Fréttablaðið - 05.11.2008, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 50005. nóvember 2008 — 303. tölublað — 8. árgangur
KOLBRÚN ÖGMUNDSDÓTTIR
Brunaði á mótorfáki
eftir þjóðvegi 66
• ferðir • nám
Í MIÐJU BLAÐSINS
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Maðurinn minn og vinir hans voru
lengi búnir að láta sig dreyma umað aka Rout 6
vegum suður til O l
Gamall draumur rættist
Félagsráðgjafinn Kolbrún Ögmundsdóttir fór á dögunum í mótorhjólaferð um Bandaríkin ásamt eigin-
manni sínum, Jóni Þór Eyjólfssyni, og félögum þeirra. Þau óku eftir Route 66, frá Los An l
Kolbrún og félagar óku eftir Route 66 sem liggur frá Chicago til Los Angeles.
MYND/ÚR EINKASAFNI
RAUÐI KROSSINN stendur fyrir fjölda ólíkra nám-
skeiða á hverju ári. Námskeiðin eru allt frá því að vera
grunnnámskeið í skyndihjálp til þess að vera undirbún-
ingsnámskeið fyrir tilvonandi sendifulltrúa sem hyggja
á dvöl á fjarlægum slóðum.
Ertu starfandi í greininni e›a í grein henni tengdri?Hefur flú áhuga á a› ljúka flví námi sem flú hófst?Bættu um betur – Húsasmí›i er tilraunaverkefni sem mi›ar a› flví
a› meta færni sem vi›komandi b‡r yfir inn í skólakerfi›, óhá› flví
hvernig hennar hefur veri› afla›. Markmi›i› er a› flátttakendur
í verkefninu ljúki sveinsprófi.
Áhugasömum er bent á a› hafa samband vi› I‹UNA – fræ›slu-
setur í síma 590-6400 og fá frekari uppl‡singar um verkefni›. fiar
er einnig hægt a› skrá sig á kynningarfund sem ver›ur haldinn í
kvöld kl. 18.00 a› Skúlatúni 2, 105 ReykjavíkNá i
Hófst flú nám í húsasmí›ien laukst flví ekki?
Ætla að efla
starfsemina
Barnavistun, félag dag-
foreldra í Reykjavík,
er fimmtán ára um
þessar mundir.
TÍMAMÓT 16
MIÐVIKUDAGUR
FRÁBÆR TILBOÐ!
SÉRBLAÐ FYLGIR
GUÐFINNUR HALLDÓRSSON
Range Rover er
geim óver
Fólk situr uppi með lúxuskerrurnar
FÓLK 30
Hrærðir yfir
Íslandsför
Frank Hvam
og Casper
Christiansen
himinlifandi með
Íslandsferðina.
FÓLK 24
FÓLK Athyglisverður munur, sem
snertir sögu landsins, hefur nú
skotið upp kollinum á uppboðsvef
danska uppboðshaldarans Bruun
Rasmussen. Um er að ræða
Cartier-úr sem jafnframt er
varalitshylki úr 14 karata gulli.
Hluturinn er á uppboðsvefnum
sagður gjöf til Georgíu Björns-
son, konu Sveins Björnssonar
fyrsta forseta landsins, og er
gefandinn enginn annar en Harry
S. Truman, fyrrverandi Banda-
ríkjaforseti. Samkvæmt gengi
dagsins í gær er hluturinn metinn
á milli 130 til 180 þúsund krónur.
Uppboðinu lýkur 26. nóvember.
- jbg / sjá síðu 30
Varalitshylki frá Truman:
Gjöf til forseta-
frúar á uppboði
Andspyrnuhreyfing
Einar Már Jónsson segir frá þeim
krókaleiðum sem áhrif stjórn-
málamanna á menningarlíf fara
stundum eftir.
Í DAG 12
BJART EYSTRA Fram eftir degi
verður allhvöss eða hvöss sunnan-
átt vestan til á landinu annars mun
hægari. Skúrir á víð og dreif vestan
til en yfirleitt bjart veður á Norð-
austur- og Austurlandi. Milt.
VEÐUR 4
7 6
5
89
EFNAHAGSMÁL Willem H. Buiter
hagfræðingur telur að í raun hafi
aðeins verið völ á þrennum úrræð-
um fyrir Íslendinga. Þeir hefðu
getað leitað til Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins mun fyrr en raun varð á. Í
öðru lagi nefnir hann að framtíðar-
tekjum af orkuauðlindum hefði
mátt breyta í fé. Þriðja úrræðið
hafi einfaldlega verið að biðja til
guðs.
Buiter, sem, ásamt Anne Sibert,
skrifaði svarta skýrslu um stöðu
íslensku bankanna í vor, segir að
þegar þau hófu skoðun á íslensku
bönkunum í byrjun árs hefðu veik-
leikar þeirra strax orðið ljósir.
Þetta hefði hver sem er átt að sjá
árið 2004 eða jafnvel enn fyrr. Lítið
land með eigin mynt gæti ekki
borið alþjóðlegar fjármálastofnan-
ir. Þegar drög lágu fyrir að skýrslu
þeirra í apríl hafi hún þegar verið
send stjórnvöldum. Enn fremur
hafi efni hennar verið rætt við
menn úr Seðlabankanum í sumar.
- ikh / sjá Markaðinn
Willem H. Buiter hagfræðingur telur að í ár hefði fátt getað bjargað bönkunum:
Íslendingar gátu beðið til guðs
Allt sem þú þarft... ...alla daga
Fréttablaðið er með 116%
meiri lestur en Morgunblaðið.
33,47%
72,34%
Fr
ét
ta
bl
að
ið
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgarsvæðið
18–49 ára. Könnun Capacent í maí–júlí 2008.
VIÐSKIPTI Bankastjórn Seðlabanka
Íslands á að sæta ábyrgð og víkja.
Þetta segir skuggabankastjórn
Markaðarins nauðsynlegan hluta í
að endurvekja traust á hagstjórn
landsins.
Seðlabanki Íslands kynnir
stýrivexti og Peningamál,
efnahagsrit bankans, á vaxta-
ákvörðunardegi sínum á morgun.
Skuggabankastjórnin segir að á
meðan ekki liggi fyrir til hvaða
aðgerða verði gripið í efnahagsá-
ætlun þeirri sem stjórnvöld hafa
lagt fyrir Alþjóðagjaldeyrissjóð-
inn þurfi vextir að vera óbreyttir
í 18 prósentum. Brýnast sé að ná
tökum á krónunni.
- óká / sjá Markaðinn
Óbreyttir vextir á óvissutíma:
Vilja að stjórn
Seðlabanka víki
STAÐAN TEKIN Skuggabankastjórn Mark-
aðarins hittist í gær. Seðlabankinn birtir
vaxtaákvörðun á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Meistaradeild
Evrópu
Nokkuð var um óvænt
úrslit í leikjum gær-
kvöldsins.
ÍÞRÓTTIR 26
VEÐRIÐ Í DAG
MEÐ FJÖLSKYLDUNNI Á KJÖRSTAÐ Michelle, eiginkona Baracks Obama, og dætur hans, Malia og Sasha, fylgdu honum á kjörstað
í Chicago í gærdag. Úrslit forsetakosninga Bandaríkjanna lágu ekki fyrir þegar Fréttablaðið fór í prentun. NORDICPHOTOS / AFP
VIÐSKIPTI Persónulegar ábyrgðir
starfsmanna gamla Kaupþings af
lánum til hlutabréfakaupa í bankan-
um voru felldar niður með ákvörð-
un stjórnar bankans þann 25. Sept-
ember. Þetta kemur fram í
yfirlýsingu sem stjórnin sendi frá
sér síðdegis í gær.
Stefán Már Stefánsson, prófessor
við lagadeild Háskóla Íslands, segir
að allar ákvarðanir sem teknar séu
innan þriggja mánaða frá því félög
komast í þrot séu endurskoðaðar í
gjaldþrotabúinu. Sérstaklega sé
það gert við einhliða ákvarðanir
eins og þá sem stjórn gamla Kaup-
þings tók í lok september. Hann
segir mögulegt að skiptastjóri rifti
ákvörðun stjórnarinnar og hefur
stjórn Nýja Kaupþings þegar leitað
eftir utanaðkomandi áliti lögmanns
á því hvort ákvörðun stjórnarinnar
sé riftanleg.
Vilhjálmur Bjarnason, formaður
Félags fjárfesta, segir að með
ákvörðun sinni hafi stjórn gamla
Kaupþings gengið á rétt annarra
hluthafa.
„Það er beinlínis verið að ljúga
að þeim um stöðu bankans,“ segir
Vilhjálmur. „Ég varð ekki var við
að þetta hafi verið tilkynnt á vef
Kauphallarinnar en þessi ákvörðun
hefði auðvitað átt að birtast þar.
Auðvitað er þetta riftanlengt.“
Árni Páll Árnason, einn fulltrúa
Samfylkingarinnar í viðskipta-
nefnd Alþingis, segir mjög eðlilegt
og sjálfsagt mál að kanna hvort
ekki sé hægt að rifta þessum gjörn-
ingi.
Pétur Blöndal, formaður efna-
hags- og skattanefndar Alþingis,
segir að ákvörðun stjórnarinnar
sýni að hún hafi ekki séð það fyrir
að hlutabréf í bankanum kynnu að
lækka og það finnist honum klaufa-
legt.
„Það er afar óréttlátt að starfs-
menn bankans séu leystir undan
ábyrgð meðan aðrir hluthafa sitja
uppi með hana,“ segir Pétur. „Þarna
er ekki gætt jafnræðis heldur er
greinileg mismunun í gangi.
Almenni hluthafinn, sem kannski
hefur tapað ævisparnaðinum eða
er með lán á bakinu fyrir hluta-
bréfakaupunum, þarf að standa
sína pligt.“
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallar Íslands, var ekki tilbú-
in að tjá sig um málið í gærkvöldi.
- bj, hhs. jse / sjá síðu 4
Hluthöfum í Kaup-
þingi var mismunað
Persónulegar ábyrgðir starfsmanna gamla Kaupþings af hlutabréfakaupum
voru felldar niður. Óréttlátt og greinilega verið að mismuna hluthöfum segir
stjórnarþingmaður. Logið að fólki segir formaður Félags fjárfesta.