Tíminn - 24.03.1982, Page 10
Miðvikudagur 24. mars 1982
10
heimilisttminn
Umsjón
A.K.B.
■ Nú orðið getur fólk valiö úr mörgum tegundum af heilhveiti- og kornbrauðum I góðum brauðsölubúð-
um.
■ Enn eykst innflutningur á kökum en á flestar umbúðirnar vantar
bæði framleiösludag og siðasta söludag. Hvað skyldu þessar innfluttu
kökur vera orðnar gamlar?
(Timamyndir Róbert)
Aukin brauðneysla
— með tilkomu nýrra kornbrauða
■ Nú er orðin mikil
fjölbreytni i brauðaúr-
vali i bakarium. Neyt-
endur geta valið um
margar tegundir heilsu-
brauða og kornbrauða
og oft sérhæfa bakara-
meistarar sig i einhverri
sérstakri brauðagerð
sem er þá eftir þeirra
eigin uppskrift.
Nýlega var haldinn aðalfundur
Landssambands bakarameist-
ara, og þar kom fram m.a. að enn
er stóraukinn innflutningur af
kökum hingað til lands. Fráfar-
andi formaður sambandsins Jó-
hannes Björnsson, skýrói frá þvi
að gengið hefði veriö á fund Svav-
ars Gestssonar heilbrigðisráð-
herra og farið fram á, að reglu-
gerð nr. 250 frá 1976 verði fram-
fylgt. 1 henni stendur, að matvæli
i luktum neytendaumbúðum skuli
merkt með íramleiðsludegi og
siðasta söludegi.
Bakarameistarar telja að þessu
sé ekki framfylgt i sambandi við
innfluttar kökur og fróðlegt væri
fyrir viðskiptavini að vita, hve
margra vikna, mánaða eða jafn-
vel ára gamlar hinar innfluttu
kökur eru.
Brauðið sjálft inniheldur litla
feiti en ncytandinn sjálfur ákveð-
ur fitumagniö i „smurðu brauði”
með smjörmagni og álegginu sem
notaö er á brauðið.
Norræn brauðavikan
Á fundinum var rætt um nor-
rænu brauðavikuna sem haldin
var s.l. haust. Bakarar voru sam-
mála um að hún hefði verið ár-
angursrik brauðneysla lands-
manna hefur aukist og þeim fari
stöðugt fjölgandi sem borða 6-8
brauðsneiðar á dag af góðum og
hollum brauðum.
LABAK (Landssamband bak-
arameistara) tilkynnti á aðal-
fundinum að stjórnin hefði ákveð-
ið að veita tveim bakarameistur-
um „Gullkringlu Landssambands
bakarameistara”. Það eru þeir
Kristinn Albertsson, bakara-
meistari í Brauð h/f Reykjavik og
Ragnar Eðvaldsson, bakara-
meistari i Ragnarsbakarii i
Keflavik sem hljóta gullkringl-
una.
Jóhannes Björnsson formaður
landssambandsins gaf ekki kost á
sér til endurkjörs en i hans stað
var Jón Albert Kristinsson bak-
arameistari i Alfheimabakarii
kosinn formaður.
Ný tegund af blómapottum:
,, Kornakú nst ’9
— ný framleiðsla frá Glit hf.
■ Nú fer að koma vor-
hugur i margan blóma-
ræktandann, og þá er
rokið til og afleggjarar
settir i nýja potta og
skipt um mold i þeim
gömlu, svo blómin
hressist við og blómstri
með hækkandi sól.
Um leið og skipt er um mold er
tilvalið aö hressa upp á blóma-
gluggana með þvi aö fá sér nýja
og fallega blómapotta.
Nýlega hefur fyrirtækiö GLIT
hf. sett á markað nýja tegund af
blómapottum og blómavösum,
sem hefur hlotið nafnið Korna-
kúnst.
Þessir pottar og vasar eru
unnir i steinleir, sem blandaður
er muldu vikurhrauni af Reykja-
nesi, sem hefur svipaö brennslu-
stig og leirinn, og samlagast
honum því mjög vel. Vikurinn
bráönar og verður að glerungi, og
viö það myndast skemmtileg
kornótt áferö, og þar af er dregiö
nafnið Kornakúnst.
Hægt er aö fá blómapotta af
öllum stæröum, veggpotta, hengi-
potta, blómavasa og skálar með
„kornakúnstar-áferð”.
Höfundar Kornakúnstar eru
þau Þór Sveinsson leirkera-
smiöur og Eydis Lúðviksdóttir
myndlistakona.
■ Blómin fara vei I kornakúnst-
ar-pottunum, en svo eru skálarn-
ar og blómavasarnir lika til
skrauts, þótt tómir séu
Miðvikudagur 24. mars 1982
ÞEIR SPÁ....
3
Askell
Magnús
Þorsteinn
Bjarni
Grétar
Páll
Sigurdór
Jón O.
Jón H.
Gylfi
ómar
Sigurður
Úrslitakeppnin:
TTLeidinlegt ad spá
Aston Villa tapi
# segir Áskell Þórisson sem spáir þeim tapi gegn Arsenal
Áskell Þórisson blaða-
maður:
• „Þaö er leiðinlegt að þurfa að
spá Aston Villa tapi gegn Arse-
nal því þeir eru eitt af mlnum
uppáhaldsliðum. En þó verð ég
að spá Arsenal sigri i þessum
leik. Staðan í hálfleik verður 1-1
en Arsenal skorar sigurmarkið i
seinni hálfleik”.
Magnús V. Pétursson
knattspy rnudómari:
„Ég ætla að spá Brighton
sigri ég tel að þeir eigi að vinna
þennan leik gegn Birmingham
þó að þeir leiki á útivelli”.
Þorsteinn Bjarnason
bankamaður:
„Þessi leikur gæti orðið erfið-
ur, annars eru Olfarnir nú ekki
sleipir á útivelli. En þeir verða
að taka sig til i andlitinu og fara
að vinna og ég spái þeim sigri
gegn Coventry”.
Bjarni Óskarsson
verslunarmaður:
„Liverpool er að komast i
ham eftir aö þeir sigruðu
Tottenham í deildarbikarnum
og ég hef trú á þvi að þeir fari
létt með að vinna Everton þó að
þeir leiki á útivelli”.
Grétar Norðfjörð
knattspy rnudómari:
„Þetta er engin spurning,
Man. United fer létt með að
vinna Sunderland, þetta er
léttur leikur”.
Páll Pálmason knatt-
spyrnumaður:
„Middlesboro er svo neðar-
lega f 1. deildinni að ég held ég
geti ekki annað en spáð Man
City sigri gegn þeim, þó aö þeir
leiki á útivelli”.
Sigurdór Sigurdórsson
blaðamaður:
„Ég segi að Notts County
vinni leikinn, ég hef ekki trú á
þvi að Leeds vinni á útivelli.
Þetta er nokkuö erfiður leikur,
það eru ekki alltaf jólin”.
Jón Oddsson knatt-
spyrnumaður:
„Southampton veröur að
vinna þennan leik gegn Stoke ef
þeir ætla sér að vera áfram i
baráttunni á toppnum. Ég spái
þeim þvi sigri, hef ekki trú á þvi
að Stoke geri einhverjar rósir á
heimavelli Southampton”.
Jón Hermannsson
prentari:
„Ég ætla að spá Ipswich sigri
i leiknum gegn Swansea, þó að
þeir leiki á erfiðum velli eins og
Vetch Field er, nánast eitt
drullusvaö fyrir nokkrum dög-
um. Ég tel Ipswich vera með
mun sterkara lið”.
Gylfi Kristjánsson
blaðamaður:
„Þetta eru tvö mjög góð lið og
allt geturgerst og þvi ætla ég aö
setja jafntefli á þennan leik
W.B.A. og Tottenham. Ég
hallast nú frekar að heimasigri,
en ætli ég láti ekki jafntefliö
standa”.
Ómar Ragnarsson
fréttamaður:
„Heimavöllurinn hefur mikið
að segja og þvi spái ég West
Ham sigri gegn Nottingham
Forest. Þetta eru jafnsterk lið
og heimavöllurinn ræður þvi
miklu. West Ham verða vel
studdir af áhorfendum og ég
spái góöri stemmningu á vell-
inum”.
Sigurður Ingólfsson
hljóðmeistari:
„Ég ætla að taka sjensinn á
þvi að láta Oldham vinna
þennan leik gegn Barnsley. Ég
hugsa að heimavöllurinn sé
nokkuð drjúgur hjá Oldham”.
röp-.
voru
með
rétt
■ Fyrsta vikan I úrslita-
keppninni var um siöustu
helgi og af þeim tólf sem eru i
úrslitum reyndust aðeins sex
hafa rétt fyrir sér. Þeir sem
voru meö rétt voru, Sigurdór,
Jón Hermannsson, Gylfi,
Ómar, Grétar og Jón Oddsson.
Þaö er þvi óhætt aö segja aö
þeir hafi tekið smá forskot á
hina sex sem lofa að gera
beturi þessari viku. Enda ekki
seinna vænna þvi aðeins átta
vikur eru eftir af úrslita-
keppninni. röp-.
Nafn 29 leikvika Leíkir Spá
1. Askell Þórisson blaðamaður (0) Arsenal — Aston Villa i
2. Magnús V. Pétursson knattspyrnud. (0) Birmingham — Brighton 2
3. Þorsteinn Bjarnason bankamaður (0) Coventry,—Wolves 2
4. Bjarni Óskarsson verslunarm.: (0) Everton —Liverpool 2
5. Grétar Norðfjörð knattspyrnud.: (1) Man. United — Sunderland i
6. Páll Pálmason knattspyrnum.: (0) Middlesboro — Man. City 2
7. Sigurdór Sigurdórsson blaðamaður (1) Notts County — Leeds 1
8. Jón Oddsson knattspymum.: (1) Southa m pton — Stoke 1
9. Jón Hermannsson prentari (1) Swansea — Ipswich 2
10. Gylfi Kristjánsson biaðamaður: (1) W.B.A. — Tottenham X
11. ómar Ragnarsson fréttamaöur (1) West Ham —4íottingham Forest I
12. Sigurður Ingólfsson hljóðm.: (0) Oldham—Barnsely 1