Fréttablaðið - 02.12.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
ÞRIÐJUDAGUR
2. desember 2008 — 330. tölublað — 8. árgangur
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
JÓLAUPPSKRIFTIR að hinum ýmsu kræsingum
er að finna á síðunni vefuppskriftir.com. Þar má meðal
annars finna uppskriftir að engiferkökum, appelsínu-
kremi, ís, konfekti, steiktum rjúpum og jólaönd.
„Ég hef alltaf verið mikill útivist-
armaður og kynntist fjalla-
mennskunni þegar ég fór í björg-
unarsveit. Nánar tiltekið með
björgunarsveitinni Ingólfi ssíðar hét Á
foss, vatn sem myndi að öðrum
kosti renna til sjávar. Enda hefur
verið sagt að ísklifur sé með
furðulegri íþrótt
bara vera í góðu formi, maður
þarf til dæmis að geta hífsi
Finnst enn fjör að klifra
Freyr Ingi Björnsson, formaður Íslenska alpaklúbbsins, hefur stundað ísklifur um árabil og segir gott
líkamlegt form forsendu þess að geta stundað áhugamálið af fullum krafti.
Freyr fór fyrst í ísklifur í Þórsmörk og hefur stundað það af krafti síðan.
MYND/GUÐMUNDUR TÓMASSON
FREYR INGI BJÖRNSSON
Tekst bæði á við sjálfan
sig og náttúruöflin
• heilsa • jólin koma • bækur
Í MIÐJU BLAÐSINS
norðurlandÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 2008 Veislumatur í fjósinuVogafjós í Mývatnssveit býður í fyrsta sinn upp á hádegisverðar- hlaðborð á aðventunni. BLS. 2
Ökukennsla og ökuskóliEkill ehf • Holtateig 19 • IS 600 Akureyri • Sími: 461-7800 / 894-5985 • ekill@ekill.is
NORÐURLAND
Menning, matur og
helgihald yfir jólin
Sérblað um Norðurland
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG.
Halda sínu striki
Kynnisferðir voru
stofnaðar árið 1968
og eru eitt elsta
starfandi hóp-
ferðafyrirtæki
landsins.
TÍMAMÓT 18
Ekki benda á mig
„Við það bættust hagsmunir
skammsýnna stjórnmálamanna
sem helltu olíu á eldinn,“ skrifar
Sverrir Jakobsson.
Í DAG 16
Baldursnesi 6
Akureyri
Sími 414 1050
Smiðjuvegi 76
Kópavogi
Sími 414 1000
Opið virka daga frá 8 -18
laugardaga frá10 -15
-4 -6
-7
-4
-2
ÁFRAM VÍÐAST FROST Í dag
verður suðaustan strekkingur
sunnan og vestan til og skýjað,
annars hægari og bjart með köflum.
Snjómugga suðvestan og vestan til
með kvöldinu. Víðast frost.
VEÐUR 4
SJÁVARÚTVEGUR Hætta er á að um 20 til 30 pró-
sent af síldarstofninum hér við land séu sýkt af
sníkjudýrinu iktíófónus að sögn Þorsteins Sig-
urðssonar, sviðsstjóra nytjastofnasviðs hjá
Hafrannsóknastofnun. Það þýðir að afföll af
stofninum verða í svipuðu hlutfalli. Útgerðar-
menn óttast að ekki verði hægt að nýta síldar-
stofninn næstu árin vegna þessa.
LÍÚ stóð í gær fyrir neyðarfundi þar sem
farið var yfir stöðuna með Einari K. Guðfinns-
syni sjávarútvegsráðherra ásamt sérfræðing-
um frá Hafrannsóknastofnun, útgerðarmönn-
um, skipstjórum, fiskverkendum og fólki úr
matvælaiðnaðnum. Þorsteinn byggir þessa
ályktun sína á sýnum úr afla og upplýsingum
frá sjómönnum sem hafa verið á miðum en
menn frá Hafrannsóknastofnun munu halda í
rannsóknarleiðangur á fimmtudag eða föstu-
dag. Sumir útgerðarmenn óttast að mun stærra
hlutfall af stofninum kunni að vera sýkt, jafn-
vel 40 prósent.
Í ár var 150 þúsund tonnum af síld úthlutað
við Íslandsmið og segir Friðrik Jón Arngríms-
son, framkvæmdastjóri LÍU, að vonir hafi stað-
ið til að verðmætið gæti numið rúmum 10
milljörðum fyrir þjóðarbúið en sýkingin geri
út um þær vonir. Búið er að veiða um helming
kvótans.
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, segir að
vissulega sé það slæmt að verða fyrir tekju-
missi þar sem ekki megi nýta sýkta síldina til
manneldis „en það sem við höfum mestar
áhyggjur af er að þetta fari þannig með stofn-
inn að við getum ekki nýtt hann næstu árin“.
„Þetta er verulegt áfall, það er ljóst, þótt enn
vitum við ekki nákvæmlega hvaða afleiðingar
þetta hefur,“ sagði Einar K. Guðfinnsson
sjávarútvegsráðherra. - jse
Sýking ógnar síldarstofni
Útgerðarmenn óttast að ekki verði hægt að nýta íslenska síldarstofninn næstu ár vegna sýkingar. Hugsan-
legt að 20 til 30 prósent stofnsins séu sýkt segir Hafró. Þjóðin verður fyrir margra milljarða króna tjóni.
SNÍKJUDÝRIÐ IKTÍÓFÓNUS
■ Kemst með æti í meltingarfæri fisksins
■ Hægt er að nýta sýkta síld til bræðslu en ekki
manneldis
■ Síldin drepst venjulega um þremur mánuðum
eftir að hún sýkist
■ Á árunum 1991 til 1993 voru um 10 prósent af
síldarstofninum við Noreg sýkt
■ Þetta sníkjudýr hefur áður mælst í nokkrum
mæli í skarkola hér við land
■ Sýkt síld veldur mönnum ekki skaða sé henn-
ar neytt
Íslendingar eru
djókararnir
Auðunn Blöndal heim-
sækir atvinnu-
mennina okkar
úti í heimi.
FÓLK 30
ÖRN ELÍAS GUÐMUNDSSON
Fer á Icesave-túrinn
Mugison ferðast um löndin sem töpuðu
á Icesave.
FÓLK 22
Grindavík
vann Snæfell
Þrír leikir fóru
fram í Iceland
Express-deild
karla í gær-
kvöld.
ÍÞRÓTTIR 26
VEÐRIÐ Í DAG
VIÐSKIPTI Krónan veiktist um rétt
rúm fjögur prósent í gær og fór
vísitala hennar í fyrsta sinn yfir
250 stig.
Gengi krónu endaði í 252,1 stigi
í gær, en það þýðir að dönsk
króna kostar yfir 25 krónur,
dollari næstum 150 krónur og
evran nálægt því 190 krónur.
Ekki liggur fyrir hversu mikil
viðskipti hafa átt sér stað með
gjaldmiðilinn frá því hann var
„settur á flot“ á föstudag, en
heimildir innan bankanna telja
þau þó tiltölulega lítil, innan við
milljarð króna. Seðlabanki
Íslands annast um sinn nær öll
gjaldeyrisviðskipti. - óká / sjá síðu 12
Krónan með veikasta móti:
Vísitala krónu
yfir 250 stigum
GENGI GJALDMIÐLA Í GÆR
Gjaldmiðill Verð
Bandaríkjadalur 149,4 kr.
Evra 188,5 kr.
Pund 220,3 kr.
Dönsk króna 25,3 kr.
Norsk króna 20,9 kr.
Sænsk króna 18,0 kr.
Svissneskur franki 122,6 kr.
Japanskt jen 1,6 kr.
GRÁIR FYRIR JÁRNUM Tugir lögreglumanna í óeirðabúningum röðuðu sér upp inni í Seðlabanka Íslands eftir að hundruð mót-
mælenda söfnuðust saman í anddyri bankans eftir mótmælafund í gær. Að endingu sömdu mótmælendur við lögreglu um að
hverfa á braut yrði lögreglumönnum fækkað. Við það var staðið. Sjá síðu 2. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
FÓLK Bræðurnir Viktor Breki og
Brynjar Jökull Ægissynir fundu á
laugardag flöskuskeyti í fjörunni
á Malarrifi á Snæfellsnesi.
„Strákunum fannst þetta virki-
lega spennandi,“ segir Ægir Þórð-
arson, faðir drengjanna.
Skeytið er frá norskum ferða-
manni, Jens Fauskanger sem
varpaði því úr Norrænu í sjóinn
milli Íslands og Færeyja 11. júní í
sumar. Það hafði því velkst um í
sjónum í rúma fimm mánuði.
„Ég hringdi í Jens og hann var
hissa að heyra fréttir af því að
skeytið væri fundið,“ segir Ægir.
Hann segist hafa átt í erfiðleikum
með að útskýra staðsetningu Mal-
arrifs fyrir Norðmanninum vegna
tungumálaerfiðleika og ætlar því
að að skrifa honum bréf og senda
með hefðbundnari leið. - ovd
Bræður á Malarrifi á Snæfellsnesi fundu norskt flöskuskeyti í fjörunni:
Flaskan var fimm mánuði á leiðinni
NORSK SKILABOÐ Bræðurnir Viktor
Breki og Brynjar Jökull Ægissynir með
flöskuskeytið sem þeir fundu á Malarrifi
á Snæfellsnesi. MYND/ÆGIR ÞÓRÐARSON