Tíminn - 02.07.1982, Qupperneq 1
„Helgarpakkirm” fylgir Tímanum í dag
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTT ABLAÐ!
Föstudagur 2. júlí 1982,
147. tbl. 66. árg.
Síðumúla 15 -Pósthdlf 370Reykjavík-Ritstjórn86300 - Auglýsingar 18300 - Afgreiðsla og áskrift 86300 - Kvöldsimar 86387 og 86392
Ótrúleg ökuferð 2ja smábama á Suðureyri:
HRÖPUÐU í BÍL UM 100
METRA OG IÍT í SJÓ!
Ekki hægt annað en flokka þetta með kraftaverkum
f*
■ „Það verður að teljast hreint
kraftaverk að bömin skyldu sleppa
lifandi frá þessunt ósköpum. Bðlinn
fór beint fram af veginum, niður grasi
gróinn hjallann, um fjörtíu metra,
þaðan milli tveggja húsa sem aðeins
eru um sjö metrar á milli. Svo fór hann
út á Aðalgötuna og kiippti þar i sundur
tvö umferðarskilti, sem stóðu á
fjögurra tommu galvaniseruðum álfót-
um, þaðan rann svo biliinn alla leið
niður að sjó og var næstum ónýtur á
eftir,“ sagði Gestur Kristinsson,
hreppsstjóri á Suðureyri við Súganda-
fjörð.
Gestur segir frá sögulegu ferðalagi
tveggja bama, drengs tveggja ára og
stúlku fjögurra ára, sem átti sér stað
siðla á þriðjudag. Voru þau skilin ein
eftir í splunkunýjum Buick bil, meðan
móðir þeirra brá sér inn í hús við
Hjallaveg 31 á Suðureyri. Billinn er
sjálfskiptur og munu börnin hafa
fiktað eitthvað í sjálfskiptingunni með
þeim afleiðingum að bíllinn rann af
stað. Leiðin sem hann fór var frá
húsinu við Hjallaveg 31, niður að húsi
númer 29, yfir veginn og fram af
rúmlega fjörtíu metra háum hjalla,
milli tveggja húsa, sem 7 metrar skilja
að. Þaðan fór bíllinn niður á Aðal-
götu, yfír hana og út á Eyrargötu og
þaðan niður í sjó.
Bíllinn stöðvaðist í fjömborðinu og
er hann talinn næstum ónýtur. En
börnin tvö sluppu alveg ómeidd, nema
hvað að aðeins blæddi úr vörum
drengsins.
„Vegalengdin sem bíllinnfór losar
sennilega góða hundrað metra og
fallið er a.m.k. fjörtiu metrar. Ferðin
á honum var mikil og það er hreint
ótrúlegt að hann skyldi ekki fara á
toppinn, þegar hann fór fram af
hjallanum. Þetta er allt svo ótrúlegt að
ég held að ekki sé hægt annað en að
flokka þetta með kraftaverkum,"
sagði Gestur. - Sjó.
■ Örín bendir á staðinn þar sem
bifreiðin með smábömunum tveimur
fór niður um 40 metra hjalla, síðan á
milli húsanna fyrir neðan og út i sjó.
„Kraftaverk“ segja sjónarvottar.
■ Harðsnúið lið á Dagsbrúnarfundi, þar sem fram kom mikil andstaða gegn nýgcrðum kjarasamningi, scm þó varsamþykktur með 35 atkvæða mumimimynd: eiu ;
Hörkudeilur á Dagsbrúnarfundi um kjarasamningana:
MUNURINN 35 ATKVÆM!
■ Harðar deilur urðu á fundi í
Verkamannafélaginu Dagsbrún síð-
degis í gær, þar sem nýgerður
kjarasamningur var til umræðu. Samn-
ingurinn var þó að lokum samþykktur
með 35 atkvæða mun.
Óánægjan beindist bæði gegn visi-
töluskerðingunni, sem menn telja
hættulegt fordæmi, en einnig töldu
ýmsir sérhópar sig koma verr út úr
samningunum en aðra. Þeirra á meðal
eru lyftaramenn við höfnina, sem
greinilega vildu lyfta launum sínum
hærra.
Gamall Dagsbrúnarkarl sagði eftir
fundinn að það hafi verið gamla
kempan Eðvarð Sigurðsson sem bjarg-
aði þvi að samningarnir voru ekki
felldir. - HEI.
Sjá nánar bls. 3.
Heimilis-
tíminn:
Dagur
í lífi
— bls. 10
Valdatafl í
Washing-
ton
bls. 7
Aðal-
leikkona
„Varúlfs”
— bls. 2
Gróður
og garðar
- bls. 9
HHBH|
. : ' ... .