Tíminn - 03.06.1982, Qupperneq 20
VARAHL.UTIR Mikið úrval
Sendum um land allt
Kaupum nýlega Opið virka daga
bíla til niðurrifs ® 19 La“g“>-
Simi (91) I- 75-51, (91 ) 7 - 80-30. daga 10 16
HEDDHF. SkeK„paUvVog 20 HEDD HF.
Gagnkvæmt
tryggingafélag
labnel
HÖGGDEYFAR
QJvarahlutir
Armtila 24
Sími 36510
■ „Ég var orðinn mjög þreyttur og var rétt að
byrja að synda aftur eftir að hafa hvílt mig um
stund þegar Ingimundur náði mér,“ sagði Jóhannes
Reynisson, tæplega ellefu ára drengur sem ásamf
sex jafnöldrum sínum lenti í miklum hrakningunt
á siglingaæfingu fyrir utan sunnanvert Seltjarnar-
nes í gærmorgun. Tíminn hitti Jóhannes að máli
síðdegis í gær.
Drengirnir sjö voru á þremur
bátum, tveimur seglskútum og ein-
um kajak. Talsverður strekkingur
var og misstu þeir vald á öllum
fleyjunum þannig að þau fylltust af
vatni og möruðu við yfirborðið. í
samfloti með drengjunum var stór
gúmbátur með utanborðsmótor og
átti hann að koma til hjálpar ef
eitthvað færi úrskeiðis. Svo óheppi-
lega vildi til að utanborðsmótorinn
bilaði og rak þvi bátinn stjórnlaust
frá drengjunum. Kona sem býr í
nærliggjandi húsi sá hvernig komið
var og lét hún lögregluna á Seltjarn-
arnesi vita.
„Það var guðsmildi að ekki varð
stórslys þarna," sagði Ingimundur
Helgason, lögreglumaður á Sel-
tjarnarnesi en það var hann sem
synti út og kom Jóhannesi til
bjargar. „Þegar við komum þarna
að voru strákarnir talsverðan spöl
frá landi. Fimm þeirra héldu kyrru
fyrir í bátunum, en tveir reyndu að
synda i land.Öðrum þeirra gekk það
ágætlega en hinn hætti að synda. Þá
sá ég þann kost vænstan að fara á
móti honum og það gekk sem betur
fer,“ sagði Ingimundur.
Lögreglan úr Reykjavík kom á
vettvang með gúmbát og tókst þeim
að bjarga drengjunum fimm sem
héldu kyrru fyrir í bátunum.
Þess má geta að Ingimundur
Helgason hefur áður unnið frækileg
björgunarafrek. Eitt sinn tók hann
þátt i að bjarga tveimur manneskj-
um úr bil sem fór fram af bryggju i
Reykjavikurhöfn og sökk.
-Sjó.
FIMMTUDAGUR 3. JUNI 1982
fréttir
■ Þriðjungur ASI
félaga í verkfall 10
og 11
■ Af alls 146 félögum
innan ASÍ sagði Þor-
steinn Pálsson aðeins 48
hafa hlýtt kalli ASÍ um
vinnustöðvun dagana
10. og 11. mai n.k. 98
hafi því neitað, þar af
um 21 af um 46 félögum
innan Verkamannasam-
bandsins.
Af stórum félögum
sem ekki hafi boðað
stöðvun þessa daga
nefndi hann t.d. Fram-
sókn og Iðju i Reykja-
vik. En þess skal getið
að formaður Iðju kvað
félagið hafa samþykkt
stöðvun og póstsent til-
kynningu þess efnis til
VSÍ á eðlilegum tima í
gær. Þá báfust ekki boð
um stöðvun 10. og 11.
frá Verkalýðsfélagi
Suðurnesja, frá Snæ-
fellsnesi, engu félagi á
Vestfjörðum, hvorki úr
Húnavatnssýslum, frá
Sauðárkróki, Siglufirði
né Húsavík.
-HEI
Stöðvast hljoðvarp
á miðnætti?
■ „Ég fæ ekki annað
séð en að útsendingar
stöðvist á miðnætti i
nótt. Við sátum á fund-
um með viðsemjendum
okkar í dag og út úr því
fékkst ekki neitt,“ sagði
Þórir Steingrímsson,
tæknimaður hjá útvarp-
inu i samtali við Tímann
í gærkvöldi.
Sem kunnugt er fara
tæknimennirnir fram á
að fá fimm launaflokka
hækkun fyrir byrjendur
og eru aðrar kröfur
þeirra i samræmi við
það. Fjármálaráðuneyt-
ið hefur ekki gert tækni-
mönnum gagntilboð.
Engir fundir hafa verið
ákveðnir í dag.
-Sjó.
■ Ingimundur Helgason, lögreglumaður sem kom Jóhannesi til bjargar í gærmorgun. Á litlu myndinni eru þeir saman Jóhannes og Ingimundur.
Tímamyndir Róbcrt
BJARGAÐI DRENG A SUNM
Bíó og vídeó Kímni á bók
■ Nýja bíó hefur nýlega
tekið til sýninga myndina
„Forsetaránið“ (The Kid-
napping of the President),
sem þvkir hin prýðilegasta
kvikmynd og ætti að öðru
jöfnu að laða að töluverðan
fjölda áhorfenda. Nokkur
áhöld eru þó um hvort svo
verði, þvi fáar myndir
munu hafa gengið jafn stíft
i hinum ýmsu vídeó-kerfum
borgarinnar að undan-
fömu...
■ Um þessar mundir er að
koma út hjá forlaginu
Arnartak bók sem ncfnist
„Gamanmál - 211 kimni-
sögur og kjamyrði frá ýms-
um heimshomum“ Hér
era tvö sýnishorn:
„Opinbcr innheimtu-
stofnun i Reykjavík ritaði
fýrirtæki úti á landi harðort
bréf og krafðist tafariausrar
greiðslu á gjaldfallinni
skuld. Stofnunin fékk þetta '
svar:
í lok hvers mánaðar lát-
um við alla ógreidda reikn-
inga í stafla á borðinu hjá .
okkur. Úr staflanum drög-
um við 10 stykki og greiðum
þá. Ef þér ekki bara haldið
yður á mottunni verðið þér
ekki einu sinni með i næsta
drætti.“
Og svo ein af þeim Ólafi
Thors og Hannibal:
„Ólafur Thors og Hanni-
bal Valdimarsson elduðu
löngum grátt silfur á Al-
þingi, enda báðir miklir fyr-
ir sér, manna skjótastir til
svars og margt likt með
þeim.
Eitt sinn var það þegar
stjóm var nýspmngin undir
Ólafi sem forsætiráðherra,
að hann kemur háleitur nið-
ur stigaþrepin fyrir ofan
kringlu, þumalfingumir
undir vestisboðungunum
aðrir fingur frjálsir og á iði,
eins og stundum var háttur
hans, en nú lá svo vel á
kempunni að hún raular
fyrir munni sér. Upp á stiga-
pallinn snarast þá Hanni-
bal Valdimarsson, fljótur til
sem fyrri daginn, enda mað-
ur að vestan, gellur við
háðslega:
Er nú strandkapteinninn
farinn að syngja?
Já, - og skitkokkurinn
má taka undir, svaraði Ólaf-
ur“
Krummi ...
er á þvi að af tvennu illu er
skárra þegar Ragnar lokar
til að hækka en til að
hætta...
mmmm
WSSBM
IHHBHHHHBHHHHHHBHBHBIHHB9BBH9H