Tíminn - 18.05.1982, Blaðsíða 10

Tíminn - 18.05.1982, Blaðsíða 10
Þriðjudagur 18. maí 1982 10 borgarmál Kosningafundur á Lækjartorgi: „Sjálfstædis- flokkurinn sprungnari en Raudavatns- svæðid” ■ Fylgst meðaf áhuga á útifundinum á föstudaginn. Timamynd: Ella — sagði Jósteinn Kristjánsson ■ „Það er út af fyrir sig ekki undarlegt að öll borgarmálaum- ræða sjálfstæðismanna skuli snú- ast um og vera kolföst i sprung- Fædd 9. ágúst 1922 Dáin 9. mai 1982 ■ A fyrsta og öðrum áratug þessarar aldar höguðu atvik, sem hér verða ekki nánar tilgreind, þviá þann veg að fjögur af ellefu börnum prestshjtínanna i Vatps- firði við Djúp, Páls Ólafssonar og Arndisar Eggerz, settust að á Bildudal i Arnarfiröi. Fyrst flutt- ust þangað systur þrjár, ein á eft- ir annarri, og stofnuðu þar heimili. Siðastur kom þar Böðvar Pálsson, að loknu verslunarnámi I Kaupmannahöfn og gerðist starfsmaður Bildudalsverslunar. Hannes St. Bjarnason frá Reyk- htílum, maður Sigriðar systur Böðvars, var þá forstöðumaður verslunarinnar. Böðvar kynntist innan tiöar ungri og fallegri heimasætu úr firðinum, Lilju Arnadóttur frá Tjaldanesi. Þar með voru einnig örlög hans ráðin i þessu héraöi. Þau giftust 1917 og bjuggu á Bildudal til 1920 að þau festu kaup á jöröinni Bakka i Ketildalahreppi, en þar var Böðv- ar siðan btíndi og kaupfélagsstjóri i 22 ár. Böðvar og Lilja eignuðust þrjú börn, Þtíru, ekkju Asgeirs Guö- mundssonar byggingarmeistara, er nú starfsmaður Þjóðleikhúss- ins, Pál, sem þau misstu á barns- aldri og Auöi, en hennar vegna eru þessar linur festar á blað. 1 dag fylgjum viö henni til grafar langt um aldur fram. Auöur var fædd á Bakka 9. ágúst 1922 og tílst þar upp á miklu myndarheimili foreldranna ásamt einkasysturinni Þtíru. Var einkar kært og innilegt samband meö þeim og þær samrýmdar. unum á Rauðavatnssvæðinu þvi Sjálfstæðisflokkurinn er allur meira og minna sprunginn og meira en Rauðavatnssvæðiö. Böðvar og Lilja ráku gott bú á vestfirskan mælikvarða, en á Bakka var bæði stundaður land- búnaður og sjósókn á þessum ár- um, eins og viöar við Amarfjörð. Otvegur var eigi siður undirstaða afkomu fólks á þessum slóöum. Piltar Böðvars stunduðu sjó vor og haust. Heimilið var gest- kvæmt, risna og rausn var þar mikil, margir áttu erindi við Böövar eða komu án annars er- indis en aö hitta húsráðendur og blanda geöi viö þá. A þessum bæ var einstakur heimilisbragur. Hjónin voru bæði glaðsinna og gædd góövild og hlýju i garð manna og málleysingja. Böðvar var glettinn og gamansamur án græsku og Lilja ljúf kona og hýr. Hjúaskipti voru ekki tið á Bakka. Þar réð sig til starfa ungt fólk um fermingu eöa innan, sem svo skipti ekki um lögheimili fyrr en það stofnaöi eigið heimili. Þarna var gott mannlif. 1 þessu umhverfi ólst Auður upp og mótaði þaö alla gerö hennar og lifsmáta. Hún vandist öllum al- mennum sveitastörf um, var hraust, kjarkmikil, dugleg til allraverka, verklagin, vinnusöm og vinnuglöð. Hún var jafn vel verki farin hvort heldur voru heimilisstörf við matargerð eða hannyrðir, heyskap eða önnur útiverk. Þær systur voru miklar hestakonur, fimar jafnt i hnakk sem berbaktog höfðu einstakt lag áaöumgangasthesta og reyndar öll dýr. Vélaöld var ekki runnin upp á þessum árum, hestum var beitt fyrir sláttuvél en að ööru leyti var heyskapur unninn meö handverkfærum. Böövar átti þvi Glöggt dæmi um það sjáum við reyndar hér á þessum fundi þar sem Davið Oddsson og Albert Guðmundsson voru auglýstirsem alltaf hesta bæði til dráttar og reiðar. Bilvegur var heldur ekki kominn út i' Ketildali og farartæki þvi eingöngu trillur, árabátar og hestar eða menn ferðuðust fót- gangandi. Eins og áður er getið bjuggu þrjár systur Böövars á Bildudal með eiginmönnum sinum og mörgum börnum. Var þar jafnt á komið með þeim systrum, allar áttu þærsjö börn, er upp komust. Þarna óx því upp margt ungt fólk, mikiil frændgarður, sem tengdist sterkum fjöiskylduböndum. Voru þvi' samskipti milli þessara heimila tiö og heimsóknir gagn- kvæmar. Milli Bakka og Bíldu- dals var um tveggja stunda ferð á hestbaki að sumarlagi, en þaö kom ekki í veg fyrir að kynni hóf- ust jafnskjótt og hver og einn varð ferðafær. Voru heimsóknir frændftílksins frá Bakka mjög kærkomnar. Böövar og hans fólk voru eftirsóknarverðir gestir á heimilum systranna og oft var gist og dvalið lengur eöa skemur. Frá þessum löngu liðnu dögum þyrpast aö myndir og liöa yfir svið minninganna þegar hugsað er til Auðar nú og samferðar við hana allt frá æskudögum. Allar eru þessar endurminningar henni tengdar ljúfar og kærar. Margar skemmtilegar stundir áttum viö saman á Bakka viö leik og störf. Káttog fjörugt var i heyvinnunni, flatmagaö i slægjunni, riöið ber- bakt á engjarnar með matinn handa fólkinu. Hlaupiö i sterk- gulum sandinum, i fjörunni, sem er svo heillandi og einkennandi fyrir strandlengjuna út með firöinum.Póstferöirá hestbaki út ræðumenn, en milli þeirra er greinilega svo djúp gjá að Albert neitaði að tala á fundi þar sem Davið væri lika ræðumaður”, sagði Jósteinn Kristjánsson, frambjóðandi framsóknarmanna m.a. á útifundi um borgarmálin i Selárdal, komið á bæina i leið- inni og þegnar góðgerðir. Skemmtanir og harmonikuböll i gamla, litla ungmennafélagshús- inu i Bakkadal. Þar fetuðum viö okkar fyrstu spor út i sam- kvæmislifið á lifsleiöinni. Ég gæti trúaö að ungufólki sem nú sækir salarkynni Breiðvangs eða Hótel Sögu þætti ekki mikið til koma dansplássins i ungmennafélags- húsinu. Sundnám i Tálknafirði, þar sem við vorum mörg sam- timis úr frændliöinu að læra að synda hjá honum Albert á Sveins- eyri. Auður lauk heföbundnu sktíla- námi á heimaslóðum, var vetrar- langti Húsmæðraskólanum á ísa- firði, dvaldi i Reykjavik nokkur ár viö verslunarstörf og bjó á heimili Þóru og Asgeirs. Ariö 1943 tók Böövar aö sér forstööu kaup- félagsins á Bildudal og fluttust þau Lilja þá þangað. Nokkru seinna fór Auöur vestur og dvaldi á Bildudal næstu árin og vann viö Kaupfleag Arnf iröinga. Á þessum árum á Bildudal kynntist hún mannsefni sinu. Ungur lögfræði- stúdent, Héöinn Finnbogason frá Hitardal.var þar i sumarstarfi og bundust þau tryggöaböndum. Þau giftu sig er Héöinn haföi lokið kandidatsprófi og settust aö i Reykjavik. Mun þar ekki hafa verib auöur í garði fremur en hjá ööru ungu fólki aö loknu löngu skólanámi og malur þvi léttunen þeim mun meiri bjartsýni, kjark- ur og dugnaður beggja og ekki ónýtt veganesti Auöar úr for- eldrahúsum. Hjónin voru óvana- lega samtaka og stóöu saman aö þvi aö búa sér gott heimili og börnum sinum, er nú komu til sögunnar. Ekki liðu mörg ár þar til þau höföu eignast fallega Ibúö i Skaftahliö, hlýlegt heimili og aö- laöandi. Siöar eignuöust þau rúmgott hús i Fossvogi, fallega búið innanstokksmunum og öðr- um lifsþægindum. Hjónin voru vinmörg og gestrisin og höföu yndi af að taka á móti gestum og gera sér dagamun. Margra slikra stunda er aö minnast er þau buöu frændum og vinum til fagnaðar af ýmsu tilefni. Þeim gafst tækifæri til ferðalaga utan lands sem inn- an er þau nutu mjög og veittu þeim mikla ánægju. Allt benti til sem haldinn var við pylsuvagninn á Lækjartorgi siðdegis á föstu- daginn var. Mikill fjöldi fólks staldraði við og hlustaði á ræður frambjóðenda, tveggja frá hverj- um flokki, nema Davið stóð einn fyrir Sjálfstæðisflokkinn. —HEI aö lif þeirra framvegis félli i sama farveg um ókomin ár. Auður og Héðinn eignuðust fimm mannvænleg börn, sem þau voru staðráðin aö veita þá mennt- un erhugur þeirra stæði til og búa þeim gott veganesti. ElsterLilja, B.A. kennari við Flensborgar- skóla, maður hennar er Þórður Sverrisson, viðskiptafræðingur, framkvæmdastjtíri Stjórnunar- félagsins. Bolli, viðskipta- fræðingur, um tima fréttamaður Sjónvarps, kona hans er Asta Thoroddsen, hjúkrunarfræðing- ur, BSc. Sverrir, hann misstu þau sjö ára gamlan og var það þeim hjónum mikið áfall og þungbært. Yngst eru tviburasystkinin Sig- riður og Böðvar, bæði við menntaskólanám. Auður var frið kona og fyrir- mannleg og framkoma hennar öll bar vitni góðum uppruna og upp- eldi. Frá henni stafaði einstak- lega hlýtt og aölaðandi viðmót og var hún gædd jákvæðu hugarfari til umhverfis sins. Þegar eldri börn hennar komust á legg fann hún hjá sér löngun til að starfa ut- an heimilis og vann hún um skeið hlutastörf, m.a. við skjalavörslu hjá Alþingi. Eftir að tviburasyst- kinin fæddust var hún heimavinn- andi húsmóðir eingöngu. Fyrir fáum árum réö hún sig til starfs við Bústaðabókasafn, sem henni féll afar vel. Mér er kunnugt um að þar naut hún vinsælda starfs- fólks og viðskiptavina. En svo syrti aö. Fyrir 3-4 árum gerði vart viö sig sá sjúkdómur, sem nú hefirklippt svo óvægilega á lífsþráð Auðar. Frá þvi fyrsta var henni kunnugt um, að meiniö var ólæknandi, en vonir stóðu til aö halda mætti sjúkdómnum i skefjum um hriö og virtist þaö ganga eftir. Þá kom i ljós hviliku æöruleysi ogkjarki Auður varbú- in, hetjulund hennar á yfirboröinu var með ólikindum. Þar var hvorki vol né vil. Viö hittumst nokkrum sinnum eftir að svona var komið á gleðistundum meö stúdentsárgöngum úr MA, en þaöan lauk Héðinn menntaskóla- námi. Þar var Auöur hrókur fagnaöar og enginn, sem ekki þekkti til hefði trúaö aö þar færi dauösjúk kona. En á sL hausti brýndi maðurinn meö ljáinn vopn sitt og þokaðist nær og hefir sjúkrasaga hennar veriö löng og ströng, en alltaf kjarkurinn og jafnvægiö hið sama og hefir það verið ástvinum hennar mikill styrkur. Hjúkrunarfólk sem annaöist hana mat hana mikils eins og aörir er henni uröu sam- feröa á lifsleiðinni. Hún var ekki ein af „erfiðu sjúklingunum” á deildinni og ómakaði ekki starfs- lið að óþörfu. A stundu sem þessari eru orð fánýtog fátækleg,en með þessum linum sendi ég og fjölskylda min samúöarkveðjur til Héöins, barn- anna og Þóru, sem sárast eiga um að binda. Blessuö sé minning Auðar Böövarsdóttur. Kristfn Þorbja rnardóttir. VIÐ HÖNNUM, TÖLVUSETJUM OG PRENTUM SKÝRSLU- OG REIKNINGSEYÐUBLÖÐ FYRIR TÖLVUR. TÖLVUPAPPÍR Á LAGER. NÝ, FULLKOMIN LEISER-LJÓSSETNINGARVÉL OG PRENTVÉLASAMSTÆÐA. REYNIÐ VIÐSKIPTIN. PRENTSMIOJAN £ML H.F. Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur, sími 45000 minning: Audur Bödvarsdóttir

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.