Tíminn - 18.05.1982, Síða 12
Þriöjudagur 18. mal 1982
1
13
12
Þriöjudagur 18. maí 1982
Framboð á Selfossi
Framboð á Selfossi
■ Hafsteinn Þorvaidsson forstööumaöur Sjúkrahúss Suöurlands.
Hafsteinn Þorvaldsson:
Munum halda
uppbygging-
unni áfram
■ Hafsteinn Þorvaldsson skipar
annað sætiö á lista framsóknar-
manna á Selfossi. Hann hefur set-
iö i hreppsnefnd og bæjarstjórn i
10 ár, en hann kom fyrst inn sem
varamaður Sigurðar Inga. Fyrstu
bæjarstjórnarkosningarnar fóru
fram 1978,en þá var Selfoss búinn
að fá kaupstaöarréttindi.
— Ég tel að við framsóknar-
menn getum verið afskaplega
ánægðir þegar við litum yfir far-
inn veg, sagði Hafsteinn i viðtali
viðTimann, hvemig til hefur tek-
ist með framkvæmd okkar
stefnuskrár. Viöhöfum fjóra full-
trúa af niu, bættum stöðu okkar
um 100% i kosningunum 1978. Þá
var fulltrúum fjölgað i niu úr sjö.
Við fengum báöa viðbótarfulltrú-
ana. Við erum forystuaðili i
meirihlutasamstarfinu, en með
okkur eru 1 alþýðuflokksmaöur
og einn alþýöubandalagsfulltrúi.
Þetta hefur verið samstiga meiri-
hluti, og einnig höfum viö haft
ágætt samstarf viö minnihlutann.
— A þessu kjörtimabili hefur
félagsheimilisbyggingunni miðað
verulega og gerð hefur verið
áætlun I grófum dráttum um að
halda þeirri vinnu áfram til loka
og stefnt aö þvi að ljúka fram-
kvæmdinni á næsta kjörtimabili.
A þessu kjörtlmabili hófum viö
byggingu iðngarða og var eitt hús
fullbyggt og tekið i notkun á
miðju ári 1980. Annaö 600 fer-
metra hús er ibyggingu. Erþetta
liður i að ýta undir nýja atvinnu-
starfsemi hér á Selfossi, og lofar
góöu. Er búiö aö skipuleggja aö-
stööu fyrir fjögur hús af þessu
tagi.
A kjörtimabilinu hefur veriö
mikiö gert á sviöi öldrunarmála.
Heimilisaöstoö og heimahjúkrun
hefur veriö aukin og bærinn hefur
styrkt félagsstarf eldri borgara
myndarlega sem reklö' er af
Styrktarfélagi aldraöra. Siöast en
ekki sist hófum viö byggingu
ibúöa fyrir aldraöa á þessu kjör-
timabili. t Grænuraörk höfum viö
skipulagt lóö fyrir fjögur átta
ibúöa hús.Fyrsta húsiö vartekiö i
notkun í des. s.l. t því eru fjórar
hjónaibúöir og jafnmargar ein-
staklingsibúöir. Veriö er aö
byggja annaö húsiö og er reiknaö
meö aö taka þaö i notkun fljótlega
á næsta áriog siöan veröur fram-
kvæmdum viö þau hús sem eftir
eru hraöaö eftir þörfum.
A siðasta ári rættist sá lang-
þráði draumur að nýja sjúkra-
húsið komst i gagnið.
Ógetið er stofnunar fjölbrauta-
skólans, en þar tókst merk sam-
vinna milli allra aðila sem hlut
eiga að máli. Fjölbrautaskólinn
tók tilstarfa samkvæmt samningi
milli Selfoss og menntamála-
ráðuneytisins, en við reiknum
með að sýslurnar á Suðurlandi
verði einnig aöilar aö samkomu-
laginu og er nú unnið að þeirri
samningsgerð. Þarna er geysi-
lega mikil uppbygging framund-
an.Skólinn tóktil starfas.l. haust
og sækja hann nemendur viðs
vegar að. Þeim er ekiö frá Þor-
lákshöfn, Hveragerði, Hellu og
Hvolsvelli, svo aö einhverjir staö-
ir séu nefndir. En það er greini-
legt aö þrátt fyrir greiöar sam-,
göngur veröur aö stefna að þvi að
koma upp heimavist vegna þeirra
sem lengst eiga aö sækja af þeim
nemendum sem skólinn er ætlaö-
ur.
— Þaö sem einkum hefur áunn-
ist meö þvl aö Selfoss fékk kaup-
staöarréttindi.er aömfnu viti hiö
nýja stjómunarform, aö hafa
bæjarráö. Er þaö eins konar
framkvæmdastjórn bæjarstjórn-
ar og sitja i þvi einn fulltrúi frá
hverjum flokki á fyrsta kjörtima-
bilinu sem þaöstarfaöi. Bæjarráö
er skipað þrem fulltrúum. Full-
trúar Alþýðuflokks og Alþýöu-
bandalags skiptast á um aö sitja i
þvi.
Hér má skjóta inn i aö Haf-
steinn Þorvaldsson er formaöur
bæjarráös.
— Hafiö þiö ákveöna stefnu um
meö hverjum þib ætliö aö hafa
samstarf á næsta kjörtimabili?
— Nei, viö göngum óbundnir til
kosninganna, og þaö gera allir
hinir flokkarnir lika. Úrslitin
hljóta aö skera úr um hvernig
samstarfi veröur háttaö aö ldtn-
um kosningum.
— Hitt er annaö aö viö höfum
auglýst starf bæjarstjóra laust.
Erlendur Hálfdánarson bæjar-
stjóri hefur sagt starfi sinu lausu'
en hann fer nú til nýrra starfa hér
I bænum. Erlendur hefur skilaö
góöu starfi er hann gegndi stööu
bæjarstjóra og reynst okkur vel.
Þaö kemur i hlut næstu bæjar-
stjórnar aö ráöa mann i hans
s t a ð .
Heiddís Gunnarsdóttir:
fyrir aldrada
og aðhlynning
barna og
unglinga
— Þaö eru einkum félagsmálin
sem ég ber fyrir brjósti, sagii
Heiðdis Gunnarsdóttir, sem er i 4.
sætiá lista framsóknarmanna, er
hún var innt eftir hver væru
helstu áhugamálhennar varöandi
stjórn bæjarins.
— Hér vantar tilfinnanlega
sjúkrarými fyrir aldraða. Nýja
sjúkrahúsið bætir ekki þar um þvi
þar er ekki ætlaö rúm fyrir
aldraða langlegusjúklinga. En
það hefur komiö til tals að taka
gamla sjúkrahúsið undir þessa
starfsemi og ég tel bráðnauðsyn-
legt að reka á eftir að svo verði
gert.
— Þjónusta við aldraða er all-
góð hér á Selfossi, bæöi er gamalt
fólk aðstoðaö á heimilum sinum
ogi"búöir fyrir aldraöa hafa veriö
byggöar, en þaö sem á skortir er
vistunarrými fyrir aldraö fólk,
sem þarf mikillar umönnunar við
og úr þvi veröur að bæta.
— En það eru fleiri en aldraðir
sem þurfa umhyggju við. Hér
vantar tilfinnanlega skóladag-
heimili, og þarf að taka þaö mál
föstum tökum. Mikið er um það
hér að báöir foreldrar bama á
aldrinum 6-9 ára vinni úti og það
er ófært aö börn á þessum aldri
þurfi aö vera ein heima mikinn
hluta dagsins án umönnunar og
mundi skóladagheimili bæta
þarna mikið úr og er orðið tima-
bært aðtaka málið föstum tökum
oghefja undirbúning að byggingu
skóladagheimilis. Þetta mál er á
stefnuskrá okkar framsóknar-
manna og tel ég góðar likur á að
það muni ná fram að ganga.
— Að mörgu er að hyggja i
sambandi við æskulýös- og tóm-
stundamál. í sambandi viö vinnu-
s''ólann þarf aö sjá svo um að
unglingarnir fái þar verkefni sem
■ A Selfossi er úti- og inni- sundlaug og eins og sjá má eru þær mikiö
notaðar.
■ Félagsheimilið er I byggingu og stefnt aö þvi aö taka hluta þess I
notkun á árinu 1983.
■ Verknámshús Fjölbrautaskólans. 1 tengslum viö þaö verbur Fjöl-
brautaskólinn byggöur upp i heild.
Listi
Fram-
sóknar-
manna á
Selfossi
er B-listi
1. Ingvi Ebenhardsson aðal-
bókari, Vlðivöllum 18
2. Hafsteinn Þorvaldsson for-
stööumaöur, Engjavegi 28
3. Guðmundur Kr. Jónsson
mælingamaöur, Valiholti
38
4. Heiðdis Gunnarsdóttir full-
trúi, Engjavegi 51
5. Grétar Jónsson húsasmiö-
ur, Birkivöllum 5
6. Gunnar Kristjánsson
kennari, Heimahaga 13
7. Asta Samúelsdóttir kaup-
maöur, Eyrarvegi 10
8. Jón Vilhjálmsson verk-
stjóri, Miöengi 23
9. Kristján Einarsson hús-
gagnasmiöur, Vallholti 47
10. Ingibjörg Stefánsdóttir
fóstra, Lágengi 14
11. Arni O. Guömundsson
húsasmiöur, Miöengi 20
12. Ingibjörg Guömundsdóttir
fóstra, Sigtúnum 15
13. Garðar Gestsson bifvéla-
virki, Vallholti 45
14. Ketill Högnason tannlækn-
ir, Grashaga 18
15. Þorgrlmur óli Sigurösson
lögregluþjónn, Reyrhaga
13
16. Sigurdór <Karlsson húsa-
smiöur, Rauöholti 9
17. Gunnar Hallgrlmsson hds-
vöröur, Fossheiöi 17
18. Gunnar Kristmundsson
versl.maöur, Engjavegi 36
Kosninga-
skrifstofan
á Selfossi
Simi 2355
Kosningaskrifstofan aö
Evrarvegi 15 er opin alla daga
frá kl. 14-22. Slmi 2355.
Grétar Jónsson:
■ Viö kosningaskrifstofu B-listans á Selfossi aö Eyrarvegi 15, f.v.
Heiödis, en hún er fulltrúi viö Félagsmálastofnun Selfossbæjar sem er
til húsa i Tryggvaskála einu elsta húsi bæjarins, Grétar og Hafsteinn.
þeim þykja áhugaverð og sjái
einhvern árangur af þvi sem þau
eru að gera. Hér er risin iþrótta-
miðstöð og hestamennska er
mikil, og þarf að sjá svo um að
unglingarnir fái aö njóta þeirra
möguleika sem fyrir hendi eru og
skapa þeim tækifæri til að eyða
tómstundum sinum á heilbrigöan
og eðlilegan hátt.
— Hér þarf aðkoma á fótferða-
málaráði og bæta alla aðstöðu
fyrir ferðafólk. Þar kemur inn i
bygging félagsheimilisins og
hótels, þar sem aðstaða fyrir
ferðamenn þarf aö vera góð. Hér
eru bæði úti- og innisundlaug,
sem öllum er velkomið að notfæra
sér. Sitthvaö fleira má gera hér
til að laða feröamenn að bænum
og gefa þeim tækifæri til að láta
sér liða vel, eins og reyndar
heimamönnum einnig.
— Þröngt er orðiö hér i skólum
og á stefnuskrá okkar er bygging
nýs grunnskóla. Byggöin hér hef-
ur breitt mjög úr sér, og er orðið
mjög langt fyrir þau börn sem
fjærst skólunum búa að sækja
skólann. Vegalengdirnar eru
orðnar svo miklar að það er orð-
inn allt að hálfti'ma gangur milli
heimila sumra barnanna og skól-
ans. Þetta er löng leiö og erfið
fyrir börn að fara i misjöfnum
veðrum. Skólabilar eru engir.
Þetta þarf aö lagfæra, að koma
upp skólabil fyrir þau börn sem
lengst eiga aö sækja, en fram-
tiöarlausnin hlýtur að vera að
byggja nýjan skóla sem næst
heimilum þeirra sem hann sækja.
Atta íbúðir fyrir aldraöa voru teknar I notkun á sl. hausti.
■ ölfusárbrú var tekin I notkun áriö 1945. Umferöarþunginn á henni er
mikiil og gangandi vegfarendur eiga I vök aö verjast.
Ný atvinnu-
tækifæri erl
höfudmálið
■ — Stefna okkar framsóknar-
manna er, að staöiö veröi aö
verulegu átaki i' atvinnumálum
hér á Selfossi, sagði Grétar Jóns-
son, 5. maður á lista Fram-
sóknarflokksins. í þvi sambandi
leggjum við áherslu á aö gerö
veröi itarleg könnun á núverandi
ástandi i þeim málum og að byggt
verði á þvi sem hér er fyrir og
jafnframt stefnt að nýjum at-
vinnugreinum. Ég tel að nýta eigi
hugmyndiribúanna sjálfra, og að
þeir komi þeim á framfæri við
bæjarstjórn og atvinnumálanefnd
til að koma hér upp nýiðnaði.
Atvinnumálanefnd hefur haft
nokkra forgöngu um þessi mál.
Við framsóknarmenn leggjum til
að hér verði ráðinn atvinnumála-
fulltrúi, sem vinna á að þvi að
gera úttekt á atvinnumálum og
koma á samræmdu skipulagi i
þessu efni og langtimaáætlun um
uppbyggingu atvinnuvega og ný-
iðnaðar hér á Selfossi.
Hann gætiorðiö virkur aðili i að
korr.a aí stað umræðum um at-
vinnumálin og ný atvinnutæki-
færi. Til hans gætu þeir snúið sér
sem áhuga kynnu aö hafa á að
komahérá fót fyrirtækjum, bæði
heimamenn og aðrir, og fengið
allar tiltækar upplýsingar sem
nauðsynlegar eru til undirbún-
ings stofnunar fyrirtækja i bæn-
um, eða flutning þeirra annars
staðar að.
Á siöasta kjörtimabili varð sú
breyting á, aö atvinnutækifærum
hefur fjölgaö og ný iönaöartæki-
færi skapast. Að þessari þróun
þarf aö hlúa og efla áframhald-
andi uppbyggingu á þessu sviði.
Hér á Selfossi eru góöir mögu-
leikar á að auka þjónustu við
ferðamenn og áningarfarþega.
Þaö þarf að sjá svo um að þjón-
ustan verði aðlaðandi fyrir þá
sem hennar njóta og aö ferða-
menn geti nýtt sér það sem viö
höfum upp á aö bjóöa. Þvi leggj-
um viö mikla áherslu á aö bygg-
ing félagsheimilisins veröi drifin
áfram og þvi veröi lokiö á næsta
kjörtimabili.
— 1 sambandi viö skipulags-
mál, tel ég nauðsynlegt að koma á
deiliskipulagi, þannig aö þegar
t.d. Ibúöarhverfi eru skipulögö sé
jafnframt séö fyrir aö I þeim sé
gert ráö fyrir verslunum og öör-
um nauösynlegum þjónustufyrir-
tækjum. Til þess aö þetta reynist
unnt veröur bæjarfélagiö aö eiga
nægilegt land og ber aö stefna aö
þvl aö landleysi hái ekki eölilegri
stækkun bæjarins eöa aö skipulag
hans geti oröiö eins og best veröur
á kosiö.
í stefnuskrá okkar vikjum viö
aö þeirri hugmynd hvort ekki sé
hægt aö koma viö I sliku deili-
skipulagi aö byggja hverfi, þar
sem menn geta haft hesthús eöa
einhverjar smábyggingar varö-
andi tómstundaiöju 1 námunda
viö Ibúöarhús sin. Viö viljum
kanna hvort áhugi er á sliku
meöal Ibúanna. Ef hann er fyrir
hendi og landrými skortir ekki
veröur ekkert þvi til fyrirstööu að
reisa slikt hverfi.
Hér er sérstakt hesthúsahverfi
og þar mætti sumt betur fara en
nú er. Nauðsynlegt er aö koma
upp götulýsingu á leiöinni þangaö
og i sjálfu hverfinu. Þarna eru
menn hvaö mest á feröinni i
skammdeginu, en lýsingu vantar.
Þetta er ekki fjárfrek fram-
kvæmd, en henni þarf að flýta.
Þá viljum við athuga vel, hvort
ekki beri að stefna aö lagningu
kapalkerfis i' bænum i sambandi
við staöbundið sjónvarp. Ef til
þess kemur að þvi verði komið á
fót þarf að vera til afmörkuð
stefna og dreifingarkerfiö skipu-
lagt, en það verði ekki lagt i' eim
hverju stjórnleysi, og að kannski
fari fleiri aðilar að leggja kapla
þvers og kruss. Viö teljum að
bærinn sem slíkur eigi ekki að
setja upp sjónvarpsstöð eða
senda út efni, en ef einhver sam-
tök kynnu að setja upp sllka stöð
teljum viö sjálfsagt aö bæjar-
félagið hafi hönd I bagga meö
skipulagningu dreifingarkerfis-
ins.
— Hér þarf að gera áframhald-
andi átak i byggingu félagslegra
ibúða. Mikil eftirspurn er eftir
verkamannabústöðum og nú
liggja fyrir 23 umsóknir frá fólki á
öllum aldri, sem erfitt er að verða
við. Eftir að við buðum siöast út
byggingu verkamannabústaða-
ibúða var fjárveitingin tekin af
ókkur og okkur sagt að ekki væri
til fé í Byggingas jóði. Þetta þykir
okkur nokkuð hart. Lifeyris-
sjóðirnir leggja Byggingasjóði til
fé, og hér á Selfossi og reyndar á
Suðurlandi, er mikiö fé lagt til
Byggingasjóða gegnum lffeyris-
sjóöina, en viö fáum ekki nema
brot af þvi sem við leggjum til i
okkar hlut þegar fé er útdeilt til
að reisa félagslegar ibúðarbygg-
ingar. Það er engin ástæða til
annars en það nái fram að ganga
að viö fáum nauðsynlega fjár-
muni til að byggja verkamanna-
bústaði.
— Hvað varðar verklegar
framkvæmdir á vegum bæjarins
leggjum við áherslu á aö haldið
verði áfram þeirri gatnagerðar-
áætlún.sem unniö hefur verið eft-
ir.
Brúin yfir Olfusá er mál út af
fyrir sig. Hún er þjóðbraut sem
liggurum miöjan bæinn. Þar þarf
að setja upp betri Uíáferöar-
merki. syc sö aílir skilji að brúin
er aðalbraut, en á þvi er nokkur
misbrestur eins og er. Umferðin
um brúna er mikil og eykst stöð-
ugt. Byggð er beggja vegna henn-
ar og gangandi vegfarendur sem
leið eiga um brúna, og þeir eru
margir, eru þar ekki óhultir.
Brúargólfið er slitið og þar safn-
ast vatn og gengur vatn undan
bilunum á fólkið i vætutið. Þetta
verður að lagfæra. Veginn yfir
brúna þarf að endurnýja og best
væri að gera göngubrú utan ak-
brautarinnar og aðskilja alveg
gangandi vegfarendur og bilaum-
ferö.
■ Grétar Jónsson er verkstjóri viö byggingu KA á Selfossi. Versiunar-
hluti hennar var tekinn i notkun á sl. hausti en framkvæmdum er ekki
að fullu lokiö við aðra hiuta byggingarinnar.
Sjúkrahús Suðurlands.