Fréttablaðið - 02.12.2008, Side 42
26 2. desember 2008 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
Iceland Express-deild karla
Grindavík-Snæfell 93-81 (53-42)
Stig Grindavíkur: Arnar Freyr Jónsson 22, Páll
Axel Vilbergsson 18, Brenton Birmingham 18,
Helgi Jónas Guðfinnsson 13, Þorleifur Ólafsson 9,
Páll Kristinsson 6, Davíð Hermannsson 4, Björn
Brynjólfsson 3.
Stig Snæfells: Sigurður Þorvaldsson 26, Jón
Jónsson 17, Hlynur Bæringsson 15 (21 frákast, 9
stoðsendingar), Slobodan Subasic 8, Egill
Egilsson 6, Atli Hreinsson 4, Arnór Hermansson
3, Gunnlaugur Smárason 2.
Stjarnan-Breiðablik 87-91 (45-35)
Stig Stjörnunnar: Fannar Helgason 21, Jovan
Zdravevski 16, Kjartan Kjartansson 15, Justin
Shouse 15, Birkir Guðlaugsson 8, Ólafur
Sigurðsson 6, Hilmar Geirsson 4, Hjörleifur
Sumarliðason 2.
Stig Breiðabliks: Nemanja Sovic 41 (17 fráköst),
Kristján Sigurðsson 15, Halldór Halldórsson 14,
Rúnar Pálmarsson 7, Rúnar Erlingsson 6, Loftur
Einarsson 2.
FSu-ÍR 71-75 (43-42)
Stig FSu: Thomas Viglianco 22, Árni Ragnarsson
13, Sævar Sigmundsson 10, Vésteinn Sveinsson
10, Tyler Dunaway 9, Nicholas Mabbutt 4, Daði
Grétarsson 3.
Stig ÍR: Sveinbjörn Claessen 21, Steinar Arason
16, Hreggviður Magnússon 13, Eiríkur
Önundarson 10, Ómar Sævarsson 6, Ólafur
Ingvarsson 3, Ólafur Þórisson 2, Davíð Fritzson 2,
Þorsteinn Húnfjörð 2.
Enska úrvalsdeildin
Liverpool-West Ham 0-0
Coca-Cola Championship
Reading-Coventry 3-1
0-1 Daniel Fox (26.), 1-1 Noel Hunt (32.), 2-1
Kalifa Cisse (37.), 3-1 Noel Hunt (62.).
ÚRSLIT
> Dagur tekur við Füchse Berlin
Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Austurríkis í hand-
bolta, mun að öllu óbreyttu skrifa undir samning við
þýska efstudeildarfélagið Füchse Berlin í næstu viku.
Þetta staðfesti Bob Hanning, framkvæmdastjóri þýska
félagsins, í samtali við Fréttablaðið í gær. „Ég fór til
Íslands á dögunum og fundaði með Degi og varð
strax mjög hrifinn af honum. Við vildum fá þjálfara frá
Norðurlöndunum sem hefur jafnframt reynslu af þýska
handboltanum og talar þýsku og Dagur er rétti maðurinn
fyrir okkur. Við erum búnir að ná munn-
legu samkomulagi við hann og tveggja
ára samningur verður undirritaður í næstu
viku. Hann mun svo áfram stýra Austur-
ríki samhliða þjálfun hjá okkur,“ segir
Hanning.
FÓTBOLTI Tveir leikir fara fram í
átta liða úrslitum enska deildar-
bikarsins í kvöld þar sem mætast
annars vegar Stoke og Derby og
hins vegar Burnley og Arsenal.
Jóhannes Karl Guðjónsson
hefur átt fast sæti í byrjunarliði
Burnley upp á síðkastið en missti
sæti sitt í hendur Kevins McDon-
ald um helgina í 3-0 sigrinum á
Derby. Óvíst er því hvort
Jóhannes Karl verður í byrjunar-
liðinu þegar Arsenal kemur í
heimsókn á Turf Moor-leikvang-
inn í kvöld.
Arsene Wenger, knattspyrnu-
stjóri Arsenal, mun sem fyrr
leyfa yngri leikmönnum liðsins að
spreyta sig. - óþ
Enski deildarbikarinn:
Jóhannes Karl í
byrjunarliðinu?
JÓHANNES KARL Er í harðri baráttu um
sæti í byrjunarliðinu hjá Burnley.
NORDIC PHOTOS/GETTY
Mývetningurinn Baldur Sigurðsson er í sérstakri stöðu hjá 1. deild-
arfélaginu Bryne í Noregi en forráðamenn félagsins hafa tilkynnt
leikmönnum sínum um mikil fjárhagsvandræði sem kalli á
endurskipulagningu reksturs félagsins og gæti meðal
annars falið í sér að einhverjir leikmenn verði seldir.
Baldur er á meðal þeirra leikmanna sem félagið neyðist
til þess að setja á sölulista.
„Fyrir tímabilið var markmið félagsins náttúrulega að fara
upp í úrvalsdeildina og þar með öll fjárhagsáætlun sam-
kvæmt því en við enduðum hins vegar í ellefta sæti og þar af
leiðandi var innkoman mun minni en forráðamenn félagsins
áætluðu. Þeir héldu svo fund með leikmönnunum á dög-
unum og tilkynntu okkur um bága fjárhagsstöðu og að það
þyrfti að láta einhverja leikmenn fara. Þeir sögðu við mig að
þeir væru mjög ánægðir með mig og vildu alls ekki missa
mig en staðan væri bara þannig að ef eitthvert félag sýndi
mér áhuga þá yrði litið á það með jákvæðum augum með
sölu í huga,“ segir Baldur.
Baldur gekk til liðs við Bryne í lok sumars í fyrra eftir
frábært tímabil með Keflavík og skrifaði þá undir þriggja ára
samning við norska félagið. Baldur lék hins vegar aðeins í fimmt-
án af þrjátíu leikjum Bryne í norsku 1. deildinni á nýafstöðnu
keppnistímabili og viðurkennir að staða mála sé fremur óljós
hvað framhaldið varðar en hann ætli bara að halda sínu
striki.
„Nýr þjálfari tók við Bryne fyrir síðasta tímabil og
hann kom með sína eigin leikmenn með sér eins
og gengur og gerist og hann var greinilega ekkert
að fíla mig alltof mikið. Ég spilaði einhverja fimmtán leiki,
þar af átta í byrjunarliðinu, sem er náttúrulega ekki eitthvað
sem maður var að vonast eftir. Ég á samt enn tvö ár eftir
af samningi mínum og eins og staðan er í dag þá mæti ég
bara aftur til æfinga hjá Bryne í byrjun janúar. Það er
náttúrulega aldrei að vita hvað gerist. Ef eitthvert félag
kemur inn og vill kaupa mig þá skoða ég það auðvitað
en ef ekkert verður af sölunni þá er lítið annað sem
ég get gert en að halda áfram mínu striki með Bryne og
bíða eftir tækifærinu,“ segir Baldur ákveðinn.
BALDUR SIGURÐSSON: MEÐAL ÞEIRRA LEIKMANNA SEM NORSKA FÉLAGIÐ BRYNE NEYÐIST TIL AÐ SETJA Á SÖLULISTA
Lítið sem ég get gert annað en haldið mínu striki
FÓTBOLTI Kvennalandslið Íslands í
fótbolta leikur vináttulandsleik
gegn Hollandi 23. apríl næstkom-
andi og mun leikurinn fara fram í
Kórnum í Kópavogi. Þetta kemur
fram á heimasíðu Knattspyrnu-
sambands Íslands.
Leikurinn er liður í undirbún-
ingi þjóðanna fyrir úrslitakeppni
EM í Finnlandi á næsta ári. - óþ
Vináttulandsleikur í fótbolta:
Stelpurnar
mæta Hollandi
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 149
Sendu SMS ES
L PTJ á nú
1900 og þú gæ
tir unnið eintak
!
Pottþétt
Vinningar eru geislaplö
tur, tölvuleikir,
DVD myndir, Pepsi og
margt fleira!
kr/skeytið.
9. hvervinnur!
V E F V E R S L U N E L K O . i s
KÖRFUBOLTI Þrír leikir fóru fram í
Iceland Express-deild karla í
gær þar sem Grindavík lagði
Snæfell, Breiðablik vann Stjörn-
una og ÍR fór með sigur af hólmi
gegn FSu.
Grindvíkingar fengu óskabyrj-
un gegn Snæfellingum í Röstinni
í Grindavík í gær og skoruðu
fyrstu átta stig leiksins og voru
svo alltaf skrefinu á undan gest-
unum framan af leik. En í blálok
fyrsta leikhluta komu Snæfell-
ingar grimmir til baka og náðu í
fyrsta skipti forystunni í leikn-
um, 24-25.
Leikurinn var í járnum í
öðrum leikhluta, þangað til
um það bil fimm mínútur
voru eftir, að Grindvík-
ingar skoruðu tólf stig í
röð og breyttu stöð-
unni úr 39-40 í 51-40
en staðan í hálfleik
var svo 53-42 heima-
mönnum í vil.
Snæfellingar hleyptu
spennu í leikinn með því
að skora fyrstu átta stigin í
þriðja leikhluta en Grindvík-
ingar sigldu svo fram úr á nýjan
leik og staðan var orðin 77-65
fyrir síðasta leikhlutann.
Tólf stiga forskot heimamanna
var hins vegar of stór biti fyrir
gestina og Snæfellingar náðu
aldrei að ógna Grindvíkingum
almennilega í fjórða leikhluta.
Lokatölur urðu 93-81 Grindavík í
vil, sem vann þar með sinn þriðja
leik í röð í deildinni.
Arnar Freyr Jónsson var
atkvæðamestur heimamanna
með 22 stig en Páll Axel Vil-
bergsson og Brenton Birming-
ham komu næstir með 18 stig
hvor. Hjá gestunum var Sigurð-
ur Þorvaldsson stigahæstur
með 26 stig, Jón Jónsson kom
næstur með 17 stig og Hlynur
Bæringsson var aðeins einni
stoðsendingu frá þrefaldri
tvennu með 15 stig. 21 frá-
kast og 9 stoðsendingar.
Þá unnu nýliðar Breiða-
bliks Stjörnuna, 87-91 og
spútniklið síðasta tíma-
bils, ÍR, er óðum að
komast í sitt gamla
form og vann fjórða
leik sinn í röð í deild-
inni, gegn FSu. - óþ
9. umferð Iceland Express-deildar karla lauk í gær:
Grindvíkingar
áfram á sigurbraut
ARNAR FREYR Átti fínan leik er Grindavík
sigraði Snæfell 93-81 í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Reading hafði betur gegn
Coventry 3-1 í Íslendingaslag í
Coca-Cola Championship-
deildinni í gærkvöld.
Ívar Ingimarsson var í byrjun-
arliði Reading og lék allan leikinn
og Aron Einar Gunnarsson var í
byrjunarliði Coventry en var
tekinn af velli á 59. mínútu.
Brynjar Björn Gunnarsson kom
inn á sem varamaður fyrir
Reading á 77. mínútu. - óþ
Íslendingaslagur í gær:
Reading vann
ÍVAR INGIMARSSON Var á sínum stað í
byrjunarliði Reading í gærkvöld.
NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Liverpool og West Ham
gerðu markalaust jafntefli á
Anfield í gær og Liverpool er því
komið eitt á topp deildarinnar.
Liverpool yfirspilaði West Ham á
stórum köflum í leiknum og eitt
stig því rýr uppskera.
Liverpool réði lögum og lofum í
fyrri háfleik á Anfield í gær og
gerði harða hríð að marki West
Ham strax frá fyrstu mínútu en
náði ekki að koma boltanum í
netið.
Litlu munaði þó að sóknarmað-
urinn Craig Bellamy næði að skora
fyrsta mark leiksins fyrir gestina í
West Ham á 37. mínútu en skot
hans fór í innanverða stöngina í
marki Liverpool. Staðan var enn
markalaus í hálfleik.
Liverpool hélt pressunni áfram í
seinni hálfleik og sótti sem fyrr án
afláts. Yossi Benayoun komst
nálægt því að skora fyrir Liver-
pool gegn sínum gömlu félögum í
West Ham á 56. mínútu en Green
varði þá glæsilega frá honum af
stuttu færi.
Leikmenn Liverpool, sem og
aðdáendur félagsins, voru orðnir
óþreyjufullir eftir að hver sóknin
af annarri brotnaði á vörn West
Ham og rann út í sandinn. Lund-
únafélagið lagði minnsta áherslu á
sóknarleikinn og varðist af krafti í
von um að krækja í eitt stig.
Sami Hyypia fékk enn og aftur
gott skallafæri á 81. mínútu en
boltinn fór rétt fram hjá mark-
stöng West Ham. Á 88. mínútu fékk
Liverpool enn eitt dauðafærið eftir
þunga sóknarlotu þegar Dirk Kuyt
fór illa að ráði sínu á fjærstöng og
lét Green verja frá sér.
West Ham náði að þrauka á loka-
kaflanum og innbyrða jafntefli en
Liverpool komst þar með á topp
deildarinnar. Leikmenn Liverpool
hljóta hins vegar að vera svekktir
yfir að hafa tapað tveimur stigum í
leik sem þeir stjórnuðu frá upp-
hafi til enda. omar@frettabladid.is
Liverpool komið á toppinn
Liverpool fór illa að ráði sínu og náði aðeins jafntefli gegn West Ham á Anfield
í gær. Liverpool var mun betri aðilinn en hvorugu liðinu tókst að skora.
MARKALEYSI Liverpool komst á
topp ensku úrvalsdeildarinnar
þrátt fyrir svekkjandi jafntefli
gegn West Ham. NORDIC PHOTOS/GETTY