Tíminn - 04.04.1982, Blaðsíða 6

Tíminn - 04.04.1982, Blaðsíða 6
6 Sunnudagur 4. apríl 1982 WlSfWII Utgcfandi: Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdóttir. Afgreiðslustjóri: Sigurður Brynjólfs- son. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elias Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. Olafsson. Fréttastjóri: Páll Magnússon. Umsjónarmaður Helgar-Tim- ans: lllugi Jökulsson. Blaöamenn: Agnes Bragadóttir, Atli Magnússon, Bjarghild- ur Stefánsdóttir, Egill Helgason. Friðrik Indriðason, Heiður Helgadóttir, Jónas Guðmundsson, Kristinn Hallgrimsson, Kristin Leifsdóttir, Ragnar Orn Pétursson (iþróttir), Sigurjón Valdimarsson, Skafti Jónsson. Utlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Agústsson, Elin Ellertsdóttir. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Flosi Kristjánsson, Kristin Þorbjarnardóttir, Maria Anna Þorsteinsdóttir. Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar: Siðumúla 15, Reykjavik. Simi: 86300. Aug- lýsingasimi: 18300. Kvöldsimar: 86387, 86392. — Verð i lausasölu 7.00, en 9.00 um helgar. Áskriftargjald á mánuði: kr. 110.00. — Prentun: Blaðaprent hf. Eiturvopna- kapphlaupið ■ í umræðunni um vigbúnaðarkapphlaupið og baráttuna fyrir afvopnun, eða i það minnsta tak- mörkun vigbúnaðar, hefur einkum verið fjallað um kjarnorkuvopnin, bæði kjarnorku- sprengjurnar sjálfar og þær skotflaugar, sem ætlað er að koma þeim til skotmarka ef til ófriðar kemur. Það er auðvitað eðlilegt, að kjarnorkuvopnin veki mestan ugg, þvi flestum er ljós hinn ægilegi gjöreyðingarmáttur þeirra. Frumstæð kjarn- orkuvopn hafa þegar verið notuð, með þeim óhugnanlegu afleiðingum, sem öllum er kunnugt um af myndum og frásögnum frá Hiroshima. En hinir áköfu vopnasmiðir stórveldanna hafa fundið upp ýmis önnur drápstæki, sem ekki eru siður ógnvekjandi. Það eru eiturvopn af ýmsu tagi, bæði efnafræðileg og liffræðileg. Þessi hræðilegu vopn, sem meðal svonefndra hernaðarsérfræðinga eru einkennd með skamm- stöfuninni ,,CBW”, hafa yfirleitt ekki verið fram- leidd nú um nokkurt árabil, en útlit er fyrir að á þvi verði breyting á næstu árum og að eitur- vopnakapphlaup hefjist á milli stórveldanna á ný. Eiturgas var fyrst notað i hernaði árið 1915, á timum fyrri heimsstyrjaldarinnar, af báðum striðsaðilum, og er talið að um 100 þúsund her- menn hafi fallið af þeirra völdum, en rúm milljón hermanna orðið fyrir einhverju áfalli vegna eiturvopna. Visindamenn, sem ávallt virðast reiðubúnir að nýta snilli sina til að búa til fljót- virkari og hryllilegri drápstæki, hafa siðan full- komnað mjög þessi eiturvopn, einkum með fram- leiðslu ýmissa tegunda af svokölluðu taugagasi. Það veit enginn nákvæmlega hversu mikið er til af eiturvopnum i vörslu stórveldanna. Banda- riskir sérfræðingar segja, að vafalaust sé mikið af slikum vopnum til i Sovétrikjunum. Þá telja þeir, að i Bandarikjunum séu til um 150 þúsund tonn af eiturvopnum, en það nægi fræðilega séð til þess að útrýma öllum ibúum jarðarinnar 4.000 sinnum! Slikar tölur eru óhugnanlegar, og engin ástæða til að ætla annað en svipaðar birgðir séu til i Sovétrikjunum. Að undanförnu hafa verið settar fram fullyrð- ingar um, að eiturvopn hafi verið notuð m.a. i Laos, Kampútseu og Afganistan. Og bandarisk stjórnvöld hafa lýst þeim ásetningi sinum að hefja aftur framleiðslu á eiturvopnum árið 1984. Stefnt mun að þvi að þau vopn verði staðsett i Evrópu. Þetta upphaf nýs eiturvopnakapphlaups stór- veldanna eru ein ótiðindin af mörgum, sem borist hafa um heimsbyggðina siðustu árin. Baráttan fyrir takmörkun vigbúnaðar og afvopnun hefur ekki borið áþreifanlegan árangur, þvi miður. Þvert á móti virðist vigbúnaðarkapphlaupið magnast stig af stigi og gera þann heim, sem við lifum i, sifellt hættulegri. —ESJ. á vettvangi dagsins við þeim — eftir Hjálmar Vil- hjálmsson, fiskifræðing ■ Tilefni þessara athugasemda eru oröin æriö mörg og ógerning- ur aö tiunda þau. Hiö síðasta skal þó nefnt, sem er ummæli sjávar- útvegsráöherra f Timanum þann 31. mars en þar segir hann m.a. svo. „Ég er ákaflega áhyggjufullur út af þessu ástandi með loönu- stofninn. Þaö hefur ekki verið fariö fram yfir tillögur fiskifræö- inganna viö loönuveiöarnar, t.d erum viö meö 594 þúsund tonn en þeir lögöu til 700 þúsund tonn. Þessi 594 þúsund tonn er heildar- veiöin úr stofninum.” Þetta er vitanlega ekki rétt og viröist kominn timi til aö rekja nokkuö tillögur fiskifræöinga um hámarksafla og viöbrögö stjórn- valda viö þeim. Meö tilkomu sumar- og haust- veiöanna 1976 varö ljóst aö unnt myndi aö auka loönuaflann veru- lega frá þvi sem veriö haföi (450 - 575 þús. tonn). Fiskifræðingar voru fljótlega spuröir hvaö þeir héldu um veiöiþol stofnsins og töldum viö þá aö það gæti legið á bilinu 1 - 1.5 milljón tonn aö þvi tilskildu aö nýliöun héldist há eins og veriö haföi á næstiiönum árum (1972 - ’76). Viö geröum einnig grein fyrir þvi að viö vær- um enn illa i stakk búnir til slikr- ar ráögjafar og bentum itrekað á aö ráölegast væri aö halda sig viö neöri mörkin þar til áhrif hinnar auknu sóknar kæmu i ljós. Siðan hefur ársaflinn tvivegis fariö yfir 1100 þús. tonn og fjöldi loðnu- seiöa, m.ö.o. nýliöun, hefur frá 1976 aðeins verið um 1/3 hluti þess sem hann var næstu 4 - 5 árin þar á undan. Haustið 1978 var farið að mæla stærö hrygningarstofnsins með svokallaðri bergmálsaöferð, en á þeim hluta stofnsins byggjast veiðarnar. Ekki voru gerðar til- lögur um hámarksafla úr hrygn- ingarstofni ársins 1979 en að mestu farið aö tillögum sem fram komu um fyrirkomulag veiða á vetrarvertiöinni það ár. Að loknum sameiginlegum bergmálsmælingum Islendinga og Norðmanna i september - október 1979 (hrygningarstofn 1980) var lagt til aö hámarksafli á veiðitlmabilinu sumar 1979 - vet- ur 1980 yrði 650 þús. tonn. Frekari bergmálsmælingar sem gerðar voru þá um haustiö þóttu hins vegar benda til þess að ástandiö væri talsvert betra. 1 janúar 1980 var svo mælt á nýjan leik og að þvi loknu iagt til aö leyft yrði að veiöa 850 þús. tonn og 400 þús. tonn skilin eftir til þess að hrygna. Hefur þessi viömiöun um endanlega stærö hrygningar- stofnsins veriö höfö aö leiöarijósi viö tillögugerö um hámarksafia siöan.Á ofangreindri vertiö varö afli samtals 962 þús. tonn og um 300 þús. tonn þvi skilin eftir til þess aö hrygna. Vorið 1980 voru til bráðabirgða geröar tillögur um 650 þús. tonna hámarksafla sem endurskoöa skyldi eftir bergmálsmælingar á stofnstærð þá um haustiö eöa veturinn 1981. Samið var við Norömenn — til bráöabirgöa — um 750 þús. tonna heildarveiði. 1 október sama ár, aö loknum sam- eiginlegum mælingum Islendinga og Norðmanna á stærð stofnsins, var lagt til aö bráðabirgöakvótinn yrði skorinn niður um 40%. Akv. var 30% niðurskuröur en siöar leyföar veiðar á um 60 þús. tonnum til viðbótar á vetrarver- tiðinniáriöeftir. Niöurskurðurinn nam þvi um 20% þegar upp var staöiö eöa helmingi þess sem fiskifræöingar höföu lagt til. Far- iö var 230 þús. tonnum fram úr endanlegum tillögum og ekki fengu aö hrygna nema 160 þús. tonn voriö 1981 samkvæmt berg- málsmælingum. Þetta eru aöeins 2/5 hlutar þes sem lagt haföi veriö til. Aö þvier varðar seinasta veiði- tlmabil voru lagðar fram bráöa- birgöatillögur um 700 þús. tonna hámarksafla voriö 1981 meö venjulegum fyrirvara um endur- skoöun aö loknum bergmálsmæl- ingum s.l. haust eöa I vetur. Stjórnvöld féllust á þessa tillögu, en ekki ábendingu um aö óráðlegt myndi aö úthluta öllum bráöa- birgöakvótanum strax. Norsk-Is- lenskar bergmálsmælingar, sem geröar voru I október s.l., mistók- ust aö hluta en sýndu svo litiö af loönu aö yfirgnæfandi likur virt- ust til þess að ástandið væri al- varlegt. Lagt var til að veiðum yröi hætt þar til tekist hefði að mæla stærð stofnsins á ný við betri skilyrði. Fjallaði Alþjóöa- hafrannsóknaráöiö um þessa til- lögu I nóvemberbyrjun og komst aö sömu niðurstööu. Þessum til- lögum var ekki sinnt og veiðum var haldiö áfram án takmarkana þartil endanlegarniðurstööur um stærö stofnsins lágu loks fyrir i byrjun desember. Lögð var til stöövun veiða hiö fyrsta, en ákveðiö var aö þau skip sem enn hefðu ekki fyllt helming kvóta sins mættu veiða að þvi marki og aörir skyldu hætta. Niðurstaðan varö þvi sú, aö aöeins voru skilin eftir um 140 þús. tonn til aö hrygna nú i vor, en þaö er ekki nema rúmur 1/3 hluti þess sem aö undanförnu hefur veriö miöaö viö. Hér hefur aðeins veriö stiklaö á stóru, en fráleitt er hægt að segja aö ekki hafi veriö fariö fram yfir tillögur fiskifræöinga og sist á siöastliðinni vertið. Kemur þar margt til og stjórnvöld oft i erfiöri aöstööu. Aöalatriöið er þó vitan- lega hinn mikli samdráttur — nánast hrun — loðnustofnsins sjálfs, þrýstingur sem þetta hefur skapaö og tregöa manna til þess aö viðurkenna það sem margir hljóta þó aö hafa séö meö eigin augum. Vonandi berum viö gæfu til aö snúa þessari óheillaþróun viö svo loönustofninn nái aftur fyrri stærð. Hjálmar Vilhjálmsson og viðbrögð stjórnvalda Aflinii úr íslenska loðnustofninum: Um tillögur fiskifræðinga

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.