Tíminn - 14.03.1982, Side 10
10
Sunnudagur 14. mars 1982
bergmál
■ Watergaíe-málið hefur orðið
málsaðilum óþrjtítandi tilefni rit-
ræpu. Hver smákall á hvorri hlið
hefur fundið hjá sér þörf til að
setja á pappir ævisögu sina,
ábyggilega allt i þjónustu áreið-
anlegrar sagnfræði, eða hitt þó
heldur. Sjálfur Stygge Ulv hefur
ekki skorast lír leik, Richard
Nixon, og nú er utanrlkisráöherra
hans, Kissinger nefndur súper-
kall, að senda frá sér langhund
um utanrikismál I skugga
hneykslismálsins. Við á Helgar-
Timanum birtum reyndar fyrir
nokkrum vikum kafla úr þessari
komandi ævisögu Kissingers en
sá fjallaöi einkum um Leónid
Brésnef, sem kallast getur Zar
fyrir austan, og viðræður þeirra
tveggja og þriggja þegar Nixon
bættist i hópinn. 1 bandari'ska
vikuritinu Time var hins vegar
fyrirstuttu birtur kafli sem bein-
linis fjallaði um Watergate-máliö
allt og sjónarmið Kissingers þar
að lútandi.
Kissinger, sem var i
þeirri einstæöu aðstöðu að vera
bæði inni málinu og utan við þaö,
hefur margt athyglisvert um mál
ið að segja, og um Nixon, erki-
þrjótinn sem braut sér leið uppá
topp voldugasta lýðræðisrikis
heims án þess að kunna skil á
leikreglum lýðræðisins. Ekki er
hægt aö frýja Kissinger vits, og
aðþvierbest verður séð, án þess
að búa yfir sérfræðiþekkingu á
málefninu, ritar hann þennan
part ævisögu sinnar, Years of Up-
heaval, bæði skynsamlega og æs-
ingalaust. Sem verður ekki sagt
um allan blekiönað sem við höf-
um fengið að sjá um Watergate.
KISSINGER UM VIET-
NAM OG WATERGATE
Forsendur Kennedys og
Johnsonsrangar
Kissinger segirsem svo: Vissu-
lega er það rétt að frækornið sem
óx upp og steypti forseta Banda-
rikjanna var i perstínu hans
sjálfs. Það heföi varla verið
hugsanlegt I stjtírnartiö nokkurs
annars forseta,þannig lagaö fellst
hann á aö hægt sé að kenna Nixon
um allt saman. Hins vegar vill
hann skella nokkurri skuld á Viet-
nam-striðiö eöa réttara sagt það
rótsem komst á bandariskt þjóð-
lif eftir þvi sem striöið magnaðist
og varð ekki stöðvað með góðu
móti. Sjónarmið Kissingers um
Vietnam-strlöið eru raunar at-
hygli verö , auðvitaö hlýtur hann
að verja stefnu Bandarikjanna
þarna i austri eða langt i vestri.
Hann segir aö upphafleg ihlutun
Bandarikjanna hafi verið byggö á
röngum forsendum, John F.
Kennedy og síöar Johnson hafi
sent liö til stuðnings suður-viet-
nömsku stjómini vegna þess að
þeir hafi verið sannfærðir um að
stjtírnin i Noröur-Vietnam væri
ekki nema leppur hinna stóru
kommúnistarikja, Kina og sér i
lagi Sovétrikjanna. Þetta segir
hann hafa veriö á misskilningi
byggt. Stjórnin I Hanoi hafi
þvert á móti farið sinar eigin leiö-
ir og sjálf ráðiö ferðinni, en að
visu fengiö mjög mikla aöstoö I
hergögnum frá Sovétrikjunum og
Kina. Hér hafi þvi ekki verið um
útþenslustefnu Sovétrikjanna að
raÁa I sjálfu sér, segir Kissinger,
og ihlutun Bandarikjanna út frá
þeim forsendum þvi röng.
Ekki sovésk útþenslu-
stefna heldur norður-
vietnömsk
Hins vegar segir hann að Ur því
að Bandarikin voru einu sinni
komin til skjalanna i Suöur-Viet-
nam hafi annað verið illmögulegt
en halda áfram. Þvi þótt ekki haf i
beinlinis verið um sovéska út-
þenslustefnu að ræða, þá hafi út-
þenslustefna Noröur-VIetnama
sjálfra ekki veriö siðri, þeir hafi
hreinlega ætlað sér aö leggja und-
ir sig eða að minnsta kosti ráða á
öllum Indó-Kinaskaganum. At-
burðir siöustu ára segir Kissinger
aðstaðfesti þessa skoðun, nefni. -
lega innrás Vietnama á
Kampútseu, og sú ólga sem þeir
standa fyrir til aö mynda i Laos.
A hinn bóginn hafi gagnrýnendur
Vletnam-striösins i Bandarikjun-
um og viöar ekki áttaö sig á
þessu, þeir hafi litiö svo á að um
væri aö ræða frelsisstrið undirok-
aörar þjóðar gegn glæpsamlegu
stórveldi. Siðar hafi svo höröum
vinstri kjama i Bandarikjunum
tekist aö haga málum svo að um
ræður um Vi'etnam-stríöiö á Vest-
urlöndum hafi i raun farið að snU
ast fremur um eðli Bandarikj-
anna, heimsvaldastefnu þeirra
eða ekki heimsvaldastefnu, en or-
sakir sjálfs striðsins hafi oröið
minni háttar. Þannig ræðst Kiss-
inger til dæmis á þá sem gagn-
rýndu mest þegarbandariski her-
inn fór inn i Kampútseu, sem þá
var Kambodia: sú innrás hafi
vissulega verið lögleysa en hafi
veriö til þess eins að uppræta
ólöglegar flutningaleiðir Noröur-
Vietnama i Kambódiu, á það hafi
engin áhersla veriö lögö af
vinstri-sinnum.
Ofsóknarbr.iálæði og
leynimakk
Kissinger segir að visu að vel
megi efastum hvort réttlætanlegt
hafi verið aö auka umsvif Banda-
rikjanna á svæðinu eins og gert
var. Or þvi sem komiö var
hlutum við að standa við okkar,
segir hann, en stjórnir Kennedys
og Johnsons hafi ekki þorað að
beita öllum hernaðarmættinum
til að hindra það alþjóölega sam-
særi sem þeir álitu að væri þarna
i uppsiglingu, af títta við að út
brytist heimsstyrjöld. Og vegna
þess að þarna fóru Bandarikin
halloka hafi Sovétrikin og pótin-
tátar þeirra fært sig upp á skaftið,
i Indókina, I Afriku og I Afganist-
an.
Ensem sagt: hvaöa áhrif haföi
allt þetta á Watergate-málið og
Richard Nixon sem hafði á
stefnuskrá sinni ikosningum 1968
að enda Vietnam-striðið svo fljótt
sem auðiö væri án þess að glata
„heiöri” Bandarikjanna. Jú,
Nixon gerði þaö sem hann áleit
réttast að gera i Víetnam, til að
ekki kæmi til alger yfirráð Norð-
ur-Vietnama yfir Vietnam og siö-
ar Indóki'na. Fyrir það var hann
gagnrýndur mjög harkalega,
haföi alltaf átt ofsafengna fjand-
menn, einsog hann hafði unnið til
með óprttttnum aðferðum si'num,
að ekki sé fastar aö orði kveðið.
Og einmitt vegna þess að
gagnrýnpndur Bandarikjastjórn-
ar almennt og Nixons sérstaklega
hafi áður en varði farið að láta
málið snúast um heimsvalda-
stefnu Bandaríkjanna almennt og
mannvonsku Nixons sérstaklega
hafi hinar dökku hliðar persónu-
leikaNixonsmagnast úr öllu hófi.
Ofsóknarbrjálæði á háu stigi.
Leynimakk og samsæristilhneig-
ingar. Bolabrögð gegn öllum and-
stæöingum, raunverulegum og
imynduðum. Nixon var i eðli si'nu,
eða aö minnsta kosti i hluta af eðli
slm, fauti hinn mesti og þvi hafi
hlotið að safnast að honum álika
karakterar, i þeirra félagsskap
vissi hann hvað sneri upp og hvaö
niður. Sem stundum var skortur
á. Og því fór sem fór, gripið var
til ólöglegra aðgerða til að koma
andstæöingum Nixons i forseta-
kosningunum 1972 á kné — þess
þurfti ekki einu sinni, hann var
nálega öruggur um sigur frá
fyrstu tiö — og er upp komst um
innbrotið i Watergate-skrifstofur
demókrata hafiNixon fyrst orðið
fyrir aö hylma yfir, fela og þagga
niöur, i staö þess að gera hreint
fyrir sinum dyrum. Það kunni
Nixon bara ekki.
Nixon sjálfur hálfvitlaus
Það sem eiginlega er merkileg-
ast — og skin bæöi ttt úr bókum
Kissingers og annarra sem um
málið hafa ritað— er að maður á
borð við Richard Nixon skyldi yf-
irhöfuð geta orðið forseti i Banda-
rikjunum, maður meö svo miklar
karakterveilur sem hann. Ekki
verður fyrir það synjað að Nbcon
Illugi Jökulsson,
blaðamaður,
skrifar
vannað mörgu leytiákaflega gott
starf, einkum i utanrikismálum,
og heföi Watergate-málið ekki
komið til væri hans sjálfsagt
minnst með vinsemd og viröingu
viðast hvar, nema helst meðal
þeirra sem hann lét sprengja i
bita i Hanoi.
Lýsing Kissingers á áhrifum
Watergate-málsins á stjórnsýslu
alla I Washington er ekki beint
glæsileg. Stjórnin var næstum
lömuð frá vori 1973 og allt þar til
að Nixon sagði loks af sér og
áhrifanna gætti lengi eftir það. Þá
mámeö sanni segja að Bandarik-
in hafi verið risi á brauðfótum og
aö sjálfsögðu notfærðu andstæð-
ingar þeirra sér þaö. Viö öðru var
ekki að búast. Og Nixon sjálfur
varð æ uppteknari af þessu máli,
hann gat varla um annað hugsað
en hvert væri nýjasta plottið
óvina sinna i þinginu og fjöl-
miölum, svo snerist hann gegn
þviá sinn makalausa hátt. Utan-
rikismálin höfðu lengst af átthug
og hjarta Nixons, eftir þvi sem
timinn leið afsalaði hann sér si-
fellt stærra hluta af þeim yfir til
Kissingers, sem stóð ógn af, enda
þótt hann hafi sjaldan skorast
undan að taka að sér völd, eins og
hann segir raunar sjálfur.
Og erleið aö endalokunum var
stjórnin orðin nær óstarfhæf,
Nixon sjálfur hálfvitlaus og átti i
miklum erfiðleikum með að festa
hugann við þau málefni sem efst
voru á baugi. Kissinger átti mik-
inn hlut i þvi að tókst að halda
sæmilegri ásjtínu á Bandarikja-
stjórn, sjálfur þakkar hann
Alexander Haig, þáverandi
starfsmannastjóra Hvitahússins
og nú utanrikisráðherra, að ekki
skyldi allt hrynja til grunna.
Þetta er dálitið ógnarleg lýsing á
stjórn sennilega voldugasta rikis
heimssem var að liðast isundur i
innbyrðis átökum og Vietnam-
striðið enn á döfinni. Ekki hefði
mikið mátt út af bregða til að allt
færi i hund og kött og óvist hvað
þá hefði orðið.
Griskur harmleikur?
Nixon sjálfur hálfvitlaus. Kiss-
inger vill likja endalokum hans
við griskan harmleik þar sem
hetjan fellur aö lokum fyrir eigin
hendi i eiginlegri eða tíeiginlegri
merkingu, tekur ákvörðun sem
hún veit að leiöir til hruns en fær
ekki annað gert. Þarna kemur
einnig til skjalanna annar hluti
persónuleika Nixons, sem sé
djúpstæð bölsýni hans sem tengd-
ist ofsóknaræðinu. Nixon var,
segir Kissinger, ætið sannfærður
um að allt færiá versta veg,hinir
illskeyttu óvinir myndu fara með
sigur af hólmi i hverju þvi máli
sem upp á kom, Watergate-máli
sem öðrum. Og þótt hann hafi
barist með kjafti og klóm gegn
sömu óvinum hafi honum alltaf
komiö jafn mikiö á tívart ef hann
sigraöi þá, ef hann tapaði varö
honum næstum rórra þvi þá var
illur grunur hans staðfestur.
Þetta mál allt saman hefur oröið
til þess aö menn hugleiöa ntt meir
en áður persónuleika þesssem fer
með stjórn i Hvita húsinu og svo
sem viðar, hvaða áhrif karakter-
gallar geta haftáheimssögulegar
ákvarðanir. Og nú er fyrir vestan
maður sem er svo vitlaus eða
altént óskýr i kollinum að liggur
við aö sé fastur dálkur i banda-
riskum blöðum sé leiðréttingar á
einhverjum þvættingi sem hann
hefur látið út úr sér. Þannig var
til að mynda með hans versjtín af
Vietnam-striðinu sem hann taldi
ástæðu til aö ttthella yfir banda-
risku þjóöina á blaðamannafundi
nýlega : þaö var ekki heil brtt i þvi
sem hann sagði, burtséð frá þvi
hvort menn styðja eöur ei þær
ákvarðanir sem Bandarikja-
stjórn tók á sinum tfma i Viet-
nam. Mér liggur við að segja að
skólabörn á íslandi viti meira um
Vietnam-striðið og orsakir þess
heldur en forseti Bandarikjanna,
hins vegar er löngu sannaö mál
að skólabörn i Bandarikjunum
sjálfum vita akkttrat ekkert,
hvorki um Vietnam né nokkuð
annað.... En það er einhver allt
önnur saga. —ij