Tíminn - 14.03.1982, Page 7
7
skurðaögeröina á forslöum alira
stórblaöa heims. Mikiö var einnig
skrifaö um hin miklu mótmæli
sem komu fram er ákveöiö var aö
aðgerö þessi skyldi framkvæmd i
Bandarikjunum og mótmælaaö-
geröirnar sem fylgdu i kjölfarið.
En hvaö segir Björn Þorbjarnar-
son sjálfur um þessa skuröaögerð
og andrúmsloftið á spitalanum á
þessum tima?
„Þetta fór allt óskaplega leynt
til aö byrja meö og t.a.m. vissi ég
ekkert um að ég átti aö stjórna
skurðaögerö á fyrrverandi keis-
ara I íran, fyrr en deginum áöur
en sjálf aögeröin fór fram. Þá má
segja að sjúkrahúsiö hafi þegar
veriö eins og I hers höndum og
allar öryggisráöstafanir gifurleg-
ar. Hvert sem litiö var, voru
öryggisveröir og fyrir utan
sjúkrahúsið var allt á suöupunkti.
Andstæðingar keisarans fyrrver-
andi höföu efnt til mikilla mót-
mælaaögeröa og ekki batnaöi á-
standiö er stuöningsmenn hans
komu lika á staðinn.
Sjálf skuröaögeröin gekk mjög
vel. Keisarinn fyrrverandi var
skorinn upp viö gallsteinastiflu,
en auk þess þjáöist hann af
krabbameini, sem siöar dró hann
til dauða. Hann fór þvl all hress
héöan og þaö kom mér töluvert á
óvart aö hann skyldi ekki eiga
meira eftir ólifaö, en raun bar
vitni.”
— Hvernig maður var keisar-
inn fyrrverandi?
„Ég held aö honum sé best lýst
með þvl að segja aö hann var á-
kaflega samvinnuþýöur og hann
geröi allt sem honum var fyrir-
lagt af hálfu okkar læknanna.
Hann var greinilega hugrakkur
maður, en jafnframt þunglyndur
eftir slðustu atburði. Hann reyndi
þó aö slá á léttari strengi, en
alltaf uröum viö þó aö ávarpa
hann — Yðar hátign.”
— Hvað meö annaö frægt fólk.
Hefur þaö leitaö sér lækninga til
þin?
„Já, ég hef skorið uppfjöldann
allan af frægu fólki. Hingaö koma
kvikmyndastjörnur og stjórn-
málamenn og oliufurstar eru
ekki sjaldséðir hér á sjúkrahús-
inu. Hingað hefur llka komið
fjöldinn allur af erlendum stjórn-
málamönnum, t.a.m. forsætis-
ráðherrar og forsetar frá Afríku
og Suður Ameriku.”.
Þaö kostar mikla vinnu aö
komast I fremstu röö i Bandarikj-
unum og oft veröa menn aö fórna
bæði fjölskyldu og tómstundum
fyrir starf sitt. Læknar i Banda-
rikjunum eru þar engin undan-
tekning, en samkvæmt kvik-
myndunum eru þeir flestir þó
harla liðtækir golfleikarar.
— Leikur þú golf I fristundum
þinum Björn, eða áttu önnur á-
hugamál?
„Ég hef lítinn tima fyrir tóm-
stundir, en þegar ég á frl þá eyði
ég þeim tima svo sannarlega ekki
á golfvellinum eins og svo margir
kollegar minir. Ég á hús hérna
uppi I fjöllum og þangað fer ég
venjulega um helgar. Veiöi og
slappa af og hef þaö náöugt meö
fjölskyldunni. Ég fer yfirleitt til
Flórida einu sinni á ári og er þar I
nokkra daga i ibúö sem ég á. Nú
og llkt og I fjöllunum, þá reyni ég
að veiöa eitthvaö I Flórída. Ég hef
þar bát og sjóstangaveiöi er ein
min mesta ánægja. Nei, ég er
ekkert að hugsa um að setjast I
helgan stein. Ég er bara sextugur
og ég vinn á meðan ég hef heilsu
til. Þann háttinn hafa læknar hér
á og ég sé enga ástæðu til að
breyta þar um,” segir Dr. Björn
Þorbjarnarson, islenski læknirinn
sem gert hefur garöinn frægan og
borið hróöur isiands yfir hafiö, aö
sjálfum nafla alheimsins — Man-
hattan.
—ESE/New York
Texti og myndir:
Eiríkur St.
Eiriksson
BÆNDUR
S.AJVIVINNUTRVGGINGIAH
Ármúla 3 - Reykjavik -'Simi 38500
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar sem
skemmst hafa i sjóflutningi og umferðar-
óhöppum.
Opel Rekord árg. ’82 Skemmd i fl. m/skipi
Opel Rekord árg. ’82. Skemmd i fl.
m/skipi
Opel Rekord árg. ’82. Skemmd i fl.
m/skipi
Opel Kadett árg. ’82. Skemmd i fl. m/skipi
B.M.W. árg. ’82. Skemmd eftir árekstur
Fiat 132 GLS árg. ’73. Skemmd eftir
árekstur
og fl.
Bifreiðarnar verða til sýnis að Skemmu-
vegi 26, mánudaginn 15/3 ’82 kl. 12-17.
Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga
fyrir kl. 17 þriðjudaginn 16/3 ’82.
Höfum aftur fyrirliggjandi
VITAMIN OG STEINEFNABLÖNDUR FRÁ
EWOS A-B:
Ewomin F. fyrir mjólkurkýr.
fyrir varphænur.
fyrir unggrisi.
fyrir hesta.
Jarmin
Jarnpigg
Racing
K.M.Z.
MPKlFÓÐURVÖRUR
GUÐBJÖRN GUÐJÓNSSON
heildverslun
Kornagarði 5 — simi 85677.