Tíminn - 13.03.1982, Qupperneq 20
VARAHLUTIR
Séndum um land allt
Kaupum nýlega
bíla til nidurrifs
Simi (91) 7 - 75-51, (91 ) 7 - 80-30.
Skemmuvegi 20
Kópavogi
HEDD HF.
Mikið úrval
Opið virka daga
919 • Laugar-
daga 10-16
HEDD HF.
Gagnkvæmt
tryggingaféJag
labnel
HÖGGDEYFAR
QJvarahlutir
Armiíla 24
Sfmi 36510
Laugardagur 13. mars 1982
Halldór meö blikandi sagarblaö, sem hann hefur nýlokiö viö aö setja I nýjar tennur.
(Timamynd G.E.)
EG HEF ALDREI HVATT
UAl ESA BÚRHNfFA
— segir skerpingamadurinn við Solvallagötu 70
„Nei, ég hef aldrei skipt mér
af þvi að hvetja ljái, búrhnifa,
sláttuvélar eða þess háttar,” seg-
ir Halldór Kr. Þorsteinsson, sem
rekur skerpingaverkstæði við
Sólvallagötu 70 og hefur verið
með það i 16 ár. „Ég hjálpa eink-
um upp á sakirnar fyrir trésmiði
og járnsmiði hér i Keykjavik og
allt i kring um landið.”
A verkstæðinu má hvarvetna
lita blikandi sagarhjól, sem
skerpingamaðurinn er búinn að
hressa upp á og einnig önnur
blökk og ryöug, sem farin eru að
missa bit eða týna tönnunum og
biða viðgerðar.
Halldór hefur alltaf verið einn
með verkstæðið. „Ég er eiginlega
lærður trésmiður og fór út i þetta
af þvi að ég þurfti að geta skerpt
upp hjólin i trésmiðasögunum og
blöðin i heflunum hjá sjálfum
mér. Þess vegna pantaði ég
fyrstu vélina og fór að sinna þessu
fyrir aðra. Svo jókst þetta smátt
og smátt, vélunum íjölgaði og
sumar smiðaði ég sjálfur, til
dæmis þessa sem brýnir hefil-
tennur.”
Halldór sýnir okkur hvernig
hann setur nýjar tennur i sagar-
hjólin. Viðhátiðnisuðu vél, sem er
lokuð inni i klefa klæddum vir-
neti, tinir hann upp litla fer-
strendinga, sem hann lóðar með
silfri fasta i sæti sitt á stáltönnum
sagarhjólsins. Þessir fer-
strendingar eru karbitstál og
sjálf eggin i hverri tönn. Hann
tekur til við eina tönnina á fætur
annarri, en áöur hefur hann að
sjálfsögðu slipað gömlu tannbrot-
in burtu. Þetta fer að mestu fram
i sjálfvirkum vélum.
„Það er misjafnt hvenær það
borgar sig að láta endurnýja
sagarblöð á þennan hátt,” segir
Halldór. „Það fer eftir þvi hve
margar tennurnar eru. Séu hjólin
litil borgar þetta sig ekki. En
hvert svona hjól getur kostað 6-
700 krónur og stundum meira.
Það er þvi nokkuð sem má leggja
i endurbætur, þótt ég taki nokkrar
krónur fyrir hverja nýja tönn..”
„Ég hef alltaf viljað vera einn
hér á verkstæðinu, en nú er ég
farinn að þreytast og er að hugsa
um að selja,” segir Halldór og
raunar er skilti við dyrnar, þar
sem stendur „Þetta verkstæði er
til sölu.” Enn hefur þó ekki orðið
af neinum kaupum, þótt ýmsir
hafi viljaðathuga málið. Ensjálf-
sagt verða menn að eiga eitthvað
i handraðanum, þvi vélakostur-
inn er margbrotinn og afar dýr.
Þá þarf að kunna nokkuð fyrir sér
i faginu og Halldór hefur enda
farið út á námskeið i Kaup-
mannahöfn, til þess að kynna sér
nýjungar á þessu sviði. Við spyrj-
um að endingu hvernig trésmiðir
og vélsmiðir munu fara að, þegar
hann hverfur frá, en Halldór hef-
ur engar áhyggjur af þvi:
„Blessaður vertu, — auðvitað
kemur alltaf maður i manns
stað."
— AM
fréttir
Framkvæmda-
stjóraskipti
Framkvæmda-
stjóraskipti verða hjá
Félagi íslenskra stór-
kaupmanna hinn 1.
júli n.k. Jónas Þór
Steinarsson sem starf-
aö hefur hjá félaginu
frá 1972, þar af fram-
kvæmdastjóri frá 1977
lætur af störfum en við
tekur Torben Frið-
riksson viðskipta-
fræðingur. Torben er
fæddur i Danmörku
árið 1934 og lauk þar
stúdents- og
verslunarprófi og
starfaði hjá Det
Danske Kulkompagni
árin 1952-1956. Arið
1961 lauk hann við-
skiptafræðiprófi frá
Háskóla Islands. Hann
hefur starfaö hjá Hag-
deild Sambandsins,
Hagdeild Fram-
kvæmdabanka Is-
lands, Efnahagsstofn-
un, í Norðurlandadeild
OECD i Paris og siðan
verið forstjóri Inn-
kaupastofnunar
Reykjavikurborgar
frá árinu 1966.
Um mánaöamótin
júli ágúst áætlar Fé-
lag islenskra stór-
kaupmanna að flytja
skrifstofu sina i hið
nýja húsnæði félagsins
i Húsi verslunarinnar.
Sýning nemenda i
Þinghólsskóla
1 Þinghólsskóla i
Kópavogi hafa nem-
endur að undanförnu
verið með sérstakar
vinnuvikur um Kópa-
vog, bæinn, sögu hans
og mannlif á okkar
dögum. Hafa nem-
endurnir skilaö fjölda
verkefna sem eru af-
rakstur þessa starfs
og verða þau til sýnis i
skólanum i dag og á,
morgun, sunnudag kl.
14-18 báða dagana.
Sýningin heitir:
„Kópavogur, — bær-
inn okkar.”
Veitingar verða i
skólanum i tengslum
við sýninguna og er
þess að vænta að
vandamenn nemenda
og sem flestir Kópa-
vogsbúar heimsæki
sýninguna og sjái
hvernig hlutirnir
koma þeim ungu fyrir
sjónir.
dropar
Af götu-
gögnum
Þetta er úr umsögn
um eina tillöguna i götu-
ga g na sa mkepp ninn i
margfrægu, sem Dropar
hafa áður sagt frá:
„Form og gerö hlut-
anna allra er með ein-
földu móti.
Heildarsvipmót er
þunglamaiegt og litt að-
laðandi.
Notagildi er takmarkað
og virðist m.a. ekki eiga
við á strætum og torgum.
Bekkir virðast munu
verða óþægilegir að sitja
á”.
Eða á mannamáli:
Ljótir og ónothæfir!
Landsbóka-
safnið deild í
Seðlabanka-
safninu?
Maður einn, sem
kunnur kunnugur er hög-
um Landsbókasafnsins,
hringdi til blaðsins vegna
fréttar Timans af hinu
veglega bókasafni Seðla-
bankans. t safni bankans
starfa „aöeins” sex
manns f fimm stöðugild-
um. en á Landsbókasafni
starfa I Þjóðdeiid, sem
sér um skráningu alls Is-
lensks prentmáls, sjö
manns i fimm stöðugild-
um.
Vildi maðurinn fara
þcss á Ieit að Seölabank-
inn tæki nú til athugunar
að gera Landsbókasafniö
að deild i safni sinu!
Dýr myndi
Sjöfn öll
t útvarpsfréttum I vik-
unnikom fram að nú eiga
sér stað óformlegar við-
ræður miili Lands-
virkjunar og yfirstjórnar
orkumála I landinu um
hugsanlega yfirtöku
Landsvirkjunar á svo-
nefndum byggðarlfnum.
Enóneitanlega hiýtur það
að skjóta skökku við, að
um mitt þetta ár þegar
Landsvirkjun og Laxár-
virkjun sameinast, þá
mun hin nýja Landsvirkj-
un eiga nokkrar virkjanir
sunnanlands og eina
norðaniands, en engar
linur til að flytja rafmagn
á milli.
Mun vera talað um aö
Landsvirkjun greiði sem
næst 400 milljónum kro'na
fyrir byggðarlinurnar.
Þess er hins vegar að
geta, að samkvæmt þvi
samkomulagi sem Sjöfn
Sigurbjörnsdóttir felldi i
borgarstjórn með hjásetu
sinni varðandi Lands-
virkjun fyrir þremur ár-
um siðan, var gert ráð
fyrir að Landsvirkjun
eignaðist byggðarlinurn-
ar og meðgjöf frá rikis-
sjóði að auki, með
greiðslu ákveðinna lána
sem hvildu á byggöalin-
unum.
Ef þær hugmyndir sem
nú eru uppi verða ein-
hvern tima að veruleika
má með góðri samvisku
segja að dýr hafi Sjöfn
orðið borgarbúum I þessu
tilviki og dýryrði Sjöfn öll
ef allar skráveifurnar
væru reiknaðar saman.
Krummi ...
segir: Afram Tottenpool!