Tíminn - 04.07.1982, Qupperneq 21
^tyl'fVPAGlJ R 4. J(ÍXÍ 19$2
___________________________2X
CAV Startarar
Bg2 - Bg7 5. d3 - d6 6. f4 -
e5 7. Rh3 - Rge7 8. 0-0 - Rd4 9. f5!
(Spasskíj lætur peð í skiptum fyrir öflugt
frumkvæði.) 9. - gxf5 10. Dh5! (Nýjung
i þá tíð. Áður var leikið 10. Bg5). 10. -
h6! 11. Hf2! (Góður leikur, bæði til
varnar (c2) og sóknar (f7). Veikleiki
svarts á f-línunni er bót hvíts fyrir
peðið.) 11. - Be6 12. Be3 - Dd7
(Sennilega öruggasti leikurinn, ver hinn
mikilvæga reit f5 og opnar um leið leið
til langrar hrókunar.) 13. Hafl - 0-0-0
14. Rd5! (allt samkvæmt áætlun. Báðir
svörtu riddararnir eru önnum kafnir við
að verja f5 og textaleikurinn, sem hótar
bæði 15. Rxe7+ og 15. c3, bindur
hendur svarts. Hann verður að opna
f-iinuna en eftir það verður þrýstingur
hvitu hrókanna á f7 mjög óþægilegur.)
14. - fxe4 15. Rxe7+ - Dxe7 16. Bxd4
- cxd4
17. Hxf7! (Spasskij fylgir áætlun sinni
mjög fast eftir. 17. - Bxf7 kostar svartan
auðvitað svartreita biskup hans.) 17. -
De8 18. Bxe4 - Hf8 19. Bf5! - Dxf7 20.
Dxf7 - Hxf7 21. Bxe6+ - Hfd7 22. Hf7
- Kc7 23. Bxd7 - Hxd7 24. Hxd7+ -
Kxd7 25. Kg2 - Ke6 (Hvítur stendur
betur að vígi eftir að hrókarnir eru
horfnir til feðra sinna. Nú verður hann
að skapa sér frípeð á kóngsvæng,
jafnframt því að halda kóngi og biskup
svarts í skefjum.) 26. Kf3 - d5 27. Kg4!
- Kf6 28. Kh5 - Bf8 29. Rgl - b5 30.
Re2 - a5 31. g4 - a4 32. h4 - b4 33. b3!
- a3 34. Rg3 - e4! (Hort verst vel. Eftir
35. dxe4 - dxe4 36. Rxe4+ - Ke5
stendur drottningarvængur hvíts svört-
um kónginum opinn.) 35. g5+ - hxg5 36.
hxg5+ - Ke5 37. Kg4 (Möguleikar svarts
nú felast i 37. - e3 38. Re2 - Bg7, en
Hort verður á i messunni.) 37. - Bg7?
38. Rh5 - Bf8 39. g6 - e3 40. Kf3! - Kf5
41. g7 og Hort komst að þeirri
niðurstöðu að frekari barátta væri
þýðingarlaus.
Síðustu árin hefur Spasskij teflt
allmikið en árangur hans er misjafn, þó
aldrei beinlínis slæmur enda hefur hann
um margra ára skeið verið í hópi fimm
stigahæstu skákmanna heims. En stund-
um er eins og letin nái of sterkum tökum
á honum og hann leggur sig ekki allan
fram. Inn á milli teflir hann svo skákir
sem leiftra af fjöri og sókndirfsku. Þessi
skák var tefld á Phillips & Drew mótinu
í London í vor, Seirawan hefur svart.
1. e4 - c6 2. d4 - d5 3. e5 - Bf5 4. h4
- h5 5. c4 - Bxbl?! 6. Hxbl - e6 7. a3
- Rd7 8. Rf3 - g6?! 9. Bg5 - Be7 10.
cxd5 - cxd5 11. Bd3 - Hc8 12.0-0 - Kf8
13. Hcl - Hxcl 14. Dxcl - Kg715. Df4!
- Bxg5 16. Rxg5 - Rh6 17. Hcl - Db6
18. b4 - Hel 19. Hc3 - He7? 20. Hc8 -
Rg8 21. g4 - hxg4 22. h5 - fS 23. exf6
f.h. - Rdxf6 24. De5 - g3
25. Hxg8+! - Kxg8 26. Dxf6 - gxf2+
27. Kg2 - Dc7 28. Dxg6+ - Kf8 29.
Df6+ og Seirawan gafst upp. Eftir 29.
- Kg8 (29. - Ke8 30. Bg6+) getur hvitur
valið milli 30. h6 og 30. Rxe6.
Svo Spasskíj heldur áfram að kæta
skákunnendur. Sjálfur virðist hann
allkátur og ánægður um þessar mundir.
Og þá segir næst frá... Fischer.
-ij tók saman,
þýddi og endursagði.
„Það vinnur eng-
inn með því að
gefast upp!”
■ Litið á þessa stöðu.
(stöðumynd - I)
ÍHí
abcdefgh
Svartur gafst upp; Það er að
sjálfsögðu alveg fáránlegt. Þegar
Bxc8 er eini löglegi leikurinn i
stöðunni þá hlýtur að vera tími tilað
gefast upp seinna. „Það vinnur
enginn með þvi að gefast upp," sagði
Tartakower. Maður verður að hafa
hár á brjóstinu, hugsaði ég þegar ég
sá þessa stöðu í skákblaði nokkru.
En þá uppgötvaði ég að skákin var
tefld á svæðamóti kvenna. Ég ætla
að hlífa lesendum við því sem ég
hugsaði þá!
í blaðinu hafði einhver blaða-
maðurinn rannsakað framhaldið. Ég
skoðaði önnulisu hans og hún var
ekki nógu góð.
Eitt er á hreinu. Svartur hefur
góða möguleika í endataflinu en
kemur allt i einu þessi skák niðri á
c8! Guð minn almáttugur! Adrena-
línið streymir út í blóðið, púlsinn
hækkar úr öllu valdi, eyrun roðna.
En hvers vegna gafst sænska stúlkan
upp? Hvers vegna drap hún ekki
bara á c8 og athugaði svo hvað
gerðist? Sænska stúlkan heitir Ny-
berg en hvítt hafði Podraganskaja,
skákin var tefld i Bad Kissingen i ár
og verður áreiðanlega tekin i
skólabækur sem dæmi um stöður þar
sem annar keppandi gefst upp i
vinningsstöðu.
Annalisa blaðamannsins var
svona: 50. - Bxc8 51. Hxg6+ - Kc7
52. Kxc2? - Bf5+ eða 52. Hg7+ -
Kb8! 53. Kxc2 - h2 54. Hh7 - Bf5+,
og loks, aðeins betra, 53. Bd6+ -
Ka8 54. Hg8 - h2! 55. Hh8 - Hxf2 56.
Hxc8+ - Kb7 57. Hh8 - Hfl+ og
svartur vinnur enn.
Ekki vont en það vantar dálítið.
Hvitur á hinn sterka leik e6, sem
hindrar svarta biskupinn, opnar
hinum hvíta leið (d6-h2) og hótar um
leið að ryðjast upp til e8. Svona leik
verður að sjálfsögðu að beita á
hárréttu augnabliki.
En eftir 52. Hg7+ - Kb8 53. e6 -
Hxf2 54. Bd6+ - Ka8 55. Hg8 - Kb7
56. e7 - Bd7 57. e8=D - Bxe8 58.
Hxe8 - h2, eða það sem betra er: 58.
-a3, og svartur vinnur.
Ég dútlaði dálítið lengur við þetta
en fann ekki jafntefli fyrir hvitan.
Blaðamaðurinn hafði því rétt fyrir
sér, en það vantaði helminginn af
sönnunargögnum hans.
Og athugið að 53. Kxc2 - h2 54.
Bd6+ - Ka8 55. Hg8 nægir heldur
ekki til janteflis.
Tvisvar í sama móti
Allir skákmenn, ungir og gamlir
og af öllum kynjum, þekkja sjokkið
sem þeir verða fyrir þegar andstæð-
ingurinn kemur með óvæntan leik.
Maður hefur vænlega stöðu og svo
kemur dúndurleikur sem virðist
eyðileggja allt! Mörgum er þá skapi
næst að gefast strax upp en það má
aldrei gerast! Sjokkið er oft svo
mikið að það blindar inanni sýn:
athugið stöðuna aftur, alla mögu-
leika. Hér að ofan sáum við stöðu
þar sem svartur átti ekki að gefast
upp. „Fyrir tilviljun" var staða hans
reyndar unnin!
Það sem merkilegast er er að það
sama hafði gerst i fyrstu umferð
sama svæðamóts sem hefði átt að
vera Nyberg þörf lexia.
Litum á hina skákina: Veprek frá
Sviss hefur hvitt en Glaz frá ísrael
svart.
1. e4 - c5 2. Rc3 - Rc6 3. g3
- g6 4. Bg2 - Bg7 5. d3 - d6 6. Rh3 -
Rf6 7. o-o - o-o 8. Rf4 - a6 9. a4 -
Hb8 10. Rfd5 - Rd7 11. f4 - b5 12.
axb5 - axb5 13. Khl -b4 14. Re2 -
Rb6 15. Re3 - Rd4 16. f5 - Bb7 17.
Rg4 - Kh8 18. Rh6 - De8 19. g4 -
Rd7 20.Rxd4 - Bxd4 21. g5 - f6 22.
h4 - e6 23. fxg6 - hxg6 24. gxf6 - Bxf6
25. Dg4 - Re5 26. Dh3 - De7 27. Bg5
- Bxg5 28. hxg5 - Kg7 29. Hxf8 - Hxf8.
Hvítur hefur ekki teflt að ráði illa
en sóknin er vendilega i höndum
svarts.
30. Ha7 - Rc6?
abcdefgh
31. Rf5+!!
31. Hxb7 - Dxb7 32. Dxe6 og hvítur
tapar ábyggilega þegar til lengdar
lætur.
31. - exf5 32. Dh6+ - Kg8 33. Hxb7
(!??)
Rétt var 33. Dxg6+ - Kh8 34. Dh6+
- Kg8 og jafntefli.
33. - Svartur gafst upp !!
En hvers vegna í ósköpunum?
Það er deginum ljósara að svartur
á aðeins einn leik: 33. - Dxb7. Þarf
ekkert að hugsa um það. Og raunar
er alvarlegur afleikur að hugsa málið!
Nú, en höldum þá áfram: 33. -
Dxb7 34. exf5. Nú er 34. - hxf5 35.
Dxg6+ býsna vonlaust, og 34. - Dg7
35. Bd5+ - hf7 36. fxg6 sömuleiðis.
Athugið að hvitur þurfti að nota
svarta peðið á g6 fyrir fléttuna sína!
En - 34. - Dh7! 35. Bd5+ - Kh8
36. fxg6 - Dxh6+ 37. gxh6 og svartur
vinnur! Til greina koma báðir þessir
leikir: 37. - Hg8 og 37. - Hc8! sem
er betri.
En svartur gafst upp
Stean datt út.
Úrslit úr aukakeppninni eftir
svæðamót V-Evrópu urðu þau að
allir fjórir, Englendingarnir Nunn,
Stean og Mestel og Hollendingurinn
Van der Wiel, urðu jafnir, fengu
þrjá vinninga. Þeir kepptu um þrjú
sæti á millisvæðamóti og Stean dettur
út af þvi hann gerði jafntefli i öllum
1 skákum sinum. Nýjar reglur -
frábærar reglur!
Bent Larsen,
stórmeistari,
skrifar um skák
Vorum að fá uppgerða CAV startara fyrir:
Perkins,
G.M.C.
Bedford,
Leister,
L. Rover diesel
Ursus dráttarvélar.
Gott verð. Fyrri pantanir óskast staðfestar.
ÞYRILL S. F.
Hverfisgötu 84,
105 Reykjavik. Simi 29080
Skattskrár
Skattskrár Norðurlandsumdæmis vestra fyrir
gjaldárið 1981 ásamt sölugjaldsskrám fyrir árið
1980 liggja frammi til sýnis dagana 6. til og með 19.
júlí 1982 á eftirtöldum stöðum: í Siglufirði á
skattstofunni, á Sauðárkróki á bæjarskrifstofunni, í
öðrum sveitarfélögum í umdæminu hjá. umboðs
mönnum skattstjóra.
Enginn kærufestur myndast við framlagningu
skránna.
Sigiufirði 2. júlí 1982,
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi vestra.
Bogi G. Sigurbjörnsson.
Innheimtustjóri
Staða innheimtustjóra í Reflavík er laus til
umsóknar. Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 20.
júlí.
Bæjarstjórinn í Keflavík
Hafnargötu 12, Keflavík.
>W!J
||i Bæiarritari
Staða bæjarritara í Keflavík er laus til umsóknar.
Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 12. júlí n.k.
Bæjarstjórinn í Keflavík
Hafnargötu 12, Keflavík
Land-Rover eigendur
Nýkomið á mjög hagstæðu verði:
Öxlar f raman og aftan
Öxulflansar
Hjöruliðskrossar
Girkassaöxlar
Girkassahjól
Fjaðrafóðringar
Hraðamælisbarkar
Hurðarskrár
stýrisendar
Póstsendum.
Bílhlutir h/f
Suðurlandsbraut 24 — Reykjavik
S.38365.
spindlasett
kúplingspressur
kúplingsdiskar
og margt fieira