Tíminn - 27.04.1982, Side 9
//Bankamálanefndinni er
falið að endurskoða allt
bankakerfið. A/\arkmið með
störfum nefndarinnar skal
vera að mynda stærri og virk-
ari heildir og einfalda banka-
kerfið innan ramma heil-
steyptrar löggjafar".
eigendur, sem triíað hafa þessum
stofnunum fyrir ávöxtun spari-
fjárins, eiga aö geta treyst þvi að
þeir fái þaö greitt til baka meö
umsömdum vöxtum á þeim tima
sem um var samið. 1 eöli sinu er
rekstur innlánsstofnana áhættu-
samur rekstur og helsti mæli-
kvarði á styrkleika innlánsstofn-
ana er eiginfjárstaðan. 1 löggjöf
þarf að ákveða hvaða lágmarks-
kröfur skuli gerðar, þegar inn-
lánsstofnun er stofnsett og ýmsar
reglur, sem miða að þvi að
viðhalda almennu rekstraröryggi
og fjáriiagslegum styrk þeirra.
Hér koma fyrst og fremst til itar-
leg ákvæði um eiginfjárstöðu og
hvernig við skuli brugðist ef þeim
ákvæðum er ekki fullnægt. Enn-
fremur er þörf ákvæða um lausa-
fjárstöðu þessara stofnana.
Islensk bankasaga segir að visu
ekki frá mörgum dæmum um
gjaldþrot innlánsstofnana, sem
hafa haft i fór með sér tjón fyrir
innstæðueigendur. Þó er alkunna
hvernig komið var fjárhag Is-
landsbanka hf. undir 1930 sem
leiddi til greiðslustöðvunar um
tima og siðar endurskipulagning-
ar bankans. Sparisjóður Arnes-
sýslu varð gjaldþrota árið 1925 og
töpuðu innstæðueigendur 25% af
innstæðum sinum. 1 öðrum tilvik-
um hefur tdcist að forða inn-
stæðueigendum fjárhagslegu
tjóni með ýmsum aögerðum, svo
sem yfirtöku á innlánsstofnunum.
Spyrja má þeirrar spurningar,
hvort eðlilegt sé að krefjast lág-
markseiginfjár rikisviðskipta-
bankanna. Samkvæmt lögum
þeirra er rikisábyrgð á innlánsfé
og þvi ekki ástæða til slikra
ákvæða vegna innstæðueigenda.
Hins vegar geta eiginfjárákvæði I
löggjöf rikisviðskiptabankanna
þjónað þeim tilgangi að tryggja
hagsmuni rfkisvaldsins gagnvart
ráðstöfunum stjórnenda þeirra,
og hins vegar að gera stjórnendur
bankanna óháðari rikisvaldinu.
Minna má á i þessu sambandi að
rikissjóður lagði einum viðskipta-
bankanna Útvegsbankanum, til
50 millj. kr. á árinu 1980 til að
tryggja rekstrarstöðu hans.
Auk áðurnefndra ákvæða um
eiginfjárstöðu og lausafjárstöðu
kæmi til álita að setja ákvæði um
hámarkslán til eins eða fleiri
fjárhagslega tengdra aðila miðað
við eigin fé. Jafnhliða þurfa að
koma til ákvæði sem tryggja fag-
lega endurskoðun hjá innláns-
stofnunum umfram það sem nú
er. Opinbert eftirlit með innláns-
stofnunum þarf að efla og marka
starfsemi þess i lögum, og fela
þviverkefni ásviði samræmingar
á gerð ársreikninga innlánsstofn-
ana svo eitthvað sé nefnt, auk al-
menns eftirlits með þvi að inn-
lánsstofnanir starfi i samræmi
við lög þau og reglur, sem um
starfsemi þeirra gilda. Með skyn-
samlega uppbyggðu eftirliti fæst
aukin trygging fyrir innstæðueig-
endur og aðra viðsemjendur inn-
lánsstofnana.
Hvað varðar alhliða þjónustu
við atvinnullfið sem jafnframt
tryggir rekstrarhagkvæmni
bankakerfisins, mætti fara mörg-
um orðum. A fátt eitt skal þó
drepið hér.
Stærri rekstrareiningar eru al-
mennt betur i stakk búnar til aö
fást við stærri og fjölþættari
verkefni. Þannig erustærri bank-
ar færari um að sinna eðlilegri og
almennri bankaþjónustu en minni
rekstrareiningar. Um það, hvort
stærri rekstrareiningar leiði til
meiri rekstrarhagkvæmni eru
menn ekki sammála. Á siðast-
liðnum 20 árum hefur alhliða
bankaþjónusta náð I æ rikari
mæli til atvinnulifs og almenn-
ings I landinu. Kemur þar til stór-
felld fjölgun afgreiöslustaða i
landinu öllu. 1 nær öllum þétt-
býlisstöðum landsins er boðið upp
á bankaþjónustu frá einni eða
fleiri innlánsstofnunum. Enginn
vafi er á, að hin mikla fjölgun af-
greiðslustaða hefur leitt til óhag-
kvæmari reksturs fyrir banka-
kerfið en til hefði þurft að koma ef
á málum hefði verið haldið með
skipulegri hætti. Alhliða banka-
útibú þarf að ná verulegri stærð
til að vera rekstrarlega hag-
kvæmt og takmörkuð starfsemi
umboðsskrifstofa er i mörgum
tilvikum á mörkum þess að
standa undir sér, og eru þess
mörg dæmi, að óþarflega margar
afgreiðslur eru á sama þjónustu-
svæði. Frá þjóðhagslegu sjónar-
miði er æskilegt, að bankastarf-
semi sé sem viðtækust án þess að
auka hlutdeild hennar i þjóðarbú-
skapnum. A árinu 1963 var hlut-
deild bankakerfisins i vinnuafls-
notkun hérá landi 1,37% árið 1974
var hlutfallið 2,13% og á árinu
1980 var það komið upp i 2,47%.
Þessar tölurhljóta að vekja menn
til umhugsunar um hvert stefnir
þjóðhagslega á þessu þjónustu-
sviði, þótt mikilvægi bankaþjón-
ustu fyrir atvinnulif og allan al-
menning i landinu sé almennt
viðurkennt.
I þessu sambandi er þó
nauðsynlegt að benda á, að
nánast hefur orðið bylting i
bankaþjónustu. Almenningur og
þjóðfélagsþróunin hafa kailað á
margháttaða þjónustu. Mörg
byggðarlög og jafnvel heilir
landshlutar höfðu sáralitla
bankaþjónustu 1963.
Til að ná þeim markmiðum,
sem ég nefndi hér að framan er
að minu mati m.a. eftirfarandi
nauðsynlegt:
1) Setja i löggjöf ákvæði sem
hvetja innlánsstofnanir til
sameiningar. Af þvi er mikil-
vægast eiginfjárákvæði. Auk
þess kemur til álita að lögfesta
ákvæði er miði að samvinnu
milli innlánsstofnana á ýmsum
sviðum.
2) Að uppfylltum vissum lág-
marksskilyrðum séu innláns-
stofnunum heimiluð öll venju-
leg viðskiptastörf, þ.m.t.
verslun með erlendan gjald-
eyri.
3) Fyrirkomulag varöandi veit-
ingu útibúaleyfa verði breytt i
grundvallaratriðum.
4) Málefni bankanna heyri undir
einn og sama ráöherra.
Það sem sagt hefur veriö hér að
framan, hefur eingöngu tekið mið
af endurskipulagningu innláns-
stofnana. Að hve miklu leyti
endurskoðun löggjafar fyrir
Seðlabankann kann að hafa áhrif
á þá endurskipulagningu á eftir
að koma í ljós. Fyrirkomulag inn-
lánsbindingar og endurkaupa á
lánum til atvinnuveganna verður
sjálfsagt endurskoöað og getur
haft veruleg áhrif á núverandi
starfsemi innlánsstofnana. Auk
þess verður aö hafa i huga, að
starfsemi innlánsstofnana er að-
eins hluti af fjármagnsmiðlun i
landinu. Það er skoðun margra,
að heildarskipulag á starfsemi
innlánssto&iana, fjárfestingar-
lánasjóða og lifeyrissjóða þurfi að
koma til, ef takast á að ná fram
sem mestri þjóðhagslegri hag-
kvæmni á þessu sviði. Allar til-
lögur um róttækar breytingar á
sviði bankamálanna hafa ekki
náð fram að ganga. Allir eru þó
sammála um, að skipulags-
breytinga sé þörf. Ég vil nota
tækifærið hér og hvetja menn til
að hugleiöa þessi mál og ræða
leiðir til breyttrar skipan mála i
ljósi reynslu siðustu áratuga.
Ég mun nú gera stutta grein
fyrir starfsemi og afkomu Seðla-
bankans.
Núverandi bankaráð var kjörið
i árslok 1980 til fjögurra ára.
Bankaráðið hélt 26 fundi á árinu
1981. Fyrir hönd bankaráðsins vil
égþakka bankastjórninni náið og
gott samstarf á liðnu ári. Ég vil
einnig við þetta tækifæri flytja
öllu starfsfólki Seðlabankans
alúðarþakkir bankaráðsins fyrir
störf þeirra. Starfsmönnum
Seðlabankans fækkaði á árinu
1981 og voru stöðugildi við bank-
ann i árslok 1981 120,5 og hafði
þeim fækkað um 2,5 frá árinu
áður.
Afkoma bankans 1981 er mun
lakari en á síðastliðnu ári og voru
gjöld umfram tekjur i rekstrar-
reikningi 233,8 milljónir króna. 1
þvi sambandi ber þóm.a.að hafa
eftirtalin atriði i huga: Endur-
greiðslur á gengismun endur-
kaupalána námu um 66 milljón-
um króna, afföll af skuldabréfi
vegna útvegsbanka Islands
námu um 30,5 milljónum kr.,
vaxtakjörum gengisbundinna
endurkaupalána var ekki breytt
þrátt fyrir niðurfellingu gengis-
viðmiðunar siðustu tvo mánuði
ársins og er áætlaö vaxtatap
bankans um 32,2 milljónir króna.
Auk þessara atriða ræðst afkoma
bankans að nokkru af stöðu inn-
lánsstofnana gagnvart Seðla-
bankanum á árinu.
Afkoma bankans er reiknuð út
eftir sömu aðferð og áður. I þvi
sambandi visast til skýringa
varðandi meðferð verðbóta og
gengismunar i innlendum
viðskiptum og varöandi endur-
mat vegna gengisbreytinga. Af-
koma bankans er fengin með þvi
að gera beinan rekstur bankans
upp sérstaklega en einangra frá
rekstrarreikningi þau áhrif sem
endurmat erlendrar gjaldeyris-
eignar bankans hefur. Astæða til
þesser.að bankinn litur svo á, að
súbreyting, sem verðurá eigin fé
frá ársbyrjun til ársloka sé i eðli
sinu tviþætt. Annars vegar er um
endurmat eigna og skulda að
ræða og hins vegar raunverulega
afkomu. Þessi staðhæfing á raun-
ar viðum allar rekstrareiningar.
Spurningin er, hvaða viðmiöun á
að nota til að mæla endurmats-
þáttinn. Sú viðmiðun er nú al-
mennt notuð I reikningsskilum
fyrirtækja hér á landi að styðjast
við breytingar á almennu verð-
lagi innanlands. Slik viðmiðun á
ekki við hjá Seölabankanum, þar
sem bankinn er vegna þess hlut-
verks sins að varðveita gjald-
eyrisforða þjóðarbúsins frekar
háður breytingum á verðmæti er-
lendra gjaldmiöla en innlendu
verölagi. A hinn bóginn er eðlilegt
að lita á tekjur og gjöld vegna
innlendrar lánastarfsemi og ann-
arra bankaviðskipta sem rekstur.
Af þessum sökum er endurmat
vegna gengisbreytinga ekki fært i
rekstrarreikning heldur beint á
endurmatsreikningundir eigin fé.
Mismunurinn á þessum tveimur
viðmiöunum kemur fram þannig
að lækkun eigin fjár ef miðað er
við gengi er 198,5 millj., en ef
miöað er viö verðlag 114,8 millj.
Eigið fé hefur þróast með eftir-
greindum hætti:
1979 1980 1981
Eigiö fé i árslok
sem hlutfall af
niðurstöðu efna-
hagsreiknings 6,6 11,7 9,0
Eigið fé i árslok
sem hlutfall af
þjóðarframleiöslu 1,2 2,1 1,7
9
menningarmál
Nýr
stjórn
andi
■ A tónleikum Sinfóniu-
hljómsveitarinnar 15. april
kom fram nýr islenzkur
stjórnandi, Guðmundur
Emilsson. Hann fæddist i
Reykjavik 1951, en nam fræði
sin I Bandarikjunum.
Guðmundur hefur sýnt sig
dugandi mann, sem er
staðráðinniþviaðkasta sér út
i menningar-slaginn hér, með
snöfurmannlegum skrifum i
málgagn frjálshyggjunnar hér
á landi, og með öðrum fjöl-
miðla-afskiptum. Á þessum
tónleikum stjórnaði hann fjór-
um verkum: Pygmalion-for-
leik eftir Rameau, Adagio fyr-
ir strengjasveit eftir Magnús
Blöndal Jóhannsson, Sellókon-
sert eftir Þorkel Sigur-
björnsson og 2. sinfóniu
Borodins. Mér virtist Guð-
mundur mjög öruggur i fasi,
hann stjórnar af hófsemi en
meðmyndugleik, og „nær þvi
út ur hljómsveitinni” sem
hann vill. I stað þess að ólmast
stanzlaust, gerir hann skúrk
þegar einhverjar breytingar
verða — taktaskipti, innkonur,
styrkleikabreytingar, eða
blæbrigði, en lætur tónlistina
„spila sig sjálfa” þess á milli
— og viröist þaö skynsamleg
hegðun.
Þvi miður er að jafnaði
kastað höndum til tónleika-
skrár Sinfóniuhljómleika, og
þar er t.d. ekki annað um verk
Rameau að finna en almennt
mas um skáldið sjálft
(1683—1764). Hins vegar hef
ég heyrt þvi fleygt, að stjórn-
andinn hafi uppgötvaö þetta
verk, Pygmalion-forleikinn,
og gott ef ekki latið útsetja
hann tíka. Barokk-tónlist er æ
meir á döfinni þessi árin, i og
með vegna þess að grammó-
fónninn hefur gert það að
verkum, að margir þykjast
rétt eins geta hlustað á tón-
listar-stórvirkin þannig eins
og á tónleikum. Og þá verða
tónlistarmenn að snúa sér að
öðru. En auk þess er góð
barokk-tónlist dæmalaust
þokkafull og sái-bætandi, og
svo var um þennan forleik
Rameaus.
Adagio Magnúsar Bl. Jó-
hannssonar var frumflutt á
Myrkum Músikdögum að
Kjarvalsstööum 1981. Þá þótti
mér þetta allgott verk, en við
aðra heyrn fannst mér það
tapa miklu — léttvægt er vist
rétta orðið.
Einn vor helzti knéfiðlari,
Hafliöi Hallgrimsson, frum-
flutti sellókonsert Þorkels Sig-
urbjörnssonar „Ulisse rit-
orna” (sem þýöir „Odysseif-
ur snýr heim” á einhverju
tungumáli). Konsertinn er
sérstaklega saminn handa
Hafliöa, og tónskáldið segir
þetta: „Konsertinn kallast
„Odysseifur snýr heim” — en
ekki þarf aö taka það heiti
bókstaflega og er öllum frjálst
að túlka það aö vild. Nægir aö
minna á, að Odysseifur var
lika hittinn bogamaður á sin-
Sigurður
Steinþórsson
skrifar
um tima. Verkiö er i einum
þætti, sem skiptist aöallega i
tvo helminga”.
Eins og önnur verk Þorkels
er þessi konsert fagmannlega
saminn. Þó þótti sumum sem
seiló-röddin væri máluð meö
full-breiöum pensli fyrir svo
fingeröan hljóðfæraleikara
sem Hafliði er — en Hafliði
leysti þetta verk semsagt
prýðilega af hendi, svo sem
vonlegt er, þrátt fyrir
stærðarmuninn.
Og loks var flutt 2. sinfónia
Borodins i h-moll. Borodin
(1833—1877) sýndi að visu
snemma mikla tónlistarhæfi-
leika, en lærði læknisfræði að
ráöi foreldra sinna. Ekki
dugði hann samt sem læknir,
þvihann þoldi ekki aö sjá blóð,
og snéri sér þvi að efnafræöi
og varö prófessor i efnafræöi
við læknadeild háskólans i St.
Pétursborg. Þar gerði hann
merkar uppgötvanir i efna-
fræði, en var jafnframt virkur
i tónlistarlifi bæjarins: spilaði
mikiö kammertónlist (hann
spilaði á 4 hljóðfæri) og var að
ýmsu leyti merkastur „Hinna
fimm” nl. Balakirevs, Cesar
Cui, Mussorgský, Rimsky-
K.orsakov og Borodin. Frá
eigin sjónarmiði var hann
fyrst og fremst efnafræöingur
og háskólamaður, en áhuga-
maður i tónlist, sem þó ekki
tók tónverk sin sérlega alvar-
lega. I þeim þykjast menn sjá
sameinast vísindalega þekk-
ingu hans á tönlist, visinda-
lega aðferð, en jafnframt
„hinn eilifa rússneska anda”,
stóran, rómantiskan og
óagaðan.
2. sinfónian er hið mesta
meistarastykki, og mér fannst
Guðmundur Emilsson og
Sinfóniuhljómsveit Islands
gera henni mjög góð skil —
satt aö segja miklu betri en
Ansermetog Suisse Romande,
sem ég hafði áður heyrt spila
hana af plötu.
22. april, ’82
Sigurður Steinþórsson