Fréttablaðið - 09.12.2008, Blaðsíða 48
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggvadóttur
Í dag er þriðjudagurinn 9.
desember, 344. dagur ársins.
11.06 13.20 15.34
11.19 13.04 14.50
Ég stóð mig að því að slökkva á sjónvarpinu um daginn þegar
einhver ráðalaus ráðamaðurinn
sat fyrir svörum. Ég var orðin
hundleið á kreppunni. Allir
umræðuþættir í sjónvarpinu snú-
ast um kreppuna núorðið og hvert
samtal við vini og kunningja snýst
um kreppu. Kreppan er orðin óum-
flýjanlegur fylgifiskur hversdags-
ins, eins og steinn í skónum mínum
sem minnir stöðugt á sig.
MÉR FINNST það merki um að
kreppan er orðin hversdagslegur
fylgifiskur þegar skemmtikraft-
urinn á jólatrésskemmtuninni
fyrir börn sem ég fór á um daginn
fór að segja kreppubrandara. Eitt-
hvað um að það yrðu vonandi ein-
hverjar gjafir undir trénu, næstu
jól! Ha ha ha! Fyrir utan hvað það
er hallærislegt þegar sagðir eru
brandarar á barnaskemmtunum
eingöngu ætlaðir fullorðna fólk-
inu, þá fannst mér þetta ekki eiga
við. Enda stökk börnunum ekki
bros.
EKKI ÞAÐ að ég sé endilega á því
að það eigi að halda krökkum fyrir
utan raunveruleikann. Þau verða
auðvitað fyrir barðinu á kreppunni
eins og allir og þurfa að læra að
ekki er hægt að kaupa ýmislegt
eins og hægt var áður. En rétt á
meðan þau dansa kringum jóla-
tréð hljóta þau að mega vera í friði
fyrir leiðindum hversdagsins.
JÓLIN snúast heldur ekkert um
hversu margir pakkar verða undir
trénu. Hvort leikjatölvur eða far-
tölvur leynist inni í jólapappírnum
eða hvort fasani verður á borðum
eða lambasteik. Jólin ættu einmitt
að vera kærkomið tækifæri, mitt í
þessari leiðindakreppu, til að slaka
á með fjölskyldunni. Hnoða snjó-
karla og drekka kakó og kasta
snjóboltum í hvert annað, enda
eru jólin sérstaklega hagstæð á
dagatalinu þetta árið. Ég er samt
ekki í neinni afneitun þótt mér
leiðist krepputalið. Ég veit alveg
að kreppan er að yfirtaka allt. Hún
hefur áhrif á hvern mann og hefur
kollvarpað lífi margra.
EN þegar ég var að labba heim úr
vinnunni seint um kvöld fyrir
skemmstu var hvítt yfir öllu. Veðr-
ið var kyrrt og snjókornin féllu
hægt til jarðar. Mér lá ekkert á.
Ég dólaði mér heim og gerði
munstur í snjóinn með tánum. Í
gluggunum í götunni minni loguðu
hvít og rauð jólaljós, seríur, stjörn-
ur og hringir og ég sá fólk dunda
sér við að skreyta heimili sín fyrir
innan gluggana. Ég hlakkaði til
jólanna og fann ekki fyrir steinin-
um í skónum mínum.
Steinn í skó
Opið 10–18 virka daga
Kletthálsi sími 590 5044 www.heklanotadirbilar.is notadirbilar@hekla.is
NÚ BJÓÐUM VIÐ NOKKRA NÆSTUM NÝJA SKODA OCTAVIA Á 30% AFSLÆTTI
Í SÝNINGARSAL HEKLU NOTAÐRA BÍLA Á KLETTHÁLSI 1B.
VERÐ FRÁ 500.000 TIL 1.600.000. KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ.
Tveggja manna herbergi
á kr. 5.000 nóttin
Uppbúið rúm
í svefnpokaplássi
kr. 2.000 nóttin
Gesthús Dúna
Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík
Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is