Tíminn - 13.03.1982, Blaðsíða 5
Laugardagur 13. mars 1982
erlent yfirlit
■ HINN 20. febrúar siðastliðinn
voru rétt 20 ár liðin siðan banda-
riskt geimfar fór i kringum hnött-
inn i fyrsta sinn. Þessa atburðar
var talsvert minnzt i Banda-
rikjunum á tuttugu ára afmælinu,
en þó aðallega vegna þess, að
verulega er nú um það rætt, að
hæglega geti svo farið að fyrsti
bandariski geimfarinn verði
næsti forseti Bandarikjanna.
Fyrsti ameriski geimfarinn,
John Herschell Glenn, hefur átt
sæti i öldungadeildinni siðan i
ársbyrjun 1975, en hann náði
kosningu til hennar 5. nóvember
1974 og var endurkosinn 3.
nóvember 1980.
Um nokkurt árabil hefur Glenn
verið talinn ihópi þeirra leiðtoga
demókrata, sem væru vænleg for-
seta ef ni.
Sjálfur hefur hann aldrei léð
formlega máls á þvi, en hann
hefur ekki heldur tekið fyrir það.
Þó er hann talinn hafa meiri
áhuga á framboði nú en áður. Af
ýmsum ástæðum getur verið
heppilegt fyrir hann að draga það
á langinn að lýsa þvi yfir.
Eins og nú stendur, eru tveir
menn oftast nefndir i sambandi
við framboð af hálfu demókrata i
næstu forsetakosningum. Það eru
þeir Edward Kennedy öldunga-
deildarþingmaður og Mondale,
fyrrv. varaforseti.
Kennedy virðist hafa meira
persónulegt fylgi, einkum hjá
minnihlutahópum. Þó er hann
ekki talinn sigurvænlegur, nema
efnahagsstefna Reagans mistak-
ist algerlega og menn kjósi þvi
aftur róttæka félagsmálastefnu i
anda Franklins D. Roosevelt.
■ John Glenn
Verður geimfari
næsti forseti?
Álit Glenns fer sívaxandi
Kennedy er nú þekktasti merkis-
beri hennar.
Mondale hefur minna persónu-
legt fylgi en Kennedy en er þó af
mörgum talinn sigurvænlegri.
Hann hefur minni andspyrnu.
Svo getur hæglega farið að báð-
ir verði þeir Kennedy og Mondale
komnir i skuggann, þegar demó-
kratar velja frambjóðanda sinn i
næstu forsetakosningum. Þá
verðurað leita til þriðja manns og
sá, sem nú er oftast nefndur i
þessu sambandi er John Glenn
öldungadeildarmaður.
JOHN Herschell Glenn verður
61 árs á þessu ári fæddur 18. júli
1921. Hann er fæddur og alinn upp
i Ohioriki, gekk ungur i herfor-
ingjaskóla og var flugmaður i sjó-
hernum 1942-1965. Hann tók þátt
bæði i siðari heimsstyrjöldinni og
Koreustyrjöldinni. Hann gat sér
slikt orð sem snjall og hygginn
flugmaður að 1959 var hann einn
hinna útvöldu sem farið var að
þjálfa til geimferða. Or þessum
hópi var hanh svo vahnn til að
fara fyrstu geimferöina á vegum
Bandarikjanna 20. febrúar 1962,
eins og áður segir.
Eftir geimferðina stóðu Glenn
opnir margir möguleikar i fjár-
málaheiminum, þvi að það þótti
fyrirtækjum góð auglýsing að
hafa hann i stjórn. Glenn varðþvi
efnaðurmaður á tiltölulega stutt-
um tima. Hugur hans hneigðist
hinsvegarmeira að stjórnmálum
en fjármálabraski.
Arið 1964 gaf hann kost á sér til
framboðs fyrir demókrata við
kosningu annars öldungadeildar-
mannsins frá Ohio. Hann þótti
liklegur til að sigra i prófkjörinu
en þá kom óvænt slys fyrir
geimfarann. Hann hrasaði i
baðkerinu heima hjá sér og
meiddist svo mikið að hann varð
að hætta við framboð.
Glenn var samt ekki af baki
dottinn. Hann gaf aftur kost á sér
til framboðs til öldungadeildar-
innar 1970, en beið ósigur i próf-
■ Edward Kennedy
kjörinu fyrir auðugum Gyðingi
Metzenbaum. Glenn gafst samt
ekki upp og reyndi i þriðja sinn.
Arið 197,4 náði hann kosningu til
öldungadeildarinnar og var svo
endurkosinn 1980 eins og áður er
rakið.
GLENN hefur getið sér orð sem
starfsamur og athugull þing-
maður. Hann kemur trúverðug-
lega fyrir I sjónvarpi og hefur
bersýnilega kynntsér vel þau mál
sem hann fjallar um. Alit hans
hefur þvi sifellt verið að aukast.
Þetta kom glöggt i ljós i
kosningunum 1980. Það ár var
yfirleitt óhagstætt demókrötum
sökum vinsælda Reagans. Glenn
hélt hins vegar velli i Ohio og vel
það. Reagan fékk þá 52%
greiddra atkvæða þar i forseta-
kosningunum en Glenn fékk 69%
atkvæða í þingkosningunum.
Það hefur verið sagt um
skoðanir Glenns að þær hafi verið
að mótast á stjórnarárum Roose-
velts og Trumans og siðar i
stjórnartið Kennedys og John-
sons. Þær einkennast af svipmót-
inu frá þessum forsetum. Glenn
er þó ekki talinn eins róttækur og
Kennedy. Frekar mætti segja að
litill skoðanamunur væri hjá hon-
um og Mondale. Báðir myndu
þeir Mondale betur séðir af hægri
armi demókrata en Kennedy.
Glenn er talinn hafa það um-
fram þá báða að hann hafi meiri
þekkingu og reynslu á sviði her-
mála og geimvisinda. A því sviði
þykir hann i hópi færustu þing-
manna. Það getur haft ekki litið
að segja i forsetakosningum, eins
og nú er málum komið i heimin-
um.
Margt þykir benda til þess, að
Glenn gæti orðið sterkur fram-
bjóðandi i forsetakosningum.
Hann hefur ekkiglæsileika þeirra
Kennedys og Reagans. Eftir
fjögur stjórnarár Reagans getur
það verið orðin reynsla Banda-
rikjamanna að traustleikinn sé
meira virði en glæsileikinn.
Þórarinn Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar
bridge
Bridge-
hátíd hafin
Dregið í riðla Islandsmótsins
■ Siðdegis i gær hófst af-
mælismót BR á Hótel Loftleið-
um og verður mótinu fram-
haldið i dag, en áætlað er að
þvi ljúki skömmu íyrir kvöld-
mat. Þátturinn hvetur áhuga-
menn að íjölmenna, enda
bjóða mótshaldarar upp á
mjöggóða aðstöðu fyrir áhori'-
endur. 1 kvöld verður svo af-
mælishóf BR, en á morgun
hefst stórmót Flugleiöa með
þátttöku sex sveita, þar af
þriggja erlendra.
Riölar á
íslandsmótinu
A-riðill
l.Sævar Þorbjörnsson,
Reykjavik
2. Sigfús Þórðarson, Suður-
land
3. Bragi Björnsson, Reykjavik
4. Ester J a ko bsdó t tir ,
Reykjanes
5. Armann J. Lárusson,
Reykjanes
6. Eirikur Jónsson, Vestur-
land.
B-riðill
1. Norðurland vestra
2. Sigurður B. Þorsteinsson,
Reykjavik
3. Aðalsteinn Jörgensen,
Reykjanes
4. Þórarinn Sigþórsson,
Reykjavik
5.Stefán Ragnarsson,
Norðurland eystra
6. Sigfús Orn Árnason,
Reykjavik
verið nærri titlinum á undan-
förnum árum og eru þvi vel að
sigrinum komnir nú. Röð efstu
para á mótinu varð þessi:
Jón Ásbjörnsson —
Simon Simonarson 504
Guðmundur Hermannsson —
Jakob R. Möller 477
Sigurður Sverrisson —
ÞorgeirEyjólfsson 461
Ásmundur Pálsson —
Karl Sigurhjartarson 438
Guðmundur Pétursson —
Hörður Biöndal 396
Jón Baldursson —
ValurSigurðsson 334
Björn Eysteinsson —
Guðbrandur Sigurbergs. 324
Vigfús Pálsson —
Karl Logason 255
Jón Hjaltason —
Hörður Arnþórsson 225
Sævar Þorbjörnsson —
Þorlákur Jónsson 205
Næstkomandi miövikudag
hefst sveitakeppni með stutt-
um leikjum og stendur sú
keppni i þrjú kvöld. Þátttöku-
tilkynningar þuría að berast
einhverjum stjórnarmanni i
siðasta lagi á mánudag.
BK
Staða efstu sveita i keppni
félagsins er eítirfarandi að
loknum 6 umlerðum af 11:
1. Ármann J. Lárusson 90
2. ÞórirSigursteinsson 82
3. Aðalsteinn Jörgensen 74
4. Sævin Bjarnason 66
5. Jón Andrésson 63
C-riðill 1. Gestur Jónsson, Reykjavik TBK
2. Vestfirðir Þegar 11 umferöum er lokiö
3. Aðalsteinn Jónsson, Austur- i Butler keppni félagsins er
land staða efstu para þannig:
4. Jón Ágúst Guðmundsson, 1. Þórhallur Þorsteinsson —
Vesturland Bragi Björnsson 62
5. Kristján Kristjánsson, 2. Sigurjón Helgason —
Austurland Gunnlaugur Karlsson 52
6. Karl Sigurhjartarson, 3. Geirarður Geirarðsson —
Reykjavik Sigi'ús Sigurhjartarson 50
I)-riðill 4. Ingólíur Böðvarsson —
1. örn Arnþórsson, Reykjavik 2. Guðni Þorsteinsson, Bragi Jónsson 30
Reykjanes Erlend mót
3. Sigurður Steingrimsson,
Reykjavik
4. Egili Guðjohnsen, Reykja-
vik
5. Jón Þorvarðarson, Reykja-
vik
6. Steinberg Rikarðsson,
Reykjavik.
Undankeppnin verður spiluð
dagana 26.-28. mars. A, C og D
riðlar verða spilaðir i
Kristalssal Hótel Loltleiða en
B-riðill verður spilaður i Iön-
skólanum á Akureyri á sama
tima. Svæðasambönd eru
minnt á að standa skil á
keppnisgjöldum þeirra sveita,
sem spila á tslandsmóti á
þeirra vegum, sem fyrst.
Jón og Simon
tvimenningsmeistar-
ar
B.R.
Aðaltvimenningskeppni
Bridgefélags Reykjavikur
lauk s.l. þriðjudag. Sigur-
vegarar urðu þeir Jón Ás-
björnsson og Simon Simonar-
son, en þeir tóku forustu strax
i upphafi mótsins og héldu
henni til loka. Þeir hafa oft
Blaðið vill benda bridgeíólki
á, að BSI heíur upplýsingar
um tugi móta, sem veröa
haldin i Evrópu á næstu
mánuðum jafnt austan tjalds
sem vestan og i suðlægum sem
norðlægum löndum. Þeir sem
áhuga hafa ættu aö snúa sér til
skrifstofu Bridgesambandsins
(s. 18350).
Skagfirðingar
Þegar eftir er að spila tvær
umferðir i Barometerkeppni
eru eftirtalin pör hæst:
1. Garðar Þóröarson —
Guðmundur Ó. Þórðar-
son 127
2. Óli Andreasson —
Sigrún Pétursdóttir 121
3. Andrés Þórarinsson —
Hafsteinn Pétursson 104
4. Arnar Ingólfsson —
Sigmar Jónsson 89
5. Bjarni Pétursson —
Ragnar Björnsson 85
6. Pála Jakobsdóttir —
Valdimar Þórðarson 73
7. Gisli R. Stefánsson —
SigurlaugSigurðardóttir 67
Ennþá er hægt aö skrá sig til
þátttöku i keppnisferð til
Sauðárkróks dagana 26.-28.
mars.
Magnús Ólafsson
skrifar