Tíminn - 23.05.1982, Blaðsíða 2
2___________
fólk f listum
1limm
Sunnudagur 23. mal 1982
■ Guðrún Snæfriður Glsladóttir,
leikari, tekur þátt I flutningi eins
vcrksins á tónleikum Musica
Nova I Norræna húsinu næstkom-
andi mánudag. Hér er hún ásamt
Snorra Sigfúsi Birgissyni sem
leika mun á pianó á þessum tón-
leikum. Timamynd: Guðjón Ein-
arsson.
Kammermúsík á
Kjarvalsstöðum
■ Fólk sem hefur yndi af kamm-
ermúsik og kallarsig af þvi tilefni
Kammermúsik klúbburinn hefur
fimmtu tónleika starfsársins á
Kjarvalsstöðum á sunnudaginn
kemur sem sé um þessa helgi.
Efnisskrá er á þessa leið: — en
gamanið hefst klukkan 20.30.
JOSEF HAYDN (1732-1809):
Strengjakvartett i G-moll, op.74
nr.3 („Reiter-Quartett”) Allegró,
Largo assai, Menuetto: Alle-
gretto, Finale: Allegro con brio.
BENJAMIN BRITTEN (1913-
1976): Phantasy-Quartet fyrir
óbó, fiðlu, viólu og celló, op.2, i
einum kafla: Andante alla
marcia — Allegro giusto — An-
dante — Andante alla marci.
---HLÉ -----
Síðustu
áskriftar-
tónleikar
Musica
Nova
— Verk eftir Berio,
Satie og Gnðmund
Hafsteinsson
■ A mánudaginn verða tónleikar
i Norræna húsinu sem oftar. Það
er Musica Nova sem heldur þá og
þeir hef jast klukkan hálf niu. Það
skal tekiö fram að þetta eru sið-
ustu áskriftartónleikar félagsins
á þessu starfsári.
A efnisskrá eru þrjú verk.
Fyrst Sequenza V fyrir básúnu
frá árinu 1966 eftir L. Berio. Svo
Sports et divertissiments fyrir pi-
anóog leikara frá árinu 1914 eftir
Satie. Og loks verkið Brunnu
beggja kinna björt ljós eftir Guð-
mund Hafsteinsson. Það er samið
fyrir klarinett, selló og pianó og
sett saman á siðasta ári og þessu.
Sequenzan eftir Berio er eitt af
fjölmörgum verkum fyrir ein-
leikshljóðfæri sem tónskáldið hef-
ur samið á liðnum árum og segir i
fréttfrá Musica Nova að þetta sé
án efa ein merkasta tónsmið bá-
súnubókmenntanna.
Verk Saties, Sport et divertis-
siments er safn tuttugu smá-
smiða. Sagt er að i þeim spinni
höfundurinn saman leikrænan
texta og tónlist.
Trió Guðmundar Hafsteinsson-
ar var pantað sérstaklega fyrir
þessa tónleika og mun mikið vera
i það lagt.
Flytjendur á þessum tónleik-
um, fjórir hljóðfæraleikarar og
einn „venjulegur” leikari: Guð-
rún Snæfriöur Gisladóttir sem
tekur þátt i flutningi verks Saties.
Hljóðfæraleikararnir eru William
Gregory sem leikur á básúnu,
Snorri Sigfús Birgisson sem ieik-
ur á pianó, Óskar Ingólfsson sem
handleikur klarinett og Nora
Kornblueh sem sellóast.
■ Klúbburinn.
SUMARSÝNING í ÁSGRÍMSSAFNI
■ Sunnudaginn 23. mai verður
sumarsýning AsgrJmssafns opn-
uð. Að þessu sinni eru flestar
myndirnar á sýningunni vatns-
litamyndir og hafa margar þeirra
sjaldan verið til sýnis fyrr. Sýnd-
ar eru landslagsmmy.ndir viðs
vegaraðaf landinu, blómamynd-
ir og flokkur mynda úr þjóösög-
um, málaðar 1946. Þá eru einnig
sýndar nokkrar oliumyndir
þ.á.m. úr Húsafellsskógi.
Sumarsýningar Asgrimssafns
hafa jafnan veriö fjölsóttar af is-
lenskum og erlendum feröa-
mönnum. Sýningin veröur opin
sunnudaga, þriðjudaga og
fimmtudaga kl. 13:30-16 i mai, en
daglega nema laugardaga kl. 13:-
30-16 I júni, júli og ágúst. As- 74, Reykjavik. Aögangur aö safn-
grimssafn er aö Bergstaöastræti inu er ókeypis.
JOHANNES BRAHMS (1833-
1897): Kvintett fyrir pianó, 2 fiðl-
ur, viólu og celló i F-moll, op.34
Allegro non troppo, Andante un
poco adagio, Scherzo: Allegro,
Finale: Poco sostenuto.
Flytjendur: Laufey Sigurðar-
dóttir, fiöla, Júliana Elin Kjart-
ansdóttir fiðla, Helga Þórarins-
dóttir vióla, Richard Talkowsky
celló, Kristján Þ. Stephensen óbó,
Gisli Magnússson pianó.
Spegla-
salur
sálar-
innar?
— Sýning opnuð
■ Guðmundur einhver Björg-
vinsson opnar i dag, laugardag,
myndarlistarsýningu i Gallerii
Lækjartorgi og má eins gera ráð
fyrir að myndir hans hangi þar
næstu vikurnar. Einsog sjámá af
eftirfarandi fréttatilkynningu
tekur Guðmundur þessi sig afar
hátiðlega.
Speglasalur sálarinnar
verður i Galleri Lækjar-
torg næstu vikurnar
Þvi Guðmundur Björgvinsson
opnar myndlistarsýningu þar
laugardaginn 22. mai kl.2. En
málverk hans eru þeirri náttúru
gædd að sálarlif áhorfandans
(eða hugur) speglast i þeim.
M.ö.o. myndirnar eru þannig
staðsettar mittá milli abstrakt og
raunsæis að menn geta séð i þeim
nánast hvað sem þeim sýnist alllt
eftir upplagi hvers og eins. Þann-
ig sjá klámhundar gjarnan hams-
lausar kynlifsorgiur i myndum
þar sem prestar sjá Jesú og læri-
sveinana o.s.frv. Sumireru meira
að segja svo tærir að sjá ekkert
nema landslag og ávaxtaskálar
útúr sömu myndum, jafnvel
blóm. Það eru semsé engin tak-
mörk fyrir þvi sem menn geta séð
i myndunum, enda er sálarlif
mannanna að sögn botnlaust hyl-
dýpi.
Svartir viðbjóðslegir djöflar
skrimsli margs konar, englar’
kynfæri, bananar, lemstruð lik, i-
þróttakappar að leik, dansmeýj-
ar, rafmagnsverfæri, hundaskit-
ur, kjötvörur, allt þetta og margt
fleira má sjá i þessum sinnis-
speglum Það má jafnvel sjá
kjarna tilverunnar (essence of
existence) i þeim ef menn eru
þannig sinnaðir.
Þó eru alltaf einhverjir inn á
milli sem sjá ekkert nema mis-
jafnlega vel heppnaðar litakless-
ur i myndunum. En það er að
sjálfsögðu allt i lagi.
Semsagt þeir sem hafa áhuga á
spegla sálarlif sitt á næstunni
fara i Galleri Lækjartorg. Þeir
sem eru aftur á móti hræddir um
að einhver vafasamur óþrifnaður
leynist i skúmaskotum sálarinnar
ættu ekki að fara á sýninguna.
Það gæti haft hinar hörmulegustu
afleiðingar. Listamaðurinn tekur
enga ábyrgð á öllum þeim úr-
kynjaða viðbjóði sem fólk gæti
mögulega séð i myndunum. Ekki
frekar en að hann taki ábyrgð á
þviefeinhver feraðsjá pólitiskan
eða trúarlegan boðskap i þeim og
frábiður sér að stofnaður verði i
kringum sig stjórnmálaflokkur
eða trúarsöfnuður.