Tíminn - 12.03.1982, Blaðsíða 12

Tíminn - 12.03.1982, Blaðsíða 12
20 Föstudagur 12. mars 1982 Umboðsmenn Tímans Suðurnes Staður: Nafn og heimili: Slmi: Grindavlk: Ólina Ragnarsdóttir, 92-8207 Sandgerði: Asabraut 7 Kristján Kristmannsson, 92-7455 Keflavik: Suðurgötu 18 Eygló Kristjánsdóttir, 92-1458 Dvergasteini Erla Guðmundsdóttir, Greniteig 45 92-1165 Ytri-Njarövlk: Steinunn Snjólfsdóttir / Ingimundur Jónsson Hafnarbyggð 27 92-3826 Hafnarfjörður: Hilmar Kristinsson heima 91-53703 Nönnustlg 6, Hafnarf. vinnu 91-71655 Garðabær: Sigrún Friðgeirsdóttir Heiðarlundi 18 91-44876 Hveragerði Eftirtalin störf hjá Hveragerðishreppi eru laus til umsóknar: Starfsmaður á skrifstofu hreppsins. Fóstra á leikskóla. Laun skv. launakerfi opinberra starfsmanna. Umsóknarfrestur er til 22-mars. Nánar upplýsingar hjá undirrituðum i sima 99-4150 Sveitarstjóri Hveragerðishrepps. Úrval af Úrum Magnús Ásmundsson (Jra- og skartgripaverslun Ingólfsstræti 3 Úraviðgerðir. — Póstsendum Simi 17884. Þjálfaranámskeið C stig Þjálfaranámskeið C stig verður haldið 26r 28. mars, fyrri hluti og 16.-18. april seinni hluti. Þátttökutilkynningar berist skrif- stofu K.S.Í. fyrir 19. mars n.k. sem veitir nánari upplýsingar. Simi 84444 frá kl. 2-5. Tækninefnd K.S.t. Arkitekt eða verkfræðingur með sérmenntun eða starfsþjálfun á sviði skipuiagsmála óskast til starfa hjá Skipu- lagi rikisins frá og með 1. april n.k. Laun skv. launakerfi opinberra starfs- manna. Umsóknir er greini frá menntun og starfs- reynslu, skulu sendast skipulagsstjóra rikisins fyrir 27. mars n.k. Skipulag rikisins Borgartúni 7, 105 R. Leikfanga húsið Sími 14806 SkólavörðustígK) Snjóþotur m/stýri Snjóþotur m/bremsum Einnig BOB-BORÐ o.m.fl. Enginn póstkröfu- kostnaður Póstkröfusími 14806 I I fþróttir Sá pólski setti Viðari stólinn ffyrir dyrnar Viðar Þorkelsson landsliðsmaður í körfuknattleik hefur tilkynnt Einari Bollasyni að hann geti ekki tekið þátt í undirbuningi landsliðsins fyrir Evrópu- keppnina Valur^ gegn IS ■ Tveir leikir verða i úrvals- deildinni i körfuknattleik um komandi helgi. Leikir þessir skiptu litlu máli þar sem úrslitin á botni og toppi deildarinnar eru nú þegar ráðin. Fyrri leikurinn verður á morg- un og er hann á milli Vals og Stúdenta og hefst sá leikur i Hagaskóla kl. 14. A sunnudags- kvöldið leika siðan á sama stað KR og Fram og hefst sá leikur kl. 20. röp—. I ,,Mig langar til þess að vera með I knattspyrnunni frá byrjun og pólski þjálfarinn hjá Fram hefur sagt mér að fari ég með landsliðið I körfu á Evrópumótið þá muni ganga erfiðlega fyrir mig að vinna mér sæti í Fram-lið- inu”, sagði Viðar Þorkelsson landsliðsmaður I körfuknattleik i samtali við Timann i gær. Viöar hefur nú tilkynnt Einari Bollasyni landsiiðsþjálfara i körfuknattleik að hann geti ekki tekið þátt i undirbúningi iiðsins fyrir Evrópukeppnina sem verð- ur i Skotlandi i næsta mánuði. „Pólski þjálfarinn er mjög hissa á þvi að ég skuli stunda tvær iþróttagreinar. Annað hvort er þvi fyrirmig að velja körfuknatt- leikinn og geta þá gleymt þvi að leika með Fram liðinu i sumar, eða sleppa landsliðssætinu. Það er mikil samkeppni að komast i lið hjá Fram i sumar og pólski þjálfarinn hefur nokkurn veginn sett manni stólinn fyrir dyrnar. Til þess að komast i lið verði maður að mæta vel. Þá spilar einnig inn i að ef ég hefði farið utan með landsliðinu i körfu þá hefði maður misst mikið úr skól- anum. Þess vegna valdi ég frekar að leika knattspyrnuna hér heima. En þetta gengur ekki svona lengur, maður verður að fara að gera upp við sig i hvorri iþrótta- greininni maður ætli að vera, það þýðir ekki lengur að vera i hvoru tveggja”. röp—. Rádast úrslit um helgina? næst slðasta umferðin í 1. deild karla um helgina ■ Nú eru aðeins tvær umferðir leik og baráttan á botni og toppi eftir á islandsmótinu I handknatt- deildarinnar er i hámarki. ■ Vlkingar og Þróttarar verða i baráttunni i 1. deild tslandsmótsins I handknattleik um helgina. Hér er Ólafur Jónsson landsliðsfyrirliði f kröppum dansi gegn Þrótti i leik liðanna fyrir skömmu. Tlmamynd Róbert. 13. og næstsiðasta umferðin verður leikin nú um helgina, en ekki er vfst að baráttunni Ijúki að þeirri umferð lokinni. Það eru Vikingar og FH-ingar sem berjast um tslandsmeistara- titilinn og hvert stig er dýrmætt og trúlega ráðast úrslit ekki fyrr en i siðustu umferðinni er þessi félög mætast innbyrðis i Hafnar- firði. FH heldur norður til Akur- eyrar og leikcþþar við KA á morgun kl. 15.30. Vikingur leikur við Val I Laugardalshöll á sunnu- dagskvöldið kl. 20 og verður þar örugglega um spennandi leik að ræða. Eins og fyrr var sagt þá er botnbaráttan einnig i algleymingi og þar berjast þrjú félög um fall tveggja liða, KA, HK og Fram. HK leikur við KR að Varmá á morgunoghefstsá leikurkl. 13.20 — eða fyrr en áætlað var vegna úrslitaleiksins i sjónvarpinu. HK hefur ávallt verið erfitt heim að sækja og það verður enginn leikur frir KR-inga að fara með sigur af hólmi, þeir þurfa örugglega að hafa fyrir honum. Siðasti leikurinn verður siðan viðureign Fram og Þróttar, sem verður i Laugardalshöll á morgun og hefst hann kl. 14. Sama er upp á teningnum á þeim vigstöðum eins og að Varmá, botnbaráttan i algleymingi. — röp. Erlendu leikmennirnir í körfuknattleiknum: „Skiptar skodanir” — „innan KR um þessi mál” segir Björgvin Schram formaður körfuknattleiksdeildar KR ■ ,,Það eru skiptar skoðanir um þetta innan KR og það er enginn einhugur um þessi mál. Það eru raddir uppi um að þetta gangi ekki lengur og aðrir sem segja að körfuknattleikurinn hafi betrum- bæst með veru þessara manna”, sagði Björgvin Schram formaður körfuknattleiksdeildar KR er Timinn innti hann eftir þvl hvort honum fyndist ab útiloka ætti erlendu leikmennina frá keppni með islenskum liðum. „Mér finnst árangurinn af veru þessara manna hérna ekki hafa tekist sem skyldi og reynslan hjá okkur undanfarin ár af þessum mönnum hefur verið léleg. Þó vil ég segja að Stew Johnson er þar undantekning. Með komu hans fengum við mann sem er góður þjálfari fýrir alla flokka og einnig góður leikmaður. Mér hefur fund- ist aö oft reyna félögin að ná i mann sem getur skorað körfur heldur en góðan þjálfara”. röp—.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.