Fréttablaðið - 26.10.2008, Qupperneq 31
SUNNUDAGUR 26. október 2008 15
Fyrrverandi kryddpían Geri
Halliwell undirbýr nú gerð
teiknimyndar byggða á barna-
bókum sínum, Ugenia Lavend-
er. Fyrsta bókin í seríunni um
karakterinn Ugeniu kom út í
maí á þessu ári, en síðan þá
hafa komið út fimm til viðbót-
ar. Í viðtali við breska blaðið
Daily Mirror segist Geri
gjarnan vilja fá stórstjörnur á
borð við Brad Pitt og George
Clooney til að talsetja teikni-
myndina.
„Ég hef ekki hitt Brad Pitt
svo hann er ekki líklegur til
að vera með, en ég vil endi-
lega fá hinn gullfallega
George í myndina,“ segir
Geri, sem ætlar sjálf að tala
fyrir aðalkarakterinn Ugeniu.
„Vinur Ugeniu sem kallast
Crazy Trevor minnir mig
mjög mikið á fótboltakapp-
ann Wayne Rooney, bæði
hvað varðar persónuleika
og útlit. Ég er mjög bjartsýn
á að hann vilji tala inn á
teiknimyndina og hef það
svona á tilfinningunni að
hann hefði gaman af því,“
bætti hún við.
folk@frettabladid.is
> TRÚIR EKKI Á VELGENGNI SÍNA
Jessicu Biel finnst óþægilegt að fara í
viðtöl og myndatökur því hún á bágt
með að trúa því að hún njóti vel-
gengni sem leikkona. Í viðtali við
tímaritið Claire segir hún það hafa
tekið nokkur ár að venjast, en henni
finnist það enn svolítið fáranlegt.
Einnig segir hún sér alltaf líða
eins og hún þurfi að sanna
sig og er viss um að það hafi
skemmt fyrir ferli sínum að
sitja fyrir í karlatímariti þegar
hún var sautján ára gömul.
Leikkonan Catherine Zeta-Jones mun fara með hlutverk í söngva-
myndinni Cleo í leikstjórn Stevens Soderbergh. Ástralinn Hugh
Jackman er jafnframt í viðræðum um að taka að sér stórt hlutverk í
myndinni, sem fjallar um
Kleópötru og er sögusviðið
þriðji áratugur síðustu aldar.
Síðasta söngvamynd Zeta-
Jones, Chicago, naut mikilla
vinsælda og tryggði henni
Óskarsverðlaunin fyrir
hlutverk sitt sem Velma
Kelly.
45 ár eru liðin síðan
Hollywood gerði síðast mynd
um Kleópötru. Með aðalhlut-
verk í henni fóru Elizabeth
Taylor, Rex Harrison og
Richard Burton. Myndin var
gríðarlega dýr í framleiðslu
og þótti ekki hafa heppnast
vel. Engu að síður vann hún
til fernra Óskarsverðlauna.
Zeta-Jones er með fleiri
járn í eldinum því næsta
mynd hennar, rómantíska
gamanmyndin The Rebound,
kemur út í janúar. Næsta
mynd Hughs Jackman verður
aftur á móti stórmyndin
Australia þar sem Nicole
Kidman leikur á móti honum.
Leikstjórinn Steven
Soderbergh er með þrjár myndir í bígerð fyrir utan Cleo. Fyrst
mynd um ævi tónlistarmannsins Liberace, síðan Che, um ævi
byltingarsinnans Che Guevara, og loks The Informant með Matt
Damon í aðalhlutverki.
Zeta-Jones leikur
Kleópötru í Cleo
CATHERINE ZETA-JONES Leikkonan mun feta
í fótspor Elizabeth Taylor í söngvamyndinni
Cleo.
Vill stórstjörnur í teiknimynd
TALSETUR SJÁLF Geri Halli-
well ætlar sjálf að tala fyrir
aðalkarakter bókanna,
Ugeniu, en vonast til að fá
fótboltakappann Wayne
Rooney og George
Clooney til liðs við sig.
Paris Hilton hefur nú blandað sér í bandarísku forsetakosningarnar með
útgáfu nýs lags. Lagið heitir Paris for President og í myndbandinu sést hún
meðal annars spóka sig í hvítum sundbol fyrir framan bandaríska fánann,
umkringd svartklæddum öryggisvörðum.
Paris lét fyrst í sér heyra varðandi kosningarnar í ágúst síðastliðnum,
þegar forsetaframbjóðandinn John McCain líkti mótframbjóðanda sínum,
Barack Obama, við hana sjálfa og söngkonuna Britney Spears. Þá gerði hún
myndband þar sem hún gerði óspart grín að kosningabaráttu McCains.
Paris Hilton forsetaefni?
PARIS HILTON Gerir grín að banda-
rísku forsetakosningunum.