Tíminn - 04.07.1982, Síða 22
SUNNUDAGUR 4. JÚLÍ 1982
;|
i
INTIMATE
SEXLIVES
OF FAMOUS
18MNG miLACE* AMY V»UAŒ
IWID WiUECHWSKY- SYLVIA WMIA®
MEMOIRS OF
HADRIAN
MARGUKRÍTK
YOURCENAR
fflTWlLDOll
Intoiiígeíit, raoviög amí maluro,, >,
a iour de furœ' ^
wmoitiQ nf
WfllCtlltKL YOU
Margueríle Yourcenar:
Memoirs of Hadrían
King Penguin/Penguin 1982
■ Franski rithöfundurinn Margue-
rite Yourcenar er sennilega litt eða
ekkert þekkt hér á íslandi, en
lesendur Helgar-Timans búa þó að
grein sem leigupenni blaðsins i
Frakklandi, Már Jónsson, skrifaði
fyrir nokkru siðan um hana og verk
hennar. Yourcenar er heldur ekki
ein þeirra sem standa á torgum og
láta mikið á sér bera en margir eru
samt þeirrar skoðunar að hún sé i
hópi merkustu rithöfunda Frakka á
öldinni. Eftir hana liggja bæði
skáldsögur og Ijóð, þessi bók kom
fyrst út árið 1951. Undarlegt verk
sem hún tekst hér á hendur, líkt og
Robert Graves skrifaði sjálfsævisögu
rómverska keisarans Kládiusar skrif-
ar hún sjálfsævisögu Hadríanusar,
ellegar langt bréf. Fyrir henni vakti
að gefa mynd af tímum keisarans og
síðan honum sjálfum, hún segir í
athugasemd aftast i bókinni að hún
hafi vitað vel að henni myndi aldrei
auðnast aö gefa nema miðlungi
nákvæma sagnfræðilega mynd, svo
hún hafi þess í stað einbeitt sér að
því aö skynja þennan tima svo hún
gæti gefið eins sanna „innri mynd“
og frekast er unnt. Bókin, sem þykir
næstum eins og Ijóð að stil og
uppbyggingu, hefur verið mikið
lofuð um mörg lönd og þykir, að
sögn, i hópi hennar bestu. Yourcen-
ar var reyndar fyrsta konan sem
kosin var í Frönsku akademíuna,
1981.
Fay Weldon:
Watching Me Watching You
Coronet/Hodder & Stoughton 1982
■ Nýjasta bók hins umdeilda höf-
undar Praxis, og inniheldur smásög-
ur. Tímaritið Cosmopolitan sagði
um þessa bók: „Enginn lýsir af meiri
krafti en hún kvenlegum hlutum."
En hverjir eru „kvenlegir hlutir“?
Þvi náttúrlega er Fay Weldon, eða
vill vera, prógressívur höfundur og
þykir sýnilega ekki verra að stinga á
nokkrum kýlum jafnframt því sem
hún segir sögur. Þvi miður er það svo
að flestir „kvennabókahöfundar"
hafa gert kýlastungurnar að aðal-
sýslu sinni, en látið sér ómerkari
hluti, eins og bókmennta- og/eða
listgildi i léttu rúmi liggja. Fay
Weldon er stundum á mörkunum en
flestar sögurnar eru þó allvel gerðar
og hér eru fleiri sögur en þær sem
vilja fjalla um konur sem slikar.
Titilsagan er skrýtin draugasaga,
aðalefni hennar að vísu skilnaður og
tvær konur sem hann snertir. Form
þessara sagna er ákaflega klippt og
skorið, enginn óþarfi neins staðar,
og sumar sögurnar eru likastar
kvikmyndahandritum. Raunar hlýt-
ur það aðeins að vera tímaspursmál
hvenær Weldon fer að dunda sér við
slik handrit: kannski þau henti henni
betur...
Irving Wallace, Amy Wallace, David
Wallechinsky & Sylvia Wallace:
The Intimate Sex Lives
of -Famous People
Dell 1982
■ Mikið má vera skemmtilegt
heimilislífið hjá Wallace-fjölskyldunni.
Þetta fólk hefur áður sett
saman Book of Lists og People’s
Almanac, en þessi slær báðar út að
andriki og innblæstri. Ryðjum okkur
beina leið inn i svefnherbergi fræga
fólksins! - þó fyrr hefði verið! Og
það kemur i ljós að: Napoleon og
Wellington sænguðu báðir hjá sömu
konunni og þótti henni Wellington
skárri, þó hún væri frönsk. Eva
Peron átti ástarævintýri með Onass-
is. J. F. Kcnnedy með öllum.
Casanova var ekki ósigrandi. 16
konur höfnuðu honum og 7 sinnum
mistókst honum er á hólminn var
komið. Josephine Baker var ástkona
Gústavs VI Svíakonungs. Byron
lávarður byrjaði niu ára. Laughton
hafði ekki gaman af konum. H. C.
Andersen hafði ekki gaman af neinu.
J. Edgar Hoover dó hreinn sveinn,
en skemmti sér við klámsögur og
ólöglegar kvikmyndir af „frægu
fó!ki“. Sarah Bernhardt svaf hjá í
líkkistu sinni. „Nú veit ég loks hvað
lífið er,“ skrifaði Goya eftir að hafa
krækt i hertogaynjuna af Alba. Og
svo framvegis. Lesiði bara!
Mark Amory (ritstj.):
The Letters of Evelyn Waugh
Penguin 1981
■ Bretar ætluðu alveg að ganga af
göflunum af hrifningu þegar þetta
Bréfasafn rithöfundarins Evelyn
Waugh kom út þar í landi árið 1980.
Waugh, sem var karlkyns (!), lifði
frá 1903 til 1966 og gaf út fjöldan
allan af skáldsögum sem Bretar lásu
flestar hverjar upp til agna og
skemmtu sér dável enda þótti Waugh
jafnan meðal skemmtilegustu og
fyndnustu höfunda þeirra. Nú hefur
hann uppgötvast upp á nýtt með
útkomu Bréfasafns hans og Dagbóka
og gerð frægra sjónvarpsþátta eftir
sögunni Brideshead Revisited. Það
er nú í sjálfu sér enginn vandi að
koma auga á hvers vegna Bretum
hugnaðist þetta Bréfasafn vel.
Waugh er oft á tíðum leiftrandi af
fjöri og prakkaraskap en orðar
einnig mörg hugðarefni Breta þessi
ár. Meðal pennavina hans eru
Graham Greene, John Betjeman,
George Orwell, Nancy Mitford,
Randolph Churchill, Cyril Conolly,
Hugh Trevor-Roper og ristjórar
ýmissa dagblaða og timarita i
Bretlandi, en eins og menn vita eru
lesendabréf í þvi landi öllu merki-
legri en hér. Bókin i heild er
skemmtileg, kannski, en væntanlega
helst við hæfi Breta.
J Bxkurnar hér að ofan eru fengnar i bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar.
Tekið skal fram að hér er um kynningar að ræða en öngva ritdóma.
■ Á þessari öld, og kannski einkum
fyrri hluta hennar, mátti heita að írskir
rithöfundar væru atkvæðamestir i ensk-
um bókmenntum. Fyrstan skal frægan
telja Oscar Wilde, þó hann hafi elst með
afbrigðum il|a, einnig Synge, W.B. •
Yeats, George Bemard Shaw, Joyce,
Beckett.. Listinn er ekki alveg tæmandi.
En það er svo undarlegt að þótt
rithöfundar þessir hafi verið dáðir i
öðrum löndum þá hlutu ekki nema
sumir þeirra náð fyrir augum íra sjálfra.
írland var, og er, ákaflega lokað og satt
að segja þröngt þjóðfélag; mörgum
rithöfundunum sem vildu spreyta sig á
öðmvisi bókmenntum en þar féllu í
krámið reyndist nauðsyn að fria sig að
méstu af landinu og héldu til i útlöndum,
þó flestir þeirra héldu áfram að skrifa
umfram allt úm íra og írland. Þar var
Jóyce fremstur í flokki en enginn þeirra
félaga hefur heldur orðið jafnilla fyrir
andúð landa sinna og hann. Hann rægir
okkur, sögðu frar, hann klæmist og
guðlastar. En nú, þegar hundrað ár em
liðin frá því Joyce gægðist i þennan
heim, er að verða breyting á. Nú vilja
írar njóta snilldar Ódysseifs.
Eins og við sögðum frá hér i blaðinu
á sinum tíma var það 2. febrúar
síðastliðinn sem Joyce hefði átt hundrað
ára afmælið, ef hann hefði lifað, en hann
lést sem kunnugt er snemma árs 1941.
Á afmælisdegi meistarans var jafnan
mikið um dýrðir hjá „hirðinni“ sem
hann hafði um sig en þó ber einn dag
hærra og þann dag notuðu íbúar Dublin
til að minnast hans. Það er að sjálfsögðu
16. júni en þann dag árið 1904 arkaði
Leopold Bloom um götur Dublin,
keypti sér nýra i matinn, var viðstaddur
jarðarför, leit heim til konu sinnar, sem
sjálf hafði ýmislegt að sýsla. Frá öllu
þessu segir Joyce í frægustu bók sinni,
Ulysses, sem aukin heldur mætti vel
teljast i hópi allra frægustu og áhrifa-
mestu bóka þessarar aldar.
■ Meðal þess sem gert var í tilefni af
„Blooms-degi“ var skrúðganga 100
leikara þar sem reynt var að likja eftir
andrúmsloftinu í Dublin þann 16. júni
1904.
■ Joyce. Nú loks hafa Dubliners tekið
hann i sátt - flestir...
Joyce minnst
í Dublin
Bjór - á verði frá 1904?
Irar gerðu margt i tilefni dagsins.
„Það er kominn timi til þess að við
endurgjöldum honum þann heiður og
þá frægð sem hann hefur fært heimaborg
sinni,“ sagði forseti írlands, Patrick
Hillery, og meðal þess sem írska
útvarpið gerði til að endurgjalda þá
skuld var að útvarpa stanslausri dagskrá
þar sem lesið var úr Ulysses og stóð sú
dagskrá i - takk fyrir - þrjátíu og einn
klukkutima. Einnig voru farnar skrúð-
göngur að ýmsum þeim stöðum sem
koma við sögu i Ulysses, svo sem að
Martello tuminum (þar sem nú er safn
til minningar um Joyce), „Moral Pub“
(sem heitir raunar Davy Byrnes), og að
Ormond hótelinu. Ýmis leikhús í
borginni settu hluta úr verkum Joyce
upp á götum úti, listamenn drógu mynd
hans upp á gangstéttir, brú nokkur var
skirð eftir honum og meira en eitt
hundrað leikarar reyndu að endurskapa
einn frægasta kaflann úr Ulysses -
Wandering Rocks epísóduna. Þeir
gengu um götur klæddir förnum frá 16.
júní 1904, höguðu sér í einu og öllu sem
væra þeir samtíðarmenn Leopolds
Bloom og blönduðu geði við nútíma
Dubliners, sem sumir hverjir höfðu litla
hugmynd um hvað var á seyði þó það
hefði að visu ekki átt að fara fram hjá
neinum. Einn leikari var á leið inn á
Ormond hótelið við Liffey ána þegar
mannþröngin stöðvaði hann og heimtaði
að fá að kaupa bjór á hótelinu - á verði
því sem tiðkaðist 1904. „Ekkert veit ég
um Joyce,“ sagði maður nokkur, „en
hitt veit ég að hér er hægt að fá bjór fyrir
túskilding.“
„Hér fæddist
Leopold Bloom...“
Og það segir sig sjálft að Joyce-fræð-
ingarnir lifðu himnasælu þennan dag.
Joyce-fræðingarnir era reyndar annáluð
stétt og fræg fyrir smásmygli sina, enda
er sagt að í bókinni Finnegans Wake
(sem fylgdi á eftir Ulysses) séu að
minnsta kosti jafnmörg rannsóknarefni
fyrir bókmenntafræðinga og aðra grúsk-
ara og stafirnir í bókinni era margir - ef
ekki fleiri! { University College, en þar
gekk Joyce í skóla, vora 600 þessara
furðufugla og ræddu meðal annars
tengsl Ulysses við hebreska stafrófið,
tarotspil, sólarkrossinn og 22an kafla í
bókinni Gargantua eftir Rabelais. Sum-
um þótti þetta komið út i öfgar. „Við
erum að verða fangar eigin fræði-
mennsku." sagði David Norris, sem
skipulagði þessa samkundu, en fáir vora
honum sammála. William Herman,
prófessor frá Bandaríkjunum, sagði
stoltur: „Þetta er næstum eins og
trúflokkur sem fer yfir heilagan texta.
Við eram einsogTalmúdfræðingamir.“
Joyce fór frá Dublin árið 1904 og hélt
eftir það að mestu til á Ítalíu og í
Frakklandi, til Dublin kom hann ekki
eftir 1912. Og Dublin var svo sem alveg
sama. Joyce var fyrirlitinn sem klám-
bókahöfundur og allt fram undir 1970
voru bækur hans helst ekki til sölu í
irskum bókabúðum, nema undir borðið.
Nú reyna Dublinarbúar að bæta upp
fyrir hirðuleysið. í Finnegans Wake er
Liffey áin meðal annars kölluð Anna
Livia Plurabelle og nú hefur Chapelizod
brú á þeirri frægu á verið skirð upp og
heitir eftirleiðis Anna Livia brú. Og
borgarstjórnin lét setja upp skilti við
húsið númer 52 við Clanbrassil stræti þar
sem segir: „Hér fæddist, i imyndun
Joyce, Leopold Bloom í maí 1866,
borgari, eiginmaður, faðir, flakkari."
Aldrei fyrr í sögu Dublin hefur verið sett
upp slikt skilti til að minnast fæðingar
skáldsagnapersónu og núverandi ibúi
hússins, Catherine Higgins, var ekki
alveg með á nótunum. „Ég veit ekkert
um þennan mann,“ sagði hún. „Það man
enginn hér um slóðir eftir honum.“
Aumt ástand í
Eccles Street 7
Ekki era allir írar sammála um að
taka Joyce í sátt. Borgarstjóm Dublin
vildi til að mynda ekki leggja fram nema
sem svarar 22 þúsundum króna til
hátíðahaldanna þann 16. júní og írska
þingið neitaði að taka þátt í að koma á
fót Joyce menningarmiðstöð eða láta
reisa styttu honum til heiðurs. Einkaað-
ilar komu þá til sögunnar. American
Express, sem hefur látið skipuleggja
skoðunarferðir um Dublin skv. bókum
Joyce, hefur nú fengið Marjorie Fitzgib-
bon til að gera styttu af honum sem
koma á fyrir á viðeigandi stað.
Því miður verður það vart við Eccles
stræti númer sjö, en þar bjó Leopold
Bloom. Það hús er nú að hrani komið
og fátt eftir nema útveggirnir. Múrað
hefur verið upp í gluggann þar sem
Molly Bloom var löngum á útkíkk eftir
elskhugum sínum. Þetta auma ástand
hússins veldur mörgum aðdáendum
Joyce áhyggjum. til dæmis fyrrnefndum
Norris sem spyr: „Hver kemur hingað
eftir tuttugu ár ef þá er ekkert eftir sem
minnir þá á Dublin sem Joyce þekkti?“
Öðrum þykir meiru skipta að írar eru
nú i fyrsta sinn famir að lesa Joyce að
einhverju ráði. Anthony Burgess, rit-
höfundur sem m.a. hefur skrifað
nokkrar bækur um Joyce og verk hans,
var að sjálfsögðu mættur i Dublin og
hann lét hafa eftir sér að nú fyrst væri
Joyce eign fólksins en ekki fræðinganna.
Og þó fyrr hefði verið!
- ij endursagði.