Tíminn - 24.02.1982, Blaðsíða 13

Tíminn - 24.02.1982, Blaðsíða 13
Miövikudagur 24. febrúar 1982 T;i »m. n '■ 17 Iþróttir Valsmenn slegnir úr bikarnum — töpuðu 70:72 fyrir Keflvíkingum ■ Keflvikingar gerðu sér litið fyrir og slógu bikarmeistara Vals úr bikarkeppni KKÍ er félögin mættust i iþróttahúsi Hagaskóla i gærkvöldi. Keflavik sigraði 70-72 eftir að staðan i hálfleik hafði verið 42-44 fyrir Keflavik. Leikurinn var allan timann i járnum og úrslitin réðust ekki fyrr en á siðustu sekúndunum. Valsmenn eru eftir þetta án möguleika i báðum stórmótum körfuknattleiksins. Islandsmóts- ins og bikarkeppninnar. „Mesta trú á Júgóslövum” — segir Björgvin Björgvinsson um HM-keppnina í handknattleik ■ „Ég held að baráttan um heimsmeistaratitilinn muni standa á milli Rússa, A-Þjóðverja og Júgóslava og ég hef einna mesta trú á að Júgóslavar komi á óvart og vinni mótið”, sagði Björgvin Björgvinsson þjálfari 1. deildarliðs Fram i handknattleik i spjalli við Timann. „Annars verður allt önnur stemmning þegar þessi austan- tjaldslönd mætast innbyrðis heldur en þegar þau leika við aðr- ar þjóðir. En það sem ég tók eftir hjá Rússum þegar þeir léku hérna á dögunum, er hvað mark- varslan hjá þeim er slök og ég held að hún eigi eftir að koma þeim i koll i keppninni. Hvorki Danir né Sviar gera nokkrar rósir i þessari keppni ég spái Dönum 8.-12. sætiSviar gætu slysast i eitthvað sæti þar fyrir neðan 7.-8. en ég hef ekki trú á þvi”. röp-. Allt aetladi vitlaust að verða þegar Normadurinn Oddvar Brá sigraði 115 km göngunni og hafði sett heimsmet ad auki á HM í Holmenkollen í gær ■ Björgvin Björgvinsson. Þór í úrslit ■ Körfuknattleikslið Þórs er nú komið i úrslit i 2. deildarkeppni i körfuknattleik. t siðustu viku léku Þórsarar tvo siöustu leiki sina i riðlinum og sigruðu i þeim báðum. Þór sigraði Tindastól 88-43 og ísfirðingar voru einnig lagðir að velli 94-69 og vann Þór alla sina leiki i norðurlandsriðlin- um. í 2. deildinni er keppt i fjórum riðlum og auk Þórs hafa Mennta- skólinn á Egilsstöðum og Breiða- blik tryggt sér sæti i úrslitum en fjórða sætið skipar annað hvort FH eða Vestmannaeyingar en þau eiga eftir aö leika einn inn- byrðisleik og sker sá leikur úr um hvort félagið hlýtur þetta sæti. Úrslitakeppnin mun siðan fara fram á Akureyri um aðra helgi og verður þá keppt um lausa sætið i 1. deild. GK-AK/röp-. Frá fréttaritara Timans í Osló— Eiríki S. Eirikssyni ■ Líkt og í fyrri greinum Heimsmeistaramótsins í norrænum greinum á skíð- um, sem fram fer i Holmenkollen var keppni í 15 kílómetra göngu karla ótrúlega spennandi. Lengi vel leit út fyrir að Harry Kirvesnieni bæri sigur úr býtum, en ótrú- lega sterkur endasprettur Oddvar Braá frá Noregi gerði sigurvonir Finnans að engu. Fjórðu gullverð- laun Norðmanna á þessu móti voru þar með stað- reynd, og hafa Norðmenn því fengið verðlaun í öllum þeim greinum sem keppt hefur verið í á mótinu. Það var glfurleg stemmning i Holmenkollen þegarOddvarBraa nálgaðist rnarkið I 15 kilómetra göngunni og er ljóst varð að hann haföi sigrað Kirvesnieni og Sovét- manninn Zavialov og sett nýtt heimsmet á þessari vegalengd, ætlaöi allt vitlaust að veröa af fögnuði. Anægðastur allra var þó Odd- varBraa sjálfur, en þessi snjall- asti skíöagöngumaður Norð- manna, margfaldur Noregs- meistari, hefur aldrei slegið I gegn á Ólympluleikum eöa I heimsmeistarakeppni, þó hann hafi margsinnis borið sigur úr býtum á alþjóðlegum mótum. Sovétmanninum Zavialov gekk einnig mjög vel I 15 kilómetra göngunni og náði að lokum öðru sætinu. Þriðji varö Kirvesnieni en siðan komu Juri Burlakov og Alexander Babiuk. Hinn geysivinsæli og margfaldi Holmenkolíen sigurvegari Jo- hann Nieto frá Finnlandi varð I 6. sæti en þetta var hans slöasta 15 kllómetra ganga I Holmenkollen. Af öðrum keppendum má nefna að Paul Gunnar Mittelsplatt, Noregi varö I 10, sæti, Uve Omli I 11. sæti og bronsverölaunahafinn úr 30 kilómetra göngunni Bill Kuch, frá Bandarikjunum náði ekki einu sinni 20. sætinu. Sigur- vegarinn úr 30 kllómetra göng- unni Tomas Erikson Svíþjóö hætti keppni, og nafni hans Wartberg náði ekki að blanda sér I toppbar- áttuna. 1 gær var einnig keppt I keppni landsliða I tvlkeppni og eftir stökkkeppnina var staðan þannig aö Austur-Þjóöverjar hafa náð það góöu forskoti aö þaö ætti aö duga þeim til sigurs. Eftir svo- nefndri Gunderaöferð þá hafa A- Þjóöverjar rúmlega tveggja minútna forskot á Norðmennina sem eru I öðru sæti fyrir göngu- keppnina I dag. Þetta þýðir að A-Þjóðverjarnir leggja af staö tveimur minútum á undan Norð- mönnum, en keppt er I þrisvar sinnum 10 kílómetra göngu. Það lið vinnur svo sem kemur fyrst I mark. Baráttan um silfurverö- launin kemur til með að standa á milli Norömanna, Finna og Sovétmanna, en sem fyrr segir, þá verða Austur-Þjóöverjar að teljast nær öruggir um sigur. Frá fréttaritara Tímans í Osló— Eiríki S. Eiriks- syni ■ „Þetta hefur allt gengið mjög vel, og reyndar framar öllum vonum", sagði Haukur Sigurðsson skiðagöngu- maður frá óiafsfirði er Tíminn náði tali af hon- um eftir 15 kílómetra gönguna á HM i Holmenkollen. Allir Islendingarnir tóku þátt i keppninni I gær, og af þeim náði Einar Ólafsson Isa- firði bestum tlma — hann gekk 15 kllómetrana á 43.52 mlnút- um og hafnaöi Einar 157. sæti. Haukur Sigurðsson fékk tim- ann 44.06 minútur og varð I 58. sæti og Magnús Eirlksson hafnaði I 61. sæti. Jón Konráösson varö fyrir þvi óhappi að falla i brautinni og tapaði við það mörgum dýrmætum sekúndum, en hafnaði þó I 70. sæti. Alls tóku 89 keppendur þátt I göngunni. „Ég held að við megum vera ánægðir með þennan árangur og það er aö minnsta kosti greinilegt aö viö erum I mikilli framför, t.a.m. ef miöað er við ólympluleikana I Lake Placid” sagði Haukur „en þá varð ég rúmum 7 mlnútum á eftir fyrsta manni en munurinn i göngunni I dag var aöeins um 5 mlnútur. Samt hafa þeir bestu bætt mjög við sig sl. tvö ár”. Haukur kvaö alla fram- kvæmd mótsins frábæra og aldrei fyrr heföi hann orðið vitni aö jafn góðri skipulagn- ingu. Þaö væri hugsaö fyrir öllum smáatriöum og alltaf væri eitthvaö um aö vera. A morgun taka Islending- arnir þátt I 4 sinnum 10 klló- metra boðgöngu, og sagöi Haukur að þeir væru stað- ráðnir I að skjóta a.m.k. Dön- um og Klnverjum og vonandi fleiri þjóðum aftur fyrir sig. „Við verðum alla vega ekki siöastir”, sagði Haukur.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.