Tíminn - 23.05.1982, Blaðsíða 23

Tíminn - 23.05.1982, Blaðsíða 23
Sunnudagur 23. mai 1982 bókamarkaði THEFATEOF THE EARTK Jonathan Schell: The Fate of the Earth. Picador 1982. ■ Bókin er svört að utan og hún inniheldur lika svarta- gallsraus. En fólk tekur þess- ari bölsýni opnum örmum, þvi „örlög jarðarinnar” er met- sölubók sem gagnrýnendur standa lika á öndinni yfir. En þetta er lika bók um kjarn- orku, kjarnorkuvopn, kjarn- orkustrið og kjarnorkuöld — og var það ekki hitamál siðasta sumars og væntanlega þess næsta lika. Og þá verður vart vitnaö meira i aðrar bæk- ur en þessa, nema ef vera skyldi Bibliuna. Jonathan Schell, fyrrum blaðamaður við timaritið The New Yorker, setur hér fram i skipulegu máli þá ógn sem jarðlifinu stafar af kjarnorkuvopnum, hvarvetna er málflutningur hans skynsamlegur og studd- ur traustum rökum og staðreyndum að þvi er virðist, þó á köflum standist hann ef til vill ekki þá freistingu að bregða sér i hempu heims- endaspámannsins ogtala i vé- fréttastil. En allt um það — þetta er góð bók, þörf bók, ákall til heilbrigðrar skynsemi jarðarbúa um að binda nú endi á þessa vitleysu, hverrar skoðunar sem leiðtogar heimsins nú eru. Wilbur Smith: Men of Men. Pan 1981 ■ Það var i fyrra að frá hendi Wilburs Smith kom metsölu- bókin ,,A Falcon Flies”, sem nú hefur vist verið ummynduð yfir i hreyfimynd, enn flýgur fiskisagan og nú ekki nema ári siðar er hér önnur karl- mennsku- og manndómsbók eftirhann sem heitir þvi tákn- ræna nafni „Menn Manna.” Wilbur þessi Smith er annars Ródesiumaður, en nú sitja surtar að heimalandi hans óskertu svo hann hefur tekið þann kostinn að setjast að i Höfðaborg kynþátta- aðskilnaðarins. t æviágripi fremst i bókinni kemur lika fram að áhugamál hans eru ljósmyndun villtra stórgripa og stórfiskaveiðar, hann fer i safari inn i svörtustu Afriku og i lax út á mitt Indlandshaf. Og þess á milli skýtur hann McLean, Bagley og öðrum reyfarahöfundum ref fyrir rass. Þessi siðasta spennu- saga hans gerist i sunnan- veröri Afriku á tima nýlendu- útþenslu og gullæðis, tima sjálfs Ceciis Rhodes — og þar er lika á kreiki um þær mundir Zouga Ballantyne sem leggur á sig ótal raunir og lifshættu til að eignast sitt heimsriki og sina konu... ffiULE. ERDMAN4 j Superselli«gauthorol ,:$? ThE CRASH OF W f Ý 1HE LAST DAYSOF Paul E. Erdman: The Last Days of America. Sphere 1982. ■ Það er árið 1985 og Franz Jósef Strauss orðinn kanslari i Vestur-Þýskalandi á gamals aldri. Loft er lævi blandið vopnakapphlaupið ákafara en nokkru sinni fyrr, heimurinn rambar á barmi kjarnorku- striðs og frelsisstyttan fellir tár. Höfundurinn, bandariskur kaupsýslumaður og metsölu- höfundur bókarinnar „The Crash of ’79”, tekur það sterk- lega fram að hann sé að skrifa sögu sem gætigerst á árunum 1985-87, en enga framtiðarspá þó. Margar sögupersónurnar eiga sér stoð i raunveruleikan- um og eru kunnuglegar úr heimsfréttum hér ertil dæmis belgiskur prins sem er ekki alltof vandur að virðingu sinni, en aðrar eiga allt sitt lif undir skáldsögunni. Allavega er söguhetjan forseti eld- flaugafyrirtækis i Kaliforniu sem fer til Evrópu að versla við NATÓ. En i gamla heimin- um er ekki allt sem sýnist, engum er hægt að treysta og allra sist hinum aldurhnigna kanslara. Og þegar liður á bókina er eldflaugamaðurinn hundeltur maður, staddur i miðju samsæri um að velta Amrikuúr sessi sem risaveldi og koma i kring siðustu dögum hennar. Það stendur að minnsta kosti á bókarkápu... ÍM’W IM PAPERBACK GREAT BESTSELLER JAMES HERRIOT James Herriot: The Lord God Made Them All. Pan 1982 ■ James Herriot heitir hann en það er vist bara dulnefni. Allavega er hann orðinn fræg- ur og rikur af að skrifa bækur um ævintýri dýralæknis sem lika heitir James Herriot og starfsbræðra hans sem marg- ir Islendingar kynntust vist i sjónvarpi fyrir nokkrum ár- um. Dýralæknisiðjan viröist vera óþrjótandi brunnur sagna, þvi bækurnar eru orðn- ar tiu að þessari meðtaldri og eftirspurnin eftir huggulegum dýrasögum virðist lika vera stöðug, þvi bækur Herriots gista undantekningarlaust efstu sæti metsölulista beggja megin hafsins. Það er kannski rétt að geta þess að sjálfur er Herriot, hvað hann nú heitir i raun dýralæknir i norðursveit- um Englands og sögurnar þvi engan veginn tómur uppspuni. En i siðustu bók var dýra- læknirinn okkar blessaður i striðinu nú er það loks búið og hann kominn heilu og höldnu aftur i dalina sina i norðrinu. Og það þarf vart að taka fram að til hans liggur stöðugur straumur af furðulegum tvi- fætlingum og sjúkum fer- fætlingum eins og endranær... ■ Bækurnar hér að ofan eru fengnar hjá Bókabúð Máls og menningar. Tekið skal fram að hér er um kynningar að ræða en öngva ritdóma. í flestar gerðir bíla. Falleg - einföld - ódýr. Fást á bensínstöðvum Shell Heidsölubirgóir: Skejungur hf. Smá/örudeid-Lauga«gi 180 sími 81722 Tilboð óskast i 23 stór 6 manna borð á einum stál- fæti, 6 fjögurra manna borð á einum stál- fæti, 18, 6 manna borð á 4 stálfótum i allt 47 borð svo og 155 stálstóla með leðurliki. Umrædd húsgögn eru til sýnis i Félags- stofnun stúdenta v/Hringbraut. Nánari upplýsingar veitir Stefania i sima 16482 kl. 9-17. Forritari/Kerfisfræðingur óskast til starfa sem fyrst i Skýrsluvéla- deild. Þekking á sivinnslu og forritunarmálum COBOL eða PLI, ásamt CICS/VS. Nánari upplýsingar veitir Starfsmanna- hald, á skrifstofu en ekki i sima. Samvinnutryggingar g.t. Ármúla 3, Simi 81411 Fjölhæfnivagninn er kominn með Ijósabúnaði. S.B. vagninn góður er, um fjölhæfni má velja. Hesta, kindur, heyið ber, fleira má upp telja. Mjög gott verð og greiðslukjör. S.B. vagnar og kerrur, Klængsseli - Sími 99-6367. VIO EIGUm RÉTTO EflllO TIL BÐ lATD ORRummn rietr/t. TVÖFBLT 'plexlglas BKRVLGLER HEFUR ÓTRÚLEGfl mÖGULEIKB /kooio mvnoRLi/ifl okkar akron /ídumúlo 3iv 105, rvk. /íml: 33706 "ple^áglas •Inkoumbod

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.