Tíminn - 04.07.1982, Síða 25

Tíminn - 04.07.1982, Síða 25
SUNNUDAGUR 4. JÚLÍ 1982 nútfminn Umsjón: Friðrik Indriðason og Viðar Karlsson „ÉG ER PÖNKARI OG SKAMMAST MÍN EKKI FYRIR ÞAД — rætt við Gunnþór Sigurðsson bassaleikara í Q4U ■ „Við höfum lokað okkur af og æft að undanförnu. Við erum að leita að nyjum hugmyndum og útfæra þær. og í leiðinni reynum við að ná saman eins vel og kostur er á“ sagði Gunnþór Sigurðsson bassaleikari hljómsveitar- innar Q4U i samtali við Nútimann. Hljómsveitin Q4U hvarf hér af sjónarsviðinu skömmu eftir útkomu myndarinnar Rokk i Reykjavík en á þeim tíma urðu nokkrar breytingar á sveitinni. Linda og Steinþór hættu en Árni Daníels kom inn. Við þetta breyttist hljóðfæraskipunin og er hún nú trommuheili, synthesizer, bassi og söngur. Nýlega kom hljómsveitin þann- ig skipuð fram á ísafjarðarhátið. Er Q4U hætt að vera pönk-hljóm- sveit? „Nei. Pótt tónlistin sé ekki eins hrá og gróf og hún var þá er ég persónulega pönkari og skammast mín ekkert fyrir það. Sumar hljóms'veitir hafa viljað þvo af sér þennan titil en það viljum við ekki. Ef það þarf á annað borð að gefa þessari tónlist sem við vinnum að núna nafn þá mætti kalla það tölvupönk, en öll lögin sem við erum með í takinu hafa verið unnin með Áma Daníels og við höfum aðeins eitt lag á prógramminu frá því fyrir breytingar á sveitinni og það er lagið Creeps, i annarri útgáfu að sjálfsögðu". Nú hafiði einu sinni komið fram eftir breytinguna, á ísafirði, hvemig voru viðtökurnar? „ísafjörður er svo æðislega ólikur öllu sem maður þekkir hér í Reykjavik, ,Mætti kalia tónlistina tölvupönk" segir Gunnþór Sigurðsson bassaleikari í Q4U. Timamynd Róbert. þetta er eins og að koma í annan heim, á aðra plánetu jafnvel. Að vissu leyti var þetta cins og að vera í stórborg, maður var algerlega einangraður, enginn þekkti mann og maður þekkti engan. Fólkið sem kom til að hlusta á okkur tók okkur vel, með þessum venjulegu undantekningum. Pú veist, einhverjir drukknir slánar sem komu upp að sviðinu og sögðu að maður ætti að pæla i einhverju öðru“. Nú skiíst mér að þið séuð með plötu i smíðum, verður hún ólík fyrri „verkum“ Q4U? „Pað stendur til að gera þessa plötu og hún verður allavega mjög ólík þvi sem fólk býst við af Q4U. Ætlunin er að taka hana upp i Reykjavík og Fálkinn ætlar að gefa hana út en við höfum enn ekki fengið upp hvenær af þessu verður, við vildum helst að það yrði nú um mánaðarmótin." Æfum í dúfnahúsi við Rauðavatn Hvar hafið þið æfingaraðstöðu? „Eftir að hljómsveitin stokkaðist upp fengum við æfingarhúsnæði upp við Rauðavatn, við hliðina á bílakirkjugarð- inum þar. Þetta er nú eiginlega dúfnakofi, dúfurnar eru á loftinu fyrir ofan okkur og þær eru æðislega góðir á- heyrendur... Af hverju...? „... þær kvarta aldrei.“ Aðspurður um hvenær vænta megi að Q4U komi opinberlega fram sagði Gunnþór að það gæti jafnvel orðið nú i júli og þá á Hótcl Borg ásamt Bodies en þetta sé ekki öruggt... „Maður getur alveg tekið upp gömlu tugguna hér um að það vanti stað fyrir hljómsveitirnar.það hefur aðeins verið um Borgina að ræða hingað til og virðingarvert hve hún hefur haldið út lengi og verrið viljugað hleypa hljómsveit um inn hjá sér. „Mér finnst tónlistin hér vera að færast i flatneskju, það eru hættar að koma fram nýjar hljómsveitir sem vekja athygli, fyrir utan Vonbrigði kannski, og það er einmitt út af þessu vandamáli þar sem er staður til að troða upp á.“ Ef við komum aftur að tölvupönkinu, er það ekki hættulegt fyrir hljómsveitina að skipta svona brátt um imynd? „Maður á ekki alltaf að vera að gera eitthvað sem fólkið vill heldur oftar það sem maður sjálfur vill. Það eru alltof margar góðar hljómsveitir sem hafa eyðilagt sig á þvi að vera stöðugt að spila það sem fólkið vill heyra en ekki það sem þær sjálfar hafa viljað spila. Dæmi um þetta er sú lægð sem tónlistin hér virðist vera komin í nú eftir mikla sprengingu undanfarin tvö ár en bað er kannski einnig þvi að kenna að þær hljómsveitir sem komu upp á þessum tima hafa ekki staðið sig nógu vel, af þeirri ástsæðu að þær hafa ekki getað komið fram nógu ört“. - FRI ! 1 ■ Comsat Angels. Stephen Fellows, Kevin Bacon, Andy Peake og Mick Glaisher. „Líkamleg tónlist fyrir ■ Eins og greint var frá í Nútímanum fyrir skömmu mun breska nýbylgju- hljómsveitin The Comsat Angels halda hér tvenna tónleika i Félagsstofnun stúdenta dagana 10. og 11. júli nk. Fyrra kvöldið mun Baraflokkurinn frá Akur- eyri leika með þeim en seinna kvöldið hljómsveitin Vonbrigði. Comsat Angels hafa hlotið góða dóma fyrir flutning sinn og útgefnar skifur i bresku tónlistarblöðunum... sérstaklega fyrir breiðskifu sina „Sleep no more“ sem þeir gáfu út i fyrra en þá höfðu þeir verið í nokkurri lægð árið á undan, eða frá útkomu fyrstu breiðskifu þeirra „Waiting for a miracle" sem kom út 1980. Paul Tickell á New Musical Express likir Comsat Angels við Joy Division, segir þá vera á svipaðri bylgjulengd, og hafi til að bera trausta rokk-rythma sem falli aldrei inn á hefðbundnar slóðir... „þeir leika líkamlega tónlist fyrir innra innra eyrað” eyrað" segir hann m.a. í gagnrýni sinni á „Sleep no more“. Textar beirra þykja nokkuð þungir á stundum, jafnvel neikvæðir, en hinsvegar sjái þeir ávallt ljósið við endann á dökkum ganginum. Sem dæmi um textagerð þeirra félaga látum við fljóta með textann að einu vinsælasta lagi þeirra, titillagi „Sleep no more“. It‘s late but theres no tiredness I can see the city glow And I‘m sure there must be somewhere We can go. ILights cut through the center And the darkness hides its shape I‘d swear it almost could be Another place. When the world is covered over And the stars are shining bright We will make our escape Into the night. í sæti Q97 „Dularfullt og konunglegt er Comsat- 'nljóðið fágæt gjöf. Hið eina góða við Dominion er að þú gast að minnsta kosti heyrt það almennilega" þannig byrjar breski rokkgagnrýnandinn Adam Seet- ing umsögn sina um tónleika Comsat sem þeir héldu i Dominion i London. „Raunverulega var þetta rangur staður fyrir þá, tónlist þeirra er þannig að þú vilt hreyfa þig, ekki sitja í sæti Q97 (takmörkuð yfirsýn) og það skreið bylgja fólks fram að sviðinu er þeir komu fram.“ Sweeting gefur þeim félögum góða dóma fyrir leikinn, á milli þess sem hann bölvar staðnum i sand og ösku, þannig að nýbylgjuaðdáendur hér ættu að fá * eitthvað fyrir sinn snúð á tónleikum Comsat hérlendis, ættu allavega að geta hreyft sig. -FRI

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.