Tíminn - 12.03.1982, Page 5

Tíminn - 12.03.1982, Page 5
LITAVER LITAVER LITAVER — LITAVER — LITAVER — LITAVER Föstudagur 12. mars 1982 lllilliil fréttir ARNARFLUG KEYPTIIS- CARGO A 29 MILUÓNIR ■ Snemma i gærmorgun var greitt i peningum og með yfirtök- gengið frá kaupum Arnarflugs um á lánum. hfá Iscargó hf., og er kaupverð- Timinn sneri sér til Kristins ið 29 milljónir króna, sem verður Finnbogasonar, framkvæmda- Fulltrúar Flugleiða í stjórn Arnarflugs: Óska eftir óvilhöllu mati á eignum íscargo ■ „Kaup Arnarflugs á Is- cargo voru rædd á stjórnar- fundi Flugleiða i dag, og stjórnin afgreiddi þetta mál þannig að hún óskaði þess að fulltrúar Flugleiða i stjórn Arnarflugs, óski eftir þvi að fram fari mat óvilhallra manna á þeim eignum sem meirihluti stjórnar Arnarflugs hf.,samþykkti að kaupa af Is- cargo 8. mars sl.,”' sagði Sveinn Sæmundsson, blaða- fulltrúi Flugleiða i viðtali við Timann i gær, þegar hann var spurðurfrétta af stjórnarfundi Flugleiða. Sveinn var að þvi spurður hvort hugmyndir samgöngu- ráðherra um skiptingu flug- leiða i áætlanaflugi hefðu ver- ið ræddar á stjórnarfundinum og sagði hann: „Þetta mál kom til umræðu. Flugleiðir eru með tilnefningu af tslands hálfu, til fimm ára frá október 1979 til Þýskalandsflugs. Það er búið að vera að selja i þess- ar ferðir til Þýskalands og Amsterdam frá þvi að vetrar- áætlunin kom út i október sið- astliðnum. I Þýskalandi gilda sérstök lög um skyldur bæði flugfélaga og ferðaskrifstofa við sina viðskiptavini, þannig að ef að einhver sem er búinn að taka að sér flutning, verður af einhverjum orsökum ekki fær um það, þá verður hann skaðabótaskyldur. Það er al- veg öruggt mál að Flugleiðir yrðu skaðabótaskyldir við mikinn fjölda þeirra 4800 far- þega sem búnir eru að bóka sig milli Dusseldorf og Islands i sumar.” _ AB stjóra Iscargó og spurði hann um það hvernig eigur félagsins hefðu verið metnar: „Lockheed Electra vöruflutn- ingavélin var seld á þvi verði sem félagið hafði gert kaupsamning um við söluaðilann í Perú, en það voru 2 milljónir, 350 þúsund doll- arar. (Það jafngildir 23.5 milljón- um króna, innskot blm.) Vara- hlutir voru á milli 2 og 300 þúsund dollara virði (2 til 3 milljónir króna), losunar-, lestunartæki og fleira voru að verðmæti 100 til 150þúsund dollarar (1 til 1.5 mill- jón króna) og svo eru húseignirn- ar afgangurinn af verðinu,” sagði Krstinn. Kristinn var að þvi spurður hvort kaupverðið á Electra flutn- ingavélinni væri ekki óeðlilega hátt: „Það eru Flugleiðamenn sem hafa haldið þeirri skoðun á lofti, að vélin væri óeðlilega hátt metin, og i þvi sambandi vil ég minna á það, að á miðju ári 1981 mátu þeir Flugleiðamenn flug- vélina FL B, sem er DC 8, á 10.2 milljónir dollara, flugvélina FL C, sem einnig er DC 8, á 13 mill- jónir dollara, og auk þess vil ég benda á aðflugvélin FL H, sem er Boeing 727-100, er metin á 4.6 milljónir dollara og siðast en ekki sist er flugvélin Boeing 727-200 metin á 15.6 milljónir dollara. Þvi vil ég fara fram á það að þegar að þeir Flugleiðamenn eru að meta vél tscargó að þeir noti sömu matsreglu og þeir notuðu þegar þetta mat var gert á miðju ári i fyrra,” sagði Kristinn. — AB Steingrímur Hermannsson um kaupin á íscargo: Hef engin afskipti haft af þessum samningum ■ Langar og strangar umræður urðu utan dagskrár á Alþingi i gær vegna kaupa Arnarflugs á Iscargo. Arni Gunnarsson hóf umræðuna og spurði hver afskipti samgönguráðherra væru að kaupunum. Lét hann að þvi liggja að þarna hafi i raun farið fram sala á flugrekstrarleyfum, þar sem kaupverö Iscargo væri hærra en svo að eignir félagsins stæðu undir þvi. Þá taldi hann að af- skipti útvegsbankans af samningunum væri óeðlileg. Steingrimur Hermannsson sagði að hann hafi ekki haft af- skipti af þeim viðræðum sem leiddu til kaupanna og ekki óskað eftir samningum um þessi mál við Útvegsbankann eða aðra aðila enda hafi hann ekki talið sér heimilt og enn siður skylt að hafa afskipti af samningunum. Það væru stjórnir þeirra hlutafélaga er að samningunum standa sem gerðu út um kaupin og vissi hann ekki hvort þau væru sérstaklega hagstæðari öðrum aðilanum fremur en hinum. Um hlutdeild Útvegsbankans sagði ráðherrann að þeir menn sem honum stjórna hljóti sjálfir að ákveða hvað bankanum er hagkvæmast. Steingrimur itrekaði þá skoðun sina að sjálfsagt væri að einhver samkeppni væri i flugmálum og eðlilegt að hér væri rekið stórt flugfélag og annað minna, og f lugleiðum skipt á milli þeirra. Um þá aðdróttun að verið væri að selja flugleyfi sagði hann, að Is- cargo hafi skilað inn sinum leyf- um, eins og vera ber. Hins vegar væri fremur hægt að tala um að flugrekstrarleyfi væru seld þegar hlutabréf flugfélags i fullum gangi gengju kaupum og sölum og spurði siðan hvort ekki hafi verið seld flugrekstrarleyfi þegar F1 og Loftleiöir stofnuðu Flug- leiðir? Þá fylgdu öll leyfi með i kaupunum. Framhald á bls. 26. LITAVER - LITAVER - LITAVER — LITAVER — LITAVER líIAVER LlTAVtR 11 A V t R dPLITAVER Auglýsir FULL BÚÐ AF Ertu aö byggja viitubreyta þarftu aö bd&ta B NÝJUM 1 VÖRUM I Sýnishorn úr teppadeild: 9 Nylon filt teppi 35 litir. Verö frá kr. 39.45 ferm. i Akríl teppi. Verö frá kr. 130.- ferm. » Akrfl og ullar teppi. Verð frá kr. 150.20 ferm. » Nylon teppi. Verð frá kr. 54.- ferm. » Mikiö úrval ullarteppa. Verö frá kr. 259.- ferm. • Gólfdúkaúrval. Verð frá kr. 69.- ferm. • Baðteppi, breidd 150 cm. kr. 315.- m. • Kókosdreglar 3 litir. Verð kr. 275.- ferm. • Teppadreglar 80-100 cm. breidd. • Mikið úrval af stökum ullarteppum (Rýmingar- sala) OPIÐ: Til kl. 7 á föstudögum. Til hádegis á laugardögum. Littu við í Litaver því það hefur ávallt borgað sig • Málning: Kópal-Kópal hula—Hörpusilki— Pólytex — Spred satin — Vitratex. • Veggstrigi. Verð frá kr. 10.- meter. • Vegcjdúkur, breidd 53 cm. 65 cm. 80 cm. og l m. • Veggfóöur. Verð frá kr. 30.- rúllan. • Hurðar skrautlistar, 15 gerðir. • Rósettur í loft, 5 stærðir. Grensásveg 18 Hreyfi,shú|inu82444 LITAVER — LITAVER - LITAVER — LITAVER LITAVER LITAVtR LITAVnR l !'' AV E R

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.