Tíminn - 12.03.1982, Blaðsíða 20
VARA HL.UTIR
Sendum um land allt.
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
Sími (91) 7-75-51, (91) 7-80-30.
TT|VT)~n TTT? Skemmuvegi 20
ttHiUXT nr . Kiipavogi
Mikið úrval
Opid virka daga
919 • Laugar-
daga 10-16
HEDD HF.
Gagnkvæmt
tryggingaféJag
labnel
HÖGGDEYFAR
(iJvarahlutir
Armiila 24
Sfmi 36510
Föstudagur 12. mars 1982
■ Helgi Tómasson i hlutverki Albreghts i „Gieselle” á æfingu i fyrrakvöld. Meö honum dansar Asdis Magnúsdóttir, sem leikur titilhlut-
verkið. (Timamynd Róbert).
„SIÍK TÆKIFÆRI MIRFA ÍS-
LENSKIR DANSARAR AB FA”
segir Helgi Tómasson um „Gieselle” sem frumsýnd verður íkvöld
■ „Ég hef ekki dansað i Gieselle
i New York, en iðulega i gesta-
ferðum viða um Bandarikin, i
Parisaróperunni og á Konunglega
i Kaupmannahöfn,” segir Helgi
Tómasson, ballettdansari, sem
fer með hlutverk Albrecht her-
toga i Gieselle, sem Þjóöleikhúsið
frumsýnir nú i kvöld.
Helgi hefur frá 1970 dansað hjá
Ballanchine sem sólódansari i
Lincoln Center i New York, en þá
hætti hann hjá hinum viðfræga
Harkness ballett. Við spyrjum
hann um verkefni hans ytra að
undanförnu.
„Við erum með um 40 ballett-
sýningar á vetrarsýningaskránni
og eg hef dansað árlega i um 15
þeirra. Þá tekur sumarönnin viö.
Ég mun fara að búa mig undir
sumarsýningarnar þegar ég kenr
út aö nýju, en þær standa frá þvi
mai og fram i júli. 1 júli eru úti-
sýningar, sem hefð er fyrir að
halda. Vetrarsýningartiminn er
hins vegar frá þvi i nóvember og
fram til loka febrúar.”
Nú hefur þú nýlokiö viö aö
semja ballett sjálfur?
,,Já, ég hef þegar lokið þvi og
þann ballett á að frumsýna nú i
mai. Það eru nemendur i ballett-
skóla okkar sem munu dansa
þennan ballett og auðvitað mun
nokkur timi fara i að undirbúa
þær sýning ar nú á næstunni”.
Hvenig hafa æfingar meö
islenskum dönsurum gengiö?
„Ég álit að þetta hafi gengið
vel. Þetta er stórt verkefni i að
ráöast, en þar á móti kemur hve
mikils virði það er fyrir dansar-
ana að fá slikt tækifæri. Arangur-
inn fæst ekki með þvi einu að æfa
sig inni i sal, fólk verður lika að fá
raunveruleg verkefni að glima
viö og þvi vona ég að þessi upp-
færsla verði dönsurunum að
miklu gagni,. Slikt tækifæri eru
forsenda fyrir árangri.”
Helgi Tómasson kom hingað til
lands þann 7. sl. og mun verða hér
fram til hins 20. nk. Nú er nokkuð
um liðið frá þvi að islenskir leik-
húsgestir hafa fengið að njóta
listar hans hér heima og er koma
hans hingað þvi ánægjulegri.
Þess má geta að meðan hann
dvelst hér verður haldið áfram
gerð kvikmyndar, sem Valdimar
Leifsson er að gera um Helga og
listferil hans, en kvikmyndunin
hófst vestur i New York i desem-
ber.
Gieselle
Helgi mun aðeins dansa i
„Gieselle” fyrstu sýningarnar, en
siðar mun gamall kunningi
okkar, Per Artyhur Segerström,
taka við hlutverkinu. Það er hins
vegar Asdis Magnúsdóttir, sem
dansar hlutverk Gieselle, en
Ólafia Bjarnleifsdóttir hefur
einnig lært hlutverkið og enn
fremui' er ætlunin að Maria
Gisladóttir komi siðar og dansi
Gieselle sem gestur.
„Gieselle” er byggð á gamalli
þýskri þjóðsögu, sem Heine
skráði á sinum tima og er verkið
afar rómatiskt og ástin skipar
öndvegi. Verkið var frumsýnt við
feikivinsældir árið 1841. Það var
mikið sýnt lengi fram eftir
siðustu öld, en lá i þagnargildi
víða um árabil siðar. Nú hefur
vegur þess vaxið til verðugrar
virðingar að nýju og er það nú á
verkefnaskrá flestra ballett-
flokka heims.
— AM
fréttir
Umbótasinnar
tapa manni
■ Félag umbóta-
sinnaðra stúdenta
tapaði einum manni
yfir til Félags vinstri
manna i kosningum
sem fram fóru til
Stúdentaráös i gær-
dag. Vaka félag lýö-
ræðissinnaðra
stúdenta hélt hins veg-
ar sinum hlut, miðað
við úrslit kosninganna
i fyrra. '
tJrslitin i kosningu
til Stúdentaráðs urðu
þessi: A-listi Vöku
fékk 534 atkvæði eða
31.9% atkvæða og
fjóra menn kjörna.
B-listi vinstri manna
fékk 688 atkvæði eða
41.2% atkvæða og sex
menn kjörna. C-listi
umbótasinna fékk 449
atkvæði eða 26.9% at-
kvæða og þrjá menn
kjörna.
Vaka og vinstri-
menn fengu sinn
hvorn manninn kjör-
inn sem fulltrúa
stúdenta i Háskólaráði.
Valdimar K„
Jónsson for-
maður Fram-
sóknarfélags
Reykjavíkur
■ Valdimar K. Jóns-
son prófessor var
kjörinn formaður
Framsóknarfélags
Reykjavikur á aðal-
fundi i gærkvöldi.
Fráfarandi form.
Haraldur ólafsson
baðst undan endur-
kjöri.
tfa'
íi
dropar
Landkrabbar
í brimgard-
inum úti á
rúmsjó
■ Menn rak i rogastans
þegar þeir lásu I
Mogganum I gær aö
Skaftafellið hafi „rekiö
undan vestanbrimi” úti á
rúmsjó. Nú er þaö svo aö
meö orðinu brim er átt
viö sjávargang upp viö
land, þannig aö frétt
Moggans veröur tæpast
skilin öröuvlsi en svo aö
Skaftafelliö hafi strandaö
útiá rúmsjó og hafi verið
á hraöri leiö upp fjöruna!
Góðir
pabbar
■ t einu kvikmyndahúsa
borgarinnar er þessa
dagana veriö aö sýna
mynd um frumskógar-
manninn Tarzan, en
raunar má segja aö sá
góöi maður gegni ekki
lykiihlutverkinu í mynd-
inni heldur forkunnar-
fagur kvenmaöur sem
hlýðir nafninu Jane.
Kvikmyndin mun aöal-
lega veriö ætluö börnum,
en viö höfum spurnir af
þvi frá starfsmanni í
miöasöiu biósins, aö
feöurnir hafi aldrei virst
jafn viljugir til aö fara
meö krakkana sina i bió,
og dragi þá jafnvel nauð-
uga á Tarzan-myndina.
Kveöur svo rammt aö
þessu, aö jafnvel um þaö
leyti sem Stundin okkar
cr f sjónvarpinu á sunnu-
dögum, þegar engir karl-
menn eru venjulega á
ferli á götum úti, þyrpast
þeir i umrætt kvik-
myndahús.
Ræðuhöld
og rólur
| Sauösvörtum al-
múganum hefur oft
blöskraö sá kjaftavaðall
sem viögengst á Alþingi
og oft þjónar litlum til-
gangi aö þvi er viröist.
Þaö telst þó til tiöinda
þegar sjálfir þingmenn-
irnir uppgötva bjálkann I
auga sér, en bragö er aö
þá barnið finnur. Þetta
kom fram f þingræöu Geir
Gunnarssonar um dag-
innV
„Ég held aö þegar met-
inn er árangur og gagn af
verulegum hluta þeirra
ræöuhalda, sem fram
fara hér á Alþingi, þá
komist maður aö raun
um aö i ótrúlega mörgum
tilvikum, væri eins væn-
iegt aö hengja upp rólu
hér upp i loftið og lofa
mönnum aö róla sér þar f
staðinn. Þaö væri meira
aö segja hægt aö spara
tfma meö þvi aö hafa t.d.
tvær i hvorri deild, þvf aö
aðeins einn kemst fyrir f
ræöustólnum.”
Krummi ...
er á þvi aö allar ungar
stúlkur ættu aö læra
heimilisstörf og heimilis-
hald. Annars standa þær
uppi ráðaiausar ef þær
gifta sig ekki....