytingar
Verkið felst í útvegun og vinnu við lagna-,
loftræsi- og rafkerfi fyrir Grunnskólann á
Egilsstöðum.
Aðalverktaki verksins er Malarvinnslan ehf.
Væntanlegir undirverktakar vegna þessara útboða
verða undir stjórn aðalverktaka.
Um er að ræða þrjú sjálfstæð útboð. Heimilt er
að taka þátt í einu þeirra, tveimur eða öllum.
GE 010 Lagnir
GE 011 Loftræsing
GE 012 Rafkerfi
Framkvæmdatími er frá 1. nóvember 2008 til
10. júlí 2009
Útboðsgögn fást afhent hjá VSÓ Ráðgjöf,
Borgartúni 20, Reykjavík og Verkfræðistofu
Austurlands, Kaupvangi 5, Egilsstöðum frá og
með miðvikudeginum 22. október 2008. Einnig
er hægt að óska eftir gögnum á rafrænu formi
með því að senda póst á netfangið vso@vso.is
Tilboð verða opnuð á skrifstofu VSÓ Ráðgjafar,
Borgartúni 20, Reykjavík og Verkfræðistofu
Austurlands, Kaupvangi 5, Egilsstöðum,
miðvikudaginn 12. nóvember 2008, kl. 15:00.
www.kopavogur.is
„Ljóðstafur Jóns úr Vör” - Ljóðasamkeppni
• Lista og menningarráð Kópavogs efnir til árlegrar ljóðasamkeppni undir heitinu
„Ljóðstafur Jóns úr Vör”.
Veitt verða vegleg verðlaun og mun verðlaunaskáldið fá til varðveislu í eitt ár göngustaf sem á
verður festur skjöldur með nafni þess.
3ja manna dómnefnd mun velja úr ljóðum sem berast.
Öllum skáldum er velkomið að senda ljóð í keppnina. Þau mega ekki hafa birst áður. Ljóðum
skal skilað með dulnefni og skal nafn, heimili og sími skáldsins fylgja með í lokuðu umslagi
auðkennt með sama dulnefni. Aðeins má senda eitt ljóð í hverju umslagi og þess vænst að
ljóðunum sé skilað á pappírsstærðinni A-4 eða A-5.
Skilafrestur er til 1. desember 2008 og utanáskriftin er:
„Ljóðstafur Jóns úr Vör”
Tómstunda- og menningarsvið Kópavogs
Fannborg 2, 200 Kópavogur
Afhending verðlaunanna
fer fram á afmælisdegi
Jóns úr Vör miðvikudag-
inn 21. janúar 2009.
Þátttöku ljóð má sækja á
ofangreint heimilisfang
fyrir 1. febrúar; eftir það
verður þeim eytt.
KÓPAVOGSBÆR
Auglýsing um sveinspróf
Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða
haldin sem hér segir ef næg þátttaka fæst:
Í matreiðslu, framreiðslu, bakaraiðn og kjötiðn 2.-12.
desember. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember.
Sveinspróf í húsasmíði verða haldin 12.-14. des-
ember, í pípulögnum 10.-12. desember og
málaraiðn 15.-19 desember. Umsóknarfrestur er
til 1. nóvember.
Sveinspróf í bifvélavirkjun verður haldið janúar.
Umsóknarfrestur er til 1. desember.
Í hársnyrtiiðn dagana 10.-11. og 17.-18. janúar 2009,
dagsetning skrifl egs prófs verður ákveðin síðar,
nánari upplýsingar á www.idan.is.
Umsóknarfrestur er til 1. desember.
Í snyrtifræði dagana 10.-11. og 17.-18. janúar, skrifl egt
próf 9. janúar, nánari upplýsingar á www.idan.is.
Umsóknarfrestur er til 1. desember.
Í málmiðngreinum í janúar - mars 2009, ef næg
þátttaka fæst. Umsóknarfrestur er til 1. desember
fyrir aðrar greinar en vélvirkjun. Umsóknarfrestur fyrir
sveinspróf í vélvirkjun er til 1. janúar 2009. Nánari
upplýsingar á www.idan.is
Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi,
lífeyrissjóðsyfi rlit og burtfararskírteini með
einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi
muni útskrifast í desember 2008.
Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er
mismunandi eftir iðngreinum.
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu okkar,
veffang: www.idan.is og á skrifstofunni.
IÐAN - fræðslusetur,
Skúlatúni 2, 105 Reykjavík,
sími: 590 6400, bréfsími: 590 6401,
netfang: idan@idan.is, veffang www.idan.is
Efnistaka af hafsbotni í Hvalfi rði
Mat á umhverfi sáhrifum
Opinn kynningarfundur
Björgun ehf. boðar til kynningar á frummatsskýrslu
vegna mats á umhverfi sáhrifum efnistöku fyrirtækisins
af hafsbotni í Hvalfi rði.
Frummatsskýrslu er hægt að nálgast á heimasíðu
Mannvits hf. www.mannvit.is.
Fundurinn verður haldinn í Félagsgarði í Kjós,
fi mmtudaginn 30. október 2008 og hefst hann
kl: 20:30. Allir velkomnir.
Auglýst er eftir umsóknum í Afrekssjóð
Íþrótta- og tómstundaráðs Kópavogs (ÍTK)
Samkvæmt reglugerð eru markmið sjóðsins eftirfar-
andi:
a) Að veita afreksíþróttafólki í íþróttafélögum í Kópavogi
fjárhagslegan styrk vegna æfinga og/eða keppni, og
þannig búa þeim sem besta aðstöðu til að stunda
íþrótt sína
b) Að veita afreksíþróttafólki í hópíþróttum í íþróttafélög-
um í Kópavogi sem náð hefur afburðaárangri fjárhags-
legan styrk og gera þeim kleift að búa sig enn betur
undir áframhaldandi keppni.
c) Að styrkja afreksíþróttafólk sem á lögheimili í Kópavogi
og stundar íþrótt sem ekki er iðkuð með íþróttafélagi í
Kópavogi.
d) Að veita árlega styrki og viðurkenningar fyrir unnin
afrek í íþróttum jafnt kvenna sem karla.
Umsóknum um styrki skal skilað á þar til gerðum eyðublöðum
fyrir 14. nóvember 2008. Umsóknareyðublöð ásamt reglugerð
fyrir sjóðinn fást á skrifstofu íþrótta- og tómstundamála Fannborg
2 II hæð.
Nánari upplýsingar eru gefnar í síma 570-1500
Íþróttafulltrúi
www.kopavogur.is
Afrekssjóður ÍTK
KÓPAVOGSBÆR
Útboð Tilkynningar