Tíminn - 03.06.1982, Blaðsíða 10
FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1982
10 iWw
heimilistíminn umsjón: AKB
■ Vélarnar, sem baka og kæla kexið eru geysistórar og út úr þeim kemur kexið á færiböndum tilbúið til pökkunar
Framleiðum
22 tegundir af
kökum og kexi
Kexverksmiðjan
Frón heimsótt
■ Magnús Ingimundarson, forstjóri.
■ í siðustu viku sagði hér á síðunni
frá heimsókn i kexverksmiðjuna
Holt og nú er röðin komin að
Kexverksmiðjunni Frón, sem hefur
starfað siðan árið 1926. Forstjóri
kexverksmiðjunnar er Magnús Ingi-
mundarson og ég hitti hann að máli.
— „Við höfum átt erfitt uppdrátt-
ar undanfarið vegna innflutnings á
kexi, en við sækjum á aftur og
höfum töluvert rétt úr kútnum siðan
1980 og 1979“ sagði Magnús.
Framleiðslan hjá okkur er nú
60-70 tonn á mánuði flesta mánuði
ársins, en desember, janúar og febr-
úar eru daufir sölumánuðir. Með
fullri nýtingu á vélum gætum við
framleitt 100 tonn af kexi á mánuði,
en nú framleiðum við um 2/3 af
framleiðslugetunni.
“Eruð þið ekki með nýlegan
vélakost?“
„Jú, við fengum fyrstu nýju vél-
arnar 1976, en sumar gömlu vélarnar
eru ennþá i fuilu gagni. Kexið er sett
i umbúðir, strax og bakstrinum er
lokið.
„Hvað framleiðið þið margar teg-
undir af kexi?“
„Við framleiðum 22 tegundir af
kökum og kexi. Kökurnar eru ekki
eins vinsælar og kexið. Matarkexið,
mjólkurkexið og prins Albert eru
alltaf mjög vinsælar kextegundir,
einnig kremkexið og súkkulaði-
húðað kex. Það siðasttalda nýtur nú
mikilla vinsælda.
„Hvað eru margir starfsmenn hér
í verksmiðjunni?"
„Hér starfa við verksmiðjuna að
staðaldri um 60 manns og skrifstofu-
fólk að auki. Nú yfir sumarið fjölgar
reyndar fólki upp i 70, en þá er
framleiðslan langmest.
„Seljið þið eitthvað til útlanda af
framleiðslunni?“
„Við seljum aðeins til Færeyja og
þá aðallega matarkex eða Sailors'-
kex eins og það hét i gamla daga.
Sjómenn nota matarkexið mikið,
enda geymist það mjög vel.
„Eruð þið með nýjar tegundir á
markaðnum?
„Já, við erum með nýjar tegundir
af kremkexi og munum ef til vill fara
út í að framleiða fleiri nýjar teg-
undir, ef við náum fullri nýtingu á
vélunum.
AKB.
■ Við sykurmölunarvélina stcndur Ólafur Jónsson, sem sér um að mala
sykurinn og búa til kremið. Ólafur sagðist hafa unnið i Frón í 3 ár og líkaði
sér mög vel.
■ Þarna sést kexdeigið og h vernig það er mótað og á leið í bökunarofninn.
■ Og svo kemur kexið i pökkunum úr pökkunarvélinni og fer beint ofan
i kassa tilbúið fyrir neytandann.
" ' % ;
m
Fjölbreytt
sumarstörf fyrir
börn og unglinga
á Akureyri
■ Það er ýmislegt, sem börn og
unglingar á Akureyri geta tekið sér
fyrir hendur i sumar, m.a. verður
leikja og iþróttanámskeið fyrir börn
10 ára og yngri haldin á vegum
íþróttafélagsins Þórs, Knattspyrnu-
félags Akureyrar og Æskulýðsráðs
Akureyrar. Þau falla nú saman við
knattspyrnuskóla og æfingar yngstu
flokka félaganna.
Námskeiðin á vegum félaganna
hefjast 21. júni með innritun við
Glcrárskóla og Lundarskóla kl.
14.00 og fara námskeiðin fram á
iþróttavöllum félaganna.
Reiðskóli verður starfræktur og
verða þrjú námskeið i hesta-
mennsku fyrir börn 8 ára og eldri.
Þau hefjast 21. júni, 14. júli og 26.
júli. Það siðasta er haldið með þeim
fyrirvara að næg þátttaka fáist.
Þátttökugjald er kr. 400,00 og hefst
innritun mánudaginn 7. júní á
skrifstofu Æskulýðsráðs Akureyrar.
Skólagarðar fyrir börn á aldrinum
10-12 ára verða starfræktir og geta
börnin sótt um pláss hjá Vinnu-
miðiunarskrifstofunni. Vinna í
skólagörðum felst í ræktun á al-
gengum grænmetistegundum og er
uppskera barnanna laun þeirra fyrir
starfið.
Sumarbúðir fyrir börn eru við
Vestmannsvatn í Aðaldal á tima-
bilinu 7. júni — 20. júlí og eru fyrir
börn á aldrinum 7 — 13 ára. ÆSK
starfrækir sumarbúðir við Vest-
mannsvatn. Við Hólavatn í Eyja-
firði starfrækja KFUM og K sumar-
búðir fyrir börn og er innritun þegar
hafin í Kristniboðshúsinu Zion.
Sjónarhæðarsöfnuðurinn rekur
sumarbúðirnar Ástjörn i Keldu-
hverfi fyrir drengi á aldrinum 6-12
ára, en þar mun vera fullbókað í
sumar.
Siglinganámskeið verður fyrir
börn og unglinga 10 ára og eldri og
þeir sem hafa hug á að taka þátt í
því námskeiði eru beðnir að mæta
að bátaskýli Nökkva við Höpfners-
bryggjur laugardaginn 12. júní kl.
14.00.
í Vinnuskóla Akureyrar komast
unglingar á aldrinum 13-15 ára.
Gefinn er kostur á fjögurra tíma
vinnu fyrir hvern einstakling dag
hvern. Þó fá 15 ára unglingar fleiri,
tíma ef verkefni eru fyrir hendi.
Fyrir minnstu börnin eru svo
starfræktir á Akureyri 10 gæsluvellir
og þrir starfsvellir verða opnir:
Frábær á Syðri-Brekkunni, Smábær
i Glerárhverfi og Glæsibær i Inn-
bænum.
Félagsmiðstöðvar i Lundarskóla
og Glerárskóla verða nú í fyrsta
skipti opnar að sumarlagi og verður
þar opið hús annan hvern fimmtu-
dag kl. 8.30-11.
íþrótta- ogleikja-
námskeið ffyrir
börn í Reykjavík
■ Á vegum Reykjavíkurborgar verður efnt til
íþrótta og leikjanámskeiðs fyrir börn á aldrinum
6-12 ára frá 1. til 15. júní. Námskeiðið hófst í
fyrradag en enn þá er örugglega hægt að bætast í
hópinn. Á námskeiðinu eru kenndar frjálsar
íþróttir, knattspyrna og ýmsir aðrir leikir og annast
íþróttakennarar kennsluna. Kennsla fer fram alla
virka daga á eftirtöldum stöðum:
Fyrir 6-9 ára börn: Á
Melavelli
Laugardalsvelli
Leikvelli við Árbæjarskóla
íþróttavelli við Fellasskóla
Leikvelli við Álftamýrarskóla
Leikvelli við Grímsbæ
íþr.velli Þróttar v/Sæviðarsund
Leikvelli við Breiðholtsskóla
kl. 9,00-10.15
kl. 9.00-10.15
kl. 9.00-10.15
kl. 9.00-10.15
kl. 10.30-11.45
kl. 10.30L-H.45
kl. 10.30M1.45
kl. 10.30-11.45
Fyrir 10 til 12 ára börn: Á
Laugardalsvelli
Melavelli
íþróttavelli við.Fellaskóla
kl. 13.30-15.00
kl. 13.30-15.00
kl. 13.30-15.00}í
Námskeiðinu lýkur með íþróttamóti á íþrótta-
vellinum í Laugardal þann 16. júní.
Innritun á íþrótta- og leikjanámskeiðið fer fram
á kennslustöðunum og er þátttökugjald kr. 30.00.