Tíminn - 24.02.1982, Síða 7

Tíminn - 24.02.1982, Síða 7
Miövikudagur 24. febrúar 1982 erlent yfirlit ■ Roberto d’Aubuisson hylltur i kosningafundi I E1 Salvador. Fasistar eflast í El Salvador Duarte spáð ósigri í kosningunum ■ BANDARIKJASTJÓRN hefur bundiö verulegar vonir viö þing- kosningar þær, sem hafa verið ákveðnar i E1 Salvador 28. marz næstkomandi. Von hennar hefur verið sú, að þær myndu styrkja José Napo- leon Duarte forseta og bæta að- stöðu hans til að koma fram þeirri umbótastefnu, sem hann hefur verið talsmaður fyrir, en ekki getað framkvæmt nema að sára litlu leyti, sökum andstööu her- höfðingjanna, sem raunverulega ráða stjórninni nú. Duarte forseti var um skeið borgarstjóri i höfuðborginni San Salvador og þótti reynast vel. Kristilegiflokkurinn tefldi honum fram sem frambjóðanda í for- setakosningunum 1972 og náði hann kjöri. Herinn skarst þá i leikinn og varð Duarte að flýja land. Hann dvaldi siöan I útlegð þangað til eftir byltinguna 1979, þegar ungir herforingjar ráku afturhaldssaman forseta frá völdum og hugðust koma á ýmsum félagslegum umbótum og koma þannig i veg fyrir svipaöa þróun og i Nicaragua. Kristilegi flokkurinn studdi tilraun þeirra og tók þátt i hinni nýju stjórn. Duarte var kvaddur heim og hon- um falið forsetavald þangað til kosningar hefðu farið fram. Brátt snérist þetta á aðra leiö en Duarte og félagar hans höföu gert sér vonir um. Völdin komust aftur raunverulega i hendur aft- urhaldssamra hershöföingja og auðmenn efldu skæruliöasveitir til að útrýma vinstri sinnuöum stjdrnmálaleiðtogum. M.a. drápu þær Oscar Arnulfo Romero erki- biskup við guösþjónustu i mars 1980. Svar vinstri manna var að snúast til varnar meö skæru- hernaöi. Hægri menn væru vafalitið búnir að reka Duarte frá völdum, ef hann væri ekki studdur af Bandarikjastjórn. Markmiö hennar hefur veriö að efla hann og hjálpa honum til að koma á jarðaskiptingu og ýmsum öðrum endurbótum. Hingaö til hafa þessar fyrirætlanir hans strandað að mestu á hershöföingjum. 1 ÞEIRRI VON að geta aukið völd Duarte, fékk Bandarikja- stjórn þvi' framgengt, að efnt yrði til þingkosninga. Þingið skyldi hafa tviþætt verkefni. 1 fyrsta lagi skyldi það setja nýja stjómarskrá. 1 ööru lagi skyldi það kjósa forseta, sem færi með völd, unz hin nýja stjórnarskrá kæmi til framkvæmda. Trú Bandarikjastjórnar var sú á þessum tima að Kristilegi flokkurinn myndi verða sigur- sælastur f kosningunum og Duarte verða kjörinn forseti og hafa meiri völd en áður. Mestar horfur virðast nú á, aði þessi áætlun Bandarikjastjórnar ætli að mistakast. Duarte hefur orðið meira og meira háður hægri öflunum og bilið milli hans og vinstri flokk- anna aukizt.Þeir hafa boöið að taka upp viðræður um vopnahlé og framkvæmd frjálsra kosninga en Duarte hefur verið svo háður hægri öflunum að hann hefur neitað þessu tilboði. Svar vinstri flokkanna hefur verið að hafna þátttöku i kosningunum og hvetja fylgismenn sina til að taka ekki þátt i þeim. Duarte hefur ekki aðeins misst stuðning vinstrimanna af þessum ástæöum. Nú hafa hægri menn snúizt gegn honum. Þeir þeirra, sem afturhaldssamastir eru,hafa skipulagt fasistaflokk, sem virðist njóta sivaxandi fylgis. Hann er studdur af auðmönnum sem hafa flúið til Bandarikjanna. Bersýnilegt er, aö fjárráö skortir hann ekki. FORINGI þess flokks er 38 ára gamall fyrrverandi liðsforingi Roberto d’Aubuisson að nafni. Hann boðar ómengaðan fasisma og hefur útrýmingu kommún- ismans á stefnuskrá sinni og það ekki aöeins I E1 Salvador heldur einnig i Nicaragua. Meöal þeirra, sem d’Aubuisson telur kommúnista eru Duarte for- seti og aðrir leiðtogar kristilegra demókrata. Þeir séu jafnvel verri en kommúnistar, þvi að þeir sigli undir fölsku flaggi. D’Aubuisson likir Duarte oft viö melónu, sem hann kreistir milli handanna og segir, að svona sé Duarte.’Grænn að utan, en rauður að innan. D’Aubuisson er maöur, sem þykirliklegur til að standa við orð sin, ef hann fær völd til að efna þau. Deane R. Hinton fyrr- verandi sendiherra Bandarikj- anna f E1 Salvador telur sig hafa sannanir fyrir þvi, að það hafi verið d’Aubuisson, sem gaf fyrir- mælin um að myrða Amulfo Romero erkibiskup. FREGNUM frá E1 Salvador virðist bera saman um, að fylgi þjóðlega lýðveldisbandalagsins, en svo nefnir d’Aubuisson flokk sinn vaxi dag frá degi. D’Aubuisson er nú í kosninga- ferðalagi og er hvarvetna vel tekið. Fólk viröist flykkjast um hann, eins og lausnari E1 Salva- dor væri á ferð. Augljóst þykir, að herinn styrk- ir hann og hvetur fólk til að sækja fundi hans. Minnkandi likur eru nú taldar á þvi, að kristilegir demókratar fái meirihluta. Átta flokkar hafa lýst yfir þátttöku i kosningunum, en aðeins þrir þeirra eru taldir lik- legir til verulegs fylgis. Þaö eru kristilegir demókratar, flokkur d’Aubuissons og gamli hægri flokkurinn, sem lengstum hefur verið við völd I E1 Salvador. Fái hann úrslitavald mun hann aö lik- indum styðja d’Aubuisson. Sigur d’Aubuissons yrði hroll- vekja fyrir Bandarikjamenn, en vatn á myllu vinstri skæruliöa. Sennilega myndi þá meirihluti kristilegra demókrata snúast á sveif með þeim. Þórarinn Þórarinsson ritstjóri, skrifar ■ .__________________________j erlendar fréttir Bardagar í Kampala í fyrrinótt ■ Stjórnvöldl Uganda héldu þvi fram I gær að stjórnarher- inn þar i landi heföi barið niður árás skæruliða á aðal vopnabirgðastöö hersins i Kampala, höfuðborg Uganda. Sögðu stjórnvöld að skæru- liðar i andstöðu við stjórnvöld landsins hefði staðið að þessari árás. Fregnir frá Uganda i gær hermdu aö bardagar á milli stjórnarhermannanna og skæruliðanna hefðu brotist út i fyrrinótt og staðið langt fram á dag i gær, og var sagt að þetta væru mestu bardagar i Uganda undanfarið ár. Ekki var vitað i gær hve margir hefðu látist eða særst, en talið var vist i gær að tala látinna, bæði skæruliða og hermanna skipti tugum. Skæruliðarnir tilheyra Frelsishreyfingu Uganda og lýstu þeir þvi yfir i gær að árás þeirra hefði heppnast, þar sem þeim hefði tekist að koma böndum yfir mikið magn af hergögnum og skotvopnum, auk þess sem liðssveitir þeirra heföu haslaö sér völl á bar- áttusvæðum i Kampala. Útvarpið i Uganda visaöi þessum yfirlýsingum skæru- liðanna á bug og sagði að stjórnarherinn hefði auðveld- lega barið niður árás þeirra og hrakiö þá á flótta. I eftirmiðdaginn i gær útvarpaði Útvarpið i Uganda fregnum þess efnis aðallt væri nú með kyrrum kjörum i Kampala, en jafnframt voru Ugandabúar varaðir við þvi að þeir sem hjálpuðu skæru- liðunum, væru með þvi móti, eins og það var orðað, að koma fjölskyldum sinum og nágrönnum i vandræði, þján- ingar og eymd. Efnahagsbandalagið ákveður: Takmörkuri á innflutn- ingi frá Sovétríkjunum ■ Aðildarriki Efnahags- bandalags Evrópu hafa sam- þykkt að takmarka flutning frá Sovétrikjunum, vegna setningar herlaganna i Pól- landi. Verður innflutningur á iðnvarningi takmarkaður, sérstaklega á þvi sem talist getur til lúxusvara, en tak- mörkunin á ekki að hafa áhrif á innflutning oliu o.þ.h. frá Sovétrikjunum. Segja talsmenn Efnahags- bandalagsins að markmiðið með þessum takmörkunum sé að finna leiðir til þess að koma höggi á Sovétrikin, án þess að orsaka óþægindi fyrir lönd Vestur-Evrópu. Verða tak- markanirnar i smáatriðum kynntar rikisst jórnum aðildarlandanna eins fljótt og auðið er. Tafir við réttarhöld í Madrid ■ övænt seinkun átti sér stað i réttarhöldunum I Madrid i gær, yfir þeim 32 herfor- ingjum og borgurum, sem handteknir voru i fyrra og ásakaðir um að hafa verið við- riðnir byltingatilraun á Spáni. Verjendur hinna ákærðu töfðu réttarhöldin i meira en þrjár klukkustundir með þvi að neita að ganga i réttarsalinn. Með þessu voru þeir að mót- mæla grein sem birtist i dag- blaöi i Madrid, þar sem vitnað var i orö ónafngreinds her- manns og haft eftir honum að einn af ákærðu herfor- ingjunum hefði þegar til bylt- ingartilraunarinnar kom, neytt si'na eigin menn til þess að taka þátt i byltingartil- rauninni, með þvi að ógna þeim með byssu. Hægt var að halda áfram réttarhöldunum i gær, en þetta var fjórði dagur réttarhaldanna, eftir að rit- stjóri áðurnefnds dagblaðs hafði verið rekinn úr réttar- salnum. Utanrikisráðherrar ísrael og Egyptalands á fundum ■ Utanrikisráöherra Israel og Egyptalands hafa ræðst við I Karó að undanförnu. Útvarpið i Israel greindi frá þvi i gær að tekist heföu samn- ingar á þessum fundum ráð- herranna um viðskipti land- anna auk þess sem náöst hefði samkornulag um bankavið- skipti landanna. Lýstu ráðherrarnir við- ræðum sinum sem árangurs- rikum,enþeirmunuá morgun halda sameiginlegan blaða- mannafund, en þá verður utanrikisráðherra Israel einnig búinn að eiga fund með Mubarak, forseta Egypta- lands. SPRENGJUR I BEIRÚT ■ Tvær bilsprengjur sprungu i höfuðborg Libanón, Bairút i gær, með þeim afleiðingum að nokkrir létust og aðrir særðust eða króuðust af i húsarústum. Sprengjurnar sprungu I verslunarhverfi i vesturhluta borgarinnar, þar sem svo til eingöngu múhammeðstrúar- menn búa. Mikill fjöldi bygginga skemmdist og fólk grófst i rústunum. I gær höfðu tvenn samtök lýst ábyrgð á hendur sér vegna sprengjutilræð- anna. MAFIU MORÐ A ITALIU ■ Háttsettur lögreglumaöur I Napóli á Italiu var I gær myrt- ur á heimili sinu. Var jafnvel taliö I gær aö morð þetta gæti tengst atburöi i réttarsal borgarinnar i fyrradag, þegar einn fangi skaut annan fanga og drap hann við réttarhöld og særði auk þess tvo aöra. Önafngreindur maöur hringdi i dagblað I Napóli I gær og sagði að lögreglu- maöurinn hefði verið myrtur i gær, vegna þess að hann hefði útvegað fanganum skotvopn sem drap og særði meðfanga sina I fyrradag. Telja frétta- skýrendur að hér sé um aö ræöa valdabaráttu innan Napóli-mafiunnar.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.