Tíminn - 10.06.1982, Síða 6

Tíminn - 10.06.1982, Síða 6
FIMMTUDAGUR 10 JÚNÍ 1982 stuttar fréttiri irm >- * m ■ Hið nýja skip, Guðlaugur Guðmundssun, sjósettur á ísafirði á sjómannadaginn. Timamynd G.Sv. Nýtt 162 tonna stálskip sjósett á ísafirði ÍSAFJÖRÐUR: Á sjómannadaginn var sjósett nýtt 162 tonna stálskip frá Skipasmíðastöð Marselíusar Bern- harðssonar á ísafirði. Skipið er smiðað fyrir Enni h.f. i Ólafsvik og er útbúið til neta, línu og togveiða. Við sjósetninguna gaf frú Lydía Ólafsdóttir skipinu nafnið Guðlaug- ur Guðmundsson. Áætlað er að Guðlaugur Guðmundsson verði til- búinn i júnilok. Þetta skip er 52. nýsmiði frá Skipasmiðastöð Marsel- íusar Bernharðssonar. - HEI Ævintýraferð fyrir sjómenn framtíðarinnar ÍSAFJÖRÐUR: Á ísafirði er það orðin árleg hefð að hátíðahöld sjómannadagsins hefjist með svolit- illi ævintýraferð fyrir yngstu borgar- ana. Það er árlegur viðburður að Sjómannadagsráð fer með krakkana á ísafirði i skemmtisiglingu i Djúp- inu og veiti þeim kók og svoleiðis. Núna var farið á togaranum Páli Pálssyni, mb. Víkingi III og mb. Guðnýju og voru öll skipin þéttsetin af fólki, börnum og foreldrum margra þeirra. Siglt var inn undir Æðey og Vigur og upp undir Snæfjallaströndina. Sern nærri má geta þykir krökkunum þetta mikið ævintýri og láta sig ekki vanta í þessar ferðir. - HEI Fjögurra flokka bæjar- stjórnarmeiri- hluti ÍSAFJÖRÐUR: Nýkjörin bæja- stjórn ísafjarðar kom saman til sins fyrsta fundar s.l. fimmtudagskvöld. Myndaður var nýr meirihluti allra flokka nema Sjálfstæðisflokks, þ.e. Framsóknarflokks, Alþýðubanda- | lags, Alþýðuflokks og Félags óháðra borgara. Á þessum fyrsta fundi var Kristján Jónasson frá Alþýðuflokki kosinn forseti bæjarstjórnarinnar. Flokkarnir munu síðan árlega skipta með sér embættum innan bæjarkerfisins. - HEI Ráðstefna um landbúnaðar- málefni NORÐURLAND: í tilefni af 100 ára afmæli Bændaskólans á Hólum verður efnt til ráðstefnu i Varmahlíð í Skagafirði n.k. föstudag 11. júní á vegum Fjórðungssambands Norð- lendinga. Á ráðstefnunni verða tekin fyrir þrjú viðfangsefni: „Staða landbúnað- arins“, þar sem framsögumenn verða Pálmi Jónsson, landbúnaðarráð- herra og Ingi Tryggvason formaður Stéttarsambandsins. Hringborðsum- ræður verða siðan um þetta efni undir stjórn Egils Bjarnasonar, ráðunautar á Sauðárkróki. Næsta efni er: Nýjar leiðir i landbúnaði, þar sem framsögumenn verða Árni ísaksson, fiskifræðingur, Sigurjón Bláfeld Jónsson, loðdýra- ræktarráðunautur og Árni G. Pét- ursson, hlunnindaráðunautur. Um- ræðum unt þetta efni stjórnar Ari Teitsson, ráðun. i S-Þing. Þriðja og síðasta efnið er: Búnað- arfræðsla og tækniþjónusta i land- búnaði. Framsögumenn verða: Jón- as Jónsson, búnaðarmálastjóri, Björn Sigurbjörnsson, forstj. RALA, Jón Bjarnason, skólastj. á Hólum og Jón Árnason, tilraunastj. á Möðruvöllum. Umræðum um þetta efni stýrir Jóhannes Sigvalda- son, framleiðslustj. á Akureyri.HEI Tvílembum enn gefid á húsi ÍSAFJARÐARDJÚP: „Já, fé hefur verið á gjöf alveg fram undir þetta. En nú hefur veður verið gott í 3 - 4 daga og við þvi að verða bjartsýnir“, sagði Jón Guðjónsson, bóndi á Laugabóli i Ögurhreppi er við spjölluðum við hann nú í vikunni. Jón sagði fjölda bænda með féð á túnum ennþá og suma með tvílemb- umar á húsi og þá gefa þeim með beitinni. Hann kvað túnin orðin græn, en sprettu þó ákaflega litla og ennþá klaka í jörð. Alger stöðnun hafi nú verið frá um 20. maí, en þetta verði nú væntanlega fljótt að breyt- ast með hlýjunni. T.d. sé birkið nú að byrja að springa út. Jón telur vorið nú nálgast að vera jafn vont og var árið 1979. - Svo það verður bið á að þið getið farið að slá? -„Nefndu ekki slátt. Það verður rólegt a.m.k. næstu 6 vikur". Fyrsta úthafsrækjan ÍSAFJÖRÐUR: „Fyrsti rækjubát- urinn - Bryndis - var að koma inn með úthafsrækju í morgun. Hann var 2 sólarhringa úti og fékk 4 tonn, sem þykir svona sæmilegt", sagði Guðmundur Sveinsson, netagerðar- meistari á ísafirði er hann var spurður tíðinda úr plássinu s.l. þriðjudag (8. júni). Guðmundur og hans menn eru þvi auðvitað í óða önn að útbúa rækjunetin, því bátarnir fara nú að tínast út hver af öðrum á úthafsrækjuna. Guðmundur sagði ágætis veður, sumarblíðu og bjart yfir frá þvi á laugardeginum fyrir sjómannadag. Togararnir voru allir farnir út eftir að menn höfðu skemmt sér á sínum helsta hátiðisdegi. - HEI Barnaverndarnefnd Reykjavfkur: VILL FJARLÆGJA SPIIAKASSA RAUDA KROSSINS — frá þeim stöðum, sem börn og unglingar sækja ■ „Það er skoðun Barnavemdar- nefndar að spilakassar Rauða kross íslands, sem komið hefur verið upp víða i borginni, hafi neikvæð og skaðleg uppeldisáhrif og leggur því nefndin til að þessir kassar verði Ijarlxgðir frá þeim stöðum, sem börn og unglingar sækja,“ segir i samhljóða ályktun Barnaverndar- nefndar Reykjavíkur frá siðasta fundi hennar. Er þessi samþykkt gerð í framhaldi af greinargerð sem undirnefnd á vegum Barnaverndarnefndar hefur tekið sam- an og fjallar um starfsemi leiktækjasala hér í borginni. Telur Barnaverndar- nefnd nauðsynlegt að borgaryfirvöld geri átak í því að bæta tómstunda- og skemmtanaaðstöðu barna og unglinga með það fyrir augum að draga úr félagslegum árekstrum og stuðla að heilbrigðu félagslifi. Jafnframt er það skoðun nefndarinnar að nauðsynlegt sé að herða eftirlit með rekstri leiktækjasala og gera auknar kröfur til leyfishafa hvað varðar heil- brigt umhverfi, hreinlæti og annan aðbúnað. Álítur nefndin að takmarka eigi nú þegar aðgang að leiktækjasölum við 16 ára aldur. -Eás Konur nú með meiri- hluta fsex nefndum ■ Á borgarstjórnarfundi sl. fimmtu- dagskvöld var kosið i 31 nefnd og trúnaðarstöður á vegum Reykjavíkur- borgar ýmist til næsta árs eða næsta kjörtimabils alls. Ef litið er yfir 24 helstu nefndir og stjórnir kemur í Ijós að kvenfólk er i meirihluta í sex nefndum hjá Reykjavikurborg. Hefur því nokkuð þokast i jafnréttisátt á þessu sviði. Fulltrúar af báðum kynjum eru jafn- margir i tveimur ncfndum, konur eru í minnihluta í 12 nefndum, en hreinar karlanefndir eru nú aðeins fjórar. Frestað var kosningu í Hafnarstjórn að sinni þar sem ágreiningur mun innan Alþýðubandalagsins um hver eigi að hljóta sætið innan þeirra raða. Að öðru leyti gengu kosningar greitt fyrir sig. Sjálfstæðismenn eru með meirihluta og formann i öllum nefndum, nema stjórn Sjúkrasamlags Reykjavíkur, þar sem meirihluti og minnihluti borgarstjórnar hafa jafn marga fulltrúa, eftir að alþýðubandalagsmenn unnu hlutkesti við sjálfstæðismenn um kjör fjórða mannsins í stjórnina. Samkomulag náðist á milli Framsókn- arflokks, Kvennaframboðs og Alþýðu- flokks um samstarf um kjör í nefndir, sem kallað hefur verið miðflokkabanda- lagið. Gekk það i stórum dráttum út á það að Framsóknarflokkur og Kvenna- framboð skiptu með sér til helminga borgarráði og launamálanefnd borgar- innar, en að öðru leyti skiptu þessir listar með sér jafnt öðrum nefndarstörfum. Alþýðuflokkurinn var þó sýnu minnstur i samstarfinu. Nær samstarfið til kjörs í fleiri nefndir en kosið var i sl. fimmtudag, þannig að úrslit þeirra kosninga gefa ekki alrétta mynd af samkomulaginu. í þriggja manna stjórnum náði miðflokkabandalagið inn einum fulltrúa á móti tveimur fulltrúum sjálfstæðis- manna, en Alþýðubandalagið stendur þar eitt fyrir utan. Alþýðubandalagið gafst þó ekki upp og bauð fram fulltrúa í allar þriggja manna stjórnir og gætti sín á því i flestum tilfellum að stilla upp kvenmönnum til að freista fulltrúa Kvennaframboðsins i borgarstjórn, en það er yfirlýst stefna þess að auka áhrif kvenna í stjórn borgarinnar. En skratt- inn hitti þar fyrir ömmu sína, þvi miðflokkabandalagið hafði í öll skipti, utan eitt, stillt upp kvenfólki i nefndirnar, og þvi til litils fyrir Kvennaframboðið að falla i freistni. Var staðið við samkomulagið í hvívetna. -Kás Þjófavarn- arkerfi sett upp í Árbæjar- safni? ■ Nú eru uppi hugmyndir um að koma upp viðunandi þjófa- og eldvarnakerfi , fyrir Árbæjarsafn, sem tengja má við lögreglustöðina í hverfinu, eftir stórinn- brotið i safnið á dögunum. í samráði við lögregluna og ráðgjafa hennar i öryggis- búnaði hefur verið leitað tilboða um hver yrði hugsanlegur kostnaður við uppsetningu slíkra tækja. Áætlaður kostnaður við verkið er um 130 þús. kr., og er þá gert ráð fyrir sérstakri stjórnstöð á skrifstofu safnsins. Þangað berast boð úr húsunum i kring og þaðan aftur á lögreglustöð. Úti í húsunum yrði aftur á móti komið upp búnaði af ýmsu tagi, s.s. hreyfi- skynjurum, rofamottum, seguldyrarof- um, rúðubrotsskynjurum og fleiru i þeim dúr. Umhverfisinálaráð borgarinnar hefur samþykkt að beina þeim tilmælum til borgarráðs að veitt verði aukafjárveiting til kaupa og uppsetningar á kerfi i þessa veru fyrir Árbæjarsafnið. ArsreikningurReykjavíkurborgar fyrir árið 1981 lagður fram: Þriðja fjárhags- áætlunin, sem ekki er hróflað við ■ Ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 1981 var lagður fram til fyrri umræðu á borgarstjórnarfundi sl. fimmtudagskvöld. Frávik ársreiknings, þ.e. endanleg niðurstaða á rekstri og framkvæmdum borgarinnar, frá upphaf- legri fjárhagsáætlun Reykjavikurborgar fyrir árið 1981 eru mjög lítil. Er þetta þriðja fjárhagsáætlunin í röð á síðasta kjörtímabili sem ekki hefur þurft að taka upp og endurskoða á miðju fjárhagsári, eins og svo oft tiðkaðist i tíð meirihluta sjálfstæðismanna. Eina fjár- hagsáætlunin sem taka þurfti upp á siðasta kjörtímabili er áætlunin fyrir árið 1978, sem fyrrverandi vinstri meirihluti fékk í arf eftir Sjálfstæðis- flokkinn. Tekjur borgarinnar voru áætlaðar á siðasta ári um 633 millj. kr., en urðu sem næst 643.4 millj. kr. Það er 10.4 millj. kr., umfram áætlun, eða 1.6%. Heildargjöld voru áætluð 483.2 millj. kr., en reyndust verða 499.1 millj. kr. Það er 15.9 millj. kr. yfir áætlun, eða 3.3%. Þar á móti lækkar sú tala sem áætlað var að verja til eignarbreytinga úr 149.8 millj. kr. i 144.3 millj. kr., eða 5.5. millj. kr., en auknar tekjur voru 10.4 millj. kr. eins og áður hefur komið fram. „Skuldaaukning borgarsjóðs varð óveruleg, og þá aðeins hvað varðar Droplaugarstaði og Strætisvagna Reykjavíkur. Aukning skammtímalána og skammtímaskulda haldast nokkurn veginn i hendur, þó stuðullinn sé nokkuð óhagstæðari árið 1981, en árið á undan. Aðalatriðið er þó það að ársreikningurinn sýnir mjög góða fjár- hagsstöðu borgarsjóðs um síðustu ára- mót“, sagði Kristján Benediktsson, borgarfulltrúi i samtali við Timann. Ársreikningnum hefur nú verið vísað til annarrar umræðu, en milli umræðna verður lögð fram í borgarráði skýrsla endurskoðunardeildar, og verður fjallað um hana á næsta fundi borgarstjórnar. -Kás -Kás

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.