Fréttablaðið - 05.11.2008, Page 6
6 5. nóvember 2008 MIÐVIKUDAGUR
Jesús var veislumaður en hvernig mat borðaði hann?
Í fi mmtudagshádeginu eru matarhefðir Biblíunnar
kynntar á Torgi Neskirkju við Hagatorg.
Sr. Sigurður Árni Þórðarson kynnir og eldar
matinn ásamt Ólafíu Björnsdóttur.
Fimmtudaginn 6. nóvember verður á boðstólum
kjúklingaréttur Heródesar!
Fimmtudaginn 13. nóvember verður veisla fyrir týnda soninn.
Allir fá svo uppskriftina. Biblían er matarmikil og þjónar lífi nu.
Allir velkomnir.
Biblíumatur
í Neskirkju
Þátttakendur óskast í rannsókn
Læknadeild Háskóla Íslands óskar eftir heil-
brigðum sjálfboðaliðum til þátttöku í rannsókn á
kremi og stílum unnum úr þorskalýsi. Tilgangur
rannsóknarinnar er að kanna hversu vel við-
komandi lyf þolast. Þátttakan felur í sér notkun á
viðkomandi kremi og stílum tvisvar sinnum á dag í
tvær vikur ásamt þremur læknisskoðunum.
Greiðsla fyrir þátttöku er 15.000.- kr.
Rannsóknin er samþykkt af
Vísindasiðanefnd og Lyfjastofnun.
Ábyrgðaraðili er Einar Stefánsson
prófessor s: 5437217
Áhugasamir vinsamlegast hafi ð
samband við Helgu Halblaub
netfang: Helghalb@landspitali.is
ALÞINGI Þingmenn úr öllum flokk-
um lýstu áhyggjum af stöðu og
þróun á fjölmiðlamarkaði í umræð-
um á Alþingi í gær. Voru stór orð
viðhöfð og lýðræðið meðal annars
sagt bíða hnekki vegna nýjustu
vendinga.
Kaup fyrirtækisins Rauðsólar,
sem er í eigu Jóns Ásgeirs Jóhann-
essonar, á fjölmiðlum 365, sem Jón
Ásgeir á stærstan hlut í, voru til-
efni umræðnanna. Fyrirhuguð
sameining Fréttablaðsins og Morg-
unblaðsins í Árvakri var einnig
gagnrýnd harðlega.
Guðni Ágústsson, formaður
Framsóknarflokksins, hóf umræð-
una og furðaði sig á að Landsbank-
inn, með sína bráðabirgðastjórn-
endur, hefði átt frumkvæðið að
viðskiptum Rauðsólar og 365. Velti
hann fyrir sér hvort ekki hefði
verið réttara að bjóða fjölmiðlana
upp fremur en að færa þá á milli
félaga og hvatti til þess að kaupin
yrðu látin ganga til baka.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra sagði graf-
alvarlegt ef einn maður gæti öðlast
yfirráð yfir nánast öllum fjölmiðl-
um landsins og var jafn undrandi
og Guðni á að ríkisbanki hefði haft
frumkvæði í málinu. Sagði hún að
Landsbankinn þyrfti að skýra fyrir
þjóðinni hvaða hagsmunir hefðu
legið að baki viðskiptunum.
Þingmenn allra flokka gagn-
rýndu í kjölfarið fyrrnefnd við-
skipti. Þá var staða Ríkisútvarps-
ins á auglýsingamarkaði ýmist
sögð til góðs eða ills.
Sigurður Kári Kristjánsson,
Sjálfstæðisflokki, sagði að við kaup
Rauðsólar ætti sér stað mesta sam-
þjöppun sem orðið hefði á Íslandi.
Bjarni Harðarson, Framsóknar-
flokki, sagði grafalvarlegt að Jón
Ásgeir sem, ásamt öðrum, hefði
komið viðskiptalífinu í erfiða stöðu,
ætlaði nú að koma hluta skulda
sinna yfir á almenning en halda
áfram völdum yfir fjölmiðlunum.
Kvað hann stöðu RÚV á auglýs-
ingamarkaði ekki óeðlilega. Róbert
Marshall, Samfylkingunni, sagði á
hinn bóginn að fyrirferð RÚV á
markaðnum veikti lýðræðið og
taldi fjölmiðlalög þörf.
Helgi Hjörvar, Samfylkingunni,
og Jón Magnússon, Frjálslyndum,
efuðust um að áform um samein-
ingu Fréttablaðsins og Morgun-
blaðsins stæðust samkeppnislög
og Katrín Jakobsdóttir, varafor-
maður VG, sagði mikilvægt að
setja lög um fjölmiðla sem sátt
væri um.
Kolbrún Halldórsdóttir VG
sagði alla umræðu um fjölmiðlun
vera viðskiptalegs eðlis en fjöl-
miðlar væru ekki eins og önnur
fyrirtæki þar sem þeirra hlutverk
væri að stunda lýðræðislega
umræðu og upplýsingu.
Grétar Mar Jónsson, Frjáls-
lynda flokknum, kallaði stöðu Rík-
isútvarpsins ægivald og sagði að
frjálsir fjölmiðlar væru sárafáir
nema ef vera skyldi Útvarp Saga.
bjorn@frettabladid.is
Ítök Jóns Ásgeirs í
fjölmiðlum of mikil
Þingmenn telja of mikla samþjöppun hafa orðið á fjölmiðlamarkaði. Formaður
Framsóknarflokksins vill að nýjustu vendingar verði látnar ganga til baka.
GRAFALVARLEGT Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir alvarlegt
ef einn maður getur öðlast yfirráð yfir nánast öllum fjölmiðlum landsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Telur þú að eigendur íslenskra
fjölmiðla hafi áhrif á efnistök
þeirra?
Já 78,3%
Nei 21,7%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Treystir þú nýjum stjórnendum
íslensku viðskiptabankanna?
Segðu skoðun þína á visir.is
KJÖRKASSINN
VEIÐAR „Þegar ég sé svona fréttir
þá spyr ég viðkomandi starfsmann
hvað hann hafi verið að gera og
það gerði ég í þessu tilfelli,“ segir
Ólafur Þór Hauksson, sýslumaður
á Akranesi, vegna fréttar um Jón
Sigurð Ólason yfirlögregluþjón
sem sakaður er um að hafa ekið
ólöglega til veiða á laugardag.
Hann ók á götuskráðu fjórhjóli
eftir vegslóða þar sem hann fór til
veiða. Í lögum um veiðar á villtum
dýrum frá 2005 er þess getið að
hvorki megi fara til veiða á fjór-
hjólum né vélsleða.
„Að mati þess sem í hlut á eiga
lögin við um utanvegahjól en ekki
götuskráð farartæki,“ segir Ólaf-
ur Þór. Hann segir enn fremur að
árið 2006 hafi síðan verið veitt
heimild til að götuskrá fjórhjól og
slík hjól séu því undanþegin
ákvæðinu.
„Mér þykja þetta vera hártog-
anir,“ segir Jón Þór Víglundsson,
sem var á svæðinu síðastliðinn
laugardag. „Fjórhjól breytist ekk-
ert í eðli sínu þótt þú skrúfir á það
númeraplötu. Það stendur líka í
lögunum að það sé bannað að nota
fjórhjól og það ætti ekki að vera í
verkahring lögreglunnar að láta á
það reyna.“ Hann segir einnig öll
ummerki benda til þess að Jón
Sigurður hafi verið innan við 250
metra frá farartækinu við veiðar
og slíkt sé ólöglegt.
„Ég er alveg sannfærður um
það að hafa ekki brotið neitt af
mér,“ segir Jón Sigurður. „Ég
brotnaði hins vegar við ökkla en
það var ekki lögbrot,“ segir hann
kankvís. Hann segir enn fremur
að vel á annað hundruð manns hafi
hringt í sig í gær og sýnt honum
stuðning. - jse
Deilt er um það hvort yfirlögregluþjónn hafi brotið lög:
Sýslumaður vildi fá skýringar
RJÚPUR Á HEIÐI Enn er deilt um það
hvort lögregluþjónn hafi brotið lög á
rjúpnaveiðum um helgina.
NEYTENDUR „Það er erfitt að segja til
um hvort rekja megi þessa miklu
sölu til allra þessara sögusagna,
frétta og sms-sendinga, en það er
ljóst að þessir þættir hafa að
minnsta kosti ekki dregið úr söl-
unni,“ segir Sigrún Ósk Sigurðar-
dóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR.
Heildarsala ÁTVR á föstudaginn
var, 31. október, var meiri en föstu-
daginn fyrir síðustu verslunar-
mannahelgi. Dagana á undan gengu
sögusagnir um að allt að 25 pró-
senta hækkunar væri að vænta hjá
ÁTVR um mánaðamótin. Hækkunin
varð hins vegar 5,25 prósent að
meðaltali á áfengi og 8,87 prósent
að meðaltali á tóbaki.
Sigrún segir almennt þrjá daga
vera þá söluhæstu á árinu; föstu-
daginn fyrir verslunarmannahelgi,
Þorláksmessu beri hana ekki upp á
sunnudag og 30. desember, daginn
fyrir gamlárskvöld. Á föstudaginn
var komu tæplega 44.000 viðskipta-
vinir í Vínbúðir ÁTVR, sem er nán-
ast sami fjöldi og föstudaginn fyrir
síðustu verslunarmannahelgi.
Áfengissalan í krónum á föstudag-
inn var tæplega 319 milljónir króna
og tóbakssala um 78 milljónir, sem
gerir 397 milljónir í heildina. Til
samanburðar var heildarsala föstu-
daginn fyrir síðustu verslunar-
mannahelgi 387 milljónir.
Sala föstudagsins var tæplega
þrefalt meiri en á hefðbundnum
föstudegi í október. Meðaláfengis-
kaup viðskiptavinar voru fyrir
7.200 krónur á föstudaginn, en er
um 4.200 krónur á hefðbundnum
föstudegi. - kg
Sala ÁTVR á föstudaginn var meiri en á föstudegi fyrir verslunarmannahelgi:
Áfengi selt fyrir 397 milljónir
ÖRTRÖÐ Viðskiptavinir ÁTVR hömstruðu
áfengi á föstudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu hafði
afskipti af sofandi manni í bíl við
bensínstöð í Suðurfelli í Reykja-
vík í gærmorgun. Kom þá í ljós
að maðurinn hafði stolið bílnum,
nýlegum bíl af Mazda-gerð, af
bílasölu fyrr um nóttina.
Hafði maðurinn ekið bílnum að
Naustabryggju þar sem hann tók
númeraplötur af sams konar bíl
og færði yfir á bílinn sem hann
stal. Maðurinn var ölvaður og var
hann færður á lögreglustöð þar
sem hann fékk að sofa úr sér
áfengisvímuna áður en hann gaf
lögreglu skýrslu.
- ovd
Skipti á númeraplötum:
Fannst sofandi
í stolnum bíl
ALÞINGI Siv Friðleifsdóttir,
þingflokksformaður Framsóknar-
flokksins, segir hegðun Samfylk-
ingarinnar í eftirlaunamálinu
vera hneyksli. Flokkurinn hafi
boðað endurskoðun eftirlaunalag-
anna, um hana sé fjallað í
stjórnarsáttmálanum en ekkert
hafi gerst þó eitt og hálft ár sé
liðið frá því ríkisstjórnin tók við
völdum.
Hún bar málið upp við Össur
Skarphéðinsson iðnaðarráðherra
á Alþingi í gær sem sagði
nauðsynlegt að vinna hratt að
lausn. Sagði hann það ráðast af
afstöðu stjórnarandstöðunnar
hvenær lögunum yrði breytt. Á
það gat Siv ekki fallist, fyrir lægi
að stjórnarandstaðan vildi
breytingar en málið væri í
höndum stjórnarflokkanna. - bþs
Meðferð eftirlaunamálsins:
Samfylkingin
hneykslar Siv
Fullar fangageymslur
Fangageymslur lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu voru fullar í fyrrinótt.
Að sögn varðstjóra er þetta fremur
óvenjulegt ástand aðfaranótt þriðju-
dags en óvenju mikið var að gera hjá
lögreglunni þá nóttina.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Teknir við innbrot í gám
Lögreglumenn hlupu uppi tvo
innbrotsþjófa sem höfðu brotist
inn í gám við Klettsháls í Reykjavík í
fyrrinótt. Til mannanna sást þar sem
þeir voru að brjótast inn í gáminn en
þeim tókst ekki að stela neinu.
Stakk af með vörur á jeppa
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk
tilkynningu laust fyrir hádegi í gær um
konu sem stungið hafði af með vörur
úr verslun Hagkaupa í Skeifunni.
Konan hafði hlaupið með vörurnar út
úr versluninni og ekið burt á jeppa-
bifreið. Hún náðist skömmu síðar
skammt frá og var færð á lögreglu-
stöð til skýrslutöku.