Tíminn - 18.05.1982, Blaðsíða 4
4
VÉLSKÓLI
fSLANDS
Innritunarfrestur er til 10. júni nk. Inn-
tökuskilyrði eru að umsækjandi hafi náð
tilskildum aldri og kunni sund.
Störf og réttindi vélstjóra
Vélstjórar vinna margvísleg störf til sjós
og lands, við vatns- og orkuveitur, I smiðj-
um og iðnaði. Störfum vélstjóra i iðnaði
fer fjölgandi með vaxandi iðnvæðingu.
Réttindi vélstjóra til starfa á sjó eru sem
hér segir:
1. stig veitir réttindi til yfirvélstjórnar á
fiskiskipi með allt að 250 hestafla vél og
undirvélstjórnar á fiskiskipi með allt að
500 hestafla vél.
2. stig veitir réttindi til undirvélstjórnar á
fiskiskipi með allt að 1000 hestafla vél.
3. stig veitir réttindi til undirvélstjórnar á
fiskiskipi með allt að 1800 hestafla vél og á
flutningaskipum og farþegaskipum.
4. stig veitir ótakmörkuð réttindi eftir að
nemandi hefur lokið sveinsprófi i vél-
virkjun.
Réttindi hvers stigs aukast siðan að feng-
inni starfsreynslu eftir ákveðnum reglum.
í Reykjavik fer fram kennsla i öllum fjór-
um stigum vélstjóranáms: á Akureyri, i
Vestmannaeyjum og á ísafirði og 1. og 2.
stigi: á Húsavik og i fjölbrautaskólum
Akraness og Suðurnesja i 1. stigi.
Skipulag námsins og námsmat
Sl. haust var tekið upp áfangakerfi við
skólann og fer námið i 1. og 2. stigi fram
samkvæmt þvi skólaárið 1982-83. Þeir
nemendur sem hefja nám við skólann
haustið 1982 stunda þvi nám eftir áfanga-
kerfi.
Nemendur sem hafa stundað nám við aðra
skóla og vilja innritast i Vélskólann fá
fyrra nám sitt metið að þvi leyti sem það
fellur að námsefni skólans.
Þeir sem lokið hafa sveinsprófi i vélvirkj-
un, bifvélavirkjun eða rennismiði fá fyrra
nám sitt metið eftir sérstökum reglum.
Framhaldsnám eftir vélskólanám
Nám við Vélskólann veitir möguleika á
framhaldsnámi við tækniskóla og tækni-
háskóla. Einkum skal bent á framhalds-
nám i véltæknigreinum, rafmagnsgrein-
um og tölvutækni en tölvukennsla var tek-
in upp sl. haust. Tölvukennslan við Vél-
skólann hefur þá kosti að vera tengd verk-
legu námi og hagnýtri reynslu og er þvi
ákjósanlegur undanfari að framhalds-
námi i greininni. Stefnt er að þvi að Vél-
skólinn útskrifi stúdenta eftir að 4. stigs
námi er lokið.
Grunndeildir verknámsskólanna
Nemendur, sem eru að ljúka grunnskóla-
námi og hyggja á vélskólanám, skal einn-
ig bent á grunndeildir verknámsskólanna
(fjölbrautaskóla og iðnskóla) en þar er
hægt að ljúka hluta námsins, t.d. i verk-
legum greinum eins og smiðum, suðu og
grunnteikningu.
Allar frekari upplýsingar er að fá i Náms-
visi Vélskólans sem fæst á skrifstofu skól-
ans. Þar liggja einnig frammi umsóknar-
eyðublöð.
Skrifstofa Vélskólans (i Sjömannaskóla-
húsinu) er opin alla virka daga frá kl. 8.00
til 16.00. Simi 19755.
Skólastjóri
Landakot getur ekki
tekid brádavakt sfna
— ,,ástandiö fer versnandi meö hverjum degi”
segir Guðrún Marteinsson hjúkrunarforstjóri
Barnadeild Landakotsspitalans er nú auö. Tímamyndir: Róbert
■ „Ef lausn þessara mál dregst
á langinn fer ástandið hér versn-
andi með hverjum degi” sagði
Guðrún Marteinsson hjúkrunar-
forstjóri Landakotsspitalans i
samtali við Tfmann en þar hefur
um 100 sjúkrarúmum af 180 sem
eru til staöar á spitalanum verið
lokað.
Landakotsspitalinn átti að taka
svokallaða bráðavakt frá og með
deginum i dag en mun ekki geta
það eins og staðan er nú þvi
hjúkrunarfræðingar neita að taka
„Erfitt að halda uppi
lágmarks-
bráðaþjónustu”
— segir í yfirlýsingu formanna
læknaráða Land- Landakots-
og Borgarspftala
■ Formenn læknaráða Land-,
Landakots- og Borgarspitala hafa
sent frá sér yfirlýsingu vegna á-
stands þess sem skapast hefur i
kjölfar aðgerða hjúkrunarfræö-
inga og er hún þannig:
„Formenn læknaráða Land-
spitala, Landakotsspitala og
Borgarspitala lýsa hér með yfir
áhyggjumog kviöa vegna þess
öngþveitis sem er að verða á
sjúkrahúsum borgarinnar vegna
deilu hjúkrunarfræðinga.
Við óbreyttar aöstæður verður
mjög erfitt að halda uppi lág-
marks bráöaþjónustu. Formenn
læknaráðanna skora á hæstvirtan
fiármálaráöherra Ragnar Arn-
alds að hefja nú þegar raunhæfar
viðræður til lausnar deilunni.”
Undir þetta skrifa þeir Ólafur
örn Arnarsson (Landakots-
spitala), Magnús Karl Pétursson
(Landspitala) og Asmundur
Brekkan (Borgarspitala)
þetta að sér. Þessari vakt skipta
sjúkrahúsin á milli sin.
„Ég veit ekki hver staðan verð-
ur i þessum efnum. Astæðan fyrir
þvi að við segjumst ekki getað
tekið þessa vakt er að hjúkrunar-
fræöingar hafa ákveðið að taka
hana ekki að sér, gefa ekki kost á
vinnunni því þeir segjast ekki
geta sinnt þessu þar sem nú eru
tvær deildir fullar á sjúkrahús-
inu.”
Aðspurð um hvað gerðist ef
þessi vakt félli niður sagði Guð-
rún: „Þá skapast neyðarástand.”
Það kom ennfremur fram i
máli Guðrúnar að staðan i samn-
ingamálum hjúkrunarfræðinga
væri þannig að fjármálaráðu-
neytið hefði ekki lagt fram neitt
^ágntilboð, engir sáttafundir ver-
ið boðaðir á ný og deilan færi þvi
harðnandi.
Ingibjörg Guömundsdóttir að-
stoðarhjúkrunarforstjóri sagði aö
ef þessi mál leystust ekki i bráð
þá væri hún hrædd um að vandi
siúkrahúsanna yrði stærri er deil-
an leystist, þvi þá væri hætta á að
hjúkrunarfræðingar hefðu ráöið
sig i önnur störf.
„Það hefur verið mikill skortur
á hjúkrunarfræðingum og þeijr
hafa á undanförnum árum leitað i
önnur störf vegna lágra launa”,
sagði Ingibjörg.
„Þetta fólk hefur sagt upp
störfum og er að leita sér að ein-
hverju öðru þannig að ef deilan
ldregst á langinn þá missum við
þær úr höndunum.”
Arný Sigurðardóttir hjúkrunar-
fræðingur á Landakoti sagði i
samtali við Timann að ákvörðun
um að sinna ekki bráðavaktinni
hefði verið tekin á vinnustaða-
fundi i gær.
„Við getum ekki tekið þetta aö |
okkur með tvær deildir hér opnar
fyrir og þar að auki höfum við áö-
ur skilgreint hvað við teljum
neyöarþjónustu og fellur slysa-
vakt ekki undir þá skilgrein-
ingu”, sagði Arný.
„Hér hefur einungis verið rekin
neyðarþjónusta og öllum hefur
verið sinnt sem hingað hafa kom-
iö”. —FRI
Sunnlendingar
Æfingagallar
Æfingaskór
Fótboltar
Ávallt í miklu úrvali
Adidas
Henson __
P
SPORTBÆR
SPORTVÖRUVERSLUN
Klrkjuvegi 8 • Sími 2350.
Selfossi
J