Tíminn - 24.02.1982, Blaðsíða 2
Miövikudagur 24. febrúar 1982
T spegli Tímáns
Imsjón: B.St. og K.L.
Dýravinur-
inn mikli
Birgitte
Bardot
■ Kynbomban fiirgitte
Bardot starfar mikið við
dýravernd. Með hinum
heimsfræga þokka sinum
tókst henni að finna hús-
og hjartarúm fyrir 45
húsbóndalausa hunda i
þriggja stundarfjóröunga
langri útsendingu hjá
franska sjónvarpinu.
— HL.
Skeiðin,
sem vard
ad skraut-
kambi
■ Dag nokkurn kom
sölumaður inn til Peter
Vang, gull- og silfursmiðs
i Kaupmannahöfn, og
vildi selja honum skeið til
að nota i kartöfluskál.
Skeiöin var ihvolf og
þægileg til að taka með
kartöflur á disk, en lista-
maðurinn Peter Vang sá
þarna komna fyrirmynd
að hárkambi, sem hann
hafði haft i hug aö smiða.
Nú er hárskraut i tisku,
og viöa er hægt aö fá hið
skrautlegasta plastdót og
fjaöraskraut til aö hressa
upp á hárgreiðsluna viö
samkvæmisföt. Þó er
auövitað enn skemmti-
legra aö eiga sfgilt hár-
skraut eins og silfur-
kambinn meö skelplötu-
skreytingunni, sem viö
sjáum hér á myndinni.
■
l
■ ,,Ég gef þér blóm á Valentinsdaginn, af þvi mér finnst þú sætust”, sagöi Richard viö Milenu litlu
„MÍR HNNST ÞO SÆTUST
■ t siðustu viku dundu I
eyrum okkar auglýsingar
um aö nú ættu allir karlar
að kaupa blóm og færa
■ Það er danska fyrirsætan Hanne Lyngfeldt, sem felur sig á bak við
silfurskciðina, sem varð að skrautkambi.
eiginkonum, unnustum,
vinkonum o.s.frv.. Það
var allt i tilefni konu-
dagsins i góubyrjun, en
góa er 8. mánuður ársins
eftir gömlu Isl. timatali
og byrjar 118. viku vetrar
(eftir miðjan febrúar) og
endar mánudaginn I 22.
viku.
Um likt leyti (I4.febr.)
er viöa um heim haldið
upp á svokallaðan
Valentinsdag (St.
Valentine’s Day) og þá
keppast herrarnir viö aö
gefa vinkonum sinum
blóm eða konfekt og
vanalega er skrifað á
fallegt kort meö. Kortin
eru oftast skreytt meö
hjörtum og rósum og
sömuleiðis er hægt að fá
hjartalaga kassa meö
Ijúfmeti, konfekti eða
sykruðum ávöxtum til
gjafa. Þessi dagur er
einkum helgaður elsk-
endum og góðum vinum.
Einkum þykir hátiðlegt
að bera upp bónorð á
Valentinsdegi.
Ekki er liklegt að
Richard litli, sex ára, i
Sydney I Ástraliu, hafi
verið að bera upp bónorð
sitt við Milenu Francis,
sem er fimm ára gömul.
en á Valentínsdaginn beið
hann eftir henni og færði
henni blóm, þegar hún
kom úr leikskólanum, en
sjálfur er hann byrjaöur f
barnaskóla. Þótt þessi
mynd sé tekin um miöjan
febrúar, þá eru þau létt-
klædd, þvi aö um þetta
leyti eru sumarhitar I
Ástraliu.
„Það er
engin
skömm að
spara’%
segir
Lisa Minelli
■ Lisa Minelli heldur fast
um peningana sina.
þrátt fyrir milljónirnar.
Þegar hún fyrir nokkru
haföi keypt heilmikið hjá
einu dýrasta tiskuhúsi
New Yorkborgar flýtti
hún sér að leggja fram
stéttarfélagsskirteini sitt.
Skirteini þetta veitir
henni afslátt þVi hún sem
leikkona er góð auglýsing
fyrir fötin.
,,Ég hef ekki gleymt
hvernig það er að hafa
næstum enga peninga til
aðlifa fyrir. Það er engin
skömm að þvi að spara”
segir Lisa Minelli...
__________ — HL.
Ný snyrti-
gleraugu:
Nú sjá
þær til að
mála sig
■ Pönktískan hefur haft
heilmikið að segja fyrir
hárgreiðslu og förðun.
Stúlkurnar fá meira hug-
rekki af að sjá pönk-
tískuna i margs konar lit-
um og hárgreiðslu. Það er
hugrekki til aö vera eins
og þær sjálfar óska eftir,
vera óháöar duttlungum
tiskunnar. Augnskuggar I
hinum furöuiegustu litum
hafa komist i tisku. Til
dæmis hefur Mary Quant
kynnt nýja linu I augn-
skuggum, sem er jaöe-
græn.
Frá ttaliu kemur i ár ný
gerðaf gleraugum, þaö er
kannski ekki i frásögur
færandi, — en þessi eru
alveg sérstök. Þau eru
þannig gerð aö hægt er aö
opna glerið úr umgjörð-
inni og setja málninguna
á sinn hefðbundna staö.
Rétt er aö taka fram aö
þessi gleraugu eru hönn-
uö fyrir konur sem þurfa
aö nota gleraugu, og sjá
illa til aö snyrta sig gler-
augnalausar. — EKG.
■ Daman á myndinni opnar gleraugun til skiptis og
málar augnskugga og tilheyrandi strik — og sér nú vel
til þótt hún sé nærsýn.