Tíminn - 23.05.1982, Blaðsíða 12

Tíminn - 23.05.1982, Blaðsíða 12
12 Sunnudagur 23. mai 1982 - Átökin við Falklands- eyjar valda deilum nm framtíð bandaríska flotans! ■ Það urðu vist margir undrandi um daginn þegar argentinsk eld- flaug gereyðilagöi breska tundur- spillinn Sheffield við Falklands- eyjar. Hvernig mátti það vera aö eitt nýtiskulegasta og fullkomn- asta herskip Breta var varnar- laust gegn einni einustu eldflaug? En menn hefðu ekki þurft að verða hissa. Um þessar mundir eru framfarir svo örar i tækni- og tölvubiinaði til hernaðar að margir telja að dagar hinna stóru striðsskipa séu taldir. Einkum hafa Bandarikjamenn — mesta sjóveldi jarðar, enn sem komið er — ástæðu til aö hafa áhyggjur af þessari þróun, en þeir byggja flota sinn upp kringum hin tröll- auknu flugvélamóðurskip sem sumir telja að verði Sovétmönn- um gefin veiði komi til striös milli stórveldanna. ■ Sheffield var grandað með einni eldflaug. t algerri árás Sovétmanna á bandariskt flugvélamóðurskip mætti búast við hundruöum eldflauga... I Nýjasta og fullkomnasta eldflaugabeitiskip Sovétmanna, Kirov. Slik skip gætu reynst Bandarikjamönnum þung i skauti. Dagar stóru Einmitt um það leyti sem Sheffield varð fyrir frönsku Exo- cet flauginni var þingiö i Washington að ræða framtiðar- horfur bandariska flotans, en Reagan forseti vill láta stórauka fjárveitingar til hans, og verði fyrsta skrefið 168 milljaröar doll- ara til byggingar nýrra skipa og endurbyggingar hinna eldri. Kjarni þessanýja flotaá sem fyrr aö veröa flugvélamóðurskipin en samkvæmt áætlun Reagans á að hefja nú þegar byggingu tveggja slikra skipa til viöbótar, er hvort um sig verði 90 þúsund lestir og bæði knúin kjarnorku.. Veröi af smiðinni mun bandariski flotinn næstu áratugina búinn 15 slikum skipum. Eins og flestum mun kunnugt voru það flugvélamóður- skipin sem réðu úrslitum i' sjó- hernaöi si'ðari heimsstyrjaldar og þau hafa margsannað gildi sitt siðan. Flotamálaráöherra Bandarikjanna, John Lehman segir: „Flugvélamóðurskip eru eina leiðin til að öðlast yfirburði i lofti yfir sjö tiundu hlutum jarðarinnar.” 65% likur á ósigri banda- riska flotans Spurningin er bara sú hvort flugvélamóðurskipin — sem hafa litiö breyst i grundvallaratriðum frá dögum Pearl Harbor og Mid way — muni lifa af þá róttæku tæknibyltingu sem nú á sér stað, i hernaöi jafnt og á öðrum sviöum. Ljóst er aö bandariskt risaflug- vélamóðurskip gæti þolað þó nokkrar Exocet flaugar án þess aö biöa verulegt tjón af, en sovéski flotinn hefur að vi'su yfir mun fullkomnari og fjölhæfari vopnum aö ráða, þar sem eru langdrægar eldflaugar, sprengju- þotur og afar fullkomnir árásar- kafbátar. Raunar má segja að vopnabúr sovéska flotans sé bein- linis miðað við að geta sökkt flug- vélamóðurskipum Bandarikja- manna, og þvi halda sumir Bandarikjamenn því fram að meðþvi aöbyggja fleiri slik risa- skip sé Sovétmönnum einungis gert auöveldara fyrir. Þeir krefj- ast þess að flotinn byggi fleiri en smærri skipsemgegnt geti mörg- um verkefnum I senn og gefi hugsanlegum óvini auk þess fleiri skotmörk svo hann þurfi að dreifa mætti si'num. Meðal þeirra sem halda þessu fram eru Stansfield Turner, flotaforingi og fyrrum yfirmaður CIA, og Elmo Zum- walt, fyrrum yfirmaöur áætlana- geröar flotans. Zumwalt segir að komi til striðs án þess aö flotinn hafi verið endurskipulagður séu sigurmöguleikar hans aðeins 35%-65% likur séu hins vegar á algerum ósigri. Ognvekjandi vopn Flugmóðurskipadeildir banda- riska flotans eru i raun strategisk mótsögn. Flotadeildin er i eðli sinu árásardeild en öll skipin fyrir utan flugvélamóöurskipið sjálft eru til varnar. 1 fylgd með flugvélamóðurskipi eru venju- lega eitt eða fleiri kjarnorkuknúin beitiskip en aðalhlutverk þeirra er að verjast árásum úr lofti og nokkrir tundurspllar bilnir eld- flaugum gegn ofansjávarskipum og tundurskeytum gegn kafbát- um. Þessi skip gæta svæðis i allt að 300 sjómilna radius frá flug- vélamóðurskipinu, niðri I undir- djúpunum eru árásarkafbátar á sveimi og birgðaskip eru jafnan til taks. Flugvélamóöurskipið sjálft er svo ógnvekjandi vopn. Lendingarpallur stærstu skip- anna er á við þrjá knattspyrnu- veiliaf allra stærstu gerð og flug- vélarnar geta farið á loft með nokkurra sekúndna millibili. Um borð eru 62 há þróaðar þotur: F-14 Tomcat orrustuþotur, árásarvél- ar af gerðunum A-6 Intruder og A- 7 Corsair, auk þess sem stöðugt eftirlitsflug véla af gerðinni E-2C Hawkeye gætir þriggja milljóna fermilna svaeðis kringum deild- ina. Sérfræðingar flotans halda þvi fram aö mun hagkvæmara sé aö reka 90 þúsund lesta risaskip af þessu tagi helduren 30 eða 50þús- undlesta skip sem ýmsir vilja nú að verði byggð I staðinn. Minni flugvélamóðurskip gætu borið færriflugvélar — og þau minnstu gætu alls ekki hýst F-14 þotuna — en kostnaöur Væri hlutfalislega helmingi meiri. Lehman flota- málaráðherra segir: „Ef við fær- um aftur til minni skipa sem bæru færri þotur, væru óöruggari og ekki eins hraðskreið þá sé ég ekki betur en að það væri að stiga eitt skref aftur á bak.” Fleiri og stærri skip Gagnrýnendur þessarar flota- áætlunar i' bandariska þinginu hafa sig engu að siöur mjög i frammi. 1 fararbroddi þeirra er Gary Hart, öldungadeildarþing- maður demökrata en hann segir að fyrir sama fé og færi f að byggja eitt kjarnorkuknúið risa- skip mætti smiöa þrjú minni flug- vélamóðurskip búin venjulegum vélum. Sömuleiöis vill Hart að flotinn hætti viðsmiði kjarnorku- knúinna beitiskipa búnum Aegis- eldflaugum og smiöi i staöinn tvö venjuleg beitiskip fyrir hvert eitt kjarnorkuknúið og hann vill jafn- vel að snúið verði frá byggingu kjarnorkuknúinna kafbáta og disel-bátar byggðir i staðinn. Lehman flotamálaráðherra ger- ir grin að tillögum Harts, og hefur kallaö litlu bresku flugvéla- móðurskipin við Falklandseyjar „Gary Hartflugvélaskip” og talið er að reynslan af átökunum við Falklandseyjar muni verða til þess aö þingið samþykki bygg- ingu risaskipanna tveggja sem fyrrvarminnst á. Einn aðstoöar- manna Harts segir að tapi hann baráttu sinni væri réttast að leggja til að skipin tvö verði skirð USS Belgrano og USS Sheffield! En andstaöan gegn risaskipun- um er þrátt fyrir allt býsna við- tæk. Zumwalt, sem áður var nefndur, vill til dæmis aö megin- áhersla verði lögö á að búa flot- ann nýjum og fullkomnum stýris- flaugum sem sovéski flotinn kunni enn ekki aö bregðast við og þeim flaugum væri best að koma fyrir i kafbátum, beitiskipum og nýrri gerð orrustuskipa. „Fyrir verð eins flugvélamóðurskips og þeirra fylgdarskipa sem sam- hliða þarf að byggja væri hægt að smiða mörg minni herskip sem gert gætu Sovétmönnum mjög er- fitt fyrir,” segir Zumwalt. Eins og e.t.v. mátti búast við eiga þeir sem vilja fleiri og smærri skip sér dygga stuönings- menn þar sem eru eldflauga- framleiöendur. Jacques Mitter- and hershöföingi og forstjóri fyrirtækisins sem framleiðir Exo- cet eldflaugarnar (hann er bróðir Frakklandsforseta) segir aö átökin við Falklandseyjar sanni að Jitil skip og jafnvel þyrlur, sem búnar eru öflugum eldflaugum geti haft sama eyðileggingarmátt og orrustuskip fyrri heimsstyrj- aldar og flugvélamóðurskip seinni heimsstyrjaldar. Flugmóðurskipin auðveld bráð? Þá hefur einnig verið á það bent að þrátt fyrir að varnir flug- móðurskipadeildanna virðist öflugar séu þau I raun auðveld bráð. Flugvélamóöurskip eru hlaöin eldfimum efnum, en það var einmitt eldurinn sem eyði- lagði Sheffield. Þó svo að áhöfn- um flugvélamóðurskipa hafi hingað til gengið vel að fást við eld um borð er óvi'st hvernig færi i raunverulegu striði. Einnig hefur verið bent á fram- burð bandariskra kafbátafor- ingja sem hafa ráöist aðflugvéla- móðurskipunum við flotaæfingar, hina svokölluðu „striðsleiki”. Þeir eru margir hverjir fullir fyrirlitningar þegar varnir flug- vélamóðurskipanna ber á góma. John L. Byron kafbátaforingi, skrifaði i grein i timarit flotans að kafbátavarnir flugvélaskipa- deildanna liktust einna helst svissneskum osti, svo gloppóttar væru þær. öruggar heimildir eru fyrir þvi að i möppu háttsetts starfsmanns i bandariska varnarmálaráöuneytinu sé aö finna afgerandi sannanir um að þetta sé rétt: nefnilega ijós- myndir sem teknar hafi verið gegnum sjónpipur kafbáts af flugvélamóðurskipum við striös- leiki af þessu tagi. ,,Min reynsla er sú,” segir kafbátaforingi sem nú er kominn áeftirlaun, „að það

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.