Tíminn - 16.04.1982, Blaðsíða 5
Föstudagur 16. april 1982
5
fréttir
Óvenjulcg llfsreynsla ungs Akureyrings:
GEKK MED LOFTNETSBÚT í
HÖFÐINU í ÞRÉTTAN VIKUR!
„Má víst þakka fyrir að vera á lífi”, segir Eyjólfur Águstsson
■ „Ég má vist þakka
fyrir að vera á lifi, eða
a.m.k. án alvarlegra ör-
kumla,” sagði Eyjólfur
Ágústsson, ungur Akur-
eyringur i viðtali við
Timann i gær, en hann
lenti i þeirri óvenjulegu
lifsreynslu að fá i vél-
sleðaslysi um áramótin,
tæplega tiu sentimetra
loftnetsbút upp i gegn-
um nef sér, sem stakkst
áfram upp i höfuð. Þessi
aðskotahlutur i höfði
Eyjólfs kom ekki i ljós
fyrr en nú fyrir
skömmu, þvi Eyjólfur
missti meðvitund i slys-
inu og nú i byrjun april-
mánaðar var fram-
kvæmd aðgerð á Eyjólfi
þar sem loftnetsbútur-
inn var f jarlægður. Tim-
inn bað Eyjólf að greina
nánar frá tildrögum
þessa slyss.
„Ég var á snjósleða hér uppi i
Hliöarfjalli á nýársdag að leika
mér og lenti i snjóblindu, þannig
aö ég fór fram af 5 metra hárri
hengju á sleðanum. Nú ég kastað-
ist fram og i rauninni veit ég ekk-
ert nema það að ég braut fram-
glerið i sleðanum og loftnet á lit-
iUi talstöð Ég missti meðvitund i
smástund, en þegar ég rankaði
við mér þá var ég með heljarblóð-
nasir. Égkom mér hið fyrsta nið-
ur á Akureyri og jafnaði mig. Svo
þegar liða fer á, fer ég að verða
þungur i höfðinu og fæ hita. Ég
hafði þá samband við lækni, ætli
það hafi ekki verið svona þremur
vikum eftir að þetta gerðist og
hann hélt að ég hefði brákast á
nefi, þvi það var svolitið rautt, og
aö igerð væri komin i nefið. Fékk
ég þvi pensilin og skánaði við það,
en þetta tók sig upp á nýjan leik,
þegar lyfjakúrinn var búinn. Ég
fékk aftur lyf hjá lækninum, en
versnaöi aftur, þegar þau voru
búin. Þá fór ég aðtaka eftir þvi að
út úr annarri nösinni á mér komu
örsmáir virar tveir eða þrir og fór
ég þvi aftur til læknisins. Hann
sendi mig þá strax i myndatöku,
og þá kom i ljós i myndatökunni
að einhverjir aðskotavirar voru
lengst inni i haus á mér. Reyndist
þetta þá vera efsti hlutinn af tal-
stöðvarloftnetinu, sem hafði þá
stungist beint inn i vinstri nösina
við slysið og svo beint inn i höfuð:
Ég var svo skorinn 1. april sl.
og þá var tekinn út 9.5 sentimetra
iangur fiberglassbútur, með vira-
draslinu inn i, og nú er ég bráð-
hress og stálsleginn. Ég var hjá
lækninum i gær, en þá var tekinn
úr mér saumurinn og læknirinn
sagði mér að það hefði ekki
munað nema svona einum senti-
metra að loftnetsbúturinn heföi
rekist i heiladingulinn, og ef
þannig hefði farið, þá væri ég
örugglega ekki aö segja þér þessa
sögu núna.”
Eyjólfur sagði jafnframt að
hann kenndi sér nú einskis meins
og væri að byrja að æfa knatt-
spyrnu á fullu á nýjan leik.
Timinn hafði i gær samband við
Eirik Sveinsson, lækni á Akureyri
sem hefur annast Eyjólf i þessum
sérstæðu veikindum hans og
spurði hann álits á þvi sem gerst
hefði. „Drengurinn má að öllum
likindum þakka lif sitt þvi að loft-
netsstöngin brotnaði þar sem hún
brotnaði, þvi ef hún heföi gengið
lengra upp i höfuðið, þá hefði hún
farið i heiladingulinn. Það mun-
aði ekki nema um sentimeter að
svo færi.”
Aðspurður um það hvort það
teldist læknisfræðilega merkilegt
að Eyjólfur hefði gengið með
þennan aðskotahlut i höfði sér i
þrjá mánuði án þess að það hefði
varanlegar afleiðingar sagði Ei-
rikur:
„Það er þaö nú ekki i sjálfu sér,
en auðvitað er það mjög sjaldgæft
að svona lágað gerist, án þess að
það sjáist á yfirborðinu. Loftnets-
búturinn hefur einhvern veginn
smeygst i gegnum nefholið á hon-
um, en þaö sást aldrei á yfirborð-
inu, eða við skoðun, fyrr en
virarnir fóru að ganga út úr nös-
inr.i á honum. Það eina sem sást
við myndatökuna voru þessir vir-
ar, þvi fiberglerið kemur ekki
fram á röntgenmynd. Ég varð
satt að segja talsvert hissa, þegar
við fjarlægðum bútinn með að-
gerð, að sjá stærðina á loftnetinu,
þvi þessi bútur var 9.5 sentimetra
langur, breiðari endinn, sá endi
sem ég togaði út var nærri hálfur
sentimetri i þvermál, en sá end-
Eyj'&lfur er kunnur knatt-
spyrnumaður og sem betur fer
kemur þessi óvenjulega lffs-
reynsla ekki i veg fyrir að hann
geti stundað iþrótt sina.
Innbrotsþjófur réðist
á sofandi mann
■ Innbrotsþjófur barði húsráö-
anda i andlitiö með kaffibrúsa
þar sem hann svaf i ibúð sinni við
Skúlagötu aðfaranótt miðviku-
dagsins. Húsráðandinn skarst
nokkuð i andliti og svo brákaðist á
honum nefið við höggiö.
Húsráðanda tókst þrátt fyrir
allt að stöðva innbrotsþjófinn og
hringja i lögregluna sem handtók
hann á staðnum.
— Sjó.
■ Hérséstsvo loftnetsbúturinn í öilu sinu veldi, og til þess að lesendur getinú gert sér fulla grein fyrir
lengdhans og þykkt hefur ljósmyndarinn sett eldspýtustokk viðhliðina á honum, til þess aðsamanburð-
ur fáist- Mynd—G.K.
inn sem gekk upp i höfuðið mun
mjórri.”
Eirikur var að þvi spurður
hvort hann myndi greina eitthvað
frá þessu máli á vettvangi lækna:
„Ég veit það nú ekki. Það er ekki
búið að taka neina afstöðu til þess
— þetta er svo nýskeð. En það er
nú venjan hjá læknum að greina
frá atburðum sem koma upp á i
starfi þeirra og teljast ekki til
daglegs brauðs.” — AB
Kristján Benediktsson um ummæli Guðrúnar:
„Hlægileg vitleysa”
■ Blaðinu barst i gær
eftirfarandi yfirlýsing
frá Kristjáni Benedikts-
syni undir fyrirsögninni
„Hlægileg vitleysa”. Er
þar visað til ummæla,
sem Guðrún Helgadóttir
lét falla hér i blaðinu i
gær.
„Ég sé i blöðum að Guðrún
Helgadóttir sé varamaður minn á
ráðstefnu á vegum höfuðborga
Norðurlanda, sem haldin verður i
Osló i næstu viku og raunar segir
hún það sjálf i viðtali við Timann.
Guðrún Helgadóttir fer ekki sem
varamaður eins eða neins heldur
sem borgarfulltrúinn Guðrún
Helgadóttir.
Sú hefðhefur skapast að á þess-
ar ráðstefnur höfuðborganna fari
einvörðungu borgarfulltrúar og
venjulega einn til tveir embættis-
menn að auki. Að þessu sinni var
ákveðið að 5 borgarfulltrúar
færu, tveir frá minnihluta og þrir
frá meirihluta auk tveggja emb-
ættismanna. Ég átti vissulega
kost á að vera einn hinna þriggja
sem færu frá meirihlutanum.
Hins vegar taldi ég mér ekki fært
vegna mikilla anna að vera þessa
daga fjarverandi. Þetta tilkynnti
ég i borgarráði. Þar með var
minum þætti þessa máls lokið.
Ég taldi enga ástæðu til að hafa
afskipti af þvi hver hinna fimm
borgarfulltrúa meirihlutans færi
á þessa ráðstefnu ásamt þeim
Sjöfn og Sigurjóni.
Það mun koma i hlut Guðrúnar
Helgadóttur á umræddri ráð-
stefnu að hafa framsögu um
eiturlyfjavandamálið og úrræði
til að hamla gegn notkun þeirra
efna. Um önnur dagskrármál
munu aðrir úr sendinefndinni
flytja erindi.
Ég er þess fullviss að allt þetta
fólk mun leysa verkefni sin vel af
hendi.
Kristján Benediktsson”.
Mistök við útgáfu kosninabæklings
Alþýðubandalagsins rædd í borgarstjórn:
„Sóðaskapur við
hönnun á bæklingnum”
— sagði Adda Bára Sigfúsdóttir, borgarfulltrúi
■ Mistök textahöfundar og
hönnuðar fyrsta kosningabækl-
ings Alþýðubandalagsins fyrir
borgarstjórnarkosningarnar i vor
komu til umræðu á fundi borgar-
stjórnar i gærkveldi. Talaði Adda
Bára Sigfúsdóttir, einn borgar-
fulltrúa Alþýðubandalagsins um
„sóðaskap við hönnun bæklings-
ins” um leið og mistökin voru
leiðrétt.
Mistökin fólust i þvi að meðal
þeirra atriða sem talin eru hafa
áunnist á þessu kjörtimabili i
bæklingnum er ákvörðun um að
taka upp skólamáltiðir til
nemenda i grunnskólum borgar-
innar næsta skólaár, sem ekki er
raunin. Hins vegar stendur til að
gera tilraun i tveimur skólum i
þessa veru næsta haust.
Davið Oddsson, oddviti sjálf-
stæðismanna i borgarstjórn, og
reyndar allir borgarfulltrúaar i-
haldsins gerðu sér mikinn mat úr
þessu á fundinum. Sögðu þeir aö
flest öll þau atriði sem Alþýðu-
bandalagið eignaði sér i
bæklingnum væru stolnar fjaðrir,
að þvi er ætla mætti frá sjálf-
stæðismönnum, nema fyrrgreind
mistök, þau væru greinilega ó-
sýnileg fjöður.
Það var i janúar á þessu ári
sem Fræðsluráð samþykkti að
skipa sérstaka nefnd til að kanna
möguleika og áhuga á skólamál-
tiðum til nemenda i grunnskólum
borgarinnar jafnhliða umræðu
um samfelldan skóladag. Var
samþykkt að stefna að tilrauna-
starfsemi i tveimur skólum i
þessu sambandi næsta haust. A-
kvörðun um þetta er tekin i ljósi
niðurstöðu könnunar á fæðuvali
skólanema sem reyndist afleitt.
—Kás.