Tíminn - 03.06.1982, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1982
17
iþróttir
„Anægður
með
markið”
— sagði Arnór
■ „Þetta var góður fyrri hálfleikur
hjá okkur og að sjálfsögðu er ég
mjög ánægður með markið sem ég
skoraði" sagði Arnór Guðjohnsen
eftir leikinn.
„Ef ég hefði náð aðeins meiri
sveig á boltann þá hefði hann farið
yfir Corrican og í markið" sagði Arn-
ór um skot sitt i’seinni hálfleik sem
Corrican varð að hafa sig allan við
til þess að verja. Arnór meiddist i
seinni hálfleik og varð hann að yfir-
gefa völlinn þegar tíu minútur voru
til leiksloka.
„Ég er búinn að vera slæmur í
hnénu síðan í febrúar og forráða-
menn Lokeren bönnuðu mér að
leika þessa leiki gegn Englandi og
Möltu. Ég hélt að þessi hvild sem ég
hef fengið undanfarið myndi nægja
mér en svo hefur ekki verið. Ég hef
litla trú á þvi að ég geti farið með
landsliðinu til Möltu. Ég átti von á
betri leik hjá Englendingunum en ég
var viss um að okkur tækist að
standa í þeim“ sagði Arnór. föp
„fsland
lék
mjög
vel”
■ „íslenska liðið lék mjög vel, þeir
áttu fyrri hálfleik en við aftur á móti
lékum betur í seinni hálfleik" sagði
Bobby Robson framkvæmdastjóri
eftir leikinn.
„íslenska liðið gafst aldrei upp og
í seinni hálfleik þegar við sóttum þá
vörðust þeir mjög vel í vörninni.
Völlurinn var erfiður og það háði
mínum mönnum nokkuð.“ Robson
sagði að hann hefði verið ánægður
með leikinn. Það er algjör fjar-
stæða“ sagði Robson er hann var
spurður hvort hann hefði álitið
fyrirfram að þessi leikur myndi
verða auðunninn fyrir England.
Robson sagði að á morgun myndi
verða haldinn fundur og þá yrði
endanlega valinn 22 manna hópur
fyrir HM-keppnina. Hann sagði að
nokkrir leikmenn hefðu átt góðan
leik gegn íslandi, m.a. Hoddle og
Withe og einnig Goddard. Regis
varð að fara út af vegna meiðsla og
sagði Robson að litlar líkur væru á
því að hann myndi verða með í 22.
manna hópnum. röp.-
„Gáfum
engan
frid”
— sagði Teitur
Þórðarson
■ „Fyrri hálfleikurinn hjá okkur
var sérlega góður og við sýndum
góðan leik alveg fram að markinu
en þá kom dauður kafli hjá okkur“
sagði Teitur Þórðarson eftir leikinn.
Eftir markið þá misstum við niður
miðjuna og það var nóg til að við
fengum á okkur þetta mark. Við
gáfum þeim engan frið til þess að
byggja upp, tókum vel á móti þeim
og að við skyldum hafa eitt mark yfir
var engin tilviljun. Ég hef trú á því
að þessi úrslit geri okkur gott fyrir
leikinn gegn Möltu. Við þurfum að
ná upp sömu baráttunni og ég vona
að úrslitin í þeim leik verði okkur
hagstæð“ sagði Teitur.
■ Karl Þórðarson sést hér í baráttu við enskan landsliðsmann i landsleiknum í gærkvöldi þar sem Island sýndi mjög góðan leik og enskir mörðu
jafntefli 1-1. Ttmamynd Ró
ísland England í gærkvöldi:
Englendingar
nádu jafntefli
• Stórgóður leikur íslenska liðsins, sérstaklega í fyrri hálfleik
* Stórleikur Glenn Hoddle, það eina sem sást til enska liðsins
■ Rúmlega ellefu þúsund áhorf-
endur urðu í gærkvöldi vitni að þvi
er enska landsliðið i knattspymu
náði jafntefli gegn islenska landslið-
inu í landsleik sem fram fór á
Laugardalsvelli. Lokatölur urðu 1:1
eftir að islenska liðið hafði haft
forystu f leikhléi 1:0.
Leikurinn var vel leikinn af
beggja liða hálfú og þá sérstaklega
islenska liðsins i fyrri hálfleik þegar
leikur liðsins kom þægilega á óvart.
Eftir gangi leiksins vora þetta sann-
gjöm úrslit og hefði það verið mjög
ósanngjamt ef islenska liðið hefði
tapað leiknum. Leikur liðsins var of
góður til bess.
íslenska liðið byrjaði leikinn af
nokkrum krafti og kom enska liðinu
oft í opna skjöldu með leikni sinni.
Sérstaklega voru það miðjumenn-
imir sem léku knettinum oft
skemmtilega sín á milli og á stund-
um voru jgnsku snillingarnir grátt
leiknir.
Fyrsta hættulega marktækifæri
leiksins kom á 14. mínútu er Atli
Eðvaldsson gaf vel fyrir mark Eng-
lendinga á Arnór Guðjohnsen sem
átti gott marktækifæri en aðeins
munaði sentimetrum að hann næði
til knattarins. Og áfram héldu ís-
lensku leikmennirnir að sækja á
enska markið og uppskeran varð að
marki á 23. mfnútu. Þá lék Atli mjög
laglega á nokkra andstæðinga sina
áður en hann sendi snilldarsendingu
upp i hornið á Lárus. Hann gaf síðan
mjög góða sendingu á Arnór sem
var svo til óvaldaður við vitapunkt
og gott skot hans réð Joe Corrigan
ekki við. íslenska liðið hafði tekið
forystu og allt ætlaði vitlaust að
verða á Laugardalsvellinum. Þrátt
fyrir góða leikkafla beggja liða það
sem eftir lifði fyrri hálfleiks tókst
hvorugu liðinu að skapa sér hættuleg
tækifæri og staðan þvi i leikhléi 1:0
íslandi í vil.
Ekki munaði miklu að Arnóri
tækist að skora öðru sinni þegar um
11 mínútur voru búnar af síðari
hálfleik. Þá fékk hann góða send-
ingu á miðjum vallarhelmingi Eng-
lendinga, lék lagiega á Viv Ander-
son, skaut siðan mjög góðu skoti
sem stefndi í bláhomið en Corrigan
varði af mikilli snilld. Þegar hér var
komið sögu fóru Englendingar að
sækja meira og samfara því fór
íslenska liðið að gefa eftir og voru
leikmenn þess greinilega orðnir
þreyttir. Það var svo á 25. minútu
sem reiðarslagið kom. Glenn
Hoddle, yfirburðarmaður á vellin-
um í gærkvöldi, braust þá upp
vallarhelming íslendinga og þegar
hann var að komast í gott skotfæri
gaf hann snilldarsendingu á Paul
Goddard sem var ekki i vandræðum
með að skora jöfnunarmarkið, 1:1.
Sókn enska liðsins var nokkuð
þung i lokin en næst komust Eng-
lendingar þvi að ná forystu þegar
skalli Russels Osmans skall í þver-
slá. Fleira markvert skeði ekki í
leiknum.
Ástæða er til að vera ánægður
með leik islenska liðsins, sérstak-
lega fyrri hálfleikinn. Þá lék liðið oft
mjög vel. Samleikur Iiðsins var mjög
góður og vörnin var nokkuð traust.
Arnór Guðjohnsen, Janus Guð-
laugsson og Guðmundur Baldurs-
son voru bestu menn íslenska liðsins
en i heild áttu allir leikmenn liðsins
góðan dag ef undan er skilinn Teitur
Þórðarson sem sást varla i leiknum,
hverju sem um er að kenna.
Enska liðið olli miklum vonbrigð-
um og það var aðeins snilldarleikur
Glenn Hoddle sem gladdi augað.
Varla að mistækist hjá honum
sending i leiknum.
Dómari var frá Danmörku, Ib
Nielsen og var mjög lélegur. Hins
vegar stóðu íslensku línuverðirnir
Gísli Guðmundsson og Kjartan
Ólafsson sig ÍVábærlega vel og þá
sérstaklega Gísli þar sem þetta var
hans fyrsti stórleikur.
Árni í
stað
Arnórs
■ Arnór Guðjohnsen fór ekki með
islenska landsliðinu til Sikileyjar i
morgun vegna meiðsla sem hann
hlaut i landsleiknum i gærkvöldi.
Jóhannes Atlason landsliðsþjálfari
bætti Árna Sveinssyni, Akranesi í
hópinn i gærkvöldi í stað Arnórs.
röp-.
99
Léku allir
mjög vel”
— sagði Jóhannes Atlason
■ „Ég er ánægður með úrslitin í
leiknum og það var oft í leiknum
sem brá fyrir mjög góðu spili hjá
strákunum" sagði Jóhannes Atla-
son landsliðsþjálfari eftir leikinn.
„Við áttum mjög góðan fyrri
hálfleik og það sést einna best á
þvi að við fengum 6 hornspyrnur,
en þeir enga. Enska liðið keyrði
upp mikinn hraða i seinni hálfleik
og við það misstum við „kontakt"
i leiknum. Maður er farinn að
búast við ýmsu af þessum strák-
um“ sagði Jóhannes er við spurð-
um hann hvort hann hefði átt von
á þessum úrslitum fyrirfram.“
„Það er alltaf auðvelt að vera
vitur eftir á“ sagði Jóhannes er við
spurðum hvort hann hefði ekki átt
að skipta fyrr inn, gefa t.d. Sigurði
Grétarssyni fyrr möguleika.
„Trausti kom mér mjög á óvart,
hann spilaði að minu mati i kvöld
sinn besta leik i 2 ár“ sagði
Jóhannes er hann var spurður
hvort einhver leikmaður hefði
komið honum á óvart. „Annars
léku strákamir allir mjög vel og
það var greinilegt að þeir voru
ekkert að hugsa um leikinn gegn
Möltu, þeir lögðu sig atlir fram“
sagði Jóhannes. röp-.