Tíminn - 12.03.1982, Blaðsíða 18

Tíminn - 12.03.1982, Blaðsíða 18
Föstudagur 12. mars 1982 26 meðalannarra orða ■ Um þaö leyti sem búnaöarþing var aö hefja störf sin hófust umræöur um stööu landbúnaöar. Kveikjan var sú aö fram kom aö erlendir markaöir fyrir dilkakjöt heföu þrengst. Var þvf slegið upp I hálfgerðum æsifregnastíl aö þaö þyrfti aö fækka sauðfé veruiega þannig aö kjötframleiösian væri nákvæmlega i samræmi viö innlenda neyslu Mörgum er i fersku minni sú tiö þegar ákveðnir fjölmiðlar hömröuðu á þvi vikum og mánuðum saman að islenskur landbúnaður væri arölaust basl sem hagkvæmast væri að leggja niður og kaupa land- búnaðarafurðir erlendis frá. Var ekki laust við að þessi tónn kæmi nú fram að nýju. t þessu sambandi er rétt að gera sér grein fyrir þvi að landbúnaður er ein traustasta undirstaða þjóð- félagsins. í fyrsta lagi er það mikilvægt öryggisatriöi fyrir eyþjóð langt norður i hafi að vera sem mest sjálfri sér nóg um matföng þannig að hún svelti ekki þótt stirt verði með flutninga. 1 öðru lagi er það óhemju gjaldeyrissparandi að fram- leiða matvæli innanlands. 1 þriöja lagi er land- búnaöurinn gjaldeyrisaflandi þvi mikill og vaxandi iðnaður byggir á hráefnum úr land- búnaði. 1 fjórða lagi á stór hópur þéttbýlisbúa atvinnu sina og lifsöryggi undir þvi að hér sé blómlegur landbúnaður. Þetta er hópur sem vinnur við úr- vinnslu dreifingu og sölu land- búnaðarafurða fólk sem annast þjónustu við land- búnaðinn og fólk sem vinnur við iðnað úr landbúnaðarhrá- efnum. 1 fimmta lagi er engum til hagsbóta að taka stórar kúvendingar i landbúnaðar- stefnunni. Það mundi ekki kosta neitt smávægilegt þjóð- félagslegt brambolt ef flytja ætti eigendur þótt ekki væri nema 150.000 sauðkinda i þétt- býlið. Hvað yrði um eignir þessa fólks og hvar ætti það að fá atvinnu? 1 sjötta lagi er landbúnaður styrk stoð við að halda byggð um landið og stuðlar að þvi að fólk vilji setjast að úti á landi og stunda þar ýmsa aðra vinnu. Ætli margir útgerðar- staðirnir yrðu ekki heldur fátæklegir ef sveitinni sem þar stendur venjulega á bak við væri allt i einu kippt burt. Sú stefna hefur verið rekin um langt skeið i islenskum landbúnaði að framleiða þvi sem mest fyrir innanlands- markað. Það er að visu markmið sem ómögulegteraðná vegna þess að neysla t.d. á dilkakjöti er siður en svo einhver óbreytan- leg stærð. Hún fer eftir auglýsingum, kaupgetu fólks, framboði og auglýsingum á annarri vöru, tiskustefnum i matargerð og mörgu fleiru. Og þó neyslan væri þekkt stærð væri ekki mögulegt að framleiöa nákvæmlega fyrir hana. Framleiðslumagn landbúnaðarafurða getur verið verulega mismunandi frá ári til árs t.d. vegna verðurfars, fóðurgæða o.fl. Það er rétt að um stund er dilkakjötsframleiðslan meiri en við neytum sjálfir. Það er hins vegar engin ástæða til þess að gripa til róttækra aðgerða til þess að fækka sauðfé. Slika fækkun er mun betra að framkvæma smám saman á lengri tima t.d. með tilkomu nýrra búgreina. Það má lika taka upp virkari aug- lýsinga- og pökkunarpólitik á kjöti, þvi það verður að segjast eins og er að margar landbúnaðarafurðir eru fram- leiddar i skemmtilegri pakkn- ingum en dilkakjöt og auglýs- tar á virkari hátt. Það er þvi ekki fráleitt að ætla að bæta megi upp missi norska markaðiarins fyrir dilkakjöt með þvi að minnka fram- leiðsluna hægt og rólega og stækka jafnframt innlenda markaðinn með endurbótum á pakkningum, söluaðferðum, og enn virari auglýsingastarf- semi en til þessa hefur verið rekin fyrir þetta ágæta hráefni til matargerðar sem dilka- kjötið er. Haukur Ingibergsson skrifar T raustur landbúnadur — traust þjóðfélag flokksstarfid Grindavík Listi framsóknarfélags Grindavikur til prófkjörs sunnu- daginn 14. mars. er sem hér segir: Bjarni Andrésson Staðarhrauni 11 Guðmundur Karl Tómasson Efstahrauni 5 Gunnlaugur Hreinsson Selsvöllum 21, Gunnar Vilbergs- j son Heiðarhrauni 10, Gylfi Hallórsson Borgarhrauni 14 Halldór Ingvarsson Asabraut 2, Helga Jóhannsdóttir Suðurvör 4 Kristinn Gamaliasson Borgarhrauni 18 Kristján Finnbogason Staðarhrauni 9 Ragnheiður Bergmundsdóttir Mánasundi 4, Salbjörg Jónsdóttir Mána- gerði 5 og Þórarinn Guðlaugsson Staðarhrauni 21 1 ' Bingó Félag ungra framsóknarmanna heldur bingó n.k. sunnu- dag kl. 14.30 að Hótel Heklu Rauðarárstig 18. FUF Reykjavik. Bolvikingar Takið þátt i prófkjörinu um helgina 13.-14. mars Framsóknarfélag Bolungarvíkur k i Skagfirðingar — Sauðárkróksbúar Almennur stjórnmálafundur verður i framsóknarhúsinu Sauðárkróki laugardaginn 13. mars kl. 13.30. Steingrimur Hermannsson formaður Framsóknarflokks- ins og alþingismennirnir Páll Pétursson, Stefán Guð- mundsson og Ingólfur Guðnason. Framsóknarfélag Skagafjarðar. Borgarnes nærsveitir Næstkomandi föstudagskvöld hefst 3ja kvölda keppni I félagsvist. Spilað verður föstudagaan 12. mars, 25. mars og 16. april. Hefst kl. 20.30 öll kvöldin. Framsóknarfélag Borgarness. Fundur verður i Fulltrúaráði framsóknar- félaganna i Reykjavik mánudaginn 15. mars 1982, að Hótel Heklu Rauðarárstig 18 og hefst hann kl. 20.30 Dagskrá: Lagður verður fram listi frambjóðenda vegna kosninga til borgarstjórnar Reykjavikur 1982. Fulltrúaráðsskirteini eða nafnskirteini sýnist við inn- ganginn. Stjórnin Viðtaistimi borgarfulltrúa Páll R. Magnússon fulltrúi i stjórn Verkamannabústaða og atvinnumálanefnd Reykjavikur og Valdemar Kr. Jóns- son formaður veitustofnana verða til viðtals að Rauðarár- stig 18 laugardaginn 13. mars milli kl. 10 og 12. FuIItrúaráð Grindvikingar Sameiginlegt prófkjör allra flokka fer fram i Grindavik sunnu- daginn 14. mars. Kosið verður i Félagsheimilinu Festi. Utankjörstaðakosning verður frá 10.-13. mars hjá kjörstjórn. Upplýsingar i sima 8211. Aðalfundur fulltrúaráðs framsóknarfélaganna I Reykjavik verður haldinn fimmtudaginn 18. mars að Hótel Heklu Rauðarár- stig 18. Hefst hann kl. 20.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin Húnvetningar Almennur stjórnmálafundur verður haldinn á Hótel Blönduósi föstudaginn 12. mars 1982 kl. 21.00 Á fundinn mæta: Steingrimur Hermannsson samgöngu og sjávarútvegs- ráðherra og alþingismennirnir: Páll Pétursson, Stefán Guðmundsson og Ingólfur Guðnason. Allir velkomnir Framsóknarfélögin Austur-Húnavatnssýslu fréttir I Steingrímur Framhald af 5. siðu. Mikið var úr þvi.gert að Stein- grimur hafi kallað flugráðsmenn og fleiri sem að flugrekstri vinna um það leyti sem verið var að semja um kaupin og svaraði hann þvi að þeir sem starfa að flug- málum komi dögum oftar til sin með erindi og ef hann þyrfti að ráðfæra sig við einhverja um flugmál, hverja ætti hann fremur að kalla til sin en flugráðsmenn? Albert Guðmundsson form. bankaráös Útvegsbankans sagði að stjórnendur bankans hefðu einungis gætt hagsmuna bankans i sambandi við kaupin og væri þeim nú betur borgið en áður. Hann furðaði sig á að Árni Gunnarsson skyldi hafa undir höndum samninga og önnur plögg sem bankaráðsmönnum væri sagt að væru trúnaðarmál, en hinn siðarnefndi las upp úr pappirum þessum á Alþingi. Tómas Arnason viðskipta- ráðherra sagði að ásökunin um sölu ráðherra á flugrekstrarleyf- um væri svo alvarleg, að þeir menn sem héldu henni fram yrðu að finna orðum sinum stað og að eftir þessa umræðu hlyti að vera komið að Arnarflugsmönnum að gera grein fyrir hvers vegna þeir telja sér hag i að kaupa Iscargo. Oó Kvikmyndir Sími78900 Fram i sviðsljósið (Being There) _ _____ Grinmynd i aígjörum sérflokki. Myndin er talin vera sú albesta sem Peter Sellers lék i, enda fékk hún tvenn óskarsverölaun og var útnefnd fyrir 6 Golden Globe Awards. Sellers fer á kostum. Aöalhlutv.: Peter Sellers, Shirley MacLaine, Melvin Douglas, Jack Warden. íslenskur texti. Leikstjóri: Hal Ashby. Sýnd kl. 3, 5,30. 9 og 11.30. Dauöaskipið (Deathship) súUkl Þeir sem lifa þaö af aö bjargast úr draugaskipinu, eru betur I staddir aö vera dauöir. Frábær | hrollvekja. Aöalhlutv.: George Kennedy, | Richard Crenna, Sally Ann How- es. Leikstj. Alvin Rafott. Bönnuö börnum innan 16 ára. lslenskur texti. Sýnd ki. 3, 5. 7. 9 og 11 A föstu (Going Steady) Frábær mynd umkringd Ijóman- um af rokkinu sem geisaöi um 1950. Party grin og gieöi ásamt öllum gömlu góöu rokkiögunum. Bönnuö börnum innan 12 ára. Sýnd kl. 3.10, 5.10 og 7.10. ísíenskur textí. Halloween Halloween ruddi brautina i gerö hrollvekjumynda, enda leikstýrir hinn dáöi leikstjóri John Carpen- ter (Þokan). Þessi er frábær. AÖalhlutv.: Donald Pleasence, Jamie Lee Curtis, Nancy Lomis. Bönnuö bömum innan 16 ára. lslenskur texti. Sýnd kl. 9.10 og 11.10. Trukkastriðið (Breaker Breaker) Heljarmikil hasarmynd þar sem trukkar og slagsmál eru höfö i fyrirrúmi. Fyrsta myndin sem karate-meistarinn Chuck Norris leikur i. Aöalhlutv.: ChuckNorris, George Murdoch, Terry O’Connor. Bönnuö innan 14 ára. lslenskur texti. Sýnd kl. 3.15, 5.15 og 7.15. Ath. sæti ónúmeruö Endless Love Enginn vafi er á þvi aö Brooke Shields er táningastjarna ungl- inganna i dag. Þiö muniö eftir henni úr Biáa lóninu.' Hreint frá- bær mynd. Lagiö Endless Love ér til útnefningar fyrir besta lag I kvikmynd i mars nk. Aöalhlutverk: Brooke Shields, Martin Hewitt, Shirley Knight. Leikstj.: Franco Zeffirelli. | Islenskur texti. Sýnd kl. 7.15 og 9.20

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.