Tíminn - 02.06.1982, Side 11
Miövikudagur 2. júni 1982
11
minning
Magnús Stefánsson
í minningu Magnúsar Stefánssonar
fv. dyravarðar i Stjómarráðinu.
f. 30. apríl 1891
d. 25. maí 1982
■ Magnús Stefánsson var fæddur
að Heiðarseli í Hróarstungu en
fluttist í bernsku með foreldrum
sinum að Fremraseli i sömu sveit.
Barn að aldri missti hann.sjónina og
var alblindur i 5-6 ár. En um það
leyti sem fór að rofa til fyrir sjónum
hans reið annað áfallið yfir er hann
missti móður sína 10 ára gamall. Þá
leystist heimilið upp og var Magnúsi
komið fyrir í Brúnavík. Sjónin fór
batnandi svo að drengurinn varð að
fara að vinna og var ráðinn smali
fyrst að Sleðbrjót i Jökulsárhlíð og
siðar að Rangá í Hróarstungu. Þá
var sjónin orðin svo góð að hægt var
að kenna honum að lesa og skrifa,
og kverið lærði hann á hinn gamla
hefðbundna hátt í fjósinu.
Fermdir menn voru fullgildir i
vistum og fermingardaginn hélt
Magnús af stað upp á Jökuldal þar
sem hann var næstu árin, lengst
sauðamaður á Eiriksstöðum. Þaðan
fór hann á Búnaðarskólann á Eiðum
og lauk prófi tvítugur að aldri og var
næstu árin á Héraði. Á stríðsárunum
hafði hann ásamt fleirum á leigu
Eiðabúið. Hart var í ári, heyþrot og
erfitt til búskapar og stóð hann uppi
slyppur og snauður, en hélt til
Siglufjarðar þar sem helst var
peninga að vænta um þetta leyti.
Að lokinni Siglufjarðardvölinni
lá leiðin til Reykjavikur og lauk
Magnús prófi frá Samvinnuskólan-
um árið 1920. Þar kynntist hann
Jónasi Jónssyni frá Hriflu og átti
eftir að starfa lengi með honum og
gerast honum handgenginn. Varð
Magnús einn af ódeigustu baráttu-
mönnum Framsóknarflokksins í
Reykjavik - „bæjarradikölunum"
eins og ýmsir íhaldssamir stórbænd-
ur í flokknum nefndu þá og stóð
stuggur af.
Á þessum árum var hart i ári og
harka i pólitíkinni. Magnús átti
oftast sæti á framboðslistum flokks-
ins i Reykjavík, en aðalstörf sin
vann hann við Nýja dagblaðið sem
stofnsett var 1933. Þar var hann
afgreiðslumaður, blaðamaður og að
lokum framkvæmdastjóri þess og
Tímans skömmu áður en blöðin
voru sameinuð. Þá hafði hann
skömmu áður - 1936 - tekið við
dyravörslu í Stjórnarráðinu og sinnti
þvi starfi til sjötugsaldurs. Þar varð
hann mörgum kunnur og góður
leiðsögumaður þeim sem þangað
komu uppburðarlitlir og fullir
vanmáttar gagnvart þeim „háu
herrum" er þeir hugðust þar sækja
heim.
Eftir að Magnús tók við dyravörsl-
unni minnkaði hann pólitísk af-
skipti. Jónas frá Hriflu var hans
maður og á þessum árum hneig
veldissól hans innan Framsóknar-
flokksins til viðar, en einnig mun
hann' ekki hafa talið það samrýmast
stöðu sinni að taka opinberlega þátt
í stjómmálaátökum. En alla tið var
málstaður samvinnu og félagshyggju
honum kær og áhugi hans á
þjóðmálum vökull, þótt honum
fyndust ýmsir nýir foringjar litlir hjá
þeim gömlu.
Á bemskuárunum er Magnús var
blindur varð líkamlegur þroski hans
lítill. Varð hann því veikbyggður og
„óskapleg hryggðarmynd" eins og
hann sagði sjálfur um spegilmynd
sína í lækjarhyl eftir að hann hafði
fengið sjónina og var orðinn smali.
Þá mynd vildi hann hressa upp á og
varð sér úti um Möllersæfingar til að
þjálfa upp líkamann. Gerði hann
þær reglulega síðan allt fram á
sfðustu daga með þeim árangri að
hann varð hinn mesti þrekmaður og
vel byggður. Tók mikinn þátt í
Iþróttum og öðm ungmennafélags-
starfi á ámm sínum á Héraði og eftir
komuna til Reykjavíkur gekk hann
í Glimufélagið Ármann og var
talinn góður glímumaður. Síðar átti
hann sæti í stjórn þess félags og um
nokkurra ára skeið í stjórn ÍSÍ.
Árið 1921 giftist Magnús Arn-
björgu Jónsdóttur frá Seljamýri í
Loðmundarfirði og bjuggu þau í
Reykjavik síðan að undanskildum
árunum 1924-26 er þau voru i
Loðmundarfirði og á Seyðisfirði þar
sem Magnús stundaði m.a. akstur á
vömbil sem hann hafði keypt upp-
gefinn upp í Fagradal og gert upp
sjálfur.
Arið 1929 keyptu þau sumarbú-
staðinn Mörk sunnan í Laugarásn-
um og nefndu síðan Laugahvol.
Stóð heimili þeirra þar siðan þar til
þau byggðu með börnum sínum
Önnu og Jóni hús á sömu lóð þar
sem nú stendur Laugarásvegur 75.
Um tíma bjuggu þau i dyravarðar-
íbúðinni að baki stjórnarráðsins en
voru lengstum á Laugahvoli á sumr-,
in. Landið þar fengu þau á erfða-
festu - einn hektara sem var i
upphafi litið annað en grjót. En
hann tók snemma stakkaskiptum,
var grjóthreinsaður og síðan rækt-
aður. Með tímanum komu þau sér
upp hænsnabúi og höfðu auk þess
nokkrar kýr og kindur. Mun bú-
reksturinn einkum hafa komið á
Arnbjörgu og börnin þar sem bónd-
inn vann langan vinnudag og sinnti
auk þess ýmsum félagsmálastörfum.
En hún var ekki minni ræktunar-
maður en bóndi hennar, ein af þeim
konum sem hafa „græna fingur“ og
allt lifnar i námunda við. En
búreksturinn á Laugahvoli átti skjót-
an endi árið 1954. Staðurinn var
„orðinn fyrir“ i skipulaginu og
landið skyldi rýma með litlum fyrir-
vara. Tilhliðrunarsemi var engin hjá
ráðamönnum Reykjavikurborgar,
enda Magnús ekki á þeirra línu og
lóðirnar eftirsóttar.
Arnbjörg er nú látin fyrir tveimur
árum. Var fráfall hennar og veikindi
Magnúsi mjög erfitt, enda hafði
sambúð þeirra verið löng og góð.
Þau voru samrýmd og báru virðingu
hvort fyrir öðru og á ást þeirra sást
enginn fölskvi. Eftir lát Árnbjargar
dró nokkuð af Magnúsi enda
dapraðist honum þá sjónin sem
hann hafði ungur endurheimt.
Fyrir nokkrum árum gekkst hann
undir uppskurð á augunum hjá
Úlfari Þórðarsyni og fékk við það
nokkra bót. Var hann Úlfari afar
þakklátur fyrir umönnun sína. Þreki
sinu hélt hann fram undir það
siðasta og var jafnan heima á
Laugarásvegi þar sem börn hans
önnuðust hann af alúð. Síðustu
vikurnar dvaldist hann á Elliheimil-
inu Grund.
Börn þeirra Arnbjargar voru 4:
Guðbjörg, Anna María, Stefán (lát-
inn) og Ragnar Jón. f félagsskap við
syni sina stóð Magnús að stofnun
flugfélagsins Flugsýnar og starfaði
þar mikið á meðan það var við lýði
árin eftir að hann hætti í Stjórnar-
ráðinu.
Ég kynntist Magnúsi komnum á
níræðisaldur. Enn var hann þrek-
menni að burðum og léttur i hreyf-
ingum. Á þeim árum sinnti hann
ræktunarstörfum bæði heima við og
aðallega þó i Heiðarseli, sumar-
bústað sem hann hafði þá alllöngu
áður fengið að reisa á erfðafestu-
landi uppi við Elliðavatn. Þar átti
hann margt handtakið og fann
eljusemi sinni farveg.
Áhugi hans á þjóðmálum var enn
mikill og vildu samræður okkar
gjarnan leita á þau mið, eða aftur í
gamla tímann, störf hans i Reykja-
vík og uppvöxtur hans austur á landi
við alla þá erfiðleika sem raun bar
vitni. Það er hollt að hafa kynnst
manni af hans tagi, manni sem tókst
á við hverja raunina á fætur annarri
og hafði sigur allt þar til hinsta kallið
kom, manni sem ásamt kvnslóð
sinni barðist fyrir sjálfstæði Islands
og byggði þar nýtt þjóðfélag, manni
af kynslóð sem við skuldum meira
en við erum borgunarmenn fyrir.
Erlingur Sigurðarson
frá Grænavatni
OGNÚERÞAÐINNANLANDSDEILDIN
Farþega- og vöruafgreiðsla okkar er nú í eigin
húsnæði á nýjum staö á Reykjavíkurflugvelli,
Öskjuhlíóarmegin.
Öll starfseml innanlandsflugsins er nú á einum staó.
Farþegaafgreiðsla, vöruafgreiðsla, áætlunarflug,
leiguflug og sjúkraflug. Hafið samband við afgreiðsluna.
ARNARFLUG
Innanlandsflug 29577