Tíminn - 21.04.1982, Page 4
MiOvikudagur 21. aprfl 1982
Verð kr. 4.580,00 m/dýnu.
Glæsileg fermingargjöf
Húsgögn og 0
. , . Suðurlandsbraut 18
mnrettmgar simi se 900
Eftirsóttu „Cabína" rúmsam-
stæðurnar komnar aftur.
■ Jón Þdrðarson.
Jón Þórdar-
son prentari
er látinn
■ Jón Þóröarson prentari lést
a6 Borgarspitalanum 16. april sl.
91 árs aö aldri. Hann fæddist 1.
ágúst 1890 aö Grundarstekk á
Berufjarðarströnd og foreldrar
hans voru Þórður Þorvarðarson,
bóndi á Hvannstóði i Borgarfirði
eystra og kona hans Margrét
Ingibjörg Guðbrandsdóttir.
Jón hófprentnám i prentsmiðju
Austra á Seyðisfirðir 1. janúar
1906,en fluttist til Reykjavikur
vorið 1911. Þá vann hann sem
setjari, fyrst i Gutenberg en siðan
i Isafold, en þar vann hann rúm 8
ár. Jón var einn af stofnendum
prentsmiðjunnar Acta, sem tók til
starfa i september 1920. Sú prent-
smiðja var seld hlutafélaginu
Eddu 1. október 1936. Fluttist Jón
þá til prentsmiðjunnar Eddu.
Gengdi þar i fyrstu bæði gjald-
kera- og setjarastörfum, en siðar
eingöngu vélsetningu. Vann hann
við það starf til haustsins 1961, en
siðan innheimtustörf hjá sama
fyrirtæki.
Jón Þórðarson gerðist félagi i
HIP (Hinu islenska prentara-
félagi 1911. Hann vann mörg
trúnaðarstörf fyrir það félag og
var gerður heiðursfélagi HIP 8.
april 1962 og heiðursfélagi Starfs-
mannafélægs Prentsmiðjunnar
Eddu.
Jón kvæntist 1. okt. 1921 Jó-
hönnu Lúöviksdóttur frá Karls-
stöðum á Berufjarðarströnd. Þau
eignuðust fjögur börn, þrjár
dætur og einn son. Jóhanna lifir
mann sinn.
Opio hús á Dal-
brautinni á morgun
Kaffisala og basar og nýstárlegar
starfsaðferðir kynntar
■ A morgun, Sumardaginn
fyrsta, verður opið hús i
Þjónustuibúðum aldraðra við
Dalbraut 27, en auk þess sem
gestum verður gefið færi á að
kynna sér ibúðirnar og rekstur-
inn, verður i húsinu kaffisala og
basar. Agóðanum verður varið til
kaupa á myndsegulbandstæki
fyrir heimilið, en það mundi
notast vistmönnum á margvis-
legan hátt.
Efnt er til þessarar kynningar i
tilefni af ári aldraðra, en
þjónustuibúðirnar við Dalbraut
eru á ýmsan hátt reknar með
óvenjulegu sniði. Þegar við rædd-
um við Róbert Sigurðsson, for-
stööumann, sagðihann það sitt á-
lit að þetta þjónustuform væri það
sem koma skyldi, þar sem þarna
er reynt að forðast eftir megni að
einstaklingurinn verði háður ein-
hvers konar stofnanamynstri:
það er að segja að stofnunin
ræður ekki einstaklingnum,
heldur ræður hann sér sjálfur.
Róbert kvaðst þeirrar skoöunar
að taka ætti meðferðarhugtakið
út af dagskrá, þvi það hlyti að
vera krafa hvers og eins að fá að
lifa lifi sinu án afskipta annarra.
Kvað hann ibúana lika ánægða
með það fyrirkomulag sem þar
rikir, t.d. eru engar heimilisregl-
ur, heldur getur hver og einn haft
það eins og hann vill innan venju-
legra umgengnismarka.
Við þjónustuibúðirnar er rekin
sérstök dagdeild, þ.e. að um 40
einstaklingar eru sóttir að morgni
út i bæ og ekið heim að kvöldi
aftur. Er þetta nýstárleg tilraun,
sem gefist hefur vel og miðar að
þvi að mæta þörfum aldraðra i
heimahúsum sem þarfnast um-
önnunar og samfélags við aðra.
Alls þjónar heimilið 120 manns.
En sjón er sögu rikari og við
hvetjum sem flesta til að heim-
sækja þá á Dalbrautinni á morg-
un, Sumardaginn fyrsta og
kynnast ótal merkum nýjungum
yfir kaffi og meðlæti. —AM
■ íbúar á Dalbrautinni búa yfir ýmsum hæfileikum, eöa hver vildi
ekki eiga þetta teppi, sem Jón Guömundsson, fyrrum rafveitustjóri á
tsafiröi hefur gert? (Timamynd G.E.)
Hestamenn
Borgarnesi og nágrenni
Hafið þið athugað
að reiðtygin frá
nsTuno
SÉRVERSLUN
HESTAMANNSINS
fást í Borgarnesi hjá
Kaupfélagi
Borgfirðinga,
járnvörudeild
Þeir ve/ja vandað
sem ve/ja reiðtygin frá
ÁSTUnD
SÉRVERSIUN HESTAMANNSINS
|Háaleitisbraut 68
Sími 8-42-40
Samtök sveitarfélaga í
Vesturlandskjördæmi
óska eftir að ráða
ferðamáiafulltrúa
i sumar. Hér er um að ræða fjölbreytt
starf sem snertir flesta þætti ferðamanna-
þjónustu.
Umsóknir sendist samtökum sveitarfé-
laga i Vesturlandskjördæmi.
Pósthólf 32 Borgarnesi fyrir 3. mai n.k.
Nánari upplýsingar eru veittar i sima 93-
7318.
Tekjur ríkissjóds á síöasta ári tæpir sex
milljarðar:
NÆRRI9% HÆRRI
EN ÁÆÍIAD VAR!
— „kaupæði” landsmanna helsta skýringin
■ Tekjur rikissjóðs reyndust á
siðasta ári 5.997 milljónir króna,
8,7% hærri en áætlað var i fjár-
lögum ársins 1981, og slagar
hækkunin hátt upp i greidda
tekjuskatta einstaklinga það
sama ár. Þessi mikla tekju-
aukning er að mestu leyti til kom-
in vegna mikillar kaupgleöi okkar
á siðasta ári. Þannig námu tekjur
af aðflutningsgjöldum rúmlega
fjórðungi hærri upphæö enáætlað
var, eða 27,2%, og söluskattur
skilaði 10,1% tekjum umfram það
sem reiknaö var með i fjárlögum,
samkvæmt frétt frá fjármála-
ráðuneytinu.
En það voru ekki bara tekj-
urnar sem hækkuðu, útgjöld
rikissjóðs urðu 5.911 m.kr. eða
8.3% hærri en að var stefnt, fyrst
og fremst vegna aukinna launa-
greiðslna. Jafnframt hækka lang
flestar tryggingabætur i sömu
hlutföllum og laun og þar með út-
gjöld Tryggingastofnunarinnar.
Heiidárniðurstaða rekstrar- og
fjármagnshreyfinga er sú að
greiðslujöfnuður A-hluta rikis-
sjóðs varð hagstæður um 72 m.
kr. á árinu 1981. Jafnframt
batnaðistaða rikissjóðs gagnvart
Seðlabankanum talsvert. A árinu
1981 greiddi rikissjóður af um-
sömdu lánum i Seðlabanka I
samræmi við fjárhagsáætlun þ.e.
100 millj. kr. 1 árslok 1981 var
heildarskuld rikissjóðs gagnvart
Seðlabanka 223 m. kr., sem jafn-
gildir um 1.1% af vergri þjóðar-
framleiðslu. Það hlutfall var 2,3%
i árslok 1980 og 3.4% i árslok 1979.