Tíminn - 27.05.1982, Qupperneq 19
Fimmtudagur 27. mai 1982
19
og leikhus - Kvikmyndir og leikhús
kvikmyndahornið
I .Annie”
og hund-
urinn
hennar.
Úr aug-
lýsingu
um nýju
mynd-
ina.
il
:
70 milljón dala
mynd um MAnnie
f f
■ Sú árátta bandariskra
kvikmyndaframieihenda að
fyigja vinsælum myndum eftir
meö röö kvikmynda um sömu
sögupersónur fer enn vaxandi.
A þessu ári eru nokkrar slikar
framhaldsmyndir væntanleg-
ar á markaö i Bandarikjun-
um. Þar ber fyrst aö nefna
þriöju mynd Sylvester Stall-
ones um hnefaieikakappann
Rocky, og heitir sú mynd cin-
faidlega „Rocky III”. Hún
verður frumsýnd vestra i júli.
I september er áætlaö að
framhald myndarinnar
„Grease” hefji göngu sina i
bandariskum kvikmyndahús-
um. Sú mynd sem auðvitað
heitir „Grease II” (þaö er
mikið hugmyndaflug i nafn-
giftum þarna vestra) og er
framleidd af Robert Stigwood
og Allan Carr. Aðalhlutverkin
eru i höndum Maxwell Caul-
field og Michelle Pfeiffer.
Þriðja framhaldsmyndin
mun væntanleg i desember.
Það er „Star Trek II”.
„The Next Sting” er svo enn
ein framhaldsmynd sem
væntanleg er i nóvember.
Þetta er framhald vinsællar
myndar „The Sting” en þar
fóru Robert Redford og Paul
Newman með aðalhlutverkin.
1 nýju myndinni leika meðal
annarra Jackie Gleason, Mac
Davis,01iver Reed, Teri Garr
og Karl Malden.
Erfiðleikar hjá Col-
umbiu
Columbia Pictures hefur
verið það kvikmyndafyrirtæki
i Hollywood sem gengiö hefur
hvað best siðustu árin. Segja
má að allt frá þvi að „Bláa
lónið” sló i gegn fyrir tveimur
árum hafi allar myndir Col-
umbiu gengið mjög vel fjár-
hagslega, hvað sem segja má
um kvikmyndirnar að öðru
leyti. Nú er hins vegar útlit
fyrir aö erfiðleikar séu fram-
undan.
Mikil óvissa rikir t.d. um
viðtökur þær sem „Annie” —
rosadýr mynd sem gerð er eft-
ir samnefndum söngleik —
mun fá i sumar, en hún hefur
nú nýlega verið frumsýnd og
fengið frekar slæma dóma
gagnrýnenda. Mynd þessi
kostar i framleiðslu litlar 50
milljónir dala, og talið er aö
dreifingar- og auglýsinga-
kostnaður veröi um 20 milljón-
ir dala i viðbót eða samtals 70
milljónir. Leikstjóri „Annie”
er John Huston.
Þrjár kvikmyndir sem eru i
framleiðslu hjá Columbia hafa
að sögn gengið erfiðlega bæði
vegna ófyrirséðs kostnaðar og
ágreinings. Tværþeirra verða
sýnilega mun dýrari en gert
var ráð fyrir — „Blue Thund-
er” sem er sögð „ævintýra-
martröð” i 1984-stilnum og
visindaævintýramynd sem
nefnist „Krull” Roy Scheider
sem hér er m.a. þekktur fyrir
leik sinn i þeirri frábæru mynd
„All That Jazz” fer með aðal-
hlutverkið i „Blue Thunder”.
Enn frekari vandamál eru
við gerð myndarinnar
„Tootsie” þar sem Dustin
Hoffman fer með aðalhlut-
verkið. Þar hefir ma. gengið
erfiðlega að semja handritið
(fjöldi manns hefurkomið þar
við sögu með umdeildum ár-
angrien fyrir stórfé), og tveir
leikstjórar hafa gefist upp við
myndina, Dick Richards og
Hal Ashby. Sá þriðji, Sidney
Pollack er þegar orðinn all-
verulega á eftir áætlun við
töku myndarinnar og mun þar
m.a. koma til ágreiningar á
milli hans og Hoffmans.
Hoffman leikur reyndar ó-
venjulegt hlutverk i þessari
mynd þ.e. karlmann sem get-
ur aðeins fengið starf með þvi
að þykjast vera kvenmaður.
Þetta er að sögn gamanmynd.
Hoffman hefur átt i ýmsum
vandræðum með þetta hlut-
verk. „Þetta er eins og að eiga
við vélhákarlana i Ókindinni”
segir Pollack i viðtali um þessi
vandamál. „Brjóst Dustin
Hoffmans haldast ekki á rétt-
um stað. Hann fær hælsæri af
háhæla skónum. Farðinn fer
ilia með andlitshúð hans, og
vegna hitans sést skeggrótin
greinilega eftir tveggja tima
tökur eða svo — og þó tekur
það þrjár til fjórar stundir aö
farða hann. Þetta tekur allt á
taugarnar.”
Það eru sem sé ýmis vanda-
mál i kvikmyndabransanum.
— ESJ
Elias Snæland
Jónsson
skrifar
Með hnúum og hnefum
Ránið á týndu örkinni
Dóttir kolanámumannsins
Gereyðandinn
Eldvagninn
Lögreglustöðin i Eronx
Fram i sviðsljósið
Stjörnugjöf Tímans
* * * ★ frábær ■ * ★ * mjög góö * * ★ gód • ★ sæmileg • O léleg