Tíminn - 04.07.1982, Page 13
SUNNUDAGUR 4. JÚLÍ 1982
LVJ.ií' 1'
■ og FÓRNARLÖMBIN urðu mörg og hræðilega farin.
■ Og á meðan hélt sókn ísraela áfram,
þvert ofan i loforð sem MENACHEM
BEGIN hafði gefið Reagan og Haig...
■ Á cndanum snerist RONALD
REAGAN til fylgis við andstxðinga
Haigs innan Bandaríkjastjómar...
fyrír að Habib staðfesti samkomulagið
margumrædda. (Habib mun reyndar
hafa lagt fram formleg mótmæli gegn
þvi að ísraelum yrði leyft að hafa sina
hentisemi í Líbanon.) Haig leit svo á að
Bandarikjamenn yrðu að standa með
ísraelum gegnum þykkt og þunnt, en á
þá afstöðu höfðu Begin og Sharon,
vamarmálaráðherra ísraels, einmitt
treyst, og svo kunni hann alls ekki vel
við að aðrir en hann væru að vesinast i
málefnum sem hann áleit að heyrðu
aðeins undir sig. En þótt Reagan tæki
undir sjónarmið hans i bili var Clark
ekki einn á báti. Ráðgjafi forsetans,
Edwin Meese, George Bush, varafor-
seti, Weinberger, varnarmálaráðherra,
munu hafa verið þeirrar skoðunar að
stöðva þyrfti ísraela áður en þeir réðust
inn i Beirut og þeim virðist hafa tekist
að sannfæra Reagan - aðeins skömmu
eftir að hann hafði lýst stuðningi við
afstöðu Haigs. Haig varð svo á
fimmtudaginn 24. júní fyrir áfalli þegar
hluti Þjóðfrelsisráðsins i Líbanon sagði
af sér en bæði hann og Begin höfðu
vonað að ráðið myndi geta myndað þá
„sterku stjórn" sem þeir töldu nauðsyn-
lega í Líbanon til að hafa taumhald á
starfsemi PLO í landinu.
Og það varð sving!
En fleira gerðist þennan fimmtudag.
Að kröfu Haigs var haldinn rikisstjórn-
arfundur til að ræða þvinganir Banda-
ríkjamanna gegn fyrirtækjum og rikis-
stjómum sem tækju þátt í lagningu
gasleiðslunnar frá Sovétrikjunum. Þann
18. júni hafði bannið á tæknilegri og
fjárhagslegri aðstoð Bandarikjanna ver-
ið tilkynnt en á nákvæmlega sama tíma
og sú ákvörðun var tekin var Haig i New
York á níu klukkustunda löngum fundi
með Andrei Grómýkó, utanrikisráð-
herra Sovétrikjanna, og i Washington
em fáir í vafa um að timasetningin hafi
verið ákveðin með tilliti til þess að Haig
•væri illa fjarri góðu gamni. Haig snerist
strax öndverður gegn þessari ákvörðun
og áleit hana myndu hafa mjög áhríf á
samband Bandarikjanna og Evrópu en
það samband hefur oft verið betra sem
kunnugt er. Hafa Evrópuleiðtogar enda
gagnrýnt þessa ákvörðun mjög og þeírra
á meðal Margaret Thatcher, sem verður
vart sökuð um linkind í garð Sovétrikj-
anna.
En Haig óskaði sem sé eftir rikis-
stjórnarfundi um málið þann 24. júni.
Reagan sjálfur var ekki viðstaddur
þennan fund, né heldur tveir af áköfustu
andstæðingum Haigs, Weinberger og
Kirkpatrick. Clark var hins vegar
mættur og dyggilega studdur af Ronald
Reagan, fjármálaráðherra, og Malcolm
Baldridge, viðskiptaráðherra. Og það
varð sving!
Fréttamönnum hefur ekki tekist að
afla sér nákvæmra heimilda um hvað
gerðist á þessum fundi en Ijóst er þó að
þar kom til mjög snarpra orðaskipta, að
ekki sé fastar að orði kveðið. Clark sagði
Haig að þetta mál væri frágengið og
hann hefði ekkert yfir því að segja, og
því vildi Haig náttúrlega ekki una. A
endanum mun fundurinn hafa leyst upp
í hávaða og læti og einhverjir jafnvel
beðnir um að hafa sig á brott. Haig hafði
undanfarna daga vcrið að hugleiða að
segja af sér og nú brá svo við að enginn
varð til að telja honum hughvarf.
Reagan hafði þá tekið sér stöðu með
andstæðingum Haigs svo honum þótti
sýnt að hann hefði ekki lengur stuðning
til að gegna sínu starfi.
Reagan líkastur því að
hafa misst náinn ættingja
Að morgni föstudagsins 25. júní sl.
hélt Reagan blaðamannafund þar sem
hann tilkynnti að Haig hefði sagt af sér
og hefði hann, „með trega“, samþykkt
afsögnina. Reagan virtist mjög brugðið
og segja fréttamenn að hann haft verið
líkastur því að hafa misst náinn ættingja.
Hlóð forsetinn Haig lofi og endurtók
nokkrum sinnum hvílíkur missir væri að
honum. Þrátt fyrir allt hefur forsetanum
verið mikill styrkur af Haig, þó ekki væri
nema vegna þess að hann hefur, þvert
■ „og skipaði GEORGE SCHULTZ,
höfund „Reaganomics", í embætti
utanríkisráðherra.
ofan í það sem ýmsir töldu fyrirfram,
skapað sér sæmilegt álit scm utanrikis-
ráðherra - þó flestum beri saman um að
hann hafi verið djarfur fremur en
djúpgáfaður, ákveðinn fremur en hug-
myndaríkur i embætti. Og það var líka
deginum Ijósara að afsögn Haigs myndi
ekki mælast sérlega vel fyrir i Evrópu
en Haig hefur Iagt sig mjög fram um að
bæta samskipti Bandaríkjanna og
Evrópu, eins og þegar hefur vcrið sagt.
Það vakti athygli að aðeins klukku-
stundu eftir að afsögn Haigs var tilkynnt
þá var lýst yfir vopnahléi i Libanon, en
það vopnahlé hefur að visu reynst býsna
brothætt og ekki útséð um hvernig fer,
þegar þetta er tekið saman. ísraelar tóku
afsögn Haigs mjög illa sem vænta mátti
enda fer óðum að þynnast í stuðnings-
mannaliði þeirra innan Bandarikja-
stjórnar, en þeir eiga þó stóra sök á þvi
að upp úr sauð með Haig og andstæðing-
um hans. ísraelar hafa einnig lýst yfir
áhyggjum sinum vegna þess að sá maður
sem Reagan hefur skipað eftirmann
Haigs, George Schultz, er kunnur af
viðskiptum sínum við Arabalöndin, sér
i lagi Sádiarabíu. Schultz er annars sá
maður sem Reagan hafði upphaflega
hugsað sér að skipa utanríkisráðherra,
en Haig varð að Iokum ofan á,
annaðhvort vegna þess að stuðnings-
menn ísraels í valdakerfinu - sem eru
margir og valdamiklir - settu sig á móti
Schultz, eða vegna þess að Reagan taldi
nauðsynlegt að fá i embættið mann sem
hefði nokkra reynslu af milliríkjasam-
skiptum -eins og Haig hafði, að minnsta
kosti umfram Schultz sem hefur aðallega
starfað að efnahagsmálum og kaupsýslu
hingað til, en hann er einn aðalhöfundur
þeirrar efnahagsstefnu sem stjórnin i
Washington fylgir nú og kölluð er
„Reaganomics". Annars er Schultz
talinn hæfur maður og heiðarlegur og í
nýlegri bók sinni sagði Henry Kissinger,
fyrrum utanrikisráðherra i stjórnartið
Nixons og Fords, að ef hann ætti að velja
einn mann til að fela örlög landsins ef
hætta steðjaði að, þá væri sá maður
George Schultz.
Ætlar Haig
í forsetaframboð?
En hver verður framtið Haigs?
Maðurinn hefur ekkert á móti völdum
og aldrei farið dult með að hann telji
sjálfan sig ákjósanlegan forseta Banda-
ríkjanna. Hann tók raunar þátt í
prófkosningum repúblikana fyrir for-
setakosningarnar 1980 en datt fljótlega
út úr myndinni. Eftir þetta er vafasamt
að hann hafi nokkra möguleika árið
1984, ekki minnst vegna þess hvilíkur
gassagangur hefur verið á honum í
embætti utanríkisráðherra, en þó er
aldrei að vita. Að minnsta kosti
hugleiðir leiðarahöfundur The Observer
í Bretlandi um siðustu helgi hvort
afsögnin geti orðið til þess að styrkja
stöðu Haigs vilji hann fara í forsetafram-
boð, hann geti altént haldið þvi fram að
hann hafi sagt af sér fremur en að víkja
af þeirri stefnu sem mörkuð hafði verið
i upphafi. En það hefur hann einmitt
gert nú þegar, er hann sagði við
blaðamenn að hann segði af sér vegna
þess að stjórnin i Washington hefði nú
vikið frá hinni „einbeittu, stöðugu og
sjálfri sér samkvæmu stefnu" sem þeir
Reagan hefðu ákveðið í upphafi kjör-
tímabilsins. En allt þetta verður framtið-
in blessuð að leiða i Ijós.
Svo er bara spurningin hvort salan á
Haig-viskí detti nú niður úr öllu valdi...
- ij tók saman.
Útboð
Tilboð óskast í gatnagerð og lagnir ásamt lögn hitaveitu á Laugarási
milli Vestur- og Austurbrúnar.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, gegn 3.000
kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 21. júli 1982 kl. 11 f.h.
INNKAUPASTOFNUN reykjavíkurborgar
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
Staða sveitarstjóra
í Hafnarhreppi Höfn Hornafirði er laus til
umsóknar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist sveitarstjóra Hafnarhrepps.
Umsóknarfrestur framlengist til 20. júlí n.k.
Hreppsnefnd Hafnarhrepps.
T Útboð
Tilboð óskast i lögn dreifikerfis hitaveitu i Hafnarfjörð 9. áfanga
Hvaleyrarholt 1, fyrir Hitaveitu Reykjavikur.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3, gegn 1.500
kr. skilatryggingu.
Tilboðverðaopnuðásamastaðfimmtudaginn 15. júlí 1982 kl. 11 f.h.
INNKÁUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkj ovegi 3 — Sími 25800
TEKUR
AHÆTT
UNA?
Þú þarft þess ekki lengur þvi
nú getur þú fengið eldtraust-
an og þjófheldan peninga- og
skjalaskáp á ótrúlega hagstæðu verði.
..
W K/NG CROWN
8
Lykill og talnalás = tvöfalt öryggi.
Innbyggt þjófaviðvörunarkerfi.
10 stærðir, einstaklings og
fyrirtækjastærðir.
Japönsk gæðavara (JIS Standard).
Viðráðanlegt verð.
Eldtraustir og þjófheldir.
Japönsk vandvirkni i frágangi og stil.
F EA F m IJ IA N
Kirkjustræti 8. - Sími 19294