Tíminn - 18.05.1982, Page 11

Tíminn - 18.05.1982, Page 11
Þriðjudagur 18. mai 1982 11 Sýning á munum aldraðra Reykvíkinga í félagsstarfi aldraðra: TTSvo lengi lærir sem lifir” ■ „Þessar sýningar hafa vakið verðskuldaða athygli og aðdáun fyrir listrænt handbragð, fjöl- breytni og vandvirkni. Vekur það m.a. athygli hve miklum árangri margir hafa náð sem aldrei hafa unnið við slikt handverk áður og margt af þvi fólki háaldrað. Sannar það þá kenningu að svo lengi lærir sem lifir”, sagði Gerð- ur Steinþórsdóttir formaður Fé- lagsmálaráðs m.a. við opnun sýn- ingar að Kjarvalsstöðum s. .1. föstudag, á munum sem unnir hafa verið af öldruðum Reykvik- ingum i Félagsstarfi aldraðra i Reykjavik. A sýningunni eru milli 300 og 400 munir: prjón, hekl, vefnaður, útskurður, leðurvinna, málverk, teikningar og fleira. Munir þessir hafa verið unnir af öldruðu fólki að Furugerði 1, Lönguhlið 3, Dal- braut 20-27 og Norðurbrún 1. Sú hefð hefur skapast að á hverju vori hefur verið efnt til ár- legrarsýningará munum þeim er unnir eru i Félagsstarfi aldraðra að Norðurbrún 1, en þar er mið- stöð félagsstarfsins til húsa. En vegna árs aldraðra kom nú fram sú hugmynd að gaman væri að halda sýninguna i ár að Kjarvals- stöðum. Var Gunnar R. Bjarna- son myndlistarmaður fenginn til að skipuleggja sýninguna i sam- vinnu við fulltrúa félagsmála- stofnunar, Geirþrúði Hildi Bern- höft og Helenu Halldórsdóttur á- samt leiðbeinendum i félagsstarf- inu. Félagsstarf aldraðra hófst i Tónabæ fyrir um 13 árum og var þá tvo daga i viku. Siðan hefur það aukist og eflst og er nú á fimm stöðum i borginni. Starfs- menn eru nú orðnir um 40 talsins auk um 100 sjálfboðaliða sem fyrst og fremst eru fórnfúsar og áhugasamar konur úr hinum ýmsu kvenfélögum i Reykjavik. — HEI Fundur Kvenréttindafélagsins með kvenframbjódendum í Reykjavík: „Málefnalegur og gódur fundur” — sagði Esther Guðmundsdóttir ■ ,,Ef eitthvað var, þá voru kon- urnar betri en karlarnir. Mér fannst þær bæði málefnalegri og vera lausar við þetta persónulega skitkast sem oft vill koma fram i svona umræðum”, sagði Esther Guðmundsdóttir, formaður Kvenréitindafélags Islands er Timinn spurði hana um hvernig kvenframbjóðendurnir hafi stað- ið sig á fundi þeim er Kvennrétt- indafélagið gekkst fyrir með kvenframbjóðendum i Reykjavik s.l. laugardag að Hótel Borg. Esther sagði tilganginn fyrst og fremst hafa verið þann, að kynna kvenframbjóðendur, vekja á þeim aukna athygli og bjóða þeim að koma fram með sinar skoðanir og stefnumál flokka sinna. Tveir frummælendur voru frá hverjum flokki sem héldu stuttar ræður i tveimur umferðum. Siðan voru fyrirspurnir og umræður. Fund- urinn var vel sóttur.i kringum 200 manns. Esther var spurð hvort þeim hjá Kvenréttindafélaginu finnist ekki nokkur árangur hafa náðst i fjölgun kvenna á framboðslistum i kosningunum nú. „Vist hefur þeim f jölgað en stærstu spurning- unni er ósvarað enn, þ.e. hve margar komast inn. Við höfum sagt, að við verðum ekki ánægðar nema að það verði um 20% af þeim sveitarstjórnarfulltrúum sem nú á að kjósa og það eru þá 85 konur”. Við kosningarnar 1978 sagði hún hlutfallið hafa verið 8,3% á þeim stöðum sem kosið verður nú á laugardaginn, 6,5% árið 1974 og 5,5% við bæjarstjórn- arkosningarnar 1970. — HEI ■ „Kvenframbjóðendurnir voru málefnalegir og lausir við hið per- sónulega skitkast sem oft vill einkenna pólitiskar umræöur.” Tímamynd: Elia auglýsi r _______ sumarvW«» . Bolir - -. vcsti línan Bux^r peys^r tnörg snið :^>kIðfu Selfossi Simi 2011 FYRIRHYGGJA Á ÖLLQM SVIÐUM BÚSKAPAR SÝNIR GÓÐA BÚMENNSKU Starf bóndans hefur breyst mikið á undanförnum árum. Með aukinni vélvæðingu treystir hann sífellt meira á tæknina, en hún útheimtir auknar fjárfestingcir sem nauðsynlegt er að tryggja. Tryggingamál eru þannig orðin mikilvægur hluti búrekstrarins. Með okkar fjölbreyttu trygging- um bjóðum við bændum að velja um margs konar möguleika í trygginga- málum. Sýndu fyrirhyggju og kynntu þér tryggingaþörf þína í samráði við um- boðsmann okkar. Hann gerir síðan tryggingaáætl- un, sérstaklega fyrir þig. Traustar tryggingar eru grundvöllur góðrar búmennsku. SAMVINNU TRYGGINGAR ÁRMÚLA3 REYKJAVtK SÍMI81411 UMBOÐSMENN UM LAND ALLT BiauiiYðjesndurlbcBttumtiyggmgu MUSI93U|3)UN3J

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.