Tíminn - 23.05.1982, Blaðsíða 7

Tíminn - 23.05.1982, Blaðsíða 7
Sunnudagur 23. mai 1982 NÝISLENSK FRAMLEÐSLA 1 kukim! DBS—TOURING 10 gira/kvcn eða karlmanns bogið eða beinc stýri/lokaðar skálabremsur innbyggður lás/standari/ljósatæki/3 stærðir litir: silfurgrátt/ljósblátt Okkur er sérstök ánægja að tilkynna að reiðhjólaframleiðsla er á ný hafin á íslandi. Með samningi við norska fyrirtækið Jonas Ágland A/S, eigendur D.B.S. verksmiðjanna, hefur Fálkinn tryggt sér einkarétt til framleiðslu og sölu D.B.S. reiðhjóla hér á landi. Samsetningarverksmiðjan hefur tekið til starfa að Suðurlandsbraut 8 í Reykjavík. Fyrstu íslensku D.B.S. reiðhjólin eru að koma á markað um þessar mundir. Með þessu móti vinnst einkum þrennt: 1. Frá þriðjungi til helmings framleiðsluvirðis reiðhjólanna verður nú innlend verðmætasköpun. 2. Allur búnaður og frágangur reiðhjólanna er valinn með þarfir íslenskra kaupenda í huga, eins og við þekkjúm þá best. 3. Verð íslensku D.B.S. reiðhjólanna verður að jafnaði um 10% lægra en ef samsvarandi reiðhjól væru innflutt. Allt frá árinu 1904 hefur starfsemi Fálkans miðað að því að þjóna íslenskum reiðhjólamarkaði sem best. Á árunum 1940-1954 var reiðhjólaframleiðsla þáttur í starfsemi fyrirtækisins. Voru þá framleidd um 18.000 reiðhjól, hin vel þekktu Fálkareiðhjól. Starfsmenn reiðhjólaverksmiðju Fálkans eru þess fullvissir, að íslensku D.B.S. reiðhjólin séu öðrum fremri og munu leggja sig alla fram um að þjóna þörfum íslenskra neitenda sem best. FÁLKIN N

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.