Tíminn - 22.05.1982, Qupperneq 2
Laugardagur 22. mai 1982
íspegli tíman:
umsjón: B.St. og K.L.
Hunt:
NÚER
DRAUM-
URINN
BUINN
■ — Allir hljóta aö hafa öf undað mig af að
búa meðeinum eftirsóknarverðasta og dáð-
asta manni í heimi. En það hlutverk, að
vera vinstúlka James Hunt var ekki alltaf
dans á rósum. Mér mun alltaf þykja vænt
um hann og vona að við verðum alltaf góðir
vinir, en mér var það ekki nóg að vera „vin-
stúlka hans" að atvinnu. Svo mælir Jane
Birbeck sem í 6 ár var sambýliskona kapp-
aksturskappans fræga James Hunt.
— Viö James höföum
þekkst i 6 mánuöi áöur en
viö fórum aö sofa saman,
og jafnvel eftir þaö vor-
um viö i nokkurri óvissu
um framhaldiö. Ég haföi
lengi hugsaö mér aö fara
til Ameriku og leita mér
aö vinnu og loks ét ég til
skarar skriöa. James var
alltaf aö hringja i mig og
bjóöa mér i fri til Spánar,
en þar átti hann hús i
Marbella. En þegar þeg
komst aö raun um að ég
var ófrfsk var tenging-
num kastað. fcg fluttist til
James og Amerikudvölin
var ur sögunni. Þvi.miður
missti ég fóstriö skömmu
siðar og hið saman átti
eftir að endurtaka sig 7
sinnum á meöan viö
vorum saman, segir
Jane.
Fljótlega komst Jane
aö raun um þaö, aö þó aö
James sé vellauðugur
kærir hann sig ekkert um
aö lifa samkvæmt þvi. En
hún segist ekki hafa sett
þaö fyrir sig, hún hafi
sjálf vanist slikum lifnaö-
arháttum. Og þegar hann
einu sinni færöi henni
refapels aö gjöf upp úr
þurru, hafi hún fyrst og
fremst oröið steinhissa.
Brúökaup bar oftar en
einu sinni á góma, en allt-
af kom eitthvað i veginn,
svo aö aldrei var látið
veröa af þvi. En meö tim-
anum fór meira og meira
i taugarnar á Jane aö
vera ekki álitin neitt ann-
aö en kærasta kappakst-
urshetjunnar. Þaö var
varla aö fólk nennti aö
setja á sig hvað hún héti!
Þvi fór svo aö lokum aö
hún yfirgaf James sem er
hættur kappakstri,og býr
nú ein i London. En hún
situr ekki auðum hönd-
um. Eins og er, er hún aö
koma á fót heilsuræktar-
stöö, enda segist hún sjálf
vera mjög áhugasöm um
slika hluti. Sjálf er hún
stærsti hluthafinn i fyrir-
tækinu en meðal hluthafa
má finna James Hunt.
■ t blööunum er ég alltaf kölluö „fyrrverandi fyrir-
sæta” en ég hef aldrei unnið fyrirsætustörf. En ég legg
mikla áherslu á aö halda likama minum i formi og
finnst aö þaö eigi allar konur aö gera. Núna er ég öll i
heilsuræktinni, hleyp tvisvar á dag og tek heilmikiö af
vitaminum, segir Jane Birbeck.
60 ár undir stýri
■ Elsti leigubilstjóri I
Moskvu heitir Mikjail
Judkevitsj. Hann varö
nýlega 80 ára, en settist
undir stýri í fyrsta bilnum
sinum áriö 1922, sama ár-
iö og stofnun Sovétrikj-
anna var lýst yfir. Þá var.
ekki kominn á fót þar I
landi neinn bilaiönaöur.
Innfluttir bilar aöallega
Henault og Chevrolet
voru þá einungis notaöir.
Nú,80 ára gamall, er
hann enn i leigubilaþjón
ustu borgarinnar. A 60
ára ferli sinum hefur
hann verið viða I starfi og
hitt margt ólikt fólk.
Hann var m.a. bilstjóri
hjá Ivan Papanin, land-
könnuöi, sem var foringi
fyrsta sovéska heim-
skautaleiöangursins sem
rak á Isjaka um Jshafiö.
Öll þau ár, siöan Jud-
kevitsj hóf störf hjá
leigubilaþjónustunni; þar
hefur hann aldrei veriö
nokkru sinni sakaöur um
umferðarlagabrot.
Gamli maöurinn ann
starfi sinu og vill ekki
hætta. Stjórn bfiastöðvar-
innar hagar vinnutima
hans eftir þvi sem hentar
honum best meö tilliti til
aldurs hans. Annars er
Mikjail Judkevitsj enn
furöu hraustur og áhuga-
samur. Hann segist
hlakka til hátiöahaldanna
i tilefni af 60 ára afmæli
stofnunar Sovétrikjanna.
„Það veröur gaman aö
tala viö farþega sem
koma erlendis frá i tilefni
afmælisins, viös vegar aö
úr heiminum” sagöi þessi
hressi áttræöi öldungur er
afmælismyndin var tekin
af honum.
■ Mikjail Judkevitsj á
áttræðisafmælinu undir
stýri.
■ Kappaksturshetjan
og „vinstúlka” hans
■ — Ef folk heldur aö viö James höf-
um skiliö aö skiptum, vegna þess aö ég
gat ekki aliö James barn, fer þaö villur
vega. En ég var oröin þreyít á þvi aö
vera ekki álitin neitt annaö en vin-
stúlka James, segir Jane.
James
Sam-
kona